Morgunblaðið - 15.09.2007, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
„Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferða-
markaðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA
er, hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan
ferðaþjónustunnar hvar sem er í heiminum.“
Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir,
Allrahanda.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekin eru próf í mars nk. og
veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku.
Námið hentar öllum þeim, sem áhuga hafa
og vilja auka þekkingu sína á ferðaþjónustu.
www.menntun.is
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22
ÞETTA HELST ...
● HLUTABRÉF lækkuðu í Kauphöll
Íslands í gær. Úrvalsvísitalan lækk-
aði um 1,49% og er 7.771 stig. Bréf
Century Aluminium hækkuðu um
1,19%, bréf 365 hækkuðu um
0,81% og bréf Össurar um 0,4%.
Bréf FL Group lækkuðu um 2,99% og
bréf Foröya Banka um 2,65%.
Gengisvísitala krónunnar hækk-
aði um 1,17% í gær og lækkaði
gengi krónunnar sem því nemur.
Velta á gjaldeyrismarkaði nam 17,2
milljörðum króna. Gengi Bandaríkja-
dals var við lokun markaða 64,34
krónur, gengi evru var 89,24 krónur
og gengi breska pundsins var
129,57 krónur.
Lækkanir á markaði
● GENGI bréfa Trygginga-
miðstöðvarinnar í kauphöll OMX á
Íslandi hefur hækkað um 15,6%
frá mánaðamótum, samtímis sem
úrvalsvísitala kauphallarinnar hef-
ur lækkað um 4,9%. Miklar breyt-
ingar hafa orðið í hluthafahópi TM
á þessu tímabili og ber þar hæst
að Glitnir keypti 39,8% hlut í fé-
laginu og FL Group eignaðist allt
hlutafé í Kjarrhólma, næststærsta
hluthafa TM. Gengishækkun TM
skýrist að mestu leyti af þessum
breytingum en ætla má að hluti
hækkunarinnar skýrist af vænt-
ingum fjárfesta um að yfirtöku-
tilboð í félagið gæti verið vænt-
anlegt.
TM hækkar mikið
● SYSTURFÉLAG
Frumherja hf.,
Frumherji Invest,
hefur eignast
85% hlut í
norska félaginu
Viking Redn-
ingstjeneste, en
norska félagið
sinnir einkum
bílaþjónustu og aðstoð á vegum
úti, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu. Þrír stjórnendur keyptu 15%
hlut í félaginu á móti Frumherja.
Viking Redningstjeneste er um
hálfrar aldar gamalt fyrirtæki og er
rúmlega tvisvar sinnum stærra fé-
lag en Frumherji, miðað við veltu
ársins 2006. Höfuðstöðvar fyrirtæk-
isins eru í Ósló og hjá því starfa um
50 manns. Viking verður áfram
sjálfstætt félag, rekið undir sama
nafni.
Í tilkynningunni er haft eftir Orra
Vigni Hlöðverssyni, framkvæmda-
stjóra Frumherja, að Viking sé álit-
legur fjárfestingarkostur en jafn-
framt megi hugsa sér að tengja
starfsemi Frumherja og Viking að
einhverju leyti saman í framtíðinni.
Frumherji lagstur
í víking til Noregs
ALÞÝÐUBANKINN, seðlabanki
Kína, tilkynnti í gær að stýrivextir
yrðu hækkaðir um 0,27 prósentustig
frá og með deginum í dag. Vextir á
eins árs innlánum verða 3,87% og
vextir á útlánum verða 7,29%. Þetta
er í fimmta sinn á þessu ári sem Al-
þýðubankinn hækkar vexti sína til
þess að reyna að sporna við aukinni
þenslu í hagkerfinu.
Það hefur hingað til ekki tekist og
sem dæmi má nefna að í fyrradag
bárust af því fréttir að magn peninga
í umferð hefði í ágúst verið 18%
hærra en í sama mánuði árið áður.
Stýrivöxtum er einmitt ætlað að bíta
á þenslunni með því að draga úr
magni peninga í umferð og sýnir
þetta því augljóslega að Alþýðu-
bankinn hefur hingað til ekki haft er-
indi sem erfiði. Þá hefur verðbólga í
landinu aukist.
Enn hækka
stýrivextir
BLIKUR eru enn á lofti í banda-
rísku efnahagslífi og ýttu nýjar töl-
ur um minni aukningu í smásölu en
spáð var enn á ótta fjárfesta. Smá-
sala jókst um 0,3% í Bandaríkjunum
í síðasta mánuði en flestar spár
gerðu ráð fyrir 0,5% aukningu sem
er sama aukning og varð í júlímán-
uði. Ef bílasala er undanskilin þá
dróst smásala saman um 0,4% í
ágúst. Iðnaðarframleiðsla jókst ein-
ungis um 0,2% í ágústmánuði.
