Morgunblaðið - 13.10.2007, Síða 8

Morgunblaðið - 13.10.2007, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VEGIR í Heiðmörk eru svo slæmir að stjórn Skógræktarfélags Reykja- víkur, sem hefur umsjón með Heið- mörk, hefur sent borgarstjóra neyðarkall um úrbætur, að sögn Helga Gíslasonar framkvæmda- stjóra. Helgi segir gesti Heiðmerk- ur kvarta látlaust undan ástandi veganna, en um þá fer liðlega hálf milljón gesta á ári. „Maður keyrir hvergi á landinu eftir malarvegum sem eru í jafn- skelfilegu ástandi,“ sagði Helgi. Í sumar þegar var sem þurrast var rykmengun mjög mikil. Eins sagði Helgi holótta malarvegina stórkost- lega slysagildru og að einn til tveir bílar hafi keyrt út af í viku hverri eftir að hafa lent í holum og lausa- möl. Auk eignatjóns valdi þessi tíðu óhöpp hættu á mengunarslysum. Helgi vill að gengið verði frá veg- um í Heiðmörk með bundnu slitlagi. Vandinn sé sá að vegirnir heyri ým- ist undir ríki eða borg. „Vegurinn sem líklega er verstur liggur frá Suðurlandsvegi og heim að Elliðavatnsbænum,“ sagði Helgi. Sá vegur heyrir að mestu undir Vegagerðina og var um hann rætt á Alþingi 16. nóvember 2005 í svari þáverandi samgönguráðherra, Sturlu Böðvarssonar, við fyrirspurn Valdimars I. Friðrikssonar alþing- ismanns um hvort ráðherrann hygðist leyfa Vegagerðinni að leggja bundið slitlag á veg í Heið- mörk. Sveitarfélög mótfallin malbiki Í svari Sturlu kom m.a. fram að Heiðmerkurvegur hefði verið tek- inn á vegaskrá sem landsvegur nokkrum árum fyrr, að beiðni bæj- arfélaga á höfuðborgarsvæðinu, einkum Reykjavíkurborgar, til að tryggja aðkomu ríkisins. Veitt var fé til vegarins á vegaáætlun 2005- 2008 og miðað við að leggja bundið slitlag á veginn. Þegar sótt var um framkvæmdaleyfi til heilbrigðiseft- irlits Hafnarfjarðar og Kópavogs- svæðisins og til umhverfissviðs Reykjavíkurborgar haustið 2005 til að malbika um 4 km kafla í norður frá Vífilsstaðahlíð var þeirri beiðni hafnað og m.a. óskað eftir frekara skipulagi og rökstuðningi fyrir þörf á framkvæmdum. Sturla sagði sam- gönguráðuneytið ekki líta svo á að ríkið ætti að skipuleggja Heiðmörk. „Það er því skoðun mín að fresta beri framkvæmdum, a.m.k. þar til spurningum varðandi skipulag hef- ur verið svarað og viðkomandi yf- irvöld hafa komist að niðurstöðu um að leggja megi veg í Heiðmörk. Í því sambandi er rétt að fram komi að Vegagerðin metur það svo að ekki sé unnt að halda við malarveg- um á svæðinu, m.a. vegna meng- unarhættu,“ sagði Sturla m.a. Neyðarkall um úr- bætur í Heiðmörk „Maður keyrir hvergi á landinu eftir malarvegum sem eru í jafn- skelfilegu ástandi“ Morgunblaðið/Júlíus Möl Vegir í Heiðmörk eru holóttir og er mikið undan þeim kvartað. MARGT er vel gert í viðbúnaði Ís- lendinga vegna mögulegs heimsfar- aldurs inflúensu. Sérstaklega er til fyrirmyndar samvinna sóttvarna- læknis og almannavarnadeildar ríkis- lögreglustjóra og einnig sú mikla áhersla sem lögð væri á samvinnu við önnur ráðuneyti, stofnanir, fyrirtæki og félög í landinu. Hins vegar þarf að efla enn frekar samskipti við sótt- varnalækna í héraði og viðkomandi lögregluyfirvöld og huga betur að upplýsingamiðlun, einkum til almenn- ings á farsóttartímum. Þetta kemur fram í nýrri bráðabirgðaskýrslu um viðbúnað hér á landi. