Morgunblaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Andra Karl andri@mbl.is BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær að veita heimild til niðurrifs húsanna á Laugavegi 4 og 6 auk nýbyggingar á lóð- unum. Áður hafði meirihluti borgarráðs hafnað tillögu borgarráðsfulltrúa Vinstri grænna og áheyrnarfulltrúa Frjálslyndra um kaup á húsunum til að varðveita þau í sem upprunalegastri mynd. Fulltrúi Sam- fylkingar, Oddný Sturludóttir, lagðist gegn því að heimilt yrði að rífa húsin. Deiliskipulag fyrir svæðið var samþykkt á síðasta kjörtímabili þegar R-listinn var með meirihluta. Þá var Dagur B. Eggertsson for- maður skipulagsráðs og hefur Samfylkingin í raun verið fylgjandi framkvæmdum á lóð- unum; þar til nú. Á fundi borgarráðs í gær lagði Björk Vilhelmsdóttir, fulltrúi Samfylk- ingarinnar, fram bókun þar sem kemur fram að hún sæti hjá við afgreiðslu málsins. „Í flestum þeim hugmyndum sem komið hafa fram um uppbyggingu Laugavegarins, enda geri þær flestar ráð fyrir því að götumynd haldist og nýjar byggingar rísi á baklóðum eða hliðargötum. Hvað varðar Laugaveg 4 og 6 styður Oddný hins vegar í meginatriðum hugmynd- ir Vinstri grænna og Frjálslyndra sem koma fram í bókun þeirra þar sem segir m.a.: „Það er með ólíkindum að [borgaryfirvöld] skuli ekki forða tveimur af elstu húsum borgarinn- ar frá tortímingu. Menningarsaga Reykja- víkur eru vörðuð húsum á borð við Laugaveg 4 og 6 og væru þau færð í upprunalegt horf myndu þau varðveita götumyndina og efla ímynd neðri hluta Laugavegarins sem hluta af gamla miðbænum. Við hörmum þá nið- urstöðu meirihluta borgarráðs að heimila niðurrif húsanna.“ Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins líta borgaryfirvöld svo á að ógerlegt sé að stöðva niðurrif húsanna, því að öðrum kosti þyrfti borgin að greiða eigendum lóðanna himinháar skaðabætur þar sem deiliskipulag með umtalsvert meiri byggingarétt hefur þegar verið samþykkt. Ekki liggur fyrir hve- nær hafist verður handa við niðurrif húsanna. skipulagsráði lögðu fulltrúar Samfylkingar- innar til að farið yrði að fullu eftir ábend- ingum rýnihóps við endanlega útfærslu húsanna við Laugaveg 4-6. Þar sem ekki var á það fallist sit ég hjá,“ segir m.a. í bókun hennar. Í kjölfarið kom fram bókun Oddnýj- ar Sturludóttur þar sem hún segist hrifin af Heimild veitt til niðurrifs húsa við Laugaveg 4 og 6 Afstaða Samfylkingar- innar til niðurrifs við Laugaveg hefur breyst Morgunblaðið/Frikki Laugavegur 6 Veitt hefur verið heimild til að hefja niðurrif og nýbyggingu á lóðunum. MANNVIRKI bækistöðvar Atlants- hafsbandalagsins, NATO, í Hvalfirði verða auglýst til sölu á næstu dög- um, að sögn Baldurs Guðlaugssonar, ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneyt- inu. Fyrst og fremst er um að ræða ol- íugeyma en einnig bryggju og land jarðarinnar Miðsands. Utanríkisráðuneytið tók við um- sjón þessara eigna þegar varnarliðið hvarf af landinu sl. haust en síðan í nóvember hafa þær verið undir stjórn fjármálaráðuneytisins. Ekki er ljóst hvort Hvalfjarðarsveit mun bjóða í eignirnar en að sögn frétta- stofu Ríkisútvarpsins áttu sveitar- stjórnarmenn fund með fulltrúum ráðuneytisins í gær. Auglýsa mannvirki Geymar NATO í Hvalfirði til sölu Eftir Andra Karl og Jón Pétur Jónsson ICELANDAIR hefur ákveðið að segja upp 25 flugmönnum og 39 flugfreyjum og -þjónum frá og með 1. desember nk. Að sögn upp- lýsingafulltrúa Icelandair munu uppsagnirnar ekki hafa áhrif á áætlunarflug. Formaður Félags ís- lenskra atvinnuflugmanna (FÍA) segir vonbrigði að