Morgunblaðið - 31.08.2007, Síða 10

Morgunblaðið - 31.08.2007, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ Fljótt, fljótt, látum okkur hverfa, pólitíkusarnir eru að koma. VEÐUR Það má finna í ýmsum hornumSjálfstæðisflokksins, að nú þeg- ar nýjabrumið er farið af samstarf- inu við Samfylkinguna þykir sjálf- stæðismönnum það samstarf ekki sérlega skemmtilegt.     Sumir þeirra telja að talsmátibæði formanns Samfylkingar og ýmissa annarra forystu- manna flokksins sé ögrandi gagnvart Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðismenn eru byrjaðir að finna að Samfylkingin getur orðið erfiður samstarfsaðili.     Framsóknarmenn finna þennanpirring innan Sjálfstæðisflokks- ins og þykjast sjá hann langar leið- ir. Þess vegna er nú að vakna aukin bjartsýni innan Framsóknarflokks- ins um að þeir komist í ríkisstjórn á þessu kjörtímabili. Þeir telja að Samfylkingin leiti að heppilegu máli til að kljúfa stjórnarsamstarfið á og stöðva við umræður um gjald- miðilinn. Eigum við að halda krón- unni eða taka upp annan gjald- miðil?     Í ljósi þess hvernig framsókn-armenn tala er ekki hægt að úti- loka að þeir heyri svona raddir inn- an Samfylkingar. Vandi bæði Samfylkingar og framsóknarmanna er sá að þriðji samstarfsflokkurinn sem þeir sjá fyrir sér í slíkri ríkisstjórn, Vinstri grænir, eru ekki ginnkeyptir fyrir gjaldmiðilsskiptum.     Hins vegar mundi aðild Vinstrigrænna að ríkisstjórn leysa þann flokk úr þeirri tilvistarkreppu sem hann er í og jafnvel framlengja pólitískt líf Steingríms J. Sigfússon- ar.     Geir H. Haarde verður að gæta aðsér. STAKSTEINAR Ólund hér og þar SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                         *(!  + ,- .  & / 0    + -                         12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (    !"#$  !% &              :  *$;<                    !          "# $ %&  '  *! $$ ; *! '( )#  ( #   $  "#* " =2 =! =2 =! =2 '$#)  + &,-! ".   >; ?         ;    (#   ) %   *     $ +  ,  *  - "(   (#      )     *   !    # $ .  /  /    0     #   , 1  )      " 2   /0 "11  "# 2 "  !"+ & 3'45 @4 @*=5A BC *D./C=5A BC ,5E0D ).C     3 3                           3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3            Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Elín Arnar | 30. ágúst Kveðja frá Köben Nú er ég komin til Kaupmannahafnar og búin ad hreiðra um mig á heimili bróður míns í Frederiksberg. Það er búið að vera mikið stuð hjá okkur en við erum bæði búin að steinliggja með flensu í tvo daga. Ég hef ekki einu sinni haft mig í að blogga en það eru ennþá nokkrar sögur frá Berlín sem bíða þess að komast hingað á bloggið. Við erum þó öll að hressast, pitsa og kók er allra meina bót. Meira: elinarnar.blog.is Sigurður Hreiðar | 30. ágúst Neflaus bíll Í gær byrjaði ég dramatíska tveggja kafla framhaldssögu sem hófst í raun fyrir fjölmörgum árum við stein við Reynisvatns- afleggjarann, efst í Klofningum, stein sem ég einhverra hluta gekk að nokkrum sinnum á ári þangað til framkvæmdir við Gull- hamra og Nóatún í Klofningum muldu hann eins og annað for- gengilegt. – Hvaða erindi átti ég við þennan stein? Ég veit það ekki. Meira: auto.blog.is Sigurlín M. Sigurðard. | 30. ágúst Textun og 202 þúsund Ég gat nú vart orða bundist þegar ég las frétt á visir.is í gær um að afborgun af bíl útvarpsstjóra RUV ohf. væri 202 þúsund á mánuði. Hvað ætlar hin hagsýna húsmóðir sjálf mennta- málaráðherra að gera í þessu? Ætlar hún að láta sem ekk- ert sé og textun á innlent sjónvarps- efni, sem hún vildi að yrði aukin og er getið um í samstarfsamningi milli ráðuneytis hennar og RÚV, hefur ekki verið sinnt sem skyldi. Meira: sms.blog.is Guðbjörg Hildur Kolbeins | 29. ágúst Ferðaþjónustan Í júlímánuði var um- fjöllun á Rás 2 um ferðamennsku hér á landi. Sérfræðingur benti á að ferðatengd þjónusta hefði sprottið upp hér og þar á land- inu, án nokkurra styrkja, til að mæta þörfum ferðamanna. Þessi sami sér- fræðingur var reyndar einnig þeirr- ar skoðunar að nauðsynlegt gæti orðið að takmarka fjölda ferða- manna að tilteknum svæðum, og nefndi í því sambandi Gullfoss. Í framhaldi af viðtalinu við sér- fræðinginn ræddu dagskrárgerð- armenn Rásar 2 við samgöngu- ráðherra sem taldi alls enga þörf á að takmarka aðgang ferðamanna að landinu. Þeir sem voru á ferðinni í sumar geta hins vegar margir hverj- ir tekið undir orð sérfræðingsins. Sumir staðir, sem eftirsóknarvert er að heimsækja, þola ekki þann fjölda ferðamanna sem hópast þangað yfir hásumarið. Fólk þarf jafnvel frá að hverfa. Og hver nennir að bíða í röð í verslun úti á landi eftir að af- greiðslufólkið klári að afgreiða tvær rútur eða svo? Ef ætlunin er að til landsins komi ein milljón ferða- manna á ári, verður að tryggja að vinsælir ferðamannastaðir þoli áganginn og að hægt sé að veita öll- um ferðamönnum, erlendum sem innlendum, góða þjónustu. Á hinn bóginn er vert að vekja at- hygli á stöðum sem gott og skemmti- legt er heim að sækja. Má t.d. nefna ísgerðina í Holtsseli í Eyjafjarð- arsveit og húsdýragarðinn á Hlé- skógum (á leiðinni inn að Grenivík). Einnig er ómissandi að koma við á kaffihúsinu á Möðrudal á Fjöllum. Ferðalangar ráku síðan upp stór augu er þeir sáu kvöldverðarhlað- borðið á Smyrlabjörgum í Suð- ursveit. Þeir áttu ekki von á að sjá hlaðborð sem var glæsilegra en jóla- hlaðborð veitingahúsa á höfuðborg- arsvæðinu. Að lokum má minnast á litlu bókabúðina hans Bjarna Harð- arsonar á Selfossi. Þar voru gerð ágætis kaup í notuðum bókum. Sumir skilja ekki fólk sem finnst betra að búa úti á landi en á suðvest- urhorninu en engu að síður kunna þeir að meta hvað þetta sama fólk hefur gert til að auðga líf allra lands- manna með hugmyndaauðgi og frumkvæði. Meira: kolbeins.blog.is BLOG.IS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.