Morgunblaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Margrét Stef-ánsdóttir fædd- ist í Reykjavík 30. apríl 1914. Hún lést á Landakoti hinn 30. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Jóhanns- dóttir, f. 17.4. 1884, d. 15.7. 1958, og Stefán Guðmunds- son trésmíðameist- ari, f. 30.5. 1883, d. 3.9. 1961. Systkini Margrétar voru: 1) Brynhildur húsmóðir, f. 1911, d. 2001, maki Kristinn B. Júlíusson, látinn, áttu tvö börn. 2) Arndís húsmóðir, f. 1917, d. 1989, maki Sigurður Jónsson, látinn, barn- laus. 3) Guðmundur Jóhann, f. 1922, d. 1927. 4) Guðrún, f. 1925, d. 1996. 5) Þórdís húsmóðir, f. 1925, d. 1987, maki Ríkharður Hallgrímsson, látinn, áttu þrjú börn. Hinn 12. júlí 1941 giftist Mar- grét Valdimari Frímanni Helga- syni verkstjóra, f. 21.8. 1907, d. 29.11. 1972. Þau eiga tvö börn, þau eru: 1) Guðrún, f. 14.1. 1943, d. 18.4. 1998, gift Ferdinandi Al- freðssyni, f. 17.9. 1937. Börn þeirra eru: a) Frímann Ari, f. 22.2. 1967, kvæntur Sigurveigu Ágústsdóttur, f. 8.1. 1977, þau eiga tvær dætur, Guðrúnu Ósk, f. 6.1. 1998, og Hönnu Björk, f. 6.3.2002; b) Helga Margrét, f. 14.8. 1969, gift Sig- urjóni Halldórssyni, f. 7.7. 1963, dóttir þeirra er Sólrún, f. 26.7. 2006; c) Krist- inn Alfreð, f. 20.9. 1978, í sambúð með Arndísi Önnu Reyn- isdóttur, f. 2.12. 1979. 2) Höskuldur, f. 12.11. 1949, kvæntist Jóhönnu Dúnu Viborg, f. 20.12. 1955, þau skildu. Börn þeirra eru Sindri, f. 26.6. 1981, kvæntur Önnu Þorbjörgu Björns- dóttur, f. 13.12. 1982; Logi, f. 13.5. 1987 og c) Eygló, f. 14.11. 1989. Dóttir Frímanns af fyrra hjóna- bandi er Hanna Frímannsdóttir, f. 25.8. 1936, gift Heiðari Ástvalds- syni, f. 4.10. 1936, sonur þeirra er Ástvaldur Frímann, f. 14.1. 1973. Margrét vann ýmis verslunar- og skrifstofustörf. Áður en hún stofnaði til fjölskyldu vann hún í nokkur ár hjá matardeild Slátur- félags Suðurlands í Hafnarstræti. Eftir að börnin voru komin á legg hóf hún störf á skrifstofu Ísaga í Reykjavík og vann þar fram á átt- ræðisaldur. Útför Margrétar verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Amma ólst upp í skjóli foreldra sinna og eldri systur sinnar Brynhild- ar. Hún gekk hefðbundinn mennta- veg síns tíma en ekki voru til fjárráð til langskólanáms þó að hugurinn hafi kannski staðið til þess. Á heimilinu var lögð áhersla á lestur og almenna menntun, ekki síst á þann hátt er sneri að tónlist. Langafi Stefán lék á orgel og hafði unun af klassískri tón- list. Ein fyrsta minning mín er að vera í kvennahópi í eldhúsinu hennar ömmu. Ég sit undir borði og allt í kringum mig eru háhælaðir skór sem hlæja þegar ég kitla eigandann. Þetta voru systur ömmu. Hún átti að fagna einstaklega góðu sambandi við systur sínar og voru þær daglegir gestir á heimili hennar. Mikið var skrafað og alltaf stutt í hláturinn en glettni ein- kenndi systurnar fimm sem kölluðu sig í gríni Systraættina. Systurnar voru mér endalaus uppspretta þess hvernig maður átti að vera til hafður. Uppsett hár, litaðar augabrúnir og varalitur. Um þetta leyti gengu niður Laugaveginn náttúrubörn með flaks- andi hár hippatímabilsins, en í eldhús- inu á 128 ríkti annar tími. Amma varð snemma að fara að vinna til að styðja við stækkandi heimili. Sextán ára var hún komin í fasta vinnu við að breiða út fisk í Reykjavík á 12 tíma vöktum. Hún átti góðar minningar af fé- lagsskapnum í „breiðslunni“ en þetta var mikil erfiðisvinna sem unnin var allan sólarhringinn í ýmsum veðrum. Hún taldi það því alltaf gæfuspor að hafa fengið vinnu í Matardeild SS í Hafnarstræti og vann hún þar uns hún gekk í hjónaband. Ég fékk það hlutverk í kvenna- hópnum að klippa til smjörpappír til að leggja yfir augnalok þegar augn- hárin voru lituð. Þær tóku misstórum pappírsaugunum mínum með mildri kátínu og tókst að gefa mér þá tilfinn- ingu að ég tilheyrði hópnum. Fannst eins og ég væri orðin fullgildur með- limur í Systraættinni þegar ég fékk að hræra út litinn. Í einkalífinu var amma mikil gæfu- manneskja. Frímann afi var þjóð- þekktur maður, lengi einn af fremstu knattspyrnumönnum landsins og oft- sinnis Íslandsmeistari með félagi sínu Val. Eftir að hann hætti þátttöku í íþróttum gerðist hann íþróttafrétta- ritari og lét mikið til sín taka um