Morgunblaðið - 11.09.2007, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 23
morgun. Þá erum við með línu en förum stjórn-
borðsmegin að aftan og ýtum til að hjálpa skipinu
í snúningnum. Ef þarf að stoppa snúninginn er
hægt að taka í línuna.“ Hann bætir við að farið sé
á hægustu mögulegu ferð upp að hliðinni, bát-
urinn stilltur af og síðan sett á fullt vélarafl.
Magni kom að Prinsessunni um tvær mílur frá
sjöbaujunni norður af Engey. Þar fór lóðsinn um
borð og stjórnaði aðgerðum Magna úr stýrishúsi
skemmtiferðaskipsins.
„Hann stjórnar bátnum, segir mér hvað ég á að
gera, fara á fulla ferð, hálfa ferð, byrja að ýta,
hætta að ýta,“ segir Júlíus og bætir við að menn
séu orðnir vel þjálfaðir í vinnubrögðunum. „Menn
vita hvað þeir eiga að gera, þekkja takmarkanir
bátanna og vita hvað hægt er að gera.“
Morgunblaðið/Sverrir
essunni
milljónir, sem þætti eflaust ekki
mikið fé fyrir sjúkraflutningabíl
hér á landi. „En það eru miklir fjár-
munir á okkar mælikvarða!“ segir
Kitheka með áherslu. „Bíllinn sem
við notum núna er 25 ára gamall,
farinn að bila og ekki er hægt að
reiða sig á hann lengur. Og við er-
um þeir einu sem treysta sér til að
senda sjúkrabíl inn í fátækrahverf-
in að næturlagi.“
Kenýa-verkefnið sér um fjáröfl-
unina og skráir þá sem hafa áhuga
á að gerast sjálfboðaliðar. „Þessi
hópur hefur sýnt mikinn kraft og
frumkvæði og best er að áhuga-
samir setji sig í samband við þessa
öflugu krakka,“ segir Ketheka.
„Við þiggjum alla hjálp sem við get-
um fengið. Við höfum not fyrir fólk
á öllum aldri og með ólíkan bak-
grunn, enda er hjálparstarfið afar
fjölbreytt.“
Íslensku sjálfboðaliðarnir halda
úti bloggsíðum, þar sem lesa má um
upplifun þeirra af fátækrahverf-
unum, svo sem 1. júlí síðastliðinn:
„Sem dæmi um erfiðar aðstæður þá
hittum við konu sem var HIV-
smituð og gaf barninu sínu því ekki
brjóst en þetta 2ja vikna barn hafði
því aðeins nærst á soðnu vatni og
leit líka út eftir því. Önnur kona
sem við hittum var einnig HIV-
jákvæð og átti 5 mánaða tvíbura
sem einnig voru jákvæðir. Mað-
urinn hennar hafði stungið hana af
fyrir nokkrum mánuðum og hún
hafðist því við á köldu steingólfi
með þessum yndislegu börnum,
Dennis og Don, og gat ekkert unn-
ið, því enginn gat passað börnin
hennar.“
Ketheka talar á fundi í Öskju,
Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands,
kl. 20 á fimmtudag og þar verður
sýnt 14 mínútna heimildarmynd
sem hann gerði um ástandið í fá-
tækrahverfunum. Ef fólk vill leggja
samtökunum lið er hægt að leggja
fé inn á reikning 0526-14-102404 og
kennitalan er 700107-3020.
ga. Fyrir
nýfætt
bíll var
Þó að við
á heimili
lda því á
tar 2,2
st …
ð/Kristinn
iðanna
hafa unn-
nal sem
robi.
Úttekt Morgunblaðsins áGrímseyjarferjumálinusl. sunnudag er ítarleg ogum margt prýðilega unn-
in. Blaðið kýs að gera það að aðal-
atriði á forsíðu sinni að ég hafi tekið
þá ákvörðun að endurnýja ferjuna að
viðhöfðu samráði við Grímseyinga og
að teknu tilliti til óska þeirra og
þarfa. Við ábyrgð á þeim þætti máls-
ins gengst ég fúslega og er sann-
færður um að engum hefði þótt eðli-
legt að ráðast í þessa endurnýjun án
náins samráðs við heimamenn. Önn-
ur umfjöllun um endurnýjun Gríms-
eyjarferju hefur einnig verið mikil á
undanförnum vikum og á köflum í
talsverðum upphrópunarstíl. Kast-
ljósi hefur meðal annars verið beint
að samgönguráðuneytinu og ákvarð-
anatöku minni sem samgönguráð-
herra. Í ljósi umræðunnar, og í fram-
haldi af úttekt Morgunblaðsins, tel
ég eðlilegt að koma eftirgreindu á
framfæri og vísa að auki til yfirlýs-
ingar sem ég sendi í fjölmiðla 16.
