Morgunblaðið - 13.09.2007, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
R
óbert tekur það skýrt
fram í upphafi viðtals
okkar í höfuðstöðvum
fyrirtækisins í Hafnar-
firði að hann sé ekki að
fara að yfirgefa Actavis, líkt og sterk-
ur orðrómur hefur verið um eftir að
hann seldi öll sín bréf í félaginu við
yfirtöku Novator. Hann segist ætla
að endurfjárfesta í félaginu og að
eignarhlutur hans verði 12%, þrefalt
meira eignarhlutfall en hann var með
áður. Þá munu lykilstjórnendur vera
með um 5% til viðbótar.
„Þegar maður byggir svona félag
upp frá grunni horfir maður eins og
stoltur faðir yfir farinn veg. Það er
erfitt að slíta sig frá svona fyrirtæki
og svolítið eins og barnið manns, að
labba burtu frá því. Allir lykilstarfs-
menn hafa eytt gríðarlega löngum
vinnustundum og miklum kröftum í
þetta, og það á einnig við um mig. Þó
að markaðsstaða okkar sé góð í dag
eigum við enn mikið eftir og næg
sóknartækifæri fyrir félagið til frek-
ari vaxtar. Verki mínu er því ekki lok-
ið og ég hef mikinn metnað fyrir því
að halda áfram að stýra félaginu,“
segir Róbert.
Orðrómurinn um að hann væri að
hætta fékk byr undir báða vængi er
fréttist að hann hefði tekið frá tvær
hæðir í stóra turninum sem er að rísa
við Smáralind, Norðurturninum svo-
nefnda. Róbert staðfestir að þessar
hæðir séu á hans vegum, eða öllu
heldur fjárfestingafélags sem hann
hefur stofnað utan um þær fjárfest-
ingar sem hann hefur ráðist í per-
sónulega, samhliða starfi sínu hjá Ac-
tavis undanfarin ár. Mun hann ráða
til sín nokkra starfsmenn til að halda
utan um þetta fyrir sig en einkum er
um að ræða fjárfestingar í fasteign-
um. Róbert leggur áherslu á að þetta
skarist ekki við störf sín hjá Actavis.
„Ég er ekki að hætta hjá Actavis,“
segir Róbert og tekur strax af allan
vafa um það, enda kýs hann fremur
að fara að snúa talinu að framtíð fyr-
irtækisins heldur en sinnar eigin.
Reksturinn óbreyttur
Hann segir að starfsemi Actavis sé
ekki að breytast þó að fyrirtækið fari
af hlutabréfamarkaði. Breytingin fel-
ur fyrst og fremst í sér breytta eign-
araðild, þar sem stærsti hluthafinn,
Novator, varð stærri og að sýnileiki
Actavis og upplýsingagjöf verður
minni en hún hefur verið.
„Það er alveg ljóst að áherslur og
framtíðarsýn hafa ekki breyst þó að í
fyrstu sé það ákveðin breyting að
vera ekki lengur almenningshluta-
félag. Við erum vön að takast á við
breytingar og höfum útskýrt þessa
breytingu fyrir okkar starfsmönn-
um,“ segir hann.
Í nýlegu fréttabréfi til starfs-
manna Actavis, sem gefið er út á
ensku, er viðtal við þá Róbert og
Björgólf Thor Björgólfsson, stjórnar-
formann Actavis, með yfirskriftinni
„Business as Usual“. Þar er m.a. haft
eftir Björgólfi Thor að hann telji Ac-
tavis eitt öflugasta lyfjafyrirtækið á
markaðnum í dag og að hann bindi
miklar vonir við áframhaldandi fjár-
festingu sína í félaginu.
Gott að spila lokaðan póker
Róbert segir ákveðin tækifæri felast í
því að vera ekki lengur á hlutabréfa-
markaði og að félagið þurfi nú ekki að
senda frá sér eins ítarlegar upplýs-
ingar og áður.
