Morgunblaðið - 13.10.2007, Side 18

Morgunblaðið - 13.10.2007, Side 18
18 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF   " # &' & '#    !!  ! & '% ( '%         $! % # ( '# ('     #! %  ( ' ( '     %"%  & ' &'      * +  ) + + *,-./0 1%! !   ' #'! !"'% #'$ $' !$'$ #'% %' !'! '"  '$" #'#  ' '# #'!$ #$"' #" ' ' '" "'%% $$'# '$" ' %'" ! ' ' #'"                                            !"#$% &  ' "( # &) *+$ ,-./-,, ,.-012-.1 -..,-2 ,--,/ //-,-,/, ,-21-0 -//.-02 -20-//-20 ,/1-,-.00 ,-2-. 2-2-, /-102-/2, ,-/,- .-2,1- 0-,.-1 1-1 2-,1 /-0-. -/- 32. /132 231 ,/3. ,.30 203. ,/31 1.3 23, ,30 /3 23 ,3/ /32. /03 /3 3 ,,3 3. 003 ,,30 13 2203 3 /13/ 23. ,/30 ,03 3 ,/3. .3 232 ,3 /3/, 3 ,3/, /320 /003 /03 3, ,,/3 3.. 3 .3 23 3, /3/ 45  !"#$%  2 2,  2/ /    2 ,  , / 0  , 2  & %  & !"#-! " ,--,1 ,--,1 ,--,1 ,--,1 ,--,1 ,--,1 ,--,1 ,--,1 ,--,1 -0-,1 ,--,1 ,--,1 ,--,1 ,--,1 ,--,1 ,--,1 ,--,1 0--,1 ,--,1 .--,1 --,1 --,1 ,--,1 ,,-.-,1 ,--,1 1-0-,1 -0-,1       % #6 +$78- ##!56 +$78- 9%78- :6 +$78- 6% ' #78- 8-;#$8<&=  >?  6 +$78- *+$@ &' #78- : ' #= 78-  ? 7 78- %+;+ +"A 4A8-'-78- B;78- C+78-    ! "   2/78- 8 ?78- % %?D %  +;DE # # &6 +$78- F B # >?  ?6 +$78-  78- G7 478- B&& &;"%5" 78- H +%5" 78-   # $ ! % & I %+B+; +; 6 78- ;$"4 78- ÞETTA HELST ... ● HLUTABRÉF lækkuðu í verði í Kauphöll Íslands í gær. Úrvals- vísitalan lækkaði um 0,35% og er 8.517 stig. Bréf Alfesca hækkuðu um 1,43%, bréf Atorku Group um 0,71% og bréf Föroya Banka um 0,68%. Bréf Teymis lækkuðu um 2,08% og Össurar um 1,89%. Krónan styrktist um 0,04% í dag, samkvæmt upplýsingum frá Glitni, en velta á millibankamarkaði nam 15,9 milljörðum króna. Gengi doll- arans er 59,90 krónur, pundsins 121,97 og evrunnar 84,90. Lækkun hlutabréfa EKKERT er hæft í þeim orðrómi að Iceland Express hafi fest kaup á Air Atlanta, að sögn forstjóra fyrr- nefnda félagsins, en í grein í Frétta- bréfi Félags íslenskra atvinnuflug- manna segir að sú saga gangi nú fjöllum hærra að gengið hafi verið frá kaupunum. Segir þar að for- svarsmenn beggja félaga hafi boðað starfsfólki sínu stórar fréttir 20. október næstkomandi. Í samtali við Morgunblaðið neitar Matthías Imsland, framkvæmda- stjóri Iceland Express, því að félagið hefði keypt Atlanta. Þá segir Baldur Guðnason, forstjóri Hf. Eimskipa- félags Íslands, móðurfélags Atlanta, sömuleiðis að flugfélagið hafi ekki verið selt. „Það er ekkert launung- armál að við viljum gjarnan finna kaupanda að félaginu og ABN Amro Bank er með það í sölumeðferð fyrir okkur. Við höfum átt í viðræðum við nokkra erlenda aðila vegna þessa en ekki við eigendur Iceland Express.