Morgunblaðið - 06.07.2007, Page 25

Morgunblaðið - 06.07.2007, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 25 m við ur.“ efur verið ki nógu hafa færast undan sjávarútvegsráðuneytinu. „Það válega við þetta allt saman er að við höfum talað fyrir allt of daufum eyrum á undanförnum árum og erum í raun komin í mjög krapp- an dans, að okkar mati, vegna þess að ekki hefur verið farið að okkar til- lögum,“ segir Jóhann. Hann bendir á að farið hafi verið nálægt einni milljón tonna af þorski framúr ráð- gjöf Hafrannsóknastofnunar síðan aflamarkskerfið tók gildi 1984 og að- eins einu sinni hafi verið veitt minna en lagt hafi verið til. „Að gera vistun Hafrannsóknastofnunar og tengsl hennar við ráðuneyti eða hags- munaaðila að meginmáli nú þegar við erum boðberar válegra tíðinda finnst mér vera til að dreifa málinu og ég vara við því. Aðalmálið er að einhenda sér í að taka á þessari al- varlegu stöðu sem stofninn er í. Nið- urstaðan getur ekki verið háð út- tektaraðilanum eða sérfræðingunum sem að þessu vinna. Til þess er staðan of skýr. Stofnúttektin á þorski er afar fag- lega unnin, byggð á tiltölulega góð- um gögnum og á í raun ekki að vera meginágreiningsefni í þessari um- ræðu. Að henni lokinni geta menn svo rætt um það hvort rannsókn- unum sé betur fyrir komið með öðr- um hætti en nú er eða hvort stofn- unin sem slík sé vistuð með öðrum hætti. Hér vinnur fólk af metnaði, samviskusemi og mikilli faglegri færni að því að finna út úr því hvað er rétt og hvað er rangt í þessum efnum, að komast að sem áreið- anlegastri niðurstöðu, óháð ann- arlegum hagsmunaáhrifum eða þrýstingi. Ég get ekki ímyndað mér að Hafrannsóknastofnunin kæmi með aðra tillögu þótt hún væri undir öðru ráðuneyti eða Háskóla Íslands. Hins vegar er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að það er varasamt að þessari rannsóknarstarfsemi sé dreift um of á milli margra aðila. Við höfum lagt okkur mikið fram við að koma á fót verkefnum í samstarfi við háskólastofnanir, sem þannig stuðl- ar að nýliðun í greininni. Það hefur borið frjóan ávöxt og er afar mik- ilvægt. Hafrannsóknastofnun starf- ar í mjög alþjóðlegu umhverfi og er ekki í lokuðu boxi á Skúlagötu 4 með einhverjar aðferðir sem sérvitringar hér á bæ einir nota. Hér er hópur sérfræðinga í fremstu röð. Þeir ræða um hlutina, fjalla um og meta með bestu fáanlegu aðferðarfræði sem við teljum að sé í boði. Við erum í miklu samstarfi á vettvangi Al- þjóðahafrannsóknaráðsins, við er- lenda háskóla og rannsóknastofn- anir. Það er því langt því frá að við séum í einhverjum fílabeinsturni að ástunda úrelt vinnubrögð heldur gerum við okkur far um að tileinka okkur það besta sem til er á þessu sviði. Þó svo að því sé ekki að neita að stofnunin hafi búið við vissan fjár- skort þá horfa erlendir sérfræðingar mjög til Íslands vegna þess að menn telja að við stöndum mjög vel að gagnasöfnun og séum að mörgu leyti í góðri stöðu til að iðka þessi fræði betur en víðast hvar gerist. Það kemur meðal annars til vegna þess að við höfum átt ágætt sam- starf við sjómenn og hagsmunaaðila í greininni og þótt stundum blási hvassir vindar um Hafrann- sóknastofnun frá atvinnugreininni og menn greini á um einstaka þætti og túlkun á rannsóknum eru menn almennt sammála um að vísindaleg nálgun sé í raun og veru eina leiðin sem menn geta viðhaft. Það dregur ekki úr mikilvægi þess að þekking í atvinnugreininni sé nýtt með skipu- lögðum hætti. Sjómenn og útgerð- armenn búa yfir gríðarlega mikilli þekkingu og þótt oft vanti heild- arsýn um viðkomandi fiskistofn er mjög mikilvægt að við séum í stöð- ugu og virku sambandi við sjómenn og aðra sem vinna í atvinnugreininni til að tryggja að sú þekking, sem þeir búa yfir, sé alltaf á borðinu hjá okkur. Við höfum ákveðna að- ferðafræði til að nálgast þessa þekk- ingu og í því sambandi má nefna að fiskifræðingur, sem er á vakt í veiði- eftirlitinu, fylgist mjög vel með afla- brögðum á hverjum tíma, hvar veiðist smáfiskur og svo framvegis. Þannig höfum við tengsl við skip- stjórnarmenn víða um land 24 tíma á sólarhring nánast allt árið um kring. Síðan höfum við sett á lagg- irnar samstarfshópa um ákveðna þætti okkar rannsókna þar sem við köllum til skipstjórnarmenn og sér- fræðinga úr atvinnugreininni. Einn virkasti hópurinn er samráðshópur um þorskrannsóknir. Ég hef sagt að það sé enginn fullskapaður fiski- fræðingur til nema hann hafi lært að tileinka sér þá þekkingu sem býr í því fólki sem vinnur við fiskveið- arnar. Hafrannsóknastofnuninni er ætlað að vera hlutlaus rannsóknar- og ráðgjafaraðili, eins konar vörslu- aðili auðlindarinnar fyrir hönd þjóð- arinnar. Okkur er falið að meta ástandið með hlutlausum aðferðum þannig að sjálfbærni fiskistofna sé tryggð. Okkur hefur að mörgu leyti tekist betur til en víða annars stað- ar, ekki síst vegna öflugra tengsla við þá sem stunda sjóinn.