verkefnastaðan skuli ekki vera betri. Starfsmönnum var formlega til- kynnt ákvörðun félagsins á fundi sem haldinn var á miðvikudag. Þar kom einnig fram að um varúðar- ráðstafanir væri að ræða, staðan á alþjóðaleigufluginu væri óljós á þessum árstíma og unnið væri að því að afla arðbærra verkefna á þessu sviði. „Við vonumst til þess að það komi jákvæð niðurstaða út úr því á næstu vikum,“ segir Guð- jón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Icelandair. Jóhannes Bjarni Guðmundsson, formaður FÍA, segir fyrirhugaðar uppsagnir flugmanna Icelandair á haustin hefðbundnar. „Þetta er nú orðið vanalegt á haustin, þegar áætlunarflugferðum fer fækkandi og vetrarskjálftinn kemur yfir. En það eru fyrst og fremst vonbrigði að verkefnastaðan skuli ekki vera betri.“ Ástríður Ingólfsdóttir, varafor- maður Flugfreyjufélags Íslands, segir uppsagnirnar hafa komið á óvart og mjög dapurlegar fyrir alla aðila. Hún segir að mönnum hafi komið saman um að minnka skaðann eins og hægt sé. Félögin munu bæði taka málið fyrir á fundum sínum í næstu viku. Icelandair segir upp á sjöunda tug starfsmanna Í HNOTSKURN »Fyrirhugað er að segjaupp 64 starfsmönnum Ice- landair, 25 flugmönnum og 39 flugfreyjum og -þjónum, alls 29 stöðugildum. »Uppsagnirnar taka gildi 1.desember nk. komi ekki til fleiri verkefni í leiguflugi. RÚMLEGA 2.000 ríkisborgarar frá hinum átta nýju Evrópusambandsríkjum eru ekki skráðir hjá Vinnumálastofnun, þótt þeir hafi sótt um íslenska kennitölu. Gerir Vinnumálastofnun ráð fyrir því að langmestur hluti fólksins sé hér við vinnu. Hátt í 10.000 ríkisborgarar frá hinum nýju Evrópusam- bandsríkjum eru við störf hér á landi og því má leiða getum að því að um fimmtungur þeirra hafi ekki verið skráður hjá Vinnumálastofnun. Á síðasta ári er talið að 1.800 ríkisborgarar frá nýju Evrópusambandsríkjunum hafi verið við störf hér á landi án þess að skráning hafi farið fram og því hefur hlutfall óskráðra aukist á milli ára. „Já, óskráðum virðist hafa fjölgað. Við vinnum stöðugt að þessum málum og reynum að vinna töluna niður, en það virðist bætast hraðar við hana en sem lækkuninni nemur,“ segir Karl Sigurðsson, forstöðumaður vinnumálasviðs Vinnu- málastofnunar. Einn af hverjum fimm óskráður Mýrdalur | Tunglfisk rak á Reyn- isfjöru fyrir um þremur vikum. Ragnar Indriðason, bóndi í Görð- um í Mýrdal, sem fann fiskinn taldi að hann hefði verið í kring- um hundrað kíló á þyngd og góð- an metra á lengd. Nú eru varg- fuglar búnir að éta stærstan hluta fisksins en uggarnir eru þó nokkuð heillegir ennþá. Lyktin af hræinu er ekki kræsileg eins og Ragnhildur Jónsdóttir fékk að reyna. Fréttaritari Morgunblaðsins fékk staðfest hjá Jóni Birni Páls- syni hjá Hafrannsóknastofnun að um hræ af tunglfiski væri að ræða. Hann sagði jafnframt að tunglfiskar væru ekki algengir við Íslandsstrendur. Sá síðasti sem vitað er um var fangaður í Þorlákshöfn 2004. Sá var stopp- aður upp og er þar til sýnis. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Reynis- fjörureki HANNES Hlífar Stefánsson bar sigurorð af Braga Þorfinnssyni í 3. umferð Íslandsmótsins í skák í gær. Þá lauk skák Stefáns Kristjánssonar og Þrastar Þórhallssonar með jafntefli eftir æsi- spennandi viðureign. Að umferðinni lokinni er Hannes Hlífar því í efsta sæti með tvo og hálfan vinning en honum koma næstir Þröstur, Stefán og Bragi með tvo vinninga. Þröstur var efstur eftir 2. umferð. Hannes er áttfaldur Íslandsmeistari. Hannes Hlífar fremst- ur eftir þriðju umferð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.