Morgunblaðið - 13.10.2007, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Einn áhrifamesti borgarfulltrúiReykjavíkurlistans á sinni tíð var
Alfreð Þorsteinsson, fulltrúi Fram-
sóknarflokksins. Ástæðan fyrir mikl-
um áhrifum hans var ekki sízt sú, að
hann gaf til kynna, að hann ætti auð-
velt með að skipta um hest í miðri á
og taka upp samstarf við Sjálfstæð-
isflokkinn. Þess vegna fékk hann
meiru framgengt
en ella.
Almennt er tal-ið, að Björn
Ingi Hrafnsson
hafi tryggt sér
mikil áhrif með
samkomulagi við
borgarstjórn-
arflokk Sjálfstæð-
ismanna fyrir
rúmu ári um myndun meirihluta í
borgarstjórn Reykjavíkur.
Þótt hann væri einn en fulltrúarsamstarfsflokksins sjö þurftu
Sjálfstæðismenn á honum að halda.
Þeir vissu líka að Björn Ingi gat ásvipstundu tekið upp samstarf
við aðra vinstri flokka í borgarstjórn.
Nú gegnir öðru máli.
Björn Ingi hefur ekkert slíkt vog-arafl í samstarfi við vinstri flokk-
ana í borgarstjórn.
Hann getur ekki hótað þeim meðþví, að hann taki upp samstarf
við Sjálfstæðisflokk láti þeir ekki að
vilja hans, vegna þess að hann veit og
þeir vita, að borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins mundu ekki taka við
borgarfulltrúanum.
Þess vegna er ein helzta nið-urstaðan af þeim valdaskiptum,
sem eru að verða í ráðhúsinu, að hinn
áhrifamikli Björn Ingi er horfinn á
braut en hinn áhrifalitli Björn Ingi
kominn í staðinn.
STAKSTEINAR
Björn Ingi
Hrafnsson
Áhrifalítill?
FRÉTTIR
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
! "
#$$
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
%
&
'( ('
'( ('
'( ('
:
*$;<
!
"#
$ "# %
&& &'
&
& (
)
&*
&+
& *!
$$; *!
) *
"
+
=2
=! =2
=! =2
)" * (' ,($-.! ' (/
>!-
62
,"
&-
'&
& .
%
& /&
!
;
!
&-
0"
'&
& &'
& %
&
(
1
&2
&
!
*
$
%
-
&& !
&
"&
& /0&
0#''
11
(' 2
! ,($
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
3
3
3
4 4
4
4
4
4
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3 3
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Salvör | 12. október
Óefnislegar eignir
Mér finnst þetta mjög
loðið og óskýrt hvað
felst í þessum óefnis-
legu eignum og hvort
fyrirtæki í eigu sveitar-
félaga geti afsalað sér
réttindum í hendur
einkafyrirtækja sem engin trygging
er fyrir því að þau geti ráðið yfir.
Það var áhugaverð grein í 24 stund-
um í dag þar sem prófessor í jarð-
efnafræði heldur því fram að útrás-
arumræðan byggist á áróðri og að
nánast allar framfarir í…
Meira: salvor.blog.is
Svanur Sigurbjörnsson | 12. október
Langsótt
Al Gore hefur flutt
heiminum mjög mikil-
væg skilaboð með fyr-
irlestrum sínum og
heimildarmyndinni
„Óþægilegur sann-
leikur“ (An inconveni-
ent truth), þar sem hann varar við
þætti okkar mannanna í hlýnun jarð-
ar og þeim gífurlegu afleiðingum
sem það getur haft að pólarísinn
bráðni. Þetta eru hins vegar frið-
arverðlaun, ekki umhverfisvernd-
arverðlaun eða vísindaverðalaun …
Meira: svanurmd.blog.is
Eiríkur Bergmann Einarsson | 12. okt.
Móðurlaus Brooklyn
Á leiðinni til útlanda
um daginn kom ég við í
bókabúðinni í Leifstöð
og greip ég með mér
bók Jonathan Lethem,
Móðurlaus Brooklyn,
en bókin hafði fengið
frábæra dóma í íslenskum fjöl-
miðlum. Ég las bókina í samgöngu-
tækjum þriggja landa og reyndist
það ágætis vettvangur fyrir þessa
sögu. Bókin segir frá Lionel Essrog
og félögum hans sem starfa við vafa-
sama iðju í Brooklyn...
Meira: eirikurbergmann.blog.is
Hanna Birna Jóhannsdóttir | 12. okt.
Sparisjóður Vest-
mannaeyja
… Á fundi stofnfjáreig-
enda í Sparisjóði Vest-
mannaeyja á þriðju-
dagskvöldið var
samþykkt tillaga
stjórnar um að auka
stofnfé sjóðsins. Einnig
var lögð fram tillaga um breytingar á
samþykktum Sparisjóðsins um skip-
an aðal- og varamanna í stjórn. Á
fundinum var líka kynnt árshluta-
uppgjör Sparisjóðsins fyrir mánuðina
janúar til júní en stóra málið var til-
lagan um aukningu stofnfjár um einn
milljarð.
