Morgunblaðið - 15.09.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2007 15
LOFTLEIÐIR Icelandic, dótt-
urfélag Icelandair Group, hefur
samið við ríkisflugfélagið Air
Niugini (AN) frá Papúa Nýju
Gíneu um leigu á einni Boeing
757-200 þotu til eins árs. Andvirði
samningsins er að lágmarki um
850 milljónir króna, að því er seg-
ir í tilkynningu.
Boeing 757-200 þota Loftleiða
Icelandic verður í höfuðborginni
Port Moresby næsta árið og verð-
ur flogið af íslenskum flug-
mönnum. Vélin verður meðal
annars í áætlunarflugi til Nadí á
Fíjíeyjum en þar er nýjasti áfanga-
staður Air Niugini. Stefna félags-
ins miðar að því að kynna Port
Moresby sem tengivöll fyrir Asíu-
áfangastaði sína við Fíjí,
Salómonseyjar og aðrar Kyrra-
hafseyjar í grennd við Papúa Nýju
Gíneu.
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Ice-
landair Group, segir þennan samn-
ing í samræmi við stefnu félagsins
um útrás í alþjóðlegu leiguflugi
auk þess sem hann skapi ný at-
vinnutækifæri fyrir íslenska flug-
menn.
Íslendingar fljúga í
Papúa Nýju Gíneu
Tekist í hendur Trevor Jellie, Daniel Wonma og David Tohi frá AN, Guðni
Hreinsson og Halldór Halldórsson frá LL auk Scotty Fairbairns frá AN.
STJÓRN Vinnslustöðvarinnar í
Vestmannaeyjum, VSV, hefur óskað
eftir því við kauphöll OMX á Íslandi
að hlutabréf félagsins verði afskráð.
Stjórnin samdi ályktun þessa efnis á
fimmtudag.
Helstu ástæður þess að óskað er
eftir afskráningu eru að stjórn
Vinnslustöðvarinnar telur að félagið
uppfylli ekki lengur skráningarskil-
yrði kauphallarinnar um fjölda hlut-
hafa og dreifða eignaraðild, auk
þess sem velta með hlutabréf félags-
ins sé lítil og ekki útlit fyrir að hún
muni aukast. Þá telur stjórn VSV að
vegna beins og óbeins kostnaðar
vegna skráningar á skipulögðum
verkbréfamarkaði þjóni hún litlum
tilgangi fyrir hluthafa félagsins.
Sem kunnugt er runnu yfirtöku-
tilraunir á félaginu út í sandinn á
dögunum, bæði hjá Eyjamönnum
ehf. og Stillu, eignarhaldsfélagi
tengdum Guðmundi Kristjánssyni í
Brimi og hans fjölskyldu. Eyjamenn
ehf. eiga nú ríflega 50% hlut í VSV
og Stilla og tengdir aðilar eiga um
32%.
Afskrán-
ing á VSV
ALLT hlutafé í útboði orkufyrirtæk-
isins Enex var selt og umframeftir-
spurnin fjórföld sú upphæð sem var í
boði. Safnaði fé-
lagið alls tveimur
milljörðum króna
í útboðinu, en til-
gangur þess var
að fjármagna
fjárfestingar
Enex á sviði jarð-
varma í Banda-
ríkjunum, Þýska-
landi, Kína og
Slóvakíu. Capa-
cent var ráðgjafi fyrirtækisins í út-
boðinu og sá m.a. um gerð sölulýs-
ingar og kynningarefnis og
skipulagningu kynningarfunda.
Að sögn Lárusar Elíassonar, for-
stjóra Enex, var aukningin eingöngu
meðal núverandi hluthafa, sem nær
allir tóku sinn hlut. Lítil breyting
verði á hlutföllum stærstu eigenda,
sem eru Geysir Green Energy,
Reykjavík Energy Invest og Lands-
virkjun.
Lárus segir frekari hlutafjáreign
ekki hafa verið ákveðna, en stefnt sé
að skráningu félagsins á hlutabréfa-
markað árið 2009. Enex á aðild að
virkjunum og ráðgjafarverkefnum
um allan heim, m.a. í Bandaríkjun-
um, El Salvador, Kína, Þýskalandi,
Ungverjalandi og Slóvakíu.
Bréf Enex
eftirsótt
Lárus
Elíasson
STJÓRN Hands Holding hefur
ákveðið að hætta við sölu á upplýs-
ingatæknifyrirtækinu Opin kerfi
Group, en fyrr á árinu var Straumi-
Burðarási falið að kanna möguleika
á sölu fyrirtækisins.
Aðalsteinn Valdimarsson, stjórn-
arformaður Hands Holding, segir
við Morgunblaðið að mikill áhugi
hafi verið á fyrirtækinu og þónokk-
ur tilboð borist. Það hafi hins vegar
verið mat stjórnar að þau endur-
spegluðu ekki þá möguleika og
vaxtartækifæri sem felast í Opnum
kerfum.
„Því var ákveðið að halda áfram
á þeirri braut að vinna að frekari
vexti og uppgangi félagsins í stað
þess að selja,“ segir Aðalsteinn.
Opin kerfi Group er með starf-
semi á Íslandi, Svíþjóð og Dan-
mörku. Heildarvelta félagsins á
þessu ári er áætluð um 13 millj-
arðar króna og EBITDA-hagnaður
um 400 milljónir króna, sem er 50%
vöxtur frá árinu 2006.
Opin kerfi
ekki seld
♦♦♦
♦♦♦