Morgunblaðið - 13.10.2007, Síða 22

Morgunblaðið - 13.10.2007, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT CONDOLEEZZA Rice, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, sagði eftir viðræður við rússneska ráða- menn í Moskvu í gær að Banda- ríkjastjórn hygðist hvergi hvika frá áformum sínum um að koma upp eldflaugavarnakerfi í Póllandi og Tékklandi þrátt fyrir harða andstöðu Rússa. Rice sagði að haldið yrði áfram viðræðum við stjórnvöld í lönd- unum tveimur um að koma upp ratsjárstöð í Tékklandi og tíu gagnflaugum í Tékklandi til að verjast hugsanlegum eldflauga- árásum. Áður hafði Sergej Lavrov, utan- ríkisráðherra Rússlands, skorað á Bandaríkjastjórn að hætta við eld- flaugavarnirnar og varað við því að Rússar myndu „gera ráðstafanir til að eyða ógninni“ sem stafaði af áformunum ef ekki yrði tekið tillit til sjónarmiða Rússa. Robert Gates, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sem tók einnig þátt í viðræðunum í Moskvu, sagði að fyrirhugaðar eld- flaugavarnir beindust ekki að Rússlandi. Viðræðurnar í Moskvu hófust með fundi Rice og Gates með Vlad- ímír Pútín Rússlandsforseta sem áréttaði andstöðu sína við eld- flaugavarnir Bandaríkjanna. Segir sáttmálann úreltan Pútín hótaði einnig að rifta INF- sáttmálanum frá árinu 1987 um upprætingu meðaldrægra kjarn- orkueldflauga. Hann sagði að sátt- málinn væri orðinn úreltur vegna þess að ríki í grennd við Rússland ættu nú slík vopn. Pútín nefndi engin ríki í þessu sambandi en breska ríkisútvarpið, BBC, hafði eftir fréttaskýranda að forsetinn hefði hugsanlega skírskotað til Ír- ans og Norður-Kóreu. Hótunin var túlkuð sem nýtt útspil af hálfu Pút- íns til að auka þrýstinginn á Bandaríkjastjórn í deilunni um eldflaugavarnirnar. Rússnesk stjórnvöld hafa boðið Bandaríkjamönnum að nota rat- sjárstöð, sem Rússar reka í Aserbaídsjan, en bandaríska stjórnin segir að það komi ekki til greina þar sem stöðin henti ekki til eldflaugavarna. Hart deilt um eldflaugavarnir Pútín hótar að rifta samningi um afvopnun Reuters Togstreita Vladímír Pútín ræðir við Robert Gates, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna (t.v.), og Condoleezzu Rice utanríkisráðherra. ÞÚSUNDIR manna komu saman í Kungsträdgården, almenningsgarði í miðborg Stokkhólms, í gær til að sýna andstöðu sína í verki við ofbeldisöldu sem sett hefur svip sinn á borgarlífið undanfarið. Kornið sem fyllti mælinn var þegar sextán ára piltur var laminn svo illa í miðborg sænsku höfuðborgarinnar um síð- ustu helgi að hann dó. Tugir þúsunda manna hafa skráð nafn sitt á síðu á netinu til að mótmæla götu- gengjaofbeldi og einnig fóru fram mótmæli í Gauta- borg og Malmö í gær. AP Svíar mótmæla ofbeldi götugengja SÉRFRÆÐINGAR hafa gagn- rýnt stjórnvöld í ríkjum heims fyr- ir að hafa ekki gert nóg til að fækka dauðsföllum meðal kvenna við barnsburð. Ný rannsókn hefur leitt í ljós að dauðsföllunum hefur lítið fækkað síðustu tuttugu árin. Skýrt er frá rannsókninni í læknablaðinu The Lancet. Þar kemur fram að á ári hverju deyr hálf milljón kvenna við barnsburð. Ken Hill, prófessor við Harvard- háskóla, og samstarfsmenn hans komust að þeirri niðurstöðu að dauðsföllum kvenna við barnsburð hefði aðeins fækkað um tæpt pró- sent á ári frá 1990 til 2005. Helm- ingur dauðsfallanna á sér stað í Afríku sunnan Sahara og Hill segir að gera þurfi tafarlaust ráðstafanir til að bæta mæðraverndina í þró- unarlöndunum. Stefnt hefur verið að því að fækka dauðsföllunum um 75% fyr- ir