Morgunblaðið - 06.07.2007, Page 48
FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 187. DAGUR ÁRSINS 2007
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
www.ostur.is
Grill og ostur
– ljúffengur kostur!
KOMINN Í
VERSLANIR
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Stúlku dæmdar bætur
Mannréttindadómstóll Evrópu
hefur dæmt níu ára gamalli fjölfatl-
aðri íslenskri stúlku tæpar 6,4 millj-
ónir króna í skaðabætur og rúmlega
1,5 milljónir króna í málskostnað þar
sem brotið var gegn réttindum
stúlkunnar þegar Hæstiréttur
fjallaði um skaðabótamál hennar
gegn Landspítala – háskólasjúkra-
húsi. »Forsíða og 8
Engin lækkun strax
Davíð Oddsson, formaður banka-
stjórnar Seðlabankans, sagði í gær
útlit fyrir að verðbólgumarkmið
næðist síðar en áður var talið mögu-
legt. Jafnframt sagðist Davíð telja
allt benda til að stýrivextir lækkuðu
ekki fyrr en á fyrri helmingi næsta
árs. »15
Herinn áfram í Írak
Varnarmálaráðherra Ástralíu,
Brendan Nelson, segir það geta
reynst afdrifaríkt ef herlið
bandamanna verður í skyndi kallað
heim frá Írak, það geti valdið því að
olíulindir á svæðinu falli í óvina-
hendur. »16
SKOÐANIR»
Forystugreinar: Afríkuferð utanrík-
isráðherra | … rök símafyrirtækja?
Staksteinar: Allir skúrkar?
Ljósvakinn: Hopp og hí
UMRÆÐAN»
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Björgvin G. biðlar til hægri
arms Framsóknar
Enginn styður krókaveiðar
Porsche á þeysireið
Lítill Fiat, miklar vonir
Tilþrif á frönsku fornbílauppboði
BÍLAR»
6
"
: # -
)
;
! /
/ / / /
/ / /
/
/ / / /
/ / +
<'8 #
/
/ / / / / / / /
=>11?@A
#BC@1A.;#DE.=
<?.?=?=>11?@A
=F.#< <@G.?
.>@#< <@G.?
#H.#< <@G.?
#9A##.! I@?.<A
J?D?.#<B JC.
#=@
C9@?
;C.;A#9)#AB?1?
Heitast 18 °C | Kaldast 8 °C
Austan 3-8 m/s.
Rigning með köflum
sunnan til en skýjað N-
lands. Fer að rigna
NA-lands með kvöldinu. »10
50 ár eru liðin frá því
að tveir síðhærðir
ungir menn leiddu
saman hesta sína,
þeir Lennon og
McCartney. »43
TÓNLIST»
Besta rokk-
tvíeykið
TÓNLIST»
Söngsveitin Luxor lítur
dagsins ljós. »41
Söngvarinn Andrea
Bocelli heldur tón-
leika í Egilshöll í lok
október ásamt
hundrað manna
fylgdarliði. »44
TÓNLIST»
Ítalskur
stórtenór
FÓLK»
Söngkonan Christina
Aguilera er ófrísk. »44
ÍSLENSKUR AÐALL»
Bjarni Ara er aðals-
maður vikunnar. »44
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Bjarni þurfti lögreglufylgd
2. Ofbeldi Britney …
3. Foreldrar fagna niðurstöðu …
4. Yfirlýsing frá ÍA
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
ÞAÐ MÁTTI vart á milli sjá hvort
lék stærra hlutverk, tónaflóðið eða
aurflóðið á fyrsta degi tónlistar-
hátíðarinnar í Hróarskeldu, en að
sögn danskra netmiðla sló rigning
gærdagsins öll met. Aðsókn var
lítil í samanburði við fyrri ár en
engu að síður mikil miðað við veð-
ur og aðstæður, að sögn kunn-
ugra. Spáð er minni rigningu í dag
og rofa á til á morgun.
Björk gerði mikla lukku
Gestir gerðu sitt besta til að
njóta tónleika kvöldsins en loka-
hnykkur dagskrárinnar var tón-
leikar Bjarkar á appelsínugula
sviðinu. Hún steig á sviðið klukkan
22 að dönskum tíma. Var það mál
Íslendinga á hátíðinni að Björk
hefði staðið sig með ágætum, eins
og von var til. Freyr Sævarsson,
tvítugur nemi, var á svæðinu.