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðu- neytinu kemur fram að fulltrúar frá Sóttvarnastofnun Evrópubandalags- ins (ECDC) dvöldu hér á landi dagana 9. til 11. október og tóku út viðbúnað Íslendinga vegna heimsfaraldurs inflúensu. Þetta er gert að ósk Markosar Kyp- rianous, heilbrigðisráðherra Evrópu- sambandsins, en könnun á viðbúnaði allra aðildarríkja bandalagsins, auk Íslands, Noregs og Liechtenstein stendur nú yfir og sér ECDC, sem er ráðgefandi stofnun um sóttvarnir í ESB, um könnun þessa. Dvöl fulltrúanna lauk með fundi með heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra og starfsmönnum ráðuneyt- isins sem unnið hafa að viðbragðsmál- unum. Margt vel gert í viðbúnaði Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is ÁÆTLAÐ er að vinna 27 milljónir rúmmetra á næstu þrjátíu árum úr stækkaðri malarnámu Árvéla sf. í Lambafelli við Þrengslaveg sam- kvæmt drögum að tillögu að mats- áætlun vegna mats á umhverfis- áhrifum sem eru nú til kynningar. Heildarflatarmál áætlaðrar efn- istöku er um 18 hektarar. Tilgangur framkvæmdarinnar, samkvæmt skýrslu sem Línuhönnun hefur gert fyrir Árvélar, er að mæta framtíðarefnisþörf fyrir fram- kvæmdir á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess. Í námunni er unnið bögglaberg, en það hentar vel sem burðarhæft fyllingarefni undir vegi, götur og byggingar. Efnisnám og námuvinnsla hefur verið í Lambafellsnámu um langa hríð en vinnsla er talin hafa hafist í námunni um 1960. Árvélar sf. hafa verið með nýtingarrétt á námunni síðan 1982. Áberandi kennileiti Lambafell er áberandi kennileiti þegar farið er um Þrengslin. Fjallið er 546 m.y.s. og oft lýst sem fjallinu á hægri hönd með stóra malarnám- inu, segir í skýrslu Línuhönnunar. Aðalvalkostur framkvæmdaraðila samkvæmt skýrslunni er að halda austurhlíð fjallsins ósnortinni en vinna sig inn í fjallið á bak við hlíðina með það í huga að minnka sýnileika námunnar. Í skýrslunni kemur fram að jarð- rask sem fylgir efnistökunni geti haft í för með sér skerðingu á grónu landi, búsvæðum fugla og muni breyta ásýnd fellsins. Eldborgir við Lambafell eru á náttúruminjaskrá og eru jafnframt í tillögum Umhverfisstofnunar vegna náttúruverndaráætlunar. Athugasemdir til 20. október Drögin eru nú birt til kynningar um tveggja vikna skeið, frá 6. októ- ber til 20. október 2007 og má finna þau á vef Línuhönnunar, lh.is. Á þessu tímabili gefst almenningi tækifæri til að senda inn at- hugasemdir við tillöguna. Að auglýsingatíma loknum verða drögin, ásamt athugasemdum al- mennings, send Skipulagsstofnun til umfjöllunar. Vilja vinna 27 millj- ónir m³ úr Lambafelli Í HNOTSKURN »Lambafellsnáma er í eigujarðanna Hjalla, Bjarna- staða, Lækjar, Bakka, Gerða- kots, Þorgrímsstaða og Króks í Ölfusi. »Eigendur námunnar erueigendur þessara jarða. »Árvélar sf., sem er í eiguÍslenskra aðalverktaka, hafa samning við landeig- endur um jarðefnavinnslu úr námunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.