Bankaráð Seðlabanka Bandaríkj-
anna heldur vaxtaákvörðunarfund
hinn 18. september næstkomandi og
er mikill þrýstingur á að bankinn
lækki stýrivexti til þess að lækka
lántökukostnað neytenda og um leið
hleypa nýju lífi í bandarískt efna-
hagslíf.
Þrátt fyrir þetta hækkuðu hluta-
bréfavísitölur í Bandaríkjunum lít-
illega, Dow Jones um 0,13% og Nas-
daq um 0,04%. Hlutabréf í Evrópu
lækkuðu hins vegar almennt.
Breska FTSE-vísitalan lækkaði um
1,17% og þýska DAX-vísitalan um
0,51%.
Biðraðir út á götu
Viðskiptavinir breska bankans
Northern Rock, en bankinn er einn
stærsti lánveitandi fasteignalána í
Bretlandi, hafa streymt í útibú
bankans til þess að taka út fé sitt
þrátt fyrir óskir bankans um að þeir
haldi ró sinni. Í gær var greint frá
því að Englandsbanki ætlaði að
koma bankanum til aðstoðar vegna
lausafjárskorts, sem rakinn er til
kreppunnar á bandarískum fast-
eignamarkaði.
Náðu biðraðirnar út á götu í
útibúum bankans í Newcastle og í
fjármálahverfi Lundúna og sam-
kvæmt frétt Financial Times tóku
viðskiptavinir bankans samtals út
um tvo milljarða punda, eða um 260
milljarða króna. Er það um 4% af
lausafé Northern Rock.
Northen Rock tilkynnti í gær að
vegna fjármálakreppunnar myndi
hagnaður bankans á árinu væntan-
lega verða um hálfur milljarður
punda eða um 150 milljónum punda
minni en áður var áætlað.
Þrýst á um vaxtalækk-
un í Bandaríkjunum
Viðskiptavinir bresks banka ganga hart að lausafé hans
Bið Kona stendur í röð í Lundúnaútibúi Northern Rock-bankans og bíður
eftir að geta tekið út sparifé sitt. Milljarðar króna voru teknar út í gær.
Reuters
ICELANDIC Group og Finnbogi A.
Baldvinsson, framkvæmdastjóri Ice-
landic Europe, hafa undirritað vilja-
yfirlýsingu um kaup Finnboga á 81%
hlut Icelandic í Icelandic Holding
Germany. Félagið er móðurfélag
Pickenpack Hussman & Hahn í
Þýskalandi, sem Icelandic keypti á
sínum tíma af Finnboga, og Picken-
pack Gelmer í Frakklandi.
Í frétt til kauphallar segir að Ice-
landic fái 21% af heildarhlutafé í fé-
laginu fyrir 81% hlutinn í Icelandic
Holding Germany og verður hluta-
féð síðan selt áfram. Miðað við loka-
gengi Icelandic í kauphöll sl. mið-
vikudag er kaupverðið því um 3,6
milljarðar króna. Tilgangur sölunn-
ar er skv. tilkynningu að skerpa
áherslur í rekstri Icelandic Group og
grynnka á skuldum félagsins.
Velta upp á 22,3 milljarða
Árleg framleiðslugeta Pickenpack
nemur 700 tonnum af kavíar og um
70.000 tonnum af fiski. Samkvæmt
upplýsingum frá félaginu fer um
65% framleiðslunnar á markað í
Þýskalandi og afgangurinn til ann-
arra Evrópulanda. Langstærstur
hluti vörunnar, eða um 80%, er seld-
ur til smásöluaðila.
Markaðshlutur Pickenpack á sviði
fiskfingra og annarra forunninna
fiskrétta í Þýskalandi er um 25%.
Velta félagsins árið 2006 nam um
250 milljónum evra, eða um 22,3
milljörðum króna á núvirði.
Finnbogi kaupir Picken-
pack af Icelandic Europe
Morgunblaðið/Sverrir
Kaup Aðilar takast í hendur við
kaup Icelandic á Pickenpack 2005.
ÁSDÍS Halla Bragadóttir hefur
ákveðið að láta af störfum sem for-
stjóri BYKO í lok september og við
starfi hennar tekur Sigurður Egill
Ragnarsson, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri byggingasviðs
BYKO.
Ásdís Halla sagðist í samtali við
Morgunblaðið hafa ákveðið að snúa
sér að öðrum viðfangsefnum.
