Morgunblaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 17
Lærdómur af stærsta fjármálahneyksli sögunnar
Málþing haldið á Nordica hóteli fimmtudaginn 20. september kl. 8.00-10.00
Frumkvæði, áræði, snerpa og dugnaður þykja virðingarverðir eiginleikar hjá starfsfólki fjármálafyrirtækja. En
eru fjármálamarkaðir þess eðlis að hætta sé á að þessir eiginleikar snúist upp í andhverfu sína og fari að hafa
óæskileg áhrif? Að einstaklingum sé ýtt út á ystu nöf þannig að þeir jafnvel knésetji stórfyrirtæki áður en hægt
er að taka í taumana?
Árið 1995 tapaði Nick Leeson hjá Barings-banka svo miklu fé í áhættusömum viðskiptum
að bankinn varð gjaldþrota. Síðustu ár hefur verið stöðugur uppgangur á
fjármálamörkuðum á Íslandi og víða um heim. Við þessar aðstæður er ástæða til að
staldra við, líta til baka og spyrja: Hver er staðan nú? Getur saga Nick Leesons og
Barings-banka endurtekið sig? Hvað getum við lært af reynslunni?
Eftir að Nick Leeson afplánaði refsingu sína hefur hann náð hljómgrunni og öðlast
virðingu með því að segja sögu sína opinskátt og miðla af reynslu sinni. Hann mun
halda erindi á málþingi Icebank þar sem hann rekur hvernig hann gerði 233 ára virta
fjármálastofnun gjaldþrota á örfáum vikum. Einnig fjallar hann um hvort svipaðir atburðir
geti gerst í nútímafjármálaumhverfi og hvernig megi koma í veg fyrir það.
Dagskrá:
8:00 Léttur morgunverður
8:30 Ávarp: Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík
Stjórnendur og knattspyrnudómarar
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Icebank
Hvað gerist þegar eftirlit bregst? Samanburður á viðskiptum og stjórnmálum
Páll Ásgeir Davíðsson, lögfræðingur og sérfræðingur í lagadeild Háskólans í Reykjavík
Hvernig Barings-banki varð gjaldþrota og lærdómurinn fyrir fjármálafyrirtæki nútímans
Nick Leeson, fyrrverandi verðbréfamiðlari hjá Barings-banka
Umræður og fyrirspurnir
10:00 Fundarlok
Fundarstjóri: Agnar Hansson, framkvæmdastjóri fjárstýringar Icebank
Málþingið er haldið á vegum Icebank í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og er enginn aðgangseyrir. Þar
sem sætafjöldi er takmarkaður er þess óskað að þátttaka verði tilkynnt á netfangið icebank@icebank.is eða
í síma 540 4000 fyrir 19. september. Nánari upplýsingar um málþingið má nálgast á vefsíðu Icebank,
www.icebank.is.
Getur Barings-málið endurtekið sig?
H
2 h
ö
n
n
u
n
koma okkur vel fyrir á mörgum af
stærstu lyfjamörkuðum í Evrópu,“
segir Róbert og nefnir þar m.a.
Þýskaland, Bretland, Tyrkland,
Búlgaríu og Norðurlöndin. Einnig
sjái Actavis tækifæri á mörkuðum
þar sem hlutdeild samheitalyfja er
lítil en í hröðum vexti, s.s. í Frakk-
landi, Ítalíu, Portúgal og á Spáni.
„Þar höfum við verið að skrá okkar
lyf og erum að kynna okkur til sög-
unnar. Þá markaðssettum við nýlega
okkar fyrstu lyf í Austurríki og Sviss
og erum að byggja upp starfsemi
okkar þar. Bandaríkjamarkaður er
líkt og áður fyrr okkar mikilvægasti
markaður og í dag er félagið á meðal
sex stærstu á markaðnum.“
Þá er Actavis að skoða kínverska
lyfjamarkaðinn en það verður ekki
létt verkefni. Miklar væringar munu
vera á þeim markaði og mörg dæmi
um lyfjafalsanir. Til marks um það
var yfirmaður lyfjamála þar í landi
nýlega dæmdur til dauða vegna
mútugreiðslna!