mál- efni íþróttahreyfingarinnar. Amma studdi þetta mikla starf dyggilega. Heimilið stóð ávallt opið vinum og vandamönnum. Rjúkandi kaffi með nýbökuðum kökum sem amma bar fram af rausn og virðuleika hinnar góðu húsmóður. Seinna þegar ég er sest í Háskólann fæ ég að flytja til ömmu. Það var engan veginn sjálf- sagt að tvítug stúlka og áttræð kona fyndu taktinn í slíkri sambúð. Það þurfti að teygja sig yfir 60 ár af ólík- um sjónarmiðum, en á milli okkar tókst vinátta. Í samtölum leiddi eitt af öðru og ekkert var okkur óviðkom- andi, hvort sem í tal bárust bók- menntir, stjórnmál eða konungsættir. Síðustu árin átti amma orðið erf- iðara með lestur og því var það henni mikil andans lyftistöng að komast í áskrift að hljóðbókum hjá Blindra- bókasafni Íslands. Og hún hlustaði á spólu á eftir spólu og rifjaði upp kynn- in af ritum margra stórskálda Ís- lands. Vil ég þakka safninu það góða starf sem þar er unnið. Helga Margrét Ferdinandsdóttir. Margrét Stefánsdóttir Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Legsteinar og fylgihlutir MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk sími 587 1960 www.mosaik.is • Mikið úrval • Yfir 40 ára reynsla • Sendum myndalista ✝ Ástkær móðursystir okkar, SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR, Dvergasteini, síðast til heimilis að dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést föstudaginn 7. september. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 14. september kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Elín Hannesdóttir, Helgi Hannesson, Guðmundur Þór Hannesson. Eiginkona mín, móðir og systir, JÓHANNA Á. H. JÓHANNSDÓTTIR blaðamaður, lést á Heilsustofnun Suðurlands á Selfossi fimmtu- daginn 6. september. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 13. september og hefst kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast henn- ar er bent á GÖNGUM SAMAN hópinn sem styrkir rannsóknir og meðferð á brjóstakrabbameini. Reikningsnúmer er 115-05-069806, kennitala 251059-7569. Merkja þarf innleggið JÁHJ. Brahim Boutarhroucht, Helgi Idder Boutarhroucht, Alda og Jóhanna. ✝ Elskulegur vinur okkar, bróðir og frændi, KNÚTUR REYNIR EINARSSON, Sólheimum 23, er látinn. Guðrún L. Bergsveinsdóttir, Gylfi Jónsson og aðrir aðstandendur. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og amma, GRÉTA JÓNSDÓTTIR húsfreyja, Efri-Grímslæk, Ölfusi, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut aðfaranótt sunnudagsins 9. september. Gunnar Konráðsson og aðstandendur ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ERLA ÞORSTEINSDÓTTIR, áður til heimilis á Grandavegi 47, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ fimmtudaginn 6. september. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 12. september kl. 15.00. Guðrún Ástdís Ólafsdóttir, Ragnhildur Unnur Ólafsdóttir, Þorsteinn B. Gíslason, Erla Þórunn Ólafsdóttir, Kári Knútsson, Eggert Ólafsson, Hólmfríður Sigurðardóttir, Þóra Hrönn Ólafsdóttir, Magnús Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær systir mín, mágkona og frænka, GUÐLAUG TORFADÓTTIR líffræðingur, Hofakri 3, Garðabæ, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 13. september kl. 15.00. Kristín S. Gilson, Henry L. Gilson, Valgerður Jónsdóttir, Guðni Hannesson, Kristbjörn Jónsson. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, HJÖRDÍS RAGNA ÞORSTEINSDÓTTIR, sem lést á líknardeild LSH í Kópavogi laugar- daginn 8. september, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 17. sep- tember kl. 13:00. Georg Ragnarsson, Friðbjörn Georgsson, Margrét Ingólfsdóttir, Hildur Georgsdóttir, S. Hlynur Árnason, Ingólfur Már, Hjördís Ragna, Ingibjörg og Thelma. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGÞRÚÐUR PÁLSDÓTTIR ljósmóðir, frá Eyjum í Kaldrananeshreppi, Hraunvangi 3, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 9. september. Jarðarförin fer fram frá Víðistaðakirkju föstudaginn 14. september kl. 13.00. Halldór Hjálmarsson, Steinunn Halldórsdóttir, Einar Steingrímsson, Hjálmar Halldórsson, Rún Halldórsdóttir, Páll Halldórsson, Stella Óladóttir, Örn Halldórsson, Ingibjörg Bryndís Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.