Morgunblaðið - 13.09.2007, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
B
ankastjórn Seðlabank-
ans hefur lýst því yfir að
um leið og forsendur
skapast til þess að
lækka stýrivexti bank-
ans þá verði þeir lækkaðir, en ekki
fyrr. Ingimundur Friðriksson seðla-
bankastjóri segir að stýrivextirnir
hafi sannarlega bitið á verðbólguna.
Rangt sé að halda öðru fram. „Ef
Seðlabankinn hefði ekki beitt auknu
aðhaldi þá er næsta víst að við byggj-
um við miklu meiri verðbólgu í dag,
og þann usla og óróa sem því fylgdi,“
segir hann.
Stýrivextir Seðlabankans hafa ver-
ið óbreyttir, 13,3%, frá því í lok síð-
asta árs. Alls voru vextirnir hækkaðir
sjö sinnum á síðasta ári um samtals
3,3 prósentustig. Frá því í maí árið
2004 hafa vextirnir hins vegar verið
hækkaðir nítján sinnum.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, sagði í viðtali við Morgunblaðið í
lok síðasta mánaðar, að vaxtaákvarð-
anir Seðlabankans væru komnar í
hreina sjálfheldu og bankinn sæi
aldrei möguleika á að lækka vexti.
Fleiri aðilar úr atvinnulífinu hafa tek-
ið í svipaðan streng.
Ingimundur segist vera algjörlega
ósammála þessu. „Verðbólgan var í
hámarki, nálægt átta og hálfu pró-
senti, síðla sumars í fyrra,“ segir
hann „Úr henni hefur dregið hægt og
bítandi síðan þá, að vísu hægar en við
hefðum kosið, en það er enginn efi í
okkar huga að úr henni hefur dregið
fyrst og fremst vegna þess aðhalds
sem stafar frá peningamálunum. Við
erum jafnframt ósammála því sjón-
armiði að við séum í einhverri sjálf-
heldu og að aldrei verði hægt að
lækka hér vexti.“
Breytt og bætt aðferðafræði
Að sögn Ingimundar hefur Seðla-
bankinn smám saman breytt aðferð-
um sínum við spágerð og bætt þær.
Hann segir að síðast hafi mikilvægum
áfanga í þeim efnum verið náð í mars
sl. þegar bankinn hóf að birta stýri-
vaxtaferil samhliða verðbólguspá.
Það hafi svo verið gert á ný í júlímán-
uði síðastliðnum. Þá hafi verið gert
ráð fyrir því að Seðlabankinn gæti
lækkað stýrivexti sína á fyrri helm-
ingi næsta árs, sem sé reyndar seink-
un frá spá bankans í mars. Breyting-
arnar á framkvæmd
peningastefnunnar hafi mælst vel
fyrir. Sértaklega hafi birtingu stýri-
vaxtaferilsins verið vel tekið og hún
haft þau áhrif á væntingar á markaði
sem Seðlabankinn sóttist eftir.
Þegar greint var frá vaxtaákvörð-
un bankastjórnar Seðlabankans í síð-
ustu viku var sérstaklega tekið fram
að hún sæi enga ástæðu til að hvika
frá þeirri spá sem birt var í júlí. Ný
verðbólgu- og þjóðhagsspá verður
birt í Peningamálum í byrjun nóvem-
ber og um leið nýr stýrivaxtaferill.
Brýnast að ná jafnvægi
Ingimundur segir að túlka megi kröf-
ur ýmissa aðila í atvinnulífinu, um að
Seðlabankinn hefði fyrir löngu átt að
hefja lækkunarferli stýrivaxta, á
þann veg að þeir telji að bankinn hefði
í raun átt að hleypa í gegn verðbólgu
með því að beita ekki peningalegu að-
haldi. Ekki sé hægt að hafa hemil á
slíkri þróun og skrúfa frá verðbólg-
unni og fyrir hana eftir hentugleikum
hvað þá verðbólguvæntingum. Fram-
vinda síðustu missera sýnir svo ekki
verður um villst hve erfitt getur
reynst að ná tökum á verðbólgu sem
farið hefur úr böndum.
„Brýnasta verkefnið í efnahags-
stjórninni hér á landi er að ná jafn-
vægi í þjóðarbúskapnum og að því
þarf að róa öllum árum. Þetta er
hagsmunamál allra. Verðbólga er
vond. Hún fer illa með efnahag heim-
ila sem skulda mikið í verðtryggðum
lánum og veldur usla í atvinnurekstri.
Auðvitað siglum við vandasama sigl-
ingu með gríðarlegan viðskiptahalla
og undirliggjandi verðbólgu sem er
enn 5-6%, en það knýr á um að jafn-
vægi verði náð sem fyrst.“
Hann segir að til að ná árangri í
baráttunni við verðbólguna sé þörf á
áframhaldandi aðhaldi af hálfu Seðla-
bankans. Þá þurfi auðvitað áfram-
haldandi aðhald frá þeim sem fari
með opinber fjármál, bæði ríkis og
sveitarfélaga, og það þurfi líka aðgát
á vinnumarkaði. Seðlabankinn hafi
lýst því yfir að hann muni bregðast
við verðbólguhorfum, hvort sem þær
versna eða batna frá því sem verið
hefur, og við það verði staðið.