„Það er verið að spá því að kín-
verski markaðurinn verði meðal
þeirra fimm stærstu í heiminum á
næstu þremur eða fjórum árum.
Mörg fyrirtæki þar munu fara af
markaði því gæðin og gæðakröfurnar
hafa ekki verið í samræmi við t.d.
markaðina í Bandaríkjunum og Evr-
ópu. Við sjáum því tækifæri í Kína á
næstu árum til að auka sölu okkar
þar en við höfum einnig skoðað fjöl-
mörg fjárfestingartækifæri þar á
sviði framleiðslu og þróunar lyfja. Við
höfum einnig verið að mjaka okkur
inn á japanska markaðinn með
krabbameinslyfjum frá Sindan í
Rúmeníu,“ segir Róbert, sem reiknar
með að Actavis gangi til samstarfs við
japönsk fyrirtæki um sölu og dreif-
ingu á lyfjum þar í landi. Spurður út í
fleiri ný markaðssvæði nefnir Róbert
einnig Mið- og Suður-Ameríku. Þar
séu Brasilía, Chile og Argentína
áhugaverðustu markaðirnir og þeim
spáð miklum vexti.
Ekki ráðist í stórar yfirtökur
Róbert segir að það hafi verið fram-
tíðarsýn félagsins allt frá árinu 1999
að byggja upp öflugt alþjóðlegt sam-
heitalyfjafyrirtæki.
„Það voru í raun bara tveir kostir í
stöðunni, annaðhvort að selja fyrir-
tækið þar sem við höfðum ekki
stærðarhagkvæmnina eða koma Ac-
tavis í hóp öflugustu samheitalyfja-
fyrirtækjanna á skömmum tíma.
Verkefnið fól í sér að koma Actavis
inn á alla helstu markaði heims með
því að byggja upp sölu- og markaðs-
skrifstofur í 40 löndum, byggja upp
20 framleiðslueiningar í 10 löndum,
fjölga starfsfólki sem vinnur við þró-
un á nýjum lyfjum úr 20 í 1.200 og ná
að byggja upp innviði félagsins til að
ráða við framtíðarvöxtinn. Samhliða
þessu var mikilvægt að byggja upp
ímynd félagsins og fyrirtækjamenn-
ingu til að tryggja að 11.000 starfs-
menn Actavis stefni allir í sömu átt.
Verkið var ærið enda koma starfs-
menn Actavis í dag frá 40 mismun-
andi löndum auk þess sem fyrir-
tækjamenning sem þessir
einstaklingar voru vanir var gerólík.“
Róbert segir þessa framtíðarsýn
hafa skipt verulegu máli því þau fyr-
irtæki sem eru í leiðandi stöðu í heim-
inum í dag hafa yfir að ráða breiðu
úrvali lyfja, hafi lágan framleiðslu-
kostnað, stærðarhagkvæmni og
dreift sölunet á öllum helstu lyfja-
mörkuðum heims. Til þess að koma
Actavis í leiðandi stöðu á sínu sviði í
heiminum hefur fyrirtækið því ráðist
í fjölmargar yfirtökur síðustu árin.
„Val okkar á fyrirtækjum hefur
gengið út á að styðja við þessa fram-
tíðarsýn okkar samhliða að styrkja
undirliggjandi starfsemi félagsins,“
segir hann en frá árinu 1999 hefur
Actavis yfirtekið yfir 25 fyrirtæki
víðs vegar um heim.
Róbert segir nauðsynlegt að styðja
við undirliggjandi vöxt með yfirtök-
um og að það hafi alltaf verið stefna
félagsins. Actavis gerði sem kunnugt
er tilraunir til að taka yfir önnur sam-
heitalyfjafyrirtæki, eins og Pliva og
Merck, en bakkaði út úr þeim áform-
um á lokastigum viðræðna og tilboða.