“ Iceland Express er ekki fyrsta ís- lenska félagið sem orðað hefur verið við kaup á Atlanta, en skömmu eftir að tilkynnt var um það í maí að ákveðið hefði verið að setja félagið í sölu sagði Jón Karl Ólafsson, for- stjóri Icelandair, að verið væri að skoða kaup Icelandair á Atlanta, en ekkert varð þó úr kaupum. Segir engar við- ræður í gangi ● ASKAR Capital hafa stofnað nýj- an 150 milljón dollara fjárfest- ingasjóð á sviði framtaks- fjármögnunar (e. private equity) í samvinnu við VCM Capital Ma- nagement og Resource Am- erica. Í tilkynningu frá Askar segir að mikil þróunar- og undirbúnings- vinna liggi að baki stofnunar sjóðs- ins af hálfu fulltrúa félaganna þriggja og verði hann kynntur hér- lendum fagfjárfestum á næstu vik- um. Tryggvi Þór Herbertsson, for- stjóri Askar Capital, segir sjóðinn spennandi valkost fyrir lífeyrissjóði og aðra fagfjárfesta. Með öflugum samstarfsaðilum hafi tekist að lág- marka óvissu sem yfirleitt tengist verkefnum á sviði framtaks- fjármögnunar og auka líkur á góð- um árangri og ávöxtun til fjárfesta. Sjóðurinn er skráður á Írlandi og starfar eftir þeim reglum sem þar gilda. Askar Capital stofna nýjan fjárfestingasjóð Tryggvi Þór Herbertsson ● FL GROUP hefur aukið hlut sinn í Tryggingamiðstöðinni um rúm 11% og er komið með 94,96% hlut í fyr- irtækinu en fyrir átti FL Group 83,74%. FL Group hefur meðal annars keypt 9% hlut af félagi í eigu Guð- bjargar Matthíasdóttur, Kristni ehf. FL Group heldur hlutunum í Trygg- ingamiðstöðinni annað hvort beint eða í gegnum dótturfélag sitt Kjarr- hólma ehf. Gerður er fyrirvari um samþykki Fjármálaeftirlitsins fyrir kaup- ununum, en FL Group greiðir fyrir hlutina í Tryggingamiðstöðinni með nýju hlutafé í FL Group, samkvæmt tilkynningu til Kauphallar OMX á Ís- landi. FL með 95% í Trygg- ingamiðstöðinni Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is STRAUMUR-Burðarás fjárfesting- arbanki opnar starfsstöð í Svíaríki á næstunni og undirbýr nú þá opnun. Samkvæmt frétt sænska viðskipta- blaðsins Dagens Industri hefur bankinn farið mikinn í mannaráðn- ingum, ryksugar markaðinn eins og það er orðað, og hefur blaðið eftir Fredrik Sjöstrand, æðsta manni starfseminnar í Svíþjóð, að fram- undan séu kaup á öðrum fjárfesting- arbönkum. Í heilu lagi eða að hluta til. Reyndar er það í takt við þá framtíðarsýn sem William Fall, for- stjóri Straums, kynnti fyrir íslensk- um blaðamönnum 10. september sl. en þá hafði Fall einmitt orð á því að til þess að ná markmiðum bankans um að verða fremstur í flokki fjár- festingarbanka árið 2010 væri ytri vöxtur nauðsynlegur. Aðspurður segir Sjöstrand að verið sé að skoða nokkra banka með kaup í huga en bætir við að einnig komi til greina að kaupa starfsfólk í kippum frá keppi- nautum. Hann gefur þó ekki upp hvaða banka er verið að skoða en telur ólíklegt að gengið verði frá ein- hverjum samningum fyrir áramót. „Eiginfjárhlutfall Straums er allt of hátt. Bankinn þarf að ávaxta eigið fé sitt betur,“ segir Sjöstrand, sem var ráðinn til Straums í mars á þessu ári frá Handelsbanken í Stokkhólmi. Sækja í áhættu Höfuðstöðvar Straums í Stokk- hólmi verða