ágúst sl.
Undirbúningur var hafinn
í samgönguáætlun 2003
Við gerð samgönguáætlunar fyrir
tímabilið 2003-2014 var gert ráð fyrir
útgjöldum að upphæð 400 milljónir
króna til endurnýjunar Grímseyjar-
ferjunnar Sæfara. Í áætluninni er
gert ráð fyrir að leggja þurfi a.m.k.
400 milljónir króna til endurnýjunar
skipsins og var gert ráð fyrir því að
taka lán og endurgreiða á tólf árum
eins og gert hafði verið þegar ferj-
urnar Herjólfur og Baldur voru end-
urnýjaðar. Áætlunin gerir ráð fyrir
að til ferjumála fari á tímabilinu tæp-
lega sex milljarðar króna. Þessi 12
ára samgönguáætlun var samþykkt
af Alþingi fyrir þinglok árið 2003 og
er enn í gildi sem ályktun Alþingis.
Með sama hætti var gert ráð fyrir
þessari upphæð í tillögu til þings-
ályktunar um samgönguáætlun sem
lögð var fyrir Alþingi 2007 en hlaut
ekki afgreiðslu fyrir þinglok vegna
málþófs þáverandi stjórnarand-
stöðu. Umfjöllun þingmanna sem
sátu á þingi og jafnvel í ríkisstjórn á
þessum tíma vekur því furðu. Yfir-
lýsingar í fjölmiðlum frá nýkjörnum
þingmönnum í ábyrgðarstöðum gefa
ríkulegt tilefni til þess að fara yfir
málið með þeim hætti sem hér er
gert.
Endurnýjunar var þörf
Ástæður þess að talið var nauð-
synlegt að endurnýja Grímseyjar-
ferju voru að Eftirlitsstofnun
EFTA, ESA, komst að þeirri nið-
urstöðu að núverandi Sæfari upp-
fyllti ekki kröfur um siglingar skipa
á þessu hafsvæði, en kröfurnar höfðu
verið hertar mjög í kjölfar mikilla
ferjuslysa árin á undan. Heimild
fékkst þó til að reka skipið á undan-
þágu til ársins 2009. Auk þess höfðu
borist verulegar kvartanir vegna
þess að Sæfari hefur mjög takmark-
aða möguleika til farþegaflutninga
sem hamlaði þróun í ferðaþjónustu í
Grímsey. Nefnd sem ég skipaði til að
gera tillögur um ferjusiglingar til
Grímseyjar komst að þeirri niður-
stöðu að ekki væri verjandi að gera
núverandi Sæfara upp, enda væri
skipið orðið of gamalt til þess. Í
þeirri nefnd voru tveir fulltrúar
Grímseyinga, fulltrúi Samskipa sem
rekstraraðila ferjunnar sem nú er
rekin auk fulltrúa Siglingastofnunar
og Vegagerðar. Gerði nefndin tillögu
um að annaðhvort yrði keypt notað
skip í stað Sæfara eða smíðað nýtt.
Skýrsla nefndarinnar var á sínum
tíma lögð fyrir ríkisstjórnina sem
hafði þá skömmu áður samþykkt
samgönguáætlun sem gerði ráð fyrir
útgjöldum að upphæð 400 milljónir
króna til endurnýjunar ferjunnar á
umræddu áætlunartímabili eins og
fyrr er getið um.
Ferjan er lífæð Grímseyjar
Eins og öllum má ljóst vera er
Grímseyjarferjan lífæð eyjarinnar.
Ábyrgð mín sem samgönguráðherra
fólst ekki síst í því að tryggja í hví-
vetna fyllsta öryggi þeirrar ferju
sem sigldi til eyjarinnar og talið var
afar óæskilegt að ferja væri í far-
þegasiglingum á undanþágu við Ís-
landsstrendur um lengri eða
skemmri tíma. Lagði ég því mikla
áherslu á að fundin yrði viðunandi
lausn í máli þessu þrátt fyrir að und-
anþága hefði fengist fyrir ferjuna.
