Morgunblaðið - 31.08.2007, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 31.08.2007, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 236. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is TVÆR STJÖRNUR LEIKSTJÓRADÆTURNAR HERA OG TINNA LEIKA Í VEÐRAMÓTUM >> 43 GÓÐ HEILSA 48 SÍÐNA BLAÐ UM HEILSU OG LÍFSSTÍL FRÉTTASKÝRING Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is DEILUR um styttingu náms til stúdentsprófs úr 4 árum í 3 fóru vart fram hjá neinum. Eftir mikil mót- mæli margra kennara og nemenda dró menntamálaráðherra úr áherslu sinni á málið og hefur það legið í nokkurri biðstöðu. Á sama tíma sjást í auknum mæli merki þess að margir grunnskóla- nemar hafa getu til að hraða námi sínu. Stór hluti nemenda lýkur áföngum á framhaldsskólastiginu í fjarnámi eða öðrum leiðum og nú bjóða ýmsir bekkjakerfisskólar nemendum sem lokið hafa 9. bekk að hefja nám á framhaldsskólastigi. Þetta hefur verið reynt í tvö ár í MA með góðum árangri og skólar eins og MR og Verslunarskólinn ætla að reyna þetta í ár. Þótt þessar leiðir skapi sveigjan- leika í námi og komi í veg fyrir að mörkin á milli skólastiga þrengi að námsþorsta nemenda grunnskólans telja þeir sem að málefnum fram- haldsskólans koma vart raunhæft að segja að um raunverulega almenna styttingu sé að ræða. Þeir nemendur sem taki framhaldsskólaáfanga á meðan þeir ljúki grunnskólanáminu nái sjaldan að flýta meira fyrir sér en um eina önn og það sé nokkuð rót- tækt stökk að nemendur úr 9. bekk fari beint í framhaldsskóla – þótt margir viðurkenni að töluverð skör- un sé á námsefni 10. bekkjar grunn- skólans og 1. ársins í framhalds- skóla. Á þessum aldri þurfi aðhald og hvor leiðin sem sé farin þurfi mikið samstarf skólayfirvalda og foreldra til að möguleikarnir nýtist nemend- um. Þetta atriði bentu einmitt þeir á sem vildu heldur að litið yrði til framhaldsskólans þegar leitað væri að möguleikum á styttingu náms. Eðlilegra væri að stytta námið þar sem nemendur væru sjálfstæðari og námið sveigjanlegra en að taka nem- endur úr öryggi grunnskólans. Morgunblaðið/Kristinn MR Nemendur sem voru í 9. bekk í fyrra stunda nám í MR í ár. Nemend- ur flýta náminu Er um raunverulega styttingu að ræða? Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is BORUN í holu númer 4 á Þeistareykjum lauk um sl. helgi og að sögn Tryggva Finnssonar, formanns At- vinnuþróunarfélags Þingeyinga, er talið víst að hún sé öflugasta hola sem boruð hafi verið á svæðinu til þessa. Undirbúningur að holu númer 5 er þegar í gangi. Talið er að búið sé að tryggja um tvo þriðju þeirrar raforku sem fyrri áfangi væntanlegs álvers Alcoa á Bakka við Húsa- vík, um 125 þúsund tonna verksmiðja, þarf. „Fyrsta áfanga lauk sl. haust, þetta voru frumrann- sóknir og þær gengu mjög vel,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings. „Sama var að segja um annan áfanga og nú erum við komin í þriðja og lokaáfanga verkefnisins, ákvarðanatökuna sem gæti orð- ið næsta vor. Þetta hefur allt gengið að óskum, ekkert bendir til að þetta sé ekki fýsilegur kostur.“ Bergur segir aðspurður að verið sé að vinna að und- irbúningi umhverfismats, byggja þurfi stórskipahöfn og leggja veg frá hafnarsvæðinu yfir á Bakka sem er um þrjá kílómetra frá Húsavík. Hann er spurður hvort menn telji sig vera í samkeppni við sveitarfélög á suðvestur- horninu þar sem einnig eru áform um álver. „Samkeppni og samkeppni, þetta snýst náttúrlega um losunarheimildir sem verður úthlutað í haust. En við höf- um tekið þann pól í hæðina að vinna alfarið eftir þeirri viljayfirlýsingu sem skrifað var undir og ekki haft okkur mikið frammi í fjölmiðlum. Vinnan hefur gengið mjög vel og ég held að við náum að fylgja þessu eftir.“ Boranir auka líkur á álveri Í HNOTSKURN »Í fyrstu var talið að jarð-hitasvæðið við Þeistareyki væri um 19 ferkílómetrar en nú er talið nær víst að það sé um 50 ferkílómetrar. Að auki er gert ráð fyrir að hægt verði að nota orku frá Kröflu og fleiri svæðum í Þingeyjarsýslum. »Sveitarfélagið Norðurþingog iðnaðarráðuneytið hafa þegar undirritað viljayfirlýs- ingu við Alcoa um 250 þúsund tonna álver fáist til þess nægi- leg orka. Eftir boranir sumars- ins er búið að finna gufu sem nægir til að framleiða um 150 megavött. Kostnaður við leitina á þessu ári verður um 1.500 milljónir króna. Sveitarstjóri Norðurþings segir mikla orku hafa reynst vera á Þeistareykjum og er bjartsýnn á að tekin verði ákvörðun um álver Alcoa á Húsavík næsta sumar Þeistareykir Jarðhitaorkan á svæðinu mun duga mikl- um hluta mögulegs álvers á Bakka við Húsavík. FÆRRI hrefnur virðast halda sig á ákveðnum svæðum við Ísland, samkvæmt því sem kemur fram í bráða- birgðaniðurstöðu úr hvalatalningum í sumar. Að sögn hvalasérfræðings á Hafrannsóknastofnun má að öllum líkindum rekja fækkunina til breytingar á lífríkinu, s.s. skorts á sandsíli, en fækkunin virðist einkum hafa verið á svæðum þar sem sandsíli er meginuppistaðan í fæðu hrefnunnar. Spurður út í hvort veiðar geti haft einhver áhrif segir Gísli Víkingsson hvalasérfræðingur það afar langsótta skýringu. „Það er algjörlega útilokað að [veiðarnar] hafi höggvið einhver þau skörð í stofninn sem hafi valdið þessu.“ | 11 Minna af hrefnu á svæðum við landið Gísli Víkingsson Epli, gulrætur og enginn viðbættur sykur! Aðeins 46 hitaeiningar í 100 g heilsa og lífsstíll 31 | 08 | 2007 FÆREYSKA söngkonan Eivör Pálsdóttir hélt tónleika fyrir fullu húsi í Austurbæ í gærkvöldi. Tón- leikarnir voru liður í Jazzhátíð í Reykjavík og lék Stórsveit Reykja- víkur undir hjá söngkonunni. Eivör spjallaði við áheyrendur á milli laga og var stemningin ljúf og góð. Tvennir tónleikar verða á djasshátíð í kvöld. Fyrst heldur Sig- urður Flosason saxófónleikari tón- leika í Iðnó kl. 20 en gestir Sig- urðar á tónleikunum verða þau Ragnheiður Gröndal, Egill Ólafs- son, Kjartan Valdemarsson, Pétur Östlund, Jón Páll Bjarnason og Þórir Baldursson. Kl. 22 hefst svo gítarveisla Björns Thoroddsen á NASA en fjölmargir góðir gestir koma fram á tónleikunum. Djasshátíð lýkur svo á morgun með tónleikum á Jómfrúnni annars vegar og NASA hins vegar.Morgunblaðið/Sverrir Fullt hús hjá Eivöru

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.