Hann sagði tónlist Bjarkar fara
ágætlega saman við dyn rigning-
arinnar, þar sem hann stóð í vað-
stígvélum og regnkápu og hlýddi
á. Hápunktur kvöldsins að hans
mati voru þó tónleikar The Arcade
Fire. „Það eru bestu tónleikar sem
ég hef séð!“ kallaði hann í símann.
Ingveldur Geirsdóttir, blaða-
maður Morgunblaðsins, er á hátíð-
inni. Hún segir veðrið slá öllu öðru
við, hið árlega stórviðri á þjóðhá-
tíð Eyjamanna megi sín lítils í
samanburðinum. „Kvöldið var þó
mjög gott hvað tónlistina snerti.
The Killers voru alveg frábærir.
Þegar góð tónlist hljómar gleymir
fólk stund og stað og skemmtir sér
vel. Þarna dansaði fólk berfætt í
bleytunni og einstaka gleðimaður
velti sér jafnvel upp úr svaðinu,“
sagði Ingveldur.
Hark að komast af svæðinu
Að dagskránni lokinni var mikið
hark að komast út af hátíðarsvæð-
inu, en margir höfðu pantað sér
gistingu í Kaupmannahöfn til að
forðast leðjubaðið. „Leigubíl-
stjórar rukka margfalt, strætis-
vagnar fyllast strax og leigubíl-
araðir eru mjög langar,“ sagði
Ingveldur og bætti við: „Ég er að
upplifa leðju á alveg nýjan hátt
hér í dag. Þegar fólk mætti á
svæðið voru hér vænir pollar en
nú eru þeir orðnir að stöðuvötn-
um.“ | 44
Eðja og tónlist í bland
Regnið buldi látlaust á gestum Drullupollar urðu að
stöðuvötnum að kvöldi Björk lék við góðar undirtektir
Reuters
Ástand Tjöld voru sögð útötuð í aur í gærkvöldi og töldu þeir sem tal náðist af að flætt hefði inn í flest þeirra. Sól-
in skein á þessa gutta áður en úrhellið byrjaði, en áður en yfir lauk hafa þeir vísast orðið blautir upp fyrir eyru.
Úrhelli á fyrsta degi Hróarskelduhátíðar
Reuters
Hápunktur Björk var lokaatriðið á
stærsta sviðinu, því appelsínugula.
NOKKRIR fangar á Litla-Hrauni
gengu í skrokk á einum samfanga
sínum á miðvikudag og fótbrutu
manninn. Að sögn Valtýs Sigurðs-
sonar, forstjóra Fangelsismálastofn-
unar, fer nú fram lögreglurannsókn
á málinu og vildi hann ekki tjá sig
frekar í gær.
Egill Rafn Sigurgeirsson, yfir-
læknir á heilsugæslusviði Heilbrigð-
isstofnunar Suðurlands, sagði að
samráð hefði að venju verið haft við
bæklunardeild Landspítalans.
„Við sendum röntgenmyndir sem
við tökum með rafrænum hætti beint
á bæklunardeildina í Fossvogi,“
sagði Egill Rafn. „Maðurinn er brot-
inn á öðrum fæti, brotið er í hné.
Þetta er náttúrlega slæmt brot og
þarf að laga það með aðgerð. Mat
manna var að nægilegt væri að setja
hann í gifs, fyrst og fremst til að
draga úr sársauka. Hann gæti þá
beðið á Litla-Hrauni eftir aðgerð í
Reykjavík. Aðgerðin átti að vera í
dag [fimmtudag] en vegna anna fer
hann líklega í aðgerð á morgun.“
Fótbrutu
samfanga á
Litla-Hrauni
Þarf að fara í aðgerð
á bæklunardeild
LANDHELGISGÆSLAN var að
undirbúa leitarflug við Austurströnd
Grænlands laust eftir miðnættið í
nótt. Grænlenskur 27 feta fiskibátur
óskaði eftir hjálp því skipstjórinn
vissi ekki hvar hann var. Skipstjór-
inn var þó í talstöðvarsambandi við
Grænland og gat því að einhverju
leyti gert grein fyrir ferðum sínum.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust frá stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar var mjög líklegt að báðar
Super Puma-þyrlur Gæslunnar yrðu
sendar í flugið. Ekki var hægt að fá
upplýsingar um það að svo stöddu
hversu langt flugið yrði eða hvers
vegna báðar þyrlurnar yrðu sendar.
Super Puma-þyrlur hafa flugþol allt
að fimm klukkustundum.
Útkall hjá
Gæslunni
♦♦♦