„Ég er búin að vera hjá BYKO í
tvö og hálft ár. Þetta hefur verið
frábært tímabil, uppgangur verið
mikill og mörg áhugaverð verkefni
í gangi. Staðan er þannig að þau
verkefni sem blöstu við, er ég hóf
störf, eru komin í mjög góðan far-
veg og annaðhvort lokið eða að
ljúka. Við þau tímamót finnst mér
tímabært að huga að öðrum við-
fangsefnum,“ sagði Ásdís Halla, en
hún segir ekki ákveðið hvað taki
við, það verði þó í atvinnulífinu en
ekki stjórnmálum að nýju.
Við breytinguna er starfseminni
skipt upp og BYKO rekin sem sér
eining. Sigurður er því yfir BYKO
en Gestur Hjaltason er áfram fram-
kvæmdastjóri sérvörusviðs, sem
rekur ELKO, Intersport og Hús-
gagnahöllina.
Sigurður hefur sem fyrr segir
verið framkvæmdastjóri bygg-
ingasviðs BYKO í mörg ár og starf-
að hjá fyrirtækinu frá námslokum,
þar áður var hann sumarstarfs-
maður í timbursölu og alls eru
þetta orðin 34 ár. Sigurður er
kvæntur Bryndísi S. Halldórsdóttur
og eiga þau þrjá syni.
Ásdís Halla
Bragadóttir
Ásdís Halla
hætt í BYKO
♦♦♦
Sigurður Egill
Ragnarsson
STJÓRN Mosaic Fashions hf. hef-
ur farið þess á leit við Kauphöll
OMX á Íslandi að hlutabréf félags-
ins verði afskráð í kjölfar yfirtöku
á félaginu. Yfirtöku Tessera Hold-
ing ehf. og samstarfsaðila í Mosaic
lauk 7. ágúst sl. og í kjölfar
greiðslu í samræmi við skilmála
tilboðsins fer Tessera og sam-
starfsaðilar með um 99,9% af
hlutafé Mosaic. Innlausn útistand-
andi hluta stendur nú yfir.
Bréf Mosaic
afskráð
>?%
>?%
@
@
>?%
%
@
@
A%B
C
@
@
?
@
@
>?% D
>?%E'
@
@
!""#
%% %
%%%%
%%%%%%%%%
! "D!G"#
"""!E'E!E''
#E#!'$G!DE#
"G#!E"$!H "
!E%%!EH"!##H
!D%%! "G!G'D
! '#! ''!G'H
$! GH!#G'
DE$!%#'!%'H
$"!'"'!"E
D!'GG!#GG
!D "! "'
'
H!D'D!" %
" !#H$!#DH
"! % ! $$
"!GD'!'''
#H#!'''
"!HE$!"$%
'D!G H!'''
GIG'
%"I''
"GIHD
"EI$'
"#ID'
$GI$'
"DIHD
'#'I''
$GI#'
HIGD
%I'H
GGI#'
"IEH
%I""
$'DI''
%%DI''
IE
" 'I''
DIHG
GHI$'
" ID'
EDID'
"GD I''
'ID'
'I''
%"I%'
"GIGD
"EIE'
"#I%D
$GIHD
"%I '
'#EI''
$GI#D
GI'D
%I D
''I''
"ID'
%I"H
$ DI''
%H'I''
IE$
""$I''
DIGE
GHIG'
" IG'
E%I''
GI''
"GGEI''
"ID'
%IDD
&'
E
"#
#'
EG
D#
G
$H
D$
'
#
"
E
$
$
"
"
#
"
!
E!G!"''#
E!G!"''#
E!G!"''#
E!G!"''#
E!G!"''#
$!G!"''#
$!G!"''#
E!G!"''#
E!G!"''#
E!G!"''#
E!G!"''#
E!G!"''#
E!G!"''#
E!G!"''#
$!G!"''#
E!G!"''#
E!G!"''#
$!G!"''#
E!G!"''#
E!G!"''#
E!G!"''#
$!G!"''#
E!G!"''#
""!H!"''#
E!G!"''#
#!G!"''#
D!G!"''#
!
"
%J %()!
'%J %()!
K
%()!
*%J %()!
J %
%()!
)!% +
),
%-
.L
%J %()!
/ %
%()!
*
%-
%()!
L%
( %()!
+
0%&0)!!%()!
1+ %()!
2 %()!
$#
% $%D%()!
)L
%()!
L%3 +%3M
%
%J %()!
N1
%
.L
L%J %()!
%()!
4(& %()!
1
+ ' %()!
O ' %()!
&' (
P 1% + +%P %J
%()!
+ &
%()!