Morgunblaðið - 31.08.2007, Page 19

Morgunblaðið - 31.08.2007, Page 19
Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Ég vinn með tungumál. Égbyrja á því að vinna meðtexta sem stundum erhægt að kalla ljóð en er sjálfsagt nýtt ljóðaform. Síðan bý ég til texta út frá ákveðnum aðstæðum. Í þessu tilfelli er það út frá veru minni í Reykjavík í fyrra.“ Þetta segir Eng- lendingurinn Tony Trehy um verk sitt Reykjavík sem sjá má á sýningu í Safni sem hefst á morgun með opnun kl. 16. Trehy er menntaður myndlist- armaður og starfar sem ljóðskáld og sýningarstjóri. Hann setti meðal ann- ars saman sýningu á verkum úr Safni í sumar fyrir samtímalistasafnið Bury Art Gallery Museum, í Bury á Englandi. Þar er Trehy for- stöðumaður og sýningarstjóri. Sýn- ingin ber heitið Iceland og stendur enn yfir, lýkur 3. nóvember. Verkið Reykjavík er þrískipt í Safni, það er bókverk, rýmisverk og unnið á striga. Bókverkið hefur að geyma eina langa setningu á stakri, langri örk, sem brotin er saman og felld inn í bókina. Draga verður út alla örkina til að lesa ljóðið sem er á báðum hliðum ark- arinnar. Ljóðið má finna í rýmisverk- inu í bútum sem valdir hafa verið þannig að þeir passi saman, í hornum og kverkum ferningslaga sýning- arrýmis á miðhæð Safns sem og á hliðum strigaklæddra blindramma. Í rýmisverkinu er hægt að lesa sig frá gólfi upp í loft, eða frá horni í horn, án þess að setningarnar rekist á. En blaðamanni leikur forvitni á því af hverju bókverkið er með fyrrnefndu sniði. Snertiskjár í Þjóðminjasafninu „Ljóðskáld eru iðulega áhugasöm um enda setninga. Hvað rími, hvernig endirinn verði. Ég vildi kanna hvað gerðist hjá ljóðskáldi ef enginn endir væri á setningum, ef ljóðið væri ein, löng setning. Þess vegna er verkið svona,“ svarar Trehy. En hvaðan koma orðin? „Þetta er að hluta sjálfvirk skrift, að hluta tilvitnanir. Til dæmis gaf Pétur (Arason í Safni) mér eintak af Sjálfstæðu fólki eftir Laxness. Það eru vísanir í bókina í verkinu en einn- ig jarðfræði og sögu Íslands. Þá vísa ég einnig í eigin reynsluheim,“ svarar Trehy. Hann nefnir sem dæmi upp- lifun sína af snertiskjá nokkrum í Þjóðminjasafninu, þar sem orðið „chief“ eða „höfðingi“ sé mikið notað í sagnfræðilegum útskýringum. „Það gerist í ljóðinu á ákveðnum stað, orðið „höfðingi“ kemur fyrir aftur og aft- ur,“ segir Trehy. Það tengist upplifun hans af ákveðnum stað í borginni, í þessu tilfelli Þjóðminjasafninu. Við rannsóknarstörf sín tók Trehy einnig eftir dálæti Íslendinga á fjór- hjóladrifnum jeppum. Í einni kverk sýningarrýmisins í Safni má sjá orðin „4 by 4“ og er þar bæði vísað í tímann, fjórðu víddina, og fjórhjóladrifna jeppa. Trehy segist þó ekki hafa verið neitt sérstaklega spenntur fyrir slík- um jeppum eða jeppaferðum upp á ís- lenska jökla. Tungumálinu lyft frá veggnum Trehy segir eina fyrrnefndra fimm aðferða þá að kanna tengsl tungu- Vídd tungumálsins Englendingurinn Tony Trehy er einn þriggja listamanna sem sýna verk sín í listasafninu Safni á Laugavegi Morgunblaðið/Golli Tony Trehy „Ljóðskáld eru iðulega áhugasöm um enda setninga. Hvað rími, hvernig endirinn verði. Ég vildi kanna hvað gerðist hjá ljóðskáldi ef enginn endir væri á setningum, ef ljóðið væri ein, löng setning.“ máls við rými. „Ég velti því fyrir mér hver „þykkt“ reynslu væri. Hvernig gerir maður upplifun áþreifanlega?“ Trehy snýr sér að verkum á striga þar sem skrifað hefur verið á kantana orð úr ljóðinu um Reykjavík og segir þau í raun snúast um „þykkt“ tungu- máls í rými. „Ég vissi að það myndi hanga á hvítum vegg og spurningin því sú hvernig hægt væri að lyfta tungumálinu frá veggnum. Þó ljóðið sé skrifað á kanta rammanna í réttri röð nálgist fólk það frá ólíkum hliðum og ekki frá upphafi til enda. Einnig snýst verkið um það hvern- ig undirmeðvitundin virkar. Þegar maður sér texta, t.d. í auglýsingum þegar maður er á gangi, leiðir maður hann stundum hjá sér en stundum tekur undirmeðvitundin eftir honum. Þannig virka auglýsingar,“ segir Trehy. Sé maður staddur í ákveðnu rými upplifir maður breidd, hæð og tíma. En aðrar víddir séu einnig til staðar, þær sem menn skynji ekki en færi inn í rýmið með veru sinni. Þar komi tungumálið til sögunnar og um það snúist verk hans. Þar megi nefna tungumál og það segir Trehy inntak verka sinna, vídd tungumálsins. En hver er Tony Trehy og af hverju er hann að sýna í Safni? „Ég lærði myndlist en með árunum fór ég að stjórna sýningum æ meir og nú er ég stjórnandi stórs listasafns í Man- chester. Ég