“ Hagsmunatengd sýn Jóhann segir að nýleg yfirferð Morgunblaðsins kringum landið endurspegli hlut sem Hafrann- sóknastofnun þekki vel, þ.e. töluvert hagsmunatengda sýn aðila á ástand- ið. Vestfirðingar segi gjarnan að loka eigi fyrir allar netaveiðar og banna veiðar á hrygningarfiski en þeir á suðvesturhorni landsins segi að banna eigi allt smáfiskadráp. „Við teljum að huga þurfi að hvoru- tveggja,“ segir Jóhann og leggur áherslu á mikilvægi þess nú að huga sérstaklega að stóra fiskinum og vernda hann. Stofnunin hafi verið með tillögur 2003 sem hafi gengið mun lengra en stjórnvöld og at- vinnugreinin hafi treyst sér til að fylgja og lagt hafi verið til við sjáv- arútvegsráðherra að aftur verði far- ið yfir þessar og aðrar framkomnar tillögur um verndun þorsks á hrygningartíma til að styrkja stöðu hans. Eins sé mikilvægt að vernda smáfiskinn því mjög miklu skipti að ungur fiskur fái að bæta við sig þyngd. Þorskur frá þriggja til fjög- urra ára aldri bæti við sig 80 til 100% af þyngd á milli ára að teknu tilliti til náttúrulegra affalla og þorskur frá fjögurra til fimm ára aldurs þyngist jafnvel um 40 til 50%. „Það er mjög óskynsamlegt að veiða fisk þegar hann er ungur og við vilj- um hafa ákveðið hlutfall af stórum, gömlum fiski í stofninum til að auka líkurnar á góðri nýliðun. Við það að minnka veiðiálagið fæst hærra hlut- fall af eldri fiski og uppvaxandi ár- gangar af ungfiski verða betur nýtt- ir.“ Stofn og breidd Jóhann leggur áherslu á að tillaga Hafrannsóknastofnunar um 130 þúsund tonna þorskkvóta snúi að því að byggja upp hrygningarstofn- inn og fá meiri aldursbreidd. 2001- árgangurinn ætti að vera að koma á fullum þunga inn í veiðina en hann sé mjög lítill og því muni veiðistofn- inn minnka strax á næsta ári. Þess vegna sé mikilvægt að draga úr sókninni svo efniviðurinn í stofn- inum á komandi árum fái að gefa af sér það sem hann geti. Að sögn Jóhanns skipta 40 til 50 þúsund tonn til eða frá mjög miklu máli við ákvörðun aflamarksins. Eins og aflareglan hafi verið út- hugsuð hafi verið stefnt að því að það gæti orðið hófleg eða skyn- samleg nýting til langs tíma litið að veiða 25% af viðmiðunarstofni á hverjum tíma, ef stofninn væri í góðu ásigkomulagi. Af ýmsum ástæðum hafi framúrkeyrslan orðið um 20%. Með því að taka 160 þús- und tonn væri verið að veiða um 27% af veiðistofninum. „Að veiða 150 til 170 þúsund tonn núna er ávís- un á versnandi stöðu á komandi ár- um.“ steinthor@mbl.is ninn í kröppum dansi Morgunblaðið/Sverrir sson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir tillögur stofnunarinnar snúast um framtíðina, að byggja upp stærri stofn og meiri breidd. & !  # '66789::; MQ+6%9!!HF4 0! '"! H7!0 0"!' ."! & J6%+,!(06"  %! . !'@! %%! '!0J6".7!0( 0".EEGRH EEE H H; H HG  "!%+ (''!" !!++(6!K,+7!' >&   1 #    '66'/ '66</ 9:::  9::= '66' '66< 9::: 9::=    '6<<89::=  EG EF EF EE EE H H M!0 0!EEGRH !" 7+Q0 . 6+Q!6&M4 .$%0J6%+5 ,!(06"  %! . !,900& #7!,90087.8(0+/+ 0".I 6 %! '!+/+ 0".7!0( 0".%!7 HRH< ++(0"!.666. 6. '"6" 67+0 Q!!$+"%++%' 6 ! + ! 46 +6"'+C'"!7 !'! @+6"   & !  #  +     <<89::=  EG EF EF EE EE H H Í FRÉTTASKÝRINGU í Morgunblaðinu í fyrradag kom fram að líklegt væri að brottkast skipti þúsundum, jafnvel tugþúsundum tonna, á ári og veiði á þorski væri um 40 þúsund tonnum meiri en heimildir væru fyrir. Jóhann segir að Hafrannsóknastofnun ásamt Fiskistofu hafi reynt að áætla brottkast og 2005 hafi brottkast þorsks verið 1,27% af lönduðum afla eða talsvert meira en 2002 til 2004 en minna en 2001. Niðurstöð- urnar bendi til þess að brottkastið sé nokkur þúsund tonn en ekki tugir þúsunda tonna. „Ef þetta er rétt niðurstaða hjá okkur hefur brottkastið ekki áhrif á meginniðurstöðu okkar en öðru gegnir sé það verulega meira, og sama á við um ólöglegan afla,“ segir Jóhann. Hann bætir við að brottkast á smáfiski gæti verið hluti af vægu ofmati undanfarin ár en brottkast og ólöglegur afli þurfi að vera stórfelld til að það hafi áhrif á stofnmatið, einkum að það hafi breyst með kerfisbundnum hætti und- anfarin ár. „Ég hef ekki ástæðu til að ætla annað en að sjómenn og út- vegsmenn séu eins og aðrir Íslendingar, löghlýðið fólk upp til hópa.“ Sjómenn og útgerðar- menn löghlýðið fólk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.