Morgunblaðið - 13.09.2007, Side 1
fimmtudagur 13.
9. 2007
viðskipti mbl.is
DKK
4,4%*
CAD
4,2%*
EUR
4,7%*
USD
5,4%*
GBP
6,5%*
ISK
14,4%*
Markmið
Peningabréfa er að
ná hærri ávöxtun en
millibankamarkaður og gjaldeyris-
reikningar. Enginn munur er
á kaup- og sölugengi.
Örugg ávöxtun
í fleirri mynt
sem flér hentar
Peningabréf
Landsbankans
G
O
TT
FÓ
LK
Peningabréf ISK/EUR/USD/GBP eru fjárfestingarsjó›ir í
skilningi laga nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingar-
sjó›i. Sjó›irnir eru reknir af Landsvaka hf., rekstrarfélagi me›
starfsleyfi FME. Landsbankinn er vörslua›ili sjó›anna. Athygli
fjárfesta er vakin á flví a› fjárfestingarsjó›ir hafa r‡mri fjár-
festingarheimildir skv. lögunum heldur en ver›bréfasjó›ir.
Um frekari uppl‡singar um sjó›ina, m.a. hva› var›ar muninn
á ver›bréfasjó›um og fjárfestingarsjó›um og fjárfestingar-
heimildir sjó›anna, vísast til útbo›sl‡singar og útdráttar úr
útbo›sl‡singu sem nálgast má í afgrei›slum Landsbankans
auk uppl‡singa á heimasí›u bankans, landsbanki.is.
* Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá 1. ágúst - 31. ágúst 2007.
viðskipti
Sjóvá ræður til sín rannsóknarlögreglumann í tryggingarannsóknir » 24
INGIMUNDUR Friðriksson
seðlabankastjóri vísar á bug þeirri
gagnrýni sem fram hefur komið á
peningamálastefnu Seðlabankans,
einkum frá Samtökum atvinnulífsins
en ítarlega er rætt við hann í blaðinu
í dag.
Samtök atvinnulífsins, SA, hafa
lýst áhyggjum sínum af afleiðingum
peningamálastefnu bankans og telja
að hún eigi þátt í þeim óstöðugleika
sem verið hefur í efnahagslífinu.
Vilja samtökin m.a. að verðbólgu-
markmið bankans miðist við vísitölu
neysluverðs án húsnæðis.
Ingimundi Friðrikssyni líst ekki á
þessar hugmyndir. „Við teljum að
það sé kostur að hafa húsnæðisliðinn
inni í verðbólgumælingunni. Hann
endurspeglar stóran hluta af fram-
færslukostnaði heimilanna og vísi-
tala neysluverðs með húsnæðis-
kostnaði er stöðugri mælikvarði á
verðbólgu en vísitalan án hans. Auk
þess er húsnæðisverðið leiðandi vís-
bending. Ef það hækkar hratt bend-
ir það til vaxandi einkaneyslu síðar.
Við viljum því ekki að húsnæðisverð-
ið verði tekið út,“ segir hann.
Ingimundur telur aðrar hugmynd-
ir SA ekki vera til bóta. „Mér finnst
mjög varasamt að slaka eitthvað á
þeim markmiðum sem við höfum um
verðbólgu. Við eigum að geta náð
verðbólgumarkmiðinu með skyn-
samlegri stefnu og góðu fyrirkomu-
lagi á markaði og það er engin
ástæða til að slaka eitthvað á þeim
kröfum sem þar eru gerðar.“
Óróinn kemur ekki á óvart
Í viðtalinu er einnig rætt við Ingi-
mund um óróann á fjármálamörkuð-
unum og umræðuna um krónu og
evru. Hann segir að engin leið sé að
segja til um hvort samdráttur sé
framundan í alþjóðlegu efnahagslífi.
Mál hafi ekki skýrst nægilega til
þess. Við því hefði hins vegar mátt
búast að breytingar yrðu á mörkuð-
um. Því hefði margsinnis verið spáð
á alþjóðavettvangi að breytingar
yrðu í hinu alþjóðlega umhverfi, og
Seðlabankinn hefði einnig vikið að
því í ritum sínum. Þær gætu gerst
mjög skyndilega.
„Óvenju mikið framboð hefur ver-
ið á lausafé á alþjóðamörkuðum und-
anfarin misseri. Vextir hafa verið í
sögulegu lágmarki og þarf sums
staðar jafnvel að fara hundrað ár aft-
ur í tímann til að finna annað eins.
Og áhættusæknin hefur verið gríð-
arlega mikil. Á það hefur jafnframt
verið bent að áhætta hafi ekki verið
verðlögð rétt,“ segir Ingimundur,
sem telur ekki séð fyrir endann á
óróanum. » 12-13
Vísar gagn-
rýni á bug
Ingimundur Friðriksson seðlabanka-
stjóri telur hugmyndir SA ekki til bóta
RÓBERT Wessman, forstjóri Actavis, segist ekki vera á förum frá fyr-
irtækinu, þó að hann hafi selt öll sín bréf þegar það fór af markaði við yf-
irtöku Novators. Hann ætlar að endurfjárfesta í Actavis, kaupa þar 12%
hlut, og lykilstjórnendur munu kaupa 5%. Í ítarlegu viðtali í blaðinu í dag
lýsir hann framtíðarsýn fyrirtækisins og næstu verkefnum. » 16-17
Morgunblaðið/Kristinn
Stýrir Actavis áfram
HEIMSMARKAÐSVERÐ á
hveiti hélt áfram að hækka í
gær í kjölfar frétta um að ástr-
alska hveitiuppskeran yrði minni
en vonast var til vegna þurrka.
Hafa hveitibirgðir heimsins ekki
verið minni í 26 ár, að því er
segir í frétt Bloomberg-
fréttastofunnar.
Mun ástralska uppskeran
nema 21 milljón tonna en gert
hafði verið ráð fyrir 23 millj-
ónum tonna.
Þá hefur eftirspurn eftir
hveiti frá löndum eins og Ind-
landi þrýst verði upp auk þess
sem veðurfar hefur skaðað upp-
skeru í Kanada, Bandaríkjunum
og Evrópu. Er svo komið að
skeppan af hveiti kostar nú yfir
níu Bandaríkjadali í kauphöll-
inni í Chicago og hefur hveiti-
verð aldrei verið jafnhátt. » 6
Heimsmarkaðs-
verð á hveiti hefur
aldrei verið hærra
NASDAQ, sem rekur samnefnda
kauphöll í Bandaríkjunum og hefur
gert yfirtökutilboð í OMX, mun
halda aukaaðalfund um mán-
aðamótin október-nóvember. Í kjöl-
farið verður tekin ákvörðun um
hvort tilboð félagsins í OMX verður
hækkað. Þetta sagði Bob Greifeld,
forstjóri Nasdaq, á fundi í Kaup-
mannahöfn í gær.
Greifeld hefur látið hafa eftir sér
að hann búist við að gengi Nasdaq
fari hækkandi og þá hækkar til-
boðið sjálfkrafa.
Hækkun tilboðs
enn ekki ljós