Morgunblaðið - 11.09.2007, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.SAMBIO.IS SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDIVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
BÝR RAÐMORÐINGI Í ÞÍNU HVERFI?
ASTRÓPÍA kl. 6:30 - 8:30 - 10:30 LEYFÐ
LICENSE TO WED kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára DIGITAL
THE BOURNE ULTIMATUM kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
/ KRINGLUNNI
KNOCKED UP kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.14.ára
KNOCKED UP kl. 5:20 - 8 - 10:40 LÚXUS VIP
DISTURBIA kl. 8 - 10:30 B.i.14.ára
LICENSE TO WED kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.7.ára
ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 5:30 LEYFÐ
THE TRANSFORMERS kl. 10:10 B.i.10.ára
/ ÁLFABAKKA
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
eeeee
- LIB, TOPP5.IS
eeee
- S.V, MBL
SÝND M
EÐ ÍSLE
NSKU
OG ENS
KU TAL
I
eeee
JIS, FILM.IS
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
VETRARDAGSKRÁ Rásar 1 og 2
var kynnt með viðhöfn í Útvarps-
húsinu á fimmtudaginn. Að sögn
Sigrúnar Stefánsdóttur, dagskrár-
stjóra Rásar 1 og 2, verða ein-
hverjar breytingar gerðar á dag-
skrá Rásar 1, en færri á dagskrá
Rásar 2. „Við erum búin að vinna
að því í sumar að skoða alla dag-
skrárliði, ekki til þess að gera
neina byltingu, heldur til þess að
reyna að gera góða dagskrá enn
betri,“ segir Sigrún. „Það sem við
höfum haft að leiðarljósi í þessari
vinnu er að auka breiddina í dag-
skrárefni, gera hana fjölbreyttari.
Til þess að ná þessu markmiði
bjóðum við upp á marga nýja
þætti á Rás 1. Við verðum til
dæmis með neytendaþátt alla
virka daga sem við köllum Doktor
RÚV og nýjan og spennandi þátt
um kvikmyndir sem heitir Kvika.
Við verðum með nýja tónlist-
argetraunaþátt eftir hádegi á
sunnudögum og svo nýjan þátt
sem heitir Gárur, þátt sem kafar
ofan í heimsmálin. Fleiri nýir
þættir verða á dagskrá, auk þess
sem vægi tónlistar í dagskránni
verður aukið.“
Breytt samtenging
Þá segir Sigrún að einnig verði
horft til fortíðar. „Við ákváðum til
dæmis að setja aftur á dagskrá
úrvalsþáttinn Á Hljóðbergi, þátt
sem byggist á erlendu úrvalsefni.
Þá höfum við flutt allan end-
urflutning á nýju efni yfir á kvöld-
in og ég vona að það mælist vel
fyrir.“
Loks segir Sigrún að í október
verði hætt að samtengja rásirnar
tvær að næturlægi. Áfram verði
valdir þættir Rásar 2 endurteknir
á næturnar, en á Rás 1 verði hins
vegar boðið upp á sígilda tónlist
yfir hánóttina.
Gamalt og nýtt
„Mér finnst bilið milli Rík-
isútvarpsins og frjálsu útvarps-
stöðvanna sífellt að breikka,“ segir
Ólafur Páll Gunnarsson, verkefn-
isstjóri tónlistar á Rás 2. „Það er
mjög mikilvægt að RÚV sé til og
fái að blómstra í friði. Eina mark-
miðið hjá okkur er að halda okkur
innan ramma fjármagnins, og gera
almennilega dagkrá fyrir þá pen-
inga.“
Að sögn Ólafs Páls verða frem-
ur litlar breytingar gerðar á dag-
skrá Rásar 2 í vetur og munu
margir þættir halda áfram göngu
sinni, til dæmis Poppland, tón-
leikaþættir Andreu Jónsdóttur,
PartyZone, Síðdegisútvarpið,
Uppruni tegundanna, Geymt en
ekki gleymt, Rokkland og auðvitað
Tvíhöfði. Þó verða einhverjir nýir
þættir á dagskrá, til dæmis mun
Arnar Eggert Thoroddsen sjá um
þátt sem heitir Metal, Frank Hall
verður með Furðufugla og Ævar
Örn Jósepsson með Endurvinnsl-
una. Þá verða gerðir nýir heimild-
arþættir um fólk á borð við Rúnar
Gunnarsson, Hauk Morthens og
Dusty Springfield, svo einhverjir
séu nefndir. „Við erum virkilega
að leggja metnað í að setja saman
fjölbreytta og skemmtilega dag-
skrá. Við erum svolítið eins og
Mogginn; reynum að breyta ekk-
ert voðalega miklu í einu, en laga
okkur aðeins til öðru hverju,“ seg-
ir Ólafur Páll að lokum.
Alvöruútvarp
Margt forvitnilegt verður á dagskrá
Ríkisútvarpsstöðvanna í vetur
Morgunblaðið/Frikki
Útvarpsmenn Freyr Eyjólfsson og Ólafur Páll Gunnarsson kynntu dagskrá Rásar 2.
Dagskrárstjórinn Sigrún Stefánsdóttir sagði nokkrar
breytingar framundan þótt engin bylting sé í vændum.
Myndarlegar Þær Guðrún Gunnarsdóttir og Sigurlaug
M. Jónasdóttir voru duglegar við vöfflubaksturinn.
www.ruv.is