Eins og kunnugt er fer Vegagerð-
in með málefni farþegaferja á Ís-
landi. Vegagerðin hafði
því það verkefni að
undirbúa og leggja
fram tillögur um ný-
smíði eða kaup á ferju,
sem uppfyllti öll skil-
yrði um siglingar milli
lands og Grímseyjar.
Það kom aldrei til
greina að virða þarfir
Grímseyinga að vettugi
enda útboð á rekstri
ferjunnar byggt á því
að hún gæti sinnt þörf-
um íbúa eyjarinnar og
því atvinnulífi sem þar
er.
Notað skip í boði
Síðla árs 2004 barst
ráðuneytinu minnis-
blað frá Vegagerðinni
þar sem fram kemur að
fundist hafi notað skip,
sem uppfylli allar kröf-
ur sem gerðar eru til
Sæfara og þar með
siglinga til Grímseyjar. Minnisblað-
inu fylgdi áætlun um kaup og end-
urbætur sem skipaverkfræðingur í
þjónustu Vegagerðarinnar hafði
unnið.
Hafa ber í huga í þessu sambandi
að framboð á skipum af þessu tagi
var og er afar lítið. Vegagerðin taldi
að skipið myndi kosta um 150 m.kr.
með viðgerðum en talið var að kostn-
aður við nýsmíði skips á þeim tíma
væri 600-700 m.kr. Var það mat sér-
fræðinga Vegagerðarinnar að um
álitlegan kost væri að ræða. Ákvað
ég því að leggja málið fyrir ríkis-
stjórnina með minnisblaði í apríl
2005 og samþykkti ríkisstjórnin að
hafinn yrði undirbúningur að end-
urnýjun ferjunnar með því að leita
eftir samningum um kaup á um-
ræddu skipi og það endurnýjað í
samræmi við þarfir vegna siglinga til
Grímseyjar og í samræmi við kröfur
sem gerðar eru um fyllsta öryggi í
siglingum.
Kaup á skipi boðin út
Við frekari meðferð málsins var
ákveðið að leita eftir skipi að und-
angengnu útboði og voru því kaup á
notuðu skipi boðin út samkvæmt
nánari skilgreiningu sérfræðinga og
fór útboðið fram á hinu Evrópska
efnahagsvæði svo sem reglur gera
ráð fyrir. Að útboðinu stóð Vega-
gerðin eins og áður segir, með aðstoð
Ríkiskaupa sem sjá um slík útboð í
umboði fjármálaráðuneytis, en í
stofnuninni eru sérfræðingar á sviði
hvers konar innkaupa og meðferðar
útboðsreglna á hinu Evrópska efna-
hagssvæði. Aðeins tvö tilboð bárust
og var að mati sérfræðinga Vega-
gerðarinnar og Ríkiskaupa talið hag-
felldast að ganga til viðræðna um
kaup á írska skipinu sem ráðgjafi
Vegagerðarinnar hafði í upphafi
mælt með. Rétt er að taka fram að á
undirbúningstímanum var fjár-
málaráðuneytið með í ráðum enda
ríkissjóður formlega kaupandi skips-
ins.
Kröfur berast um frekari
endurbætur
Þegar hér var komið sögu bárust
samgönguráðuneytinu fréttir af
óánægju Grímseyinga með fyr-
irhuguð kaup á hinu tilgreinda skipi.
Fól ég því skrifstofustjóra í sam-
gönguráðuneytinu að sjá til þess að
Vegagerðin næði viðunandi sam-
komulagi við Grímseyinga um end-
urbætur og búnað skipsins enda
grundvallarforsenda að skipið gæti
uppfyllt þarfir við flutninga til
Grímseyjar. Um svipað leyti bárust
ráðuneytinu óformlegar upplýsingar
um bágt ástand skipsins og var
ákveðið að fá annan skipaverkfræð-
ing en þann sem Vegagerðin hafði
þegið frá ráðgjöf um kaupin til að
skoða skipið nánar. Skilaði sá sér-
fræðingur skýrslu í september 2005
og var niðurstaða hans að hagkvæmt
væri að kaupa skipið og gera við það.
Í kjölfar þessa álits var Vegagerð-
inni falið að vinna áfram að málinu.
