Morgunblaðið - 13.10.2007, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
E FT I R DAG A
www.jpv.is
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ÞÓTT Margrét K. Sverrisdóttir hafi ekki náð
kjöri sem borgarfulltrúi í síðustu borgarstjórn-
arkosningum er hún fyllilega bær til þess að
gegna starfi forseta borgarstjórnar, að sögn
Gunnars Eydal, skrifstofustjóra borgarstjórnar.
Ástæðan er sú að þegar hún tók sæti Ólafs F.
Magnússonar borgarfulltrúa sem varaborgar-
fulltrúi öðlaðist hún öll réttindi og skyldur borg-
arfulltrúa og heldur þeim þar til Ólafur snýr aftur
til starfa.
Margrét K. Sverrisdóttir var í 2. sæti á lista
Frjálslyndra og óháðra í borgarstjórnarkosning-
unum vorið 2006. Hún, líkt og Ólafur F. Magn-
ússon og fleiri sem buðu sig fram undir merkjum
Frjálslyndra og óháðra, sagði síðar skilið við
Frjálslynda flokkinn. Þetta hefur þó í sjálfu sér
engin áhrif á stöðu þeirra í borgarstjórn, því líkt
og alþingismenn eru borgarfulltrúar einungis
bundnir af lögum og sannfær-
ingu sinni í sínum störfum.
Ólafur hefur verið í leyfi
vegna veikinda samfellt frá
því í febrúar á þessu ár og hef-
ur Margrét setið sem borgar-
fulltrúi í hans stað síðan. Að
sögn Gunnars Eydal skiptir í
raun ekki máli hvort vara-
borgarfulltrúi situr um
skemmri eða lengri tíma sem
aðalmaður í borgarstjórn, um
leið og fulltrúinn tekur sæti í borgarstjórn er
hann fullgildur borgarfulltrúi.
Snúi Ólafur aftur til starfa í borgarstjórn þarf
annaðhvort að kjósa nýjan forseta, því varaborg-
arfulltrúi getur ekki gegnt því embætti, eða að
annar hvor varaforseti borgarstjórnar taki sæti
hans. Varaforsetar fráfarandi borgarstjórnar eru
þeir Björn Ingi Hrafnsson og Júlíus Vífill Ingv-
arsson.
Getur setið sem
forseti borgarstjórnar
Margrét K.
Sverrisdóttir
TÖLUVERÐAR umræður fóru fram á
fundi stjórnar Varðar, fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík, sem haldinn
var í gær en í ályktun sem þar var sam-
þykkt var lýst yfir miklum vonbrigðum
með óvænt slit meirihlutasamstarfs Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknarflokksins í
Reykjavík. Þá lýsti stjórn Varðar yfir
fullu trausti og stuðningi við borgar-
stjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins undir
stjórn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar.
Gísli Marteinn Baldursson, formaður
borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna,
segir fundinn hafa verið góðan. Bæði
hann og Vilhjálmur hafi fullvissað fund-
armenn um að mikill einhugur ríkti í
hópnum, nú sem endranær, hvað sem liði
því að menn hefðu ekki verið sammála
um málefni Orkuveitu Reykjavíkur og
REI.
Gísli sagði að fundarmenn hefðu haft
margs að spyrja og
gagnrýni hefði líka
komið fram, bæði á
borgarstjórann og borg-
arfulltrúana. Það hefði
hins vegar allt verið á
uppbyggilegum nótum.
„En svo fannst mönn-
um engan veginn öll
kurl vera komin til graf-
ar í þessu REI-máli og
það kom oft fram á
fundinum að mönnum þótti skrýtið
hversu gríðarlega og óeðlilega mikla
áherslu Bingi [Björn Ingi Hrafnsson,
borgarfulltrúi Framsóknarflokksins]
leggur á þetta mál. Þær raddir heyrðust
á fundinum að það væri líkast því að hann
væri að verja einhverja hagsmuni sem
ekki væru uppi á yfirborðinu,“ sagði
Gísli.
Hafa fullt traust og
stuðning Varðar
Gísli Marteinn
Baldursson
ÍSLANDSMÓT skákfélaga hófst í
Rimaskóla í Grafarvogi í gærkveldi
þegar um 400 skákmenn alls staðar
að af landinu settust að tafli. Þetta
er fjölmennasta skákmótið sem
haldið er hér á landi í ár og meðal
keppenda er að finna jafnt unga
skákmenn sem aldnar kempur, al-
þjóðlega meistara og stórmeistara,
innlenda sem erlenda.
Meðal þeirra sem settust að tafli í
gærkvöldi var Friðrik Ólafsson,
stórmeistari, en hann hefur ekki tek-
ið þátt í þessu móti í fjölda ára.
Hann tefldi á 4. borði fyrir sveit
Taflfélags Reykjavíkur, sem keppti
við Fjölni, og lauk skák hans með
jafntefli.