„Okkar iðnaður er í stöðugri mót-
un og samkeppnin er gríðarleg. Á síð-
ustu árum höfum við verið í hópi
þeirra félaga sem hafa tekið virkan
þátt í þessari þróun og meðal annars
verið í leiðandi hlutverki í kaupum og
samþættingu á félögum. Það er mikið
horft til okkar verka og ágætt að
þurfa ekki að leggja spilin alltaf öll á
borðið fyrirfram og spila opinn pók-
er. Það er gott að geta spilað lokaðan
póker í tilfelli Actavis, sem er í leið-
andi hlutverki á markaðinum. Núna
getum við haft fullt svigrúm í okkar
upplýsingagjöf og erum ekki bundin
af reglum markaðarins í þeim efnum.
Við sjáum stöðugt fyrirtæki vera að
byggja sig upp á svipuðum forsend-
um og við, nema að þau eru nokkrum
árum á eftir okkur,“ segir Róbert en
þetta á sérstaklega við fjölgun lyfja í
þróun, lægri kostnað við framleiðslu,
samhæfingu vörumerkja og að
tryggja sér lykilstöðu á helstu mörk-
uðum. Sum fyrirtækin hafa gengið
það langt að byggja upp sína ímynd
með því að nota markaðsefni frá Ac-
tavis. Má nefna dæmi um nýlega aug-
lýsingu frá indverska lyfjafyrirtæk-
inu Ranbaxy, sem er sláandi lík
auglýsingu frá Actavis síðan fyrir
nokkrum árum. Allt útlit er hið sama
og stendur Actavis í málaferlum við
nokkur fyrirtæki af þessum völdum.
Mikil vaxtatækifæri
Samheitalyfjamarkaðurinn tekur ör-
um breytingum og að undanförnu
hafa verðlækkanir á mörgum af
stærstu mörkuðunum numið allt að
7-12% og mest í Bandaríkjunum og
Þýskalandi. Eftirspurnin er hinsveg-
ar að aukast og Róbert segir mörg
ónýtt tækifæri vera fyrir hendi. Fyr-
irtæki þurfi alltaf að vera á tánum.
„Þau fyrirtæki sem hafa staðið í
stað, og ekki verið að sækja, hafa
ekki náð að auka sína arðsemi. Þetta
gerir reksturinn mjög krefjandi og
einnig er umhverfi lyfjafyrirtækja
talsvert ólíkt öðrum atvinnugreinum.
Það má líkja þessu við lekandi fötu,
sem stöðugt þarf að láta renna í. Á
hverju ári þurfum við að vinna upp
verðlækkanir fyrra árs sem nema í ár
rúmlega 10 milljörðum króna, auk
þess sem við erum að ná yfir 10%
vexti,“ segir Róbert og heldur áfram:
„Vöxtur okkar á undanförnum ár-
um hefur verið ævintýralegur. Við
höfum vaxið frá því að vera lítið ís-
lenskt félag í að vera í hópi stærstu
samheitalyfjafyrirtækja heims og er-
um það félag sem hefur vaxið hvað
hraðast á okkar sviði síðustu ár. Þrátt
fyrir að mikið hafi áunnist sjáum við
mikið af ónýttum tækifærum sem við
ætlum okkur að nýta. Markmið okk-
ar er að ná yfir 10% tekjuvexti á ári
næstu árin og að tekjur okkar verði
yfir tveir milljarðar evra, sem sam-
svarar yfir 180 milljörðum króna, ár-
ið 2010. Á sama tímabili er stefnt að
því að auka arðsemi félagsins mikið.
Til að styðja við vaxtarmarkmið okk-
ar erum við að koma okkur fyrir á
fjölmörgum nýjum mörkuðum og
styrkja stöðu okkar þar sem við erum
litlir. Við erum til að mynda búnir að
Slítur sig ekki frá barninu
Eftir að Actavis fór af markaði hafa verið uppi
vangaveltur um framtíð fyrirtækisins. Björn Jó-
hann Björnsson ræddi við Róbert Wessman for-
stjóra um hvert Actavis og hann sjálfur stefndu.
Þar er leiðir ekki að skilja.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Forstjóri Róbert Wessman hefur stýrt skútunni hjá Actavis frá árinu 1999 og þó að hún sé farin að róa á önnur mið ætlar að hann að standa áfram við stýrið.