Spurður hvort fyrirtækið muni sýna
yfirtökum sem þessum áfram áhuga
segir Róbert að nú sé ekki rétti tím-
inn fyrir stórar yfirtökur þar sem
verðmiðarnir á stærri fyrirtækjunum
séu mjög háir um þessar mundir.
„Ef við hefðum keypt Pliva og
Merck á því verði sem þau voru seld á
hefði það haft neikvæð áhrif á af-
komu Actavis í tvö til þrjú ár á eftir,“
segir Róbert og bendir á að hluta-
bréfaverð bandaríska lyfjafyrirtæk-
isins Mylan, sem keypti Merck, hafi
lækkað um rúmlega 30% frá kaup-
unum og kaup Barr á PLIVA á síð-
asta ári hafi enn engu skilað til hlut-
hafa.
„Forstjóri Mylan varð síðan svo
frægur að komast í Lex column í Wall
Street Journal í grein sem bar yfir-
skriftina „The Week’s dummest
deal“ eða Heimskasta fjárfesting vik-
unnar, eftir að hafa greitt nokkur
hundruð milljónum evra meira fyrir
félagið en við vorum tilbúnir til. Það
var því skynsamleg ákvörðun að
draga sig út úr þeim viðræðum. Ef
kaupin hefðu hins vegar gengið í
gegn á því verði sem við buðum hefði
það getað verið mjög áhugavert fyrir
félagið og að öllum líkindum hefðum
við séð Actavis skráð í erlenda kaup-
höll í framhaldinu,“ segir hann.
Á næstunni segir Róbert því ekki
vera á dagskrá að ráðast í stórar yf-
irtökur heldur sé horft til minni og
sérhæfðari fyrirtækja, líkt og gert
var í Rúmeníu með Sindan.
Höfuðstöðvarnar úti um allt
Frá árinu 1999 hefur verið gríðarleg-
ur vöxtur á Actavis og Róbert getur
svo sannarlega litið stoltur yfir farinn
veg. Á þessum árum hefur Actavis
tekið yfir 25 önnur fyrirtæki og nú er
svo komið að fyrirtækið er með um 11
þúsund starfsmenn á sínum vegum í
40 löndum í fimm heimsálfum. Sem
samheitalyfjafyrirtæki er Actavis
meðal sex stærstu og í hópi 50
stærstu lyfjafyrirtækja heims, þar
sem vöxtur Actavis hefur verið hrað-
ari en hjá þeim öllum. Af um 11.000
starfsmönnum eru 600 starfsmenn
Actavis hér á landi, og fyrirtækið hef-
ur nýlega komið sér fyrir í glæsilegri
byggingu við Reykjavíkurveginn í
Hafnarfirði. Þar eru hinar formlegu
höfuðstöðvar og Róbert segir að
þannig verði það áfram. Hann lítur
hins vegar svo á að orðið „höfuðstöðv-
ar“ sé að mörgu leyti orðið úrelt,
framkvæmdastjórar Actavis séu í
nokkrum löndum og þeir komi mán-
aðarlega saman í tvo daga þar sem
hentar best hverju sinni.
„Formlega erum við enn með höf-
uðstöðvar á Íslandi og ætlum að vera
hér áfram með okkar skráða lög-
heimili,“ segir Róbert Wessman að
lokum, tekur saman blöð á borðinu og
stokkar þau upp, tilbúinn í næsta
verkefni dagsins.
bjb@mbl.is
» Vöxtur okkar á undanförnum árum hefur veriðævintýralegur. Við höfum vaxið frá því að vera
lítið íslenskt félag í að vera í hópi stærstu samheita-
lyfjafyrirtækja heims og erum það félag sem hefur
vaxið hvað hraðast á okkar sviði síðustu ár.