Tillaga meirihluta stjórnar hljóðaði
upp á heimild stjórnar til að auka
stofnfé um allt að einn milljarð og á
hún að gilda til ársloka 2009. Í tillög-
unni var lagt til að bjóða út 350 millj-
ónir króna fyrir lok þessa árs.
Um leið voru samþykktar breyt-
ingar á samþykktum sjóðsins í fimm
liðum. Sá fyrsti kveður á um afnám
jafnrar eignar að stofnfjárhlutum og
að hér eftir verði hver hlutur ein
króna. Um leið var samþykkt að há-
marks hlutur hvers stofnfjáreiganda
verði fimm prósent af útgefnu
stofnfé. Líka verður heimilt að skrá
stofnfjárbréfin rafrænt.
Heimilt verður að veðsetja stofn-
fjárhluti með samþykki sparisjóðs-
stjórnar. Loks var samþykkt að lág-
markshlutfall þeirra sem geta krafist
stofnfjárfundar verði hækkað úr ein-
um tíunda í fjórðung. Þessi tillaga var
samþykkt en til þess þurfti tvo þriðju
atkvæða.
Stofnfjáreigendur í Sparisjóði
Vestmannaeyja eru 70 og voru um
fimmtíu mættir á fundinn. Nokkrir
höfðu veitt öðrum umboð til að fara
með atkvæði sitt og eftir því sem
Fréttir komust næst voru liðlega 60
atkvæði virk á fundinum.
Tillaga um breytingar á kjöri til
stjórnar kom frá Gísla Geir Guð-
laugssyni, sem situr í stjórn Spari-
sjóðsins. Hún hljóðaði upp á að gerð
yrði sú breyting á samþykktum
sjóðsins að stofnfjáreigendur kjósi
alla stjórnina og bæjarstjórn hætti að
tilnefna í stjórnina. Þessi tillaga var
felld. Tillaga stjórnar, sem samþykkt
var á þriðjudaginn, markar tímamót í
sögu Sparisjóðs Vestmannaeyja því
nú má veðsetja bréfin og þau orðin
söluvara. Stofnfjáreigendur…
Meira: hbj.blog.is
BLOG.IS
FLUGNEMAR sem ljúka bóklegu atvinnuflugnámi við
Flugskóla Íslands í vetur klæðast nú einkennisfötum í
skólanum. „Þetta er í fyrsta sinn sem við setjum flug-
nema, sem eru að verða atvinnuflugmenn, í einkenn-
isföt,“ sagði Baldvin Birgisson (lengst t.v. á mynd),
skólastjóri Flugskólans og þjálfunarflugstjóri hjá Ice-
landair. Hann sagði Flugskóla Íslands, sem heyrir und-
ir Fjöltækniskóla Íslands, vera eina skólann hér á landi
sem kennir verðandi atvinnuflugmönnum bæði bóklega
og verklega hluta námsins. Baldvin sagði einkenn-
isfötin vera lið í því að móta betur væntanlega atvinnu-
flugmenn, því starfið krefðist einkennisfata og agaðra
vinnubragða. Hann sagði stærri og virtari flugskóla er-
lendis einnig krefjast þess að nemendur í atvinnu-
flugnámi klæddust einkennisfötum.
Það var Avion Aircraft Trading sem styrkti kaupin á
einkennisfötunum sem eru framleidd af fyrirtæki sem
sérhæfir sig í einkennisfötum flugmanna. Jón B. Stef-
ánsson skólastjóri Fjöltækniskólans sést hér ræða við
einkennisklædda nemendur Flugskóla Íslands.
Morgunblaðið/Sverrir
Einkennisklæddir atvinnuflugnemar
Mjög óvenjuleg og skemmtileg ferð til Kína þar sem okkur gefst
tækifæri á að upplifa persónulega kínversk áramót. Gist er eina
nótt á völdum kínverskum heimilum og tökum við þátt í
hátíðarhöldunum með þeim. Skoðunarferðir um helstu borgir Kína,
Shanghai og Peking og margt skoðað sem Kína er þekktast fyrir,
t.d. Kínamúrinn og Terrakottaherinn, sem er einn merkasti
fornleifafundur 20. aldar. Saga Kínverja er heillandi, menning
þeirra ólík því sem við þekkjum, margar áhugaverðar minjar og því
er þessi ferð sérstök og spennandi.
Fararstjóri: Magnús Björnsson
Verð: 224.800 kr.
17. – 29. febrúar
Sp
ör
-
R
ag
nh
ei
ðu
r
In
gu
nn
Á
gú
st
sd
ót
tir
áramót Kínversk
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R