á Jakobsbergsgatan, sem er í hjarta fjármálahverfis borgarinnar og skammt frá höfuð- stöðvum Kaupþings við Stureplan. „Viðskiptabankarnir hræðast áhættu og hefðbundnu viðskipta- bankarnir hafa ekki mjög mikið fjár- magn. Við hræðumst ekki áhættu og höfum nóg fjármagn. Aðalatriðið er að geta unnið eftir íslenska módel- inu, þ.e. að taka þátt í verkefnum og taka áhættu með viðskiptavinum okkar,“ segir hann. Stendur í stórræð- um í Stokkhólmi Morgunblaðið/Kristinn Forstjórinn William Fall segir ytri vöxt nauðsynlegan fyrir Straum. GLITNIR sá um 6,56% viðskipta á norrænu OMX-kauphöll- inni í september og var í fyrsta sæti miðlara í kauphöllinni. Er það í fyrsta skipti sem það gerist. Í næstu sætum voru SEB Enskilda með 6,21% hlut af velt- unni, Svenska Handelsbanken með 4,92%, Morgan Stanley með 4,73% og Goldman Sachs með 4,1%. Í tilkynningu frá bankanum er haft eftir Lárusi Welding, for- stjóra Glitnis, að á síðustu árum hafi mikil áhersla verið lögð á að byggja upp verðbréfamiðlun bank- ans. Það sé ánægjulegt að sjá markmið bankans verða að veru- leika. Þá segir Jóhannes Baldursson, framkvæmdastjóri markaðsvið- skipta Glitnis á Íslandi, að nor- ræna útrásin hafi styrkt stöðu bankans í íslensku kauphöllinni þar sem Glitnir var einnig með mestu veltu í hlutabréfum í sept- ember. Stærstur miðlara Glitnir umfangs- mestur í OMX ÁKVEÐIÐ hefur verið að auka stofnfé Sparisjóðs Vestmannaeyja, en tillaga þess efnis var samþykkt á fundi stofnfjáreigenda í vikunni. Er sagt frá þessu í Eyjafréttum. Tillaga meirihluta stjórnar sjóðs- ins hljóðaði upp á heimild stjórnar til að auka stofnfé um allt að einn milljarð og á hún að gilda til árs- loka 2009. Var lagt til að bjóða út 350 milljónir króna fyrir lok þessa árs. Þá var samþykkt breyting á sam- þykktum sjóðsins um afnám jafnrar eignar að stofnfjárhlutum og að hér eftir verði einn hlutur ein króna. Þá var ákveðið að hámarkshlutur hvers stofnfjáreiganda verði fimm prósent af útgefnu stofnfé. Stofnfé aukið um milljarð BRESKI auðkýf- ingurinn Richard Branson hefur nú bæst í hóp þeirra sem hafa hug á að kaupa fasteignalána- bankann Nort- hern Rock. Nái hann að kaupa bankann mun nafnið Northern Rock heyra sög- unni til og vörumerki Branson Virgin Money verður límt yfir gömlu skiltin. Frá þessu greinir The Times og segir fulltrúa Bran- son þegar hafa fundað með stjórn- endum Northern Rock. Northern Rock hefur sem kunn- ugt er lent í miklum hremmingum í kjölfar húsnæðislánakreppunnar í vestan Atlantsála og hafa margir lýst áhuga sínum á að kaupa bank- ann. Meðal þeirra eru vogunar- sjóðir, bæði evrópskir og banda- rískir. Frá áramótum hefur gengi hlutabréfa Northern Rock lækkað um 78%. Vill kaupa Northern Richard Branson ♦♦♦ ♦♦♦ Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is KJÖR þau sem Kaupþingi buðust í nýafstöðnum skuldabréfaútboðum eru heldur