Núverandi Íslandsmeistarar
skákfélaga er sveit Hellis, en auk
hennar eru sveit Taflfélags Reykja-
víkur og sveit Fjölnis taldar sig-
urstranglegar. Fjórar umferðir
verða tefldar um helgina, tvær í dag
og ein á morgun og síðustu þrjár
umferðirnar verða tefldar í mars í
vetur. Alls taka 48 sveitir þátt í
mótinu alls staðar að af landinu og
er teflt í fjórum deildum.
Friðrik
gerði
jafntefli
Morgunblaðið/Golli
Jafnt Íslandsmót skákfélaga hófst í gærkvöldi í Grafarvogi. Meðal keppenda var Friðrik Ólafsson, stórmeistari,
sem tekur þátt í þessu móti í fyrsta skipti í mörg ár. Hann teflir fyrir sveit TR og lauk skák hans með jafntefli.
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut-
anríkisráðherra segir að það komi
ekki á óvart að Olli Rehn, fram-
kvæmdastjóri stækkunarviðræðna
Evrópusambandsins, meti það þann-
ig að Króatía verði næsta aðildarríki
ESB, það 28. í röðinni. Það blasi við
og á fundi sem hún hafi átt með Rehn
á dögunum hafi hann upplýst að við-
ræður við Króatíu hafi gengið vel og
í sama streng hafi sendiherra Króat-
íu tekið á fundi með henni nýverið.
Rehn situr fyrir svörum um sam-
einingarviðræður við Króatíu og
Tyrkland undanfarin tvö ár og eru
svörin birt á heimasíðu sendinefndar
ESB í Króatíu. Þar kemur hann lítil-
lega inn á Ísland og segir meðal ann-
ars að Króatía verði 28. ríkið í ESB
nema Ísland komi á óvart og sæki
um aðild. Ef það gerist á sama tíma
þá muni stafrófs-
röð ráða því hvort
ríkið verði það 28.
í röðinni.
Rehn er spurð-
ur áfram hvort
það séu einhver
merki um að Ís-
land sæki um að-
ild. Hann segist
hafa hitt utanrík-
isráðherra og hún
styðji aðild Íslands og það geri einn-
ig tveir helstu stjórnmálaflokkarnir.
Sá þriðji sé einnig að skoða málið.
„Ég tel, þar sem ég á nokkra vini á
Íslandi, að þeir myndu vilja taka upp
evruna án þess að gerast aðildar-
ríki,“ segir hann síðan.
Ingibjörg sagði að það þyrfti ekki
að koma á óvart að Rehn hefði áhuga
á að Ísland gerðist aðili að ESB,
hann hefði marglýst því yfir og með-
al annars sagt fyrir rúmu ári að að-
ildarviðræður við Ísland myndu ekki
taka nema eitt ár. Á fundi sínum með
Rehn hefði hún spurt hann hvort
hann væri enn sömu skoðunar, en
hann hefði talið að það myndi taka
styttri tíma, jafnvel hálft ár.
Mat Rehn á stöðunni
Ingibjörg sagðist ekki vita til
hvers Rehn væri að vísa með um-
mælum um afstöðu einstakra flokka
á Íslandi. Það væri auðvitað bara
hans mat á stöðunni. Hún hefði sagt
honum á fundi þeirra að í stefnuskrá
ríkisstjórnarinnar væri ekki kveðið á
um það að sækja um aðild, en hins
vegar fylgdumst við vel með því sem
gerðist á þessum vettvangi og legð-
um mat á okkar stöðu og hagsmuni í
ljós þess. Hún hefði einnig gert hon-
um grein fyrir þeirri umræðu sem
átt hefði sér stað hér á landi um upp-
töku evrunnar. Það væru ýmsir þess
fýsandi að taka hana upp án aðildar.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Aðildarviðræður að
ESB gætu tekið hálft ár
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um
að karlmaður á fertugsaldri, sem
grunaður er um að hafa valdið dauða
karlmanns á fimmtugsaldri í íbúð við
Hringbraut í síðustu viku, sæti
gæsluvarðhaldi til 15. október.
Fram kemur í úrskurði héraðs-
dóms, að maðurinn, sem nú er í
gæsluvarðhaldi, hafi tilkynnt lög-
reglu að vinur hans og nágranni lægi
rænulaus í rúmi sínu. Sagðist mað-
urinn hafa farið inn í opna íbúðina og
komið að nágrannanum þar.
Lögregla fann manninn í rúminu
og var hann með mikla áverka á and-
liti. Þá mátti sjá duft úr slökkvitæki
á vanga hans og í rúminu og blóð-
slettur á veggnum ofan við höfða-
gaflinn.
Maðurinn var fluttur á slysadeild
en lést þar síðar um kvöldið af sárum
sínum. Talið er að maðurinn hafi ver-
ið barinn í höfuðið með slökkvitæki,
sem fannst í íbúðinni.
Sá sem hringdi í lögregluna var
handtekinn, grunaður um árásina.
Hann var verulega ölvaður, var með
nýlegt hrufl á fingri og á höndum
hans var duft úr slökkvitæki. Við
húsleit á heimili mannsins fannst
úlpa með blóðblettum á, duft úr
slökkvitæki og blóðkám á vaski, raf-
magnsrofa og útidyrahurð.
Gæsluvarð-
hald staðfest