Morgunblaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR
DAGSKRÁIN
í KVÖLD
31. ágúst
29. ágúst -
1.september
2007
Kl 17 – TJARNARBÍÓ
Jazzbíó kl. 5
STRAIGHT NO CHASER
THE THELONIUS MONK STORY
Kl 20 – IÐNÓ
Bláir söngvar/
Bláir skuggar
Sigurður Flosason
og félagar
Kl 22 – NASA
Gítarveisla
Björn Thoroddsen
og sérstakur gestur
Larry Coryell
Ókeypis fyrir miðahafa á atburði jazzhátíðar
ATH! Bre
ytt
staðsetn
ing
ALLIR ELSKA JAZZ!
VISKASTYKKI skreytt áprent-
uðum myndum eftir van Gogh má ef-
laust finna í mörgum eldhúsum.
Sjaldgæfari eru
aftur á móti
viskastykki sem
listamaðurinn
sjálfur málaði á.
Nýleg rann-
sókn, unnin af
Louis van Til-
borgh í van Gogh
safninu í Amst-
erdam, varpar
ljósi á verk eftir listamanninn sem
ekki eru máluð á striga.
Seint á ferli var Gogh varð hann
uppiskroppa með striga og notaði þá
hvað sem hann kom höndum yfir til
að mála á, stundum málaði hann yfir
unnin málverk og stundum notaði
hann pappír og klúta.
The Art Newspaper hefur uppi
getgátur um það að borðklútarnir og
viskastykkin sem hann notaði hafi
verið úr hæliseldhúsinu í Auberge
Ravoux þar sem hann dvaldist sein-
ustu ævidaga sína.
Þessu ber saman við bréf sem van
Gogh skrifaði bróður sínum 16. nóv-
ember 1889 þar sem hann biður um
nýjan lager af striga sem kom ekki
til hans fyrr en viku seinna, en það
var um mitt ár 1890 sem van Gogh
lést.
Van Gogh málaði aðeins á klúta í
neyð en þau olíumálverk sem eru til
á viskastykkjum voru flest máluð á
svipuðum tíma.
Fátækt van Gogh varð til þess að
hann skorti oft efni til að sinna list
sinni.
Í þessum mánuði uppgötvuðu list-
fræðingar týnt van Gogh verk, Wild
Vegetation, falið undir öðru verki,
The Ravine, í Museum of Fine Arts í
Boston. Það var málað í júní 1889.
Verkið fannst með röntgen-
myndatöku en Gogh málaði þau á
með fjögurra mánaða millibili.
Málaði
á klúta
Van Gogh málaði
á fleira en striga
Van Gogh
Í SUÐSUÐVESTRI verður
opnuð í dag sýning Unnars Arn-
ars J. Auðarsonar, Coup d’Etat.
Unnar hefur leitað sér efni-
viðar í Byggðarsafni Reykja-
nesbæjar og á sýningunni má
sjá brotabrot úr sögu bæjarins
setta í nýtt samhengi. Þar verð-
ur hlutum úr byggðarsafninu
stillt saman við hluti úr einka-
safni Unnars. Þannig verður til
sýning sem kallast á við sögur
úr fortíðinni en um leið myndast lítil rifa til að sjá
inn í hugsanlega framtíð.
Sýningin verður opnuð kl. 17 og stendur til 7.
október. Suðsuðvestur er til húsa á Hafnargötu 22.
Myndlist
Leitaði efniviðar
í byggðarsafninu
Ljósmynd frá
Reykjanesbæ.
Á NASA í kvöld kl. 22 munu
nokkrir af helstu gítarleik-
urum þjóðarinnar koma saman
ásamt bandarísku goðsögninni
Larry Coryell. Þetta eru:
Björn Thoroddsen, Guð-
mundur Pétursson, Björgvin
Gíslason, Halldór Bragason,
Ólafur Gaukur, Ómar Guð-
jónsson, Jón Rafnsson og Jó-
hann Hjörleifsson á trommur.
Í Iðnó kl. 20 leikur Sigurður
Flosason lög af nýútkomnum diski; Bláir skuggar
og flytur glæný lög við texta Aðalsteins Ásbergs
Sigurðssonar með aðstoð söngvaranna Egils
Ólafssonar og Ragnheiðar Gröndal.