árið 2015 en vísindamennirnir segja að það markmið náist ekki án tafarlausra aðgerða. Hálf milljón deyr við barnsburð Dauðsföllunum hefur lítið fækkað Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is AL Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, og vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslags- breytingar (IPCC) hljóta friðar- verðlaun Nóbels í ár fyrir þátt þeirra í baráttunni fyrir aðgerðum til að stemma stigu við loftslags- breytingum af manna völdum. Gore hefur helgað sig baráttunni gegn loftslagsbreytingum síðan hann beið ósigur fyrir George W. Bush í forsetakosningunum í Bandaríkjunum árið 2000. Gore hlaut Óskarsverðlaunin fyrr á árinu fyrir heimildarmynd sína um hlýnun lofthjúpsins. Líklegt þykir að Óskarinn og friðarverðlaun Nóbels verði til þess að stuðnings- menn Gore leggi harðar að honum að gefa kost á sér aftur í forseta- kosningunum á næsta ári. Rajendra Pachauri, formaður vísindanefndarinnar, kvaðst vona að friðarverðlaunin beindu athygli þjóða heims að ógninni sem mann- kyninu stafaði af loftslagsbreyting- um og hversu brýnt það væri að stemma stigu við þeim. Alþjóðaveðurfræðistofnunin (WMO) og Umhverfisstofnun Sam- einuðu þjóðanna (UNEP) komu nefndinni á fót 1988 og í henni eru 3.000 sérfræðingar, m.a. á sviði veðurfræði og haffræði. Í nýjustu skýrslu sinni komst nefndin að þeirri niðurstöðu að lík- legt væri nú að meðalhitinn á jörð- inni hækkaði um 1,1-6,4 gráður á Celsíus fyrir lok aldarinnar. Nefndin telur að líkurnar á því að loftslagsbreytingar séu að miklu leyti til komnar vegna gróðurhúsa- áhrifa af völdum manna séu „meiri en 90%“. Verðlaunanefndin hefur á síð- ustu árum víkkað túlkun sína á um- leitunum til að tryggja frið í heim- inum og m.a. verðlaunað fólk fyrir baráttu í þágu mannréttinda, lýð- ræðis, umhverfisverndar og bar- áttu gegn fátækt. Fær friðarverðlaun Nóbels í ár ásamt loftslagsnefnd SÞ Nóbelinn eykur líkur á framboði Gore 2345'367358' 9 9:78                                      !""#$    % (')   *  +,,- ('.    . +,,/ +,,0 1'( $  +,,2 '.   +,,+ 3'"    +,,4    5    Al Gore Rajendra Pachauri SOE Win, forsætisráð- herra Búrma, er látinn af völdum hvítblæði. Frá þessu var greint í Búrma í gær. Thein Sein, aðstoðarforsæt- isráðherra, hefur í reynd sinnt störfum for- sætisráðherra frá því í Búrma í fjarveru Soe Win allt frá því í maí en dauði Soe kemur örfáum dögum eftir að herforingjastjórnin í landinu braut á bak aftur mótmæli sem búddamunkar í land- inu fóru fyrir. Fréttaskýrendur eiga ekki von á því að þróun mála í Búrma – þar sem her landsins hefur stjórnað með harðri hendi um árabil og ávallt barið niður alla andspyrnu. Þá segja fréttaskýrendur enn- fremur að allra mikilvægustu ákvarðanir séu ætíð bornar undir hershöfðingjana Than Shwe og Maun Aye en þeir ráða ferð hjá hernum. Forsætisráðherra Búrma látinn Soe Win FRANSKA blaðið L’Est Republicain sagði í gær á vefsíðu sinni að Nicol- as Sarkozy, forseti Frakklands, og eigin- kona hans, Cecilia, hygðust sækja um skiln- að á næstunni. Blaðið hafði þetta eftir heim- ildarmönnum í „nánum tengslum við forseta- embættið“. Forsetahjónin hafa sjaldan sést saman opinberlega frá því að Sarkozy tók við for- setaembættinu í maí. Cecilia fór t.a.m. ekki með forsetanum til Búlgaríu í vikunni sem leið en þarlend stjórnvöld hugðust heiðra hana fyrir þátt hennar í að fá yfir- völd í Líbýu til að sleppa búlgörskum hjúkrunarfræðingum úr fangelsi. Sarkozy-hjónin að skilja? Cecilