Morgunblaðið - 06.10.2007, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2007 51
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Þriggja daga keppni í félagsvist
hefst 8. október kl. 14. Næst verður spilað 15. og
22. okt. Verðlaun.
Bólstaðarhlíð 43 | Haustferð verður farin frá Ból-
staðarhlíð 43 miðvikudaginn 10. okt. kl.12.30.
Krýsuvíkurleiðin að Strandakirkju, kaffihlaðborð á
veitingastaðnum Hafinu bláa. Verð kr. 2.900.
Skráning og greiðsla á skrifstofunni í síðasta lagi
mánudaginn 8. okt. Uppl. í s. 535-2760.
Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9. Hana-
nú ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Á mánud. og miðvikud.
kl. 9-16.30 er tréútskurður og fjölbreytt handa-
vinna. Frá kl. 9 á þriðjud. er glerskurður. Á mið-
vikud. kl. 10 er dansæfing. Fimmtud. kl. 12.30
myndlist, og á föstud. bókband. Uppl. um starfsemi
og þjónustu á staðnum, s. 575-7720 og
wwwgerduberg.is. Strætisvagnar 4, 12 og 17.
Hæðargarður 31 | Daglegar gönguferðir, Mull-
ersæfingar, magadans, almenn leikfimi, Thai Chi og
styrktarhópurinn í samvinnu einkaþjálfara hjá
World Class í Laugum. S. 568-3132.
Kvenfélag Bústaðasóknar | Fundur verður haldinn
mánudaginn 8. október kl. 20 í safnaðarheimilinu.
Vetrardagskrá kynnt og kaffiveitingar.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Handverkssýning
með fjölbreytilegum munum sem þátttakendur í fé-
lagsstarfinu hafa unnið, kynning á starfinu, tónlist
og veitingasala.
Lífeyrisþegadeild Landssambands lögreglu-
manna | Vetrarstarfið er hafið. Fyrsti sunnudags-
fundur deildarinnar verður á morgun 7. október kl.
10 á Grettisgötu 89, fyrstu hæð.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Árlegur haustfagnaður
verður miðvikudaginn 10. október kl. 17, dans, mat-
ur, skemmtiatriði, happdrætti. Allir velkomnir óháð
aldri og búsetu upplýsingar og skráning í síma 411-
9450.
Kirkjustarf
Grensáskirkja | Fundur verður í safnaðarheimilinu
mánudag 8. október kl. 14.
Grindavíkurkirkja | Sl. sunnudag var vígt nýtt 25
radda ísl. orgel í Grindavíkurkirkju. Friðrik Vignir
Stefánsson organisti heldur tónleika í Grindavík
sunnudaginn 7. október nk. kl. 17, þar sem hann
leikur verk eftir Bach, Buxtehude, Boëllmann o.fl., á
hið nýja orgel.
Hallgrímskirkja | Orgelandakt kl. 12. Organisti
Björn Steinar Sólbergsson. Prestur sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson.
Háteigskirkja | Erla Guðrún og Páll Ágúst leiða
barnaguðsþjónustuna. Organisti Douglas A. Brotc-
hie. Prestur Guðbjörg Jóhannesdóttir. Veitingar í
safnaðarheimili að messu lokinni.
Íslenska Kristskirkjan | Í tilefni 10 ára afmælis
kirkjunnar verður fjölskyldusamvera í kirkjunni að
Fossaleyni 14, kl. 12. Síðan verður opið hús með
hoppukastala, grillað og farið í leiki. Myndir úr sögu
kirkjunnar munu prýða veggi. Kl. 20. verður ung-
lingasamkoma.
Sauðárkrókskirkja | Sunnudagaskóli kl. 11, guðs-
þjónusta kl. 14, sr. Sigríður Gunnarsdóttir þjónar,
organisti Rögnvaldur Valbergsson.
80ára afmæli. BjörnJónsson f.v. prófastur
á Akranesi verður áttræður á
morgun, sunnudaginn 7. októ-
ber. Ennfremur eiga þau
hjónin Sjöfn og Björn 50 ára
brúðkaupsafmæli. Í tilefni
þessara tímamóta verður opið
hús og heitt á könnunni í safn-
aðarheimilinu Vinaminni, á
morgun kl. 16-19. Afþökkuð
eru blóm og gjafir en þess í
stað vilja þau minna á félagið
Þroskahjálp.
70ára afmæli. IngveldurHöskuldsdóttir sem er
búsett í Svíþjóð, ætlar ásamt
eiginmanni sínum Halldóri
Hermannssyni að halda upp á
70 ára afmæli sitt í hópi fjöl-
skyldu og vina á veitingahús-
inu Tveim fiskum í dag, laug-
ardaginn 6. október.
70ára afmæli. Ragnheið-ur Guðmundsdóttir er
sjötíu ára í dag og fagnar því
brosandi í sólinni.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að kostnaðar-
lausu.
Samþykki afmælisbarns þarf
að fylgja afmælistilkynning-
um og/ eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Hægt er að hringja í síma 569-
1100, senda tilkynningu og
mynd á netfangið ritstjorn-
@mbl.is, eða senda tilkynn-
ingu og mynd í gegnum vef-
síðu Morgunblaðsins,
www.mbl.is, og velja liðinn
Senda inn efni". Einnig er
hægt að senda vélritaða til-
kynningu og mynd í pósti.
Bréfið skal stíla á:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
dagbók
Í dag er laugardagur 6. október, 279. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.)
Hundaræktarfélag Íslandsstendur fyrir Alþjóðlegrihundasýningu um helgina.Sýningin er haldin í Reið-
höllinni í Víðidal og verður margt um
að vera.
Hanna Björk Kristinsdóttir er sýn-
ingarstjóri: „Sýningin er sú stærsta
sem haldin hefur verið hér á landi til
þessa, og taka þátt yfir 800 hundar af
82 tegundum,“ segir Hanna Björk, en
fimm þaulreyndir dómarar frá Svíþjóð,
Finnlandi og Póllandi koma sérstak-
lega hingað til lands til að dæma
hundana á sýningunni. „Megintil-
gangur hundasýninga af þessu tagi er
að meta hundana út frá ræktunarmark-
miðum hverrar tegundar, og þannig
leiðbeina ræktendum í starfi sínu.“
Dagskráin er þétt skipuð báða dag-
ana og nær hámarki á sunnudag: „Þá
er tekin saman frammistaða hunda á
sýningum yfir árið og stigahæstu hund-
arnir valdir. Þeir hundar sem náð hafa
mestum árangri hljóta viðurkenningu,
auk þess sem afreks- og þjónustu-
hundar fá sérstaka viðurkenningu,“
segir Hanna Björk, „Einnig verða
veittar viðurkenningar bestu sýn-
endum í barna- og unglingaflokki, og
eiga fjórir stigahæstu möguleika á að
taka þátt í norðurlandakeppni ungra
sýnenda sem haldin verður í Svíþjóð,
auk þess að stigahæsti sýnandinn
keppir fyrir Íslands hönd á stærstu
hundasýningu heims, Crufts í Eng-
landi.“
Fjöldi sölu- og kynningarbása verð-
ur á staðnum með ýmis sértilboð. „Auk
þess verða í anddyri reiðhallarinnar
upplýsingabásar um ólíkar hundateg-
undir. Þar gefst gestum og gangandi
kostur á að kynnast hundunum og
ræða við hundeigendur og ræktendur
en sýningin er líka kjörið tækifæri fyrir
þá sem hafa í hyggju að fá sér hund til
að kynnast tegundunum betur,“ segir
Hanna Björk
Hundaræktarfélag Íslands var stofn-
að 1969 og eru félagsmenn nú um 2.500
talsins. Félagið er opið öllum áhuga-
mönnum um hundahald, og starfrækir
HRFÍ meðal annars hundaskóla, auk
þess að standa fyrir virku barna- og
unglingastarfi.
Finna má nánari upplýsingar á slóð-
inni www.hrfi.is.
Dýrahald | Stærsta hundaræktarsýningin til þessa haldin um helgina
Hundafans í Víðidal
Hanna Björk
Kristinsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 1975. Hún
stundaði nám við
Iðnskólann í
Reykjavík, Við-
skiptaskóla Stjórn-
unarfélagsins og
Rafiðnaðarskól-
ann. Hanna Björk hefur starfað hjá
Hundaræktarfélagi Íslands í 9 ár, nú
sem skrifstofu- og sýningarstjóri. Hún
hefur einnig ritstýrt blaðinu Sámi og
sér nú um auglýsingamál útgáfunnar.