Tónlist
Mikið um að vera
á Djasshátíð
Björn Thoroddsen
gítarleikari.
SÝNINGIN AFTUR, Ljósa-
nætursýning Listasafns
Reykjanesbæjar, verður opnuð
í dag. Um er að ræða ljós-
myndir eftir Einar Fal Ingólfs-
son þar sem hann gerir æskuár
sín í Keflavík að myndefni. Yf-
irskrift sýningarinnar er: „Ég
sneri aftur til bernskuslóðanna
og mátaði minningar við raun-
veruleikann. Sumt er breytt,
annað síður. Og sumir eru enn
til staðar.“ Sýningin AFTUR er í Listasal Lista-
safns Reykjanesbæjar í Duushúsum og stendur til
14. október, opið alla daga frá kl. 13–17:30 og að-
gangur er ókeypis
Myndlist
Einar Falur gerir
æskuárunum skil
Einar Falur
Ingólfsson
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
„ÞETTA er farsi með öllu tilheyr-
andi; skemmtilegum persónum,
hraðri atburðarás, misskilningi,
hurðaskellum, óvæntum uppákomum
og öllu því sem góður farsi hefur uppá
að bjóða,“ segir Steinunn Knúts-
dóttir, leikstjóri Líks í óskilum, sem
frumsýnt verður á Litla sviði Borg-
arleikhússins á morgun, laugardag.
Höfundur verksins, Anthony Neil-
son, er vel þekktur. Hann er einnig
höfundur verksins Ófagra veröld sem
sýnt var í Borgarleikhúsinu á síðasta
leikári. Hann er skoskur, tilheyrir
uppreisnarkynslóð leikritahöfunda,
að sögn Steinunnar.
„Verkið er fyrst og fremst farsi, en
þar sem Neilson er svo mikill snill-
ingur laumar hann inn umfjöllunar-
efnum sem eru óvenjuleg í þessum
tegundum leikrita. Við erum að hlæja
að tabúum,“ segir Steinunn en vill þó
ekki láta of mikið uppi um söguþráð-
inn.
Þó er trúlega óhætt að ljóstra því
upp að Lík í óskilum fjallar um tvo
lögreglumenn sem fá það hlutverk að
boða eldri hjónum váleg tíðindi á að-
fangadagskvöld. Vegna misskilnings
reynist löggunum ómögulegt að
koma fregnunum til skila og upp
hefst mikill handagangur í öskjunni.
Mikil tæknivinna
„Ég hefði varla þurft að vera á æf-
ingatímabilinu, svo miklir snillingar
eru leikararnir,“ segir Steinunn hóg-
vær um aðalleikara sýningarinnar.
„Þarna er landsliðið í gamanleik,
Laddi, Eggert Þorleifsson, Helga
Braga, Halldóra Geirharðsdóttir og
Þór Tulinius. Svo eru þarna tveir ný-
liðar ef svo má segja, en þau Aðal-
björg Árnadóttir og Jörundur Ragn-
arsson hafa bæði mikla hæfileika í
gamanleik.“
En hvernig er að leikstýra farsa?
Er ekki mikið utanumhald þar sem
verkið snýst um nákvæmar tímasetn-
ingar og annað í þeim dúr?
„Þetta er mikil tæknivinna,“ full-
yrðir Steinunn. „Maður situr graf-
alvarlegur úti í sal og þarf að kryfja
hvert atriði fyrir sig, hvort það sé
ekki örugglega nógu fyndið. Það þarf
að vera meðvitaður um öll smáatriði.
Þetta er eins og tónlist, allir tónarnir
verða að passa saman.“
Farsinn verður
alltaf að vera til
Lík í óskilum er sem fyrr segir
frumsýnt á morgun en það er ekki í
fyrsta sinn sem það er sýnt áhorf-
endum hér á landi.
„Við forsýndum sýninguna í vor.
Það var mjög gott því þá fengum við
strax tilfinningu fyrir viðbrögðum
áhorfenda,“ segir Steinunn og segir
þessa aðferð vera notaða í sífellt
meira mæli í leikhúsinu.
