Morgunblaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 247. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is Forsala í fullum gangi Frumsýning 15. september Miðasala: 4 600 200 www.leikfelag.is FULLKOMIÐ HELENA ER KOMIN TIL DALLAS OG HÚN ER MEIRA EN SÁTT VIÐ AÐSTÖÐUNA >> ÍÞRÓTTIR EINSTÆÐ UPPLIFUN Á INDLANDI ÖÐRUVÍSI FJÖLSKYLDUFERÐ >> 20 FRÉTTASKÝRING Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „VIÐ höfum talað fyrir því að menn reyni að nýta betur þau háhitasvæði, sem þegar hafa verið virkjuð að hluta, í stað þess að farið sé inn á ný, ósnortin svæði,“ segir Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar, þegar hann er inntur eftir af- stöðu samtakanna til nýtingar háhitasvæða. Segist Bergur vilja sjá betri nýtingu hjá öll- um starfandi jarðvarmavirkjunum á land- inu. Bergur bendir í þessu samhengi á djúpborunarverkefni ÍSOR, sem geti ef vonir nái fram að ganga jafnvel fimmfaldað vinnslugetu hvers svæðis fyrir sig, auk þess sem huganlega sé hægt að auka endingu vinnslusvæðanna til muna. Í samtali við Ólaf G. Flóvenz, forstjóra ÍSOR, segir hann að komi eitthvað bita- stætt út úr rannsóknum á djúpborunum þá gætu þær skilað einhverju eftir einn til tvo áratugi. Þegar Bergur er spurður um þenn- an tímaás segir hann einn áratug vissulega býsna langan tíma í rekstri fyrirtækis. „En einn áratugur er afskaplega stuttur tími í framvindu eins samfélags. Svona ákvarð- anir þarf að taka á samfélagslegum grund- velli en ekki til að bjarga ársfjórðungs- skýrslu einstakra fyrirtækja.“ Frankvæmdir skoðaðar í samhengi Bergur kallar einnig eftir því að Skipu- lagsstofnun nýti heimildir til að skoða mats- skyldar framkvæmdir í heild en samkvæmt 5. gr. laga nr. 106/2000 með lagabreytingu nr. 74/2005 getur Skipulagsstofnun í „þeim tilvikum þegar fleiri en ein matsskyld fram- kvæmd eru fyrirhugaðar á sama svæði eða framkvæmdirnar eru háðar hver annarri […] að höfðu samráði við viðkomandi fram- kvæmdaraðila og leyfisveitendur ákveðið að umhverfisáhrif þeirra skuli metin sam- eiginlega“. Að sögn Stefáns Thors, skipulagsstjóra ríkisins, hefur tvisvar reynt á þetta, annars vegar í tengslum við Kárahnjúka árið 2001 og síðan vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Helguvík. Nú reyni á þetta lagaákvæði í tengslum við umsókn Hitaveitu Suðurnesja vegna rannsóknaborana á Reykjanesi. Stef- án segir eðlilegt að reynt sé að fá heild- arsýn í tengdum framkvæmdum í stað þess að taka aðeins afstöðu til einstakra þátta framkvæmda eða einstakra borholna.| 4 Morgunblaðið/ÞÖK Orkan nýtt Jarðvarmavirkjun Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiðinni. Nýta ætti svæðin betur Of löng bið eftir tækniframförum? AFAR fjölmennum félagsfundi Flugfreyju- félags Íslands lauk ekki fyrr en seint á tólfta tímanum í gærkvöldi. Þar var að sögn Sig- rúnar Jónsdóttur, formanns félagsins, gríð- arlega góð stemning og nánast áþreifanleg. Um 160 flugfreyjur og -þjónar sóttu fund- inn en í ágústmánuði voru 605 flugþjónar á launaskrá Icelandair. „Það er mikil samstaða innan hópsins,“ sagði Sigrún og bætti við að á fundinum hefði m.a. verið samþykkt álykt- un og uppsagnirnar harmaðar. Auk þess var samþykkt að fara að fordæmi Félags ís- lenskra flugmanna og vinna ekki umfram vinnuskyldu. Sigrún greindi einnig frá því að rætt hefði verið við stjórnendur Icelandair um mótvæg- isaðgerðir, s.s. að þeim sem ekki hefur verið sagt upp verði boðið að taka sér frí, launa- laust leyfi eða minnka við sig starfshlutfall í desember til mars. Vonast er til að ástandið verði betra frá aprílmánuði. | 2 Mikill hiti í flugþjónum  „Mikil samstaða innan hópsins,“ segir formaður Flugfreyjufélags Íslands  Uppsagnir harmaðar og samþykkt að vinna ekki umfram vinnuskyldu Morgunblaðið/Árni Sæberg Eftir Andra Karl andri@mbl.is HALD hefur verið lagt á á sjö- unda tug skotvopna í aðgerðum lögreglunnar það sem af er ári og er það meira en allt árið í fyrra. Síðast lagði lögregla hald á af- sagaða haglabyssu, sem stolið var á síðasta ári, og riffil í húsi í miðborg Reykjavíkur um miðjan dag á sunnudag. Á sama stað fundust ofskynjunarlyf og fleiri fíkniefni. Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu handtók karlmann á fimmtugsaldri og tvær konur á fertugsaldri í tengslum við hús- leitina. Þegar lögreglu bar að garði sat fólkið við neyslu fíkni- efna en það er grunað um aðild að þjófnaðarmáli sem tilkynnt var um fyrr á sunnudeginum. Við leit í húsnæðinu fundust líkt og áður segir haglabyssa og riffill en einnig skotfæri, hnífar og þýfi auk nokkurs magns af fíkniefnum, s.s. LSD, amfetamíni og hassi. Fólkið var allt handtek- ið og fært í fangageymslur þar sem það var látið sofa úr sér enda ekki hæft til samræðna vegna vímuáhrifa. Því var sleppt að loknum yfirheyrslum í gærdag. Að sögn Karls Steinars Vals- sonar, yfirmanns fíkniefnadeild- ar lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu, hefur lögreglan lagt hald á 32 haglabyssur það sem af er ári, 24 riffla og fimm skamm- byssur. Á öllu síðasta ári var hins vegar lagt hald á 38 haglabyssur, 18 riffla og fjórar skammbyssur. „Þetta eru tölur sem maður staldrar við,“ segir Karl Steinar en t.a.m. var aðeins lagt hald á tvær skammbyssur árið 2005. „Tölur sem mað- ur staldrar við“ Morgunblaðið/Júlíus Afrakstur Þórður Þórðarson að- alvarðstjóri með byssurnar tvær. Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is YFIRTÖKUNEFND mun rannsaka hvort yfirtökuskylda hefur mynd- ast í Tryggingamiðstöðinni eftir að FL Group eignaðist í gær að fullu eignarhaldsfélagið Kjarrhólma sem á 37,75% hlut í TM. Í síðustu viku eignaðist Glitnir banki 39,8% hlut í tryggingafélaginu en FL Group er langstærsti hluthafi Glitnis. Vegna þessara nánu tengsla mun þykja ástæða til þess að kanna hvort yfir- tökuskylda hafi myndast. Þess ber að geta að þegar kaup Glitnis voru tilkynnt í síðustu viku kom fram að bankinn hygðist selja hlutina áfram en ekki hefur verið greint frá því hvenær sú sala fer fram eða hverjir hugsanlegir kaupendur eru. Yfir- tökuskylda myndast þegar einn eða fleiri sem tengjast nánum böndum eignast 40% hlut í fyrirtæki.|13 Rannsaka hvort yfirtöku- skylda hefur myndast í TM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.