Rétt er að taka fram að auk ráðgjafa
Vegagerðarinnar
höfðu fulltrúar Sigl-
ingastofnunar, Sam-
skipa sem rekstr-
araðila ferjunnar og
fulltrúar Grímseyinga
skoðað skipið. Það
hvarflaði því ekki að
nokkrum manni í sam-
gönguráðuneytinu að
undirbúningi væri
áfátt. Hvað þá að
kostnaðarmat viðgerða
væri með þeim ólík-
indum sem síðar
reyndist vera.
Endurbætur
samþykktar
af ráðuneytinu
Í nóvember 2005 var
ráðuneytinu gerð grein
fyrir því að komið væri
samkomulag við
Grímseyinga um bún-
að skipsins og var ég
þá upplýstur um að
kostnaður við nauðsynlegar viðbót-
arendurbætur næmi 100 m.kr. og
heildarverð skipsins væri því um 250
m.kr. að mati sérfræðinga. Þótti það
viðunandi kostur í ljósi þess að ný-
virði skips var þá talið vera 600-700
m.kr. eins og áður segir. Eins og fyrr
er getið var gert ráð fyrir að kostn-
aður við nýja ferju í stað gamla Sæ-
fara gæti orðið 400 milljónir króna
samanber það sem samgönguáætlun
gerði ráð fyrir. Var endurskoðuð
áætlun um heildarkostnað því 150
milljónum króna lægri en heimild
var fyrir í samgönguáætlun og því
var á þessum tíma talið fullkomlega
verjandi að leggja í þennan kostnað
enda talið að með fyrirhuguðum
frekari endurbótum fengist mjög
gott skip.
Á þessum tíma blasti það við að
kostnaðaráætlun sérfræðings Vega-
gerðarinnar um 150 milljónir í heild-
arkostnað gat ekki staðist og hefði
skipið ekki getað þjónað Grímsey-
ingum með þeim endurbótum sem
hann gerði ráð fyrir. Tel ég mikið lán
að ekki var hrapað að þeirri áætlun
um endurbætur sem hefðu verið
ófullnægjandi.
Endurbætur boðnar út
Í kjölfar nýrra áætlana var gert
samkomulag við fjármálaráðuneytið
um fjármögnun skipsins. Kaup-
samningur var undirritaður um skip-
ið, en hann byggðist á gildandi sam-
gönguáætlun og heimild í 6. grein
fjárlaga um kaup og sölu. Eftir það
fóru málin í hefðbundinn farveg sem
fólst í því að viðgerð og endurbætur
á skipinu voru boðnar út. Hafði
Vegagerðin sem ábyrgðaraðili verk-
efnisins með útboðið að gera með
fulltingi Ríkiskaupa. Verður saga út-
boðsins ekki rakin frekar hér en
samgönguráðuneytið undir minni
stjórn kom ekki frekar að málum
enda málið í höndum Vegagerðar og
Ríkiskaupa sem bjóða út verkefni
fyrir milljarða króna á hverju ári án
þess að ráðuneyti komi þar að beinu
eftirliti. Síðla sumars 2006 bárust
hins vegar upplýsingar í ráðuneytið
um verulegar hækkanir á viðgerð
vegna aukaverka. Þá var skipið kom-
ið í skipakvína í Hafnarfirði hjá vél-
smiðjunni sem hafði undirritað verk-
samning og verið trúað fyrir því að
ljúka þessu mikilvæga verkefni. Var
verkið hafið, búið að rífa þá hluta
skipsins sem átti að breyta vegna
endurbótanna og að mati Vegagerð-
arinnar ekki til baka snúið. Ríkis-
kaup og Vegagerðin virtust vera
komin í sjálfheldu gagnvart verktak-
anum sem mjög var kvartað undan
þegar leitað var skýringa á þessum
óvæntu kostnaðarhækkunum. Full-
nægjandi svör verktakans þar að
lútandi liggja enn ekki fyrir en gera
má ráð fyrir að þau komi í ljós þegar
Vegagerðin gerir grein fyrir því í
boðaðri skýrslu um hvað úrskeiðis
fór.