„Við byrjuðum að æfa í byrjun apr-
íl í átta vikur og svo snyrtum við sýn-
inguna til núna í haust.“
Farsinn er gamalt sýningarform í
leikhúsinu. Finnst Steinunni hann
alltaf eiga við?
„Já, Guð minn góður, farsinn verð-
ur alltaf að vera til,“ segir hún. „Hlát-
urinn er svo mikið meðal. Læknar
ættu að gefa út lyfseðla á miða í leik-
húsið. Ég er alveg til í samstarf við
heilbrigðiskerfið,“ segir Steinunn að
lokum og bætir við að sýningin sé
tilbúin, aðstandendur hlakki bara til
að hitta áhorfendur.
Hláturinn er meðal
Farsinn Lík í óskilum verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu á morgun
Verkið er eftir Anthony Neilson, höfund Ófögru veraldar
Fyndið Leikstjórinn Steinunn Knútsdóttir segir leikara og leikkonur Líks í óskilum svo hæfileikaríka að hún hefði
hæglega geta sleppt því að mæta á æfingar. Leikritið verður frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins á morgun.
MÁLÞINGIÐ Ástin til landsins og
hafsins fer fram á Höfn í Hornafirði
á morgun. Þar verður fjallað um
Guðjón Sveinsson rithöfund á Breið-
dalsvík en blásið er til málþingsins í
tilefni þess að Guðjón varð sjötugur
fyrr á árinu og á um þessar mundir
fjörutíu ára höfundarafmæli.
Meðal þeirra sem halda erindi um
Guðjón er Sigrún Klara Hann-
esdóttir fyrrverandi lands-
bókavörður. „Ég ætla að fara í gegn-
um þær tegundir barna- og
unglingabóka sem hann hefur skrif-
að, en það eru spennu- og æv-
intýrasögur, fjölskyldusögur og
myndabækur fyrir yngsta fólkið,“
segir Sigrún sem telur Guðjón hafa
mjög sterk höfundareinkenni og
vera íslenskastan af öllum íslenskum
barnabókahöfundum.
„Hann setur allar sínar bækur
mjög rótfast í íslenska náttúru, ann-
að hvort sveitina eða hafið. Í öllum
bókunum er hann mjög fastur í ís-
lenska sveitasamfélaginu. Það getur
vel verið að sumt af þessum sögum
hans hafi ekki elst nógu vel því hann
er oft með gamalt samfélag sem nú-
tímakrakkar þekkja ekki. En bæk-
urnar eru mjög myndrænar þannig
að það mætti gera úr þeim fræðslu-
efni fyrir börn um gamla tíma.“
Sigrún segir einnig að Guðjón
skrifi ákaflega sérstakt tungumál
sem hún kalli austfirsku.
„Ég held að málþingið geti orðið
mjög spennandi því Guðjón hefur
verið svolítið fyrir utan hina al-
mennu bókmenntaumræðu. Þess
vegna er gaman að draga fram þetta
framtak hans en höfundarverk hans
er orðið gríðarlega mikið,“ segir Sig-
rún.
Málþingið verður sett kl. 13 á
morgun og stendur til kl. 17. Það fer
fram í Nýheimum, Litlubrú 2, á
Höfn og er öllum opið.
Íslenskastur allra íslenskra
barnabókahöfunda
Morgunblaðið/Golli
Rithöfundur Guðjón Sveinsson
mun ávarpa gesti á málþinginu.
Leikarar: Þórhallur Sigurðsson,
Aðalbjörg Árnadóttir, Eggert Þor-
leifsson, Helga Braga Jónsdóttir,
Halldóra Geirharðsdóttir, Jör-
undur Ragnarsson og Þór Tulinius.
Hljóðmynd: Sigurvald Ívar Helga-
son.
Lýsing:
Magnús Arnar Sigurðarson.
Leikgervi:
Sigríður Rósa Bjarnadóttir.
Búningar:
Rannveig Kristjánsdóttir.
Þýðing: Sigurður Hróarsson.
Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir.
Leikstjórn: Steinunn Knútsdóttir.
Lík í óskilum