Eiginmaður Hönnu Bjarkar er Helgi
Vattnes nemi, og eiga þau einn son.
Tónlist
Fella- og Hólakirkja | Eva Þyri Hilmarsdóttir
píanóleikari heldur tónleika kl. 17. Á efnisskrá
eru verk eftir Beethoven, Chopin, Granados
og Prokofiev. Nýlega hefur hún flutt þessa
efnisskrá á Akranesi, Selfossi, í Kaupmanna-
höfn og í Tónlistarhúsinu í Árósum.
Organ | Tónleikar með Skátum og Bloodgroup
kl. 22, DJ Maggi Lego spilar eftir miðnætti.
Myndlist
Færeyska sjómannaheimilið | Sámal Toftanes
frá Leirvík í Færeyjum verður með myndlistar-
sýningu í Færeyska sjómannaheimilinu, Braut-
arholti 29, kl. 10-20.
Skemmtanir
Íþróttamiðstöðin Versalir | Sýning loftfim-
leikaflokksins Wuhan kl. 16.
Uppákomur
Bandalag kvenna í Reykjavík | Bandalag
kvenna heldur flóamarkað og hlutaveltu á
Túngötu 14, á morgun 7. október kl. 11, til
styrktar Starfsmenntunarsjóði kvenna. Mót-
taka á varningi frá kl. 14 í dag laugardag á Tún-
götu 14.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Spiluð verður félagsvist
í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á morgun
sunnudaginn 7. október kl. 14.
Breiðfirðingafélagið | Spiluð verður félagsvist
í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, sunnudaginn
7. október kl. 14.
Smáralind | Fjölskylduhátíð í Vetrargarðinum
kl. 14.
Fyrirlestrar og fundir
Askja – Náttúrufræðihús HÍ, stofa 132 |
Fyrsta erindi í fyrirlestraröð Raunvís-
indadeildar Háskóla Íslands flytur Ingibjörg
Gunnarsdóttir dósent í matvælafræði. Erindið
fjallar um heilsufarsleg áhrif fisks og fiskiolíu.
Niðurstöður benda til margþættra heilsufars-
legra áhrifa af fiskneyslu m.a. fyrir megrun
(sjá http://undur.hi.is).
Salurinn, Kópavogi | Málþing um kínverska
menningu kl. 10.
Skógræktarfélag Reykjavíkur | Guðjón Frið-
riksson rithöfundur verður á söguslóðum
sunnudaginn 7. október og segir frá Einari
Benediktssyni og Elliðavatni. Mæting kl. 14 í
gamla bænum á Elliðavatni í Heiðmörk.
Fréttir og tilkynningar
Krabbameinsfélagið | Opið hús í Ráðgjaf-
arþjónustu Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð
8, kl. 13-16. Krabbameinssjúkir, aðstandendur
og aðrir geta kynnt sér hina nýju ráðgjaf-
arþjónustu og starfsemi stuðningshópanna.
Fjölbreytt dagskrá, veitingar og skemmtiatriði
fyrir alla.
Kringlukráin | Októberfundur Parísar, félags
þeirra sem eru einir, verður í dag á Kringlukr-
ánni.
Tungumálamiðstöð HÍ | Alþjóðlega þýsku-
prófið TestDaF verður haldið í Tungumála-
miðstöð Háskóla Íslands 13. nóv. Skráning fer
fram í Tungumálamiðstöð HÍ, Nýja Garði og
lýkur 11. október kl. 18. Prófgjaldið er 13.000
kr. Nánar á: Tungumálamiðstöð HÍ, Nýja Garði:
525-4593, ems@hi.is, www.hi.is/page/
tungumalamidstod og www.testdaf.de
Í GÆR fór fram úthlutun styrkja á vegum Myndstefs. Fimmtán umsækjendur fengu verkefnastyrki að upphæð 200.000
kr. hver og tíu hlutu ferða- og menntunarstyrki að upphæð 100.000 kr. hver. Þetta er sjötta árið sem stjórn Myndstefs
veitir styrki af þessu tagi og nema þeir rúmlega 31,5 milljónum á þessu 6 ára tímabili.