verri en þau sem bankinn fékk fyrir nokkrum mánuðum, áður en títtnefnd ólga hófst á alþjóðlegum lánamörkuðum. Talsmenn bankans telja þó að kjörin hafi verið góð mið- að við aðstæður og segja verðhækk- un á lánsfé hafa gengið nokkuð jafnt yfir alla aðila á lánamarkaði. Ávöxtunarkrafa á skuldabréf sem gefin voru út í Mexíkó var 0,72 pró- sentustigum yfir libor-vöxtum og krafan á víkjandi skuldabréf, sem gefin voru út í Asíu, var 2,75 pró- sentustigum yfir libor-vöxtum. Guðni Níels Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri fjárstýringar hjá Kaupþingi segir að þrátt fyrir að lánsfé sé nú dýrara en fyrir lána- kreppuna eigi bankinn ekki í neinum vandræðum með fjármögnun og að hún hafi ekki stöðvast. Segir Guðni að lauslega áætlað hafi ávöxtunarkrafa á skuldabréf hækkað um 0,5 prósentustig frá því í sumar, en það eigi jafnt við um Kaupþing og stærri banka eins og Citybank og Deutsche Bank. Asíska útgáfan var í formi svokallaðra víkj- andi skuldabréfa að upphæð um 24 milljarða íslenskra króna, en víkj- andi skuldabréf teljast til A-hluta eigin fjár banka og með útgáfunni hækkar eiginfjárhlutfall A bankans um 0,7%, samkvæmt útreikningum greiningardeildar Landsbankans. Guðni segir að áður en til yfirtöku Kaupþings á hollenska bankanum NIBC kom hafi Kaupþing verið að safna lausafé til að geta gripið kaup- tækifæri þegar það gæfist án þess að falla niður fyrir lögbundin lausafjár- mörk. „Í raun má því segja að fjár- mögnuninni hafi því verið lokið áður en að yfirtökunni sjálfri kom.“ Kom ekki á óvart Í Morgunblaðinu í gær var fjallað um grein Financial Times um ís- lensku bankana, þar sem áhyggjum var lýst yfir því að vergar þjóðar- skuldir og viðskiptahalli séu gríðar- mikil og það veki upp spurningar um vaxtastefnu íslensku bankanna í ljósi hækkandi lánsfjárkostnaðar. Bank- arnir bendi hins vegar á að eiginfjár- hlutfall þeirra sé hærra en var fyrir rúmu ári og að fjármögnunargrunn- ur þeirra sé öllu breiðari. Í grein Financial Times er einnig fjallað um, sem áður hefur verið greint frá í Morgunblaðinu, að mats- fyrirtækið Moody’s væri með Kaup- þing á athugunarlista vegna kaup- anna á NIBC. Jónas Sigurgeirsson, forstöðumaður fjárfestatengsla Kaupþings, segir að í ljósi stærðar yfirtökunnar hafi það ekki komið á óvart, enda eðlilegt að matsfyrirtæki vildu hafa vaðið fyrir neðan sig. Benti hann á að Fitch Ratings hafi staðfest lánshæfismat Kaupþings eftir kaupin á NIBC. Dýrara lánsfé en viðunandi kjör Í HNOTSKURN » Kaupþing gaf í vikunni útvíkjandi skuldabréf að fjárhæð 24 milljarða króna. » Víkjandi skuldabréf eruþess eðlis að komi til gjald- þrots útgefanda þá víkja hand- hafar slíkra bréfa fyrir öðrum kröfuhöfum í búið. » Þá telst fjármagn, sem afl-að er með útgáfu víkjandi bréfa, til svokallaðs A-hluta eigin fjár útgefandans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.