hef alltaf stundað skrif, líka á meðan ég var í listnámi. Ég fór að vinna sem listrænn stjórnandi og sýningarstjóri yfir sýningum lista- manna á borð við Lawrence Weiner o.fl. sem nota mikið tungumál í verk- um sínum. Þegar ég var ekki að sinna sýningarstjórn var ég að semja texta og halda sýningar á eigin verkum,“ svarar Trehy. Hann hafi áttað sig á því á seinustu fimm árum eða svo að áherslur hans í sýningarstjórn og eig- in listsköpun hafi verið svipaðar. Merkilegt Safn Hvað tengslin við Safn varðar segir Trehy að hann hafi frétt af því í gegn- um listamanninn Alan Johnston, sem hann hafi unnið með í Manchester og svo Lawrence Weiner, en verk eftir báða má finna í Safni. Þannig hafi hann kynnst Pétri Arasyni og sótt Reykjavík heim. Trehy segir Safn vissulega merkilegt, þar megi finna verk eftir listamenn sem menn finni alla jafna ekki nema í stórum og virðulegum listasöfnum úti í heimi. Trehy er stjórnandi Alþjóðlegu textahátíðarinnar (International Text Festival) sem er vettvangur fyrir þá sem gera tilraunir með tungumál og kveðskap. Hann vonast til að fá ís- lensk ljóðskáld til þeirrar hátíðar, og stefnir að því að hátíðin verði ekki föst við neinn einn stað þannig að sem flestir geti tekið þátt. Því er hér með komið á framfæri við áhugasöm ís- lensk og tilraunaglöð ljóðskáld. Einkasýning Trehy í Safni stendur til 7. október en auk hans opna einka- sýningar þeir Sigurður Guðjónsson og Huginn Þór Arason. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 19 MENNING Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is GREINT var frá því í gær að verk eftir Finn Arnar Arnarson mynd- listarmann muni prýða Háskólatorg Háskóla Íslands í framtíðinni. Í byrjun sumars voru fimm listamenn fengnir til þess að vinna tillögur að verki inn í mið- rými torgsins og varð verk Finns fyrir valinu. Til- kynnt var um valið við sérstaka athöfn í gær en Finnur átti þó ekki heim- angengt þar sem hann var staddur í laxveiði. „Þetta er mikill heiður,“ sagði Finnur sem var staddur við Laxá í Aðaldal þegar blaðamaður náði tali af honum í gær. „Þetta kom ekki í ljós fyrr en á þriðjudag- inn þannig að ég komst ekki, en konan mín mætti fyrir mína hönd.“ Oddaflug og vindáttir Bygging Háskólatorgs er að hluta til fjármögnuð með framlagi frá Há- skólasjóði Eimskipafélags Íslands sem stofnaður var með gjöf Vestur- Íslendinga, og er listaverkið í Há- skólatorgi til minningar um þá gjöf. Finnur segir að listamennirnir hafi verið beðnir að taka tillits til þeirrar staðreyndar. „Forskriftin var sú að þetta átti að tengjast Vestur- Íslendingum því sjóðurinn var stofnaður í tengslum við flutningana vestur um haf. Svo átti verkið líka að vera inni í keilu sem verður hluti af nýju háskólabyggingunni,“ segir Finnur, en verk hans tengist vest- urferðum á skemmtilegan hátt. „Inni í keilunni eru gæsir að hefja sig til lofts og efst í henni má sjá oddaflug gæsa. Gæsirnar tengjast náttúrlega Kanada og ferðalögum. Þær fara í langferðir vestur um haf en koma alltaf til baka heim,“ segir Finnur sem vinnur gæsirnar úr ker- amiki. „Svo er oddaflugið tölvustýrt því það er tengt vindmæli sem er uppi á húsinu þannig að oddaflugið snýst eftir ríkjandi vindátt. Þegar maður stendur undir keilunni sér maður höfuðáttirnar og í hvaða átt gæsirnar fljúga, þannig að maður getur séð hvaðan vindarnir blása,“ segir Finnur og því ljóst að verk hans er um leið hálfgerð veð- urathugunarstöð. Loks er tilvitnun í Hávamál á keilunni, setningin „Vits er þörf þeim er víða ratar“ sem ætti að falla vel að hugsjónum Háskólans en um leið minna á ferðir Vestur- Íslendinga. Aðspurður segir Finnur vissulega nokkurt mál að setja verkið upp, en hann stefnir þó að því að klára það áður en byggingin verður vígð hinn 1. desember næstkomandi. „Ég þarf að fara að drífa mig úr veiðinni og fara að bretta upp erm- ar,“ segir hann að lokum. Morgunblaðið/Kristinn Frá afhendingu Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor, Björgólfur Guðmunds- son, stjórnarformaður Háskólasjóðs Eimskips, Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir menntamálaráðherra, Áslaug Thorlacius, eiginkona Finns, og loks þær Hallgerður Thorlacius Finnsdóttir og Helga Thorlacius Finnsdóttir. Vits er þörf þeim er víða ratar Tillögur að verkum fyrir Há- skólatorgið verða til sýnis í and- dyri Aðalbyggingar Háskólans næstu daga. Verk Finns Arnars Arnarsonar mun prýða Háskólatorg Finnur Arnar Arnarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.