„Það sem þarf nú er strangt aðhald
á öllum sviðum efnahagsstjórnarinn-
ar. Við höfum beitt því í peningamál-
um og reyndar vakið athygli á því, nú
síðast í síðustu viku, að ákveðnir
hnökrar eru enn á miðlunarferlinu
sem gera það að verkum að peninga-
stefnan skilar sér ekki af fullum
þunga, sérstaklega ekki á langa enda
skuldabréfamarkaðarins. Þeir hnökr-
ar eru fyrst og fremst í fyrirkomulagi
fasteignaveðlána. Á því er brýnt að
taka til að gera Seðlabankanum kleift
að hafa þau áhrif sem hann þarf að
hafa. Á meðan vaxtahækkanir slá
ekki út á þeim enda markaðarins
hækkar fasteignaverðið, eins og það
hefur gert undanfarna mánuði.“
Þá hefur Seðlabankinn bent á að
það myndi styrkja innlendan skulda-
bréfamarkað ef ríkissjóður gæfi
meira út af eigin skuldabréfum þótt
hann hafi ekki þörf fyrir lánsfé. Af því
hlytist einhver beinn kostnaður fyrir
ríkissjóð en frá langtímasjónarmiði
yrði til virkari innlendur fjármagns-
markaður. Ríkissjóður ætti þá einnig
greiðari aðgang að þeim markaði ef
hann þyrfti á ný á lánsfé að halda.
Íbúðalánasjóður
endurskoðaður
Ingimundur segir Seðlabankann ekki
hafa opinbera skoðun á því hvernig
réttast sé að breyta hinu opinbera
íbúðalánakerfi.
„Það sem skiptir hins vegar máli
fyrir Seðlabankann er að þær breyt-
ingar verði gerðar sem gera peninga-
stefnunni kleift að hafa tilætluð áhrif.
En það er jafnframt mikilvægt að í
því framtíðaríbúðalánakerfi sem hér
verður mótað verði líka traustur
grunnur undir skuldabréfamarkað-
inn. Við höfum bent á þessi atriði í
nokkur ár, m.a. í ritum bankans, í um-
sögnum til Alþingis og í greinargerð-
um til ráðherra. Harla lítið hefur hins
vegar gerst. Alþjóðastofnanir hafa
einnig bent á að löngu tímabært sé að
endurskoða hlutverk Íbúðalánasjóðs.
Í því sambandi má sérstaklega vekja
athygli á umsögnum Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, síðast nú í sumar.
Skýrslur sjóðsins sýna að þeir sem
þær hafa unnið hafa lagt sig eftir því
að kynna sér mjög rækilega fyrir-
komulag íbúðalána hér á landi. Við
tökum undir ábendingar Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins í þessum efnum.“
Hann segir Seðlabankann bíða
þess að teikn sjáist um að það fari að
hægjast um á fasteignamarkaði.
Bankinn hefði kosið að slík teikn
hefðu nú þegar komið fram. Það yrði
ótvírætt til bóta við núverandi að-
stæður ef vextir af útlánum Íbúða-
lánasjóðs yrðu hækkaðir, líkt og gerst
hefur hjá bönkunum. Sjóðurinn fjár-
magni sig hins vegar á markaði með
ríkisábyrgð til mjög langs tíma og þar
hafi ávöxtunin verið lægst, og því hafi
hann getað farið hóflegar í vaxta-
hækkanir að undanförnu en ella.
„Það myndi hins vegar hjálpa okk-
ur ef vextir af útlánum Íbúðalána-
sjóðs hækkuðu meira en þeir hafa
gert, þannig að ávöxtun á skemmri
enda verðtryggða skuldabréfamark-
aðarins endurspeglaðist betur í útlán-
avöxtum sjóðsins. Tilgangur peninga-
legs aðhalds er að gera lánsfé dýrara
þannig að fjárfestingum og neyslu sé
frestað þar til skilyrði hafa breyst.“
Samtök atvinnulífsins hafa lýst
áhyggjum af afleiðingum peninga-
málastefnu Seðlabankans og telja að
hún eigi þátt í þeim óstöðugleika sem
verið hefur í efnahagslífinu. Hafa
samtökin í þessu sambandi bent á
mögulegar breytingar á markmiðum
um verðlagsþróun er snúa að verð-
bólgumarkmiði Seðlabankans, sem
þau telja að geti haft grundvallaráhrif
á þróun kjarasamningaviðræðna milli
aðila vinnumarkaðarins. Meðal þess
sem samtökin hafa lagt til er að verð-
bólgumarkmið Seðlabankans miðist
við vísitölu neysluverðs án húsnæð-
isliðarins, en að undanförnu hefur sá
liður staðið fyrir um helming verð-
bólgunnar hér á landi. Í annan stað
hafa Samtök atvinnulífsins lagt til að
horfið verði frá því að ákveða eitt
Brýn þörf á áfram
Ákvörðun bankastjórnar Seðlabanka Íslands í
síðustu viku að halda stýrivöxtum bankans
óbreyttum kom fáum á óvart. Ýmsir hafa hins
vegar látið í ljós efasemdir um að vaxtaákvarðan-
ir bankans virki. Ingimundur Friðriksson seðla-
bankastjóri vísar þessu alfarið á bug og segir
þvert móti að árangurinn hafi komið skýrt fram í
hjöðnun verðbólgunnar. Grétar Júníus Guð-
mundsson ræddi meðal annars við hann um stýri-
vextina, óróann á fjármálamörkuðum og krónuna.
Bankastjóri Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri hefur langa og farsæla reynslu úr bankaheiminum. Hann svarar í vi
sem heyrst hafa að undanförnu um stefnu og hlutverk Seðlabankans, m.a. frá forsvarsmönnnum Samtaka atvinnulífsins.