Morgunblaðið/Sverrir
Myndstef veitir styrki
FRÉTTIR
Í TILEFNI alþjóðlegs geðheilbrigð-
isdags halda Hrókurinn og Skák-
félag Vinjar hraðskákmót í Perl-
unni, sunnudaginn 7. október kl. 16.
Heilmikil dagskrá verður í Perl-
unni fyrir mót, tónlist, dans, ræðu-
höld og myndlistarsýning og hefst
hún kl. 14.30. Þátttaka í mótinu er
ókeypis og öllum heimil. Glæsilegir
vinningar verða í boði Forlagsins.
Teflt verður eftir Monrad-kerfi og
skákstjóri er Kristian Guttesen.
Tvö sl. ár hefur mótið verið haldið í
Ráðhúsi Reykjavíkur en eins og
fyrr segir er það nú í Perlunni.
Tæplega 40 manns voru með í fyrra
og auðvitað er stefnt að því að þátt-
takendur verði enn fleiri í ár, segir
í fréttatilkynningu. Félagar í skák-
félagi Vinjar og Hróknum hvetja
allt skákáhugafólk á öllum aldri til
að vera með.
Hraðskákmót
í Perlunni
HAUSTFUNDUR VIMA – vináttu-
og menningarfélags Mið-Austur-
landa verður haldinn í Kornhlöð-
unni í Bankastræti sunnudaginn 7.
október kl. 14.
Nouria Nagi, frumkvöðull og for-
stöðukona YERO – Yemeni Educa-
tion and Relief Org., segir frá starf-
inu sem miðar að því að mennta
börn, en í landinu er hlutfall ólæsra
gríðarlega hátt. Hún sýnir einnig
myndir. Fatimusjóður Vináttu-
félagsins hefur undanfarin tvö ár
tekið þátt í þessu starfi og mun á
skólaárinu 2007-2008 styrkja yfir
eitt hundrað börn, auk kvennahóps
í fullorðinsfræðslu. Nouria talar á
ensku en mál hennar verður þýtt á
íslensku jafnóðum.
Gjafakort VIMA verða til sölu.
Félagar og gestir eru hvattir til að
mæta stundvíslega.
Gestur á haust-
fundi VIMA
KRÓATÍSKIR tónleikar verða í
Egilsstaðakirkju í kvöld, laugar-
daginn 6. október, kl. 20 og í Frí-
kirkjunni í Reykjavík sunnudags-
kvöldið 7. október kl. 20.30.
Söngsveitin Hljómvinir á Fljóts-
dalshéraði stendur fyrir tónleik-
unum. Stjórnandi kórsins er Sunc-
ana Slamnig sem er fædd og
uppalin í Króatíu en hefur búið og
starfað við tónlist á Íslandi í þrjátíu
ár. Gestir á tónleikunum eru Sam-
kór Reykjavíkur undir stjórn
Keiths Reed og króatíska söng-
konan Kristina Beck-Kukavcic sem
heimsækir Ísland í tilefni tón-
leikanna. Kristina er fædd í Sagreb
og starfar þar sem söngkona og
söngkennari.
Á efnisskránni eru króatísk þjóð-
lög í kórútsetningum og nokkur 20.
aldar einsöngslög.
Króatískt
tónaflóð
SUNNLENSKA bókakaffið á Aust-
urvegi 22 á Selfossi heldur upp á
ársafmæli sitt í dag, laugardaginn
6. október, kl. 14.
Fjölmargir munu heiðra afmæl-
isbarnið af þessu tilefni og má þar
fremstan telja Matthías Johannes-
sen skáld sem lesa mun úr nýrri
bók sinni. Þá mun Þórunn Valdi-
marsdóttir rithöfundur kynna nýja
bók sína um hina fornu sunnlensku
sakamálasögu Njálu sem hún hefur
fært til nútíma og kemur út nú í
haust undir heitinu: Kalt er annars
blóð. Elín Gunnlaugsdóttir versl-
unarstjóri bókakaffisins mun
ásamt Kolbrúnu Huldu Tryggva-
dóttur flytja dúetta. Kaffiveitingar
verða ókeypis þennan eina dag og
allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Ársafmæli
Sunnlenska
bókakaffisins