Eftirlit Vegagerðarinnar
Í öllu þessu ferli studdist sam-
gönguráðuneytið við ráðleggingar
Vegagerðarinnar sem hafði stjórn
verkefnisins með höndum og hefur
verið þekkt fyrir að vinna faglega og
af mikilli ábyrgð í meðferð opin-
berra fjármuna. Rétt er að taka
fram að það hlýtur að teljast til und-
antekninga að ráðuneyti taki afstöðu
til kröfu verktaka um aukaverk
vegna útboðsverka sem unnin eru á
vegum þeirra stofnana sem undir
ráðuneyti heyra. Allir samningar og
aukaverk vegna þeirra hljóta að
vera á ábyrgð viðkomandi stofnana.
Vert er að minna á að Vegagerðin
hefur boðið út verk fyrir tugi millj-
arða hin síðustu ár og oftar en ekki
hafa tilboð verið lægri en áætlanir
gerðu ráð fyrir en auðvitað koma
upp tilvik þar sem aukaverk eru við-
urkennd sem hluti kostnaðar vegna
ófyrirsjáanlegra atvika.
Engin fyrirmæli gefin sem áttu
að geta leitt til þessa kostnaðar
Af hálfu starfsmanna samgöngu-
ráðuneytisins var ávallt unnið að
málefnum Grímseyjarferju með hag
Grímseyinga og öryggi ferjunnar að
leiðarljósi. Ákvörðun mín og sam-
starfsmanna í ráðuneytinu miðaðist
við heildarkostnað upp á 250 millj-
ónir króna og með það að leiðarljósi
var lagt í kaup og endurbætur skips-
ins eftir að samkomulag hafði verið
gert við fjármálaraðuneytið um
framkvæmd fjármögnunar. Vafa-
laust verður upplýst síðar hvers
vegna áætlun um endurbætur fór
jafn mikið úr böndum eins og nú
virðist raunin. Engar ákvarðanir um
aukaverk eða viðbótarkostnað af
öðrum ástæðum voru hins vegar
teknar í samgönguráðuneytinu í
minni tíð. Ég gengst fúslega við
ábyrgð á þeirri ákvörðun að kaupa
gamalt skip sem með viðamiklum
endurbótum myndi kosta 250 millj-
ónir en ekki 600-700 milljónir eins og
nýtt skip hefði kostað. Þarna voru
tvær flugur slegnar í sama höggi –
þörfum heimamanna og örygg-
iskröfum mætt í hvívetna og rík-
issjóði sparaðir umtalsverðir fjár-
munir. Niðurstaða Morgunblaðsins
er enda sú að þrátt fyrir þær kostn-
aðarhækkanir sem við stöndum nú
frammi fyrir stefni í um tvö hundruð
milljóna króna sparnað miðað við
kaup á nýju skipi. Að auki munu
flestir sammála um að útilokað hafi
verið að sjá þá atburðarás fyrir sem
nú er orðin að veruleika og lýst er í
úttekt Morgunblaðsins á sam-
skiptum Vegagerðarinnar og verk-
taka sem vissulega er mikið um-
hugsunarefni frá sjónarhóli þeirra
sem vilja veg skipasmíðaiðnaðarins
sem mestan. Ráðuneytinu bárust
ekki upplýsingar um framvindu
verksins fyrr en ófært var að snúa
við með það. Eðlilegt er að sú stað-
reynd sé höfð í huga þegar ráðherra
og samstarfsmenn hans í ráðuneyt-
inu eru ítrekað ásakaðir um slæleg
vinnubrögð. Í öllu þessu ferli og
undirbúningi var lögð áhersla á að
vinna af kostgæfni á grundvelli
þeirra upplýsinga sem fyrir lágu
hverju sinni. Það er auðvelt að vera
vitur eftir á og segja að ekki hefði átt
að semja við þann innlendan verk-
taka sem samið var við. Þeirri
ákvörðun verður ekki breytt og ein-
ungis hægt að vona að verkinu ljúki
sem fyrst og skipið hefji siglingar til
hagsbóta fyrir Grímseyinga. Af
minni hálfu er ekki frá fleiru að
greina á þessu stigi og rétt að bíða
skýrslu Vegagerðarinnar sem boðuð
er þegar framkvæmdum við skipið
er lokið.
Það kom aldrei til álita að virða
þarfir Grímseyinga að vettugi
Sturla Böðvarsson
» Það hvarfl-aði ekki að
nokkrum manni
í samgöngu-
ráðuneytinu að
undirbúningi
væri áfátt.
Höfundur er forseti Alþingis.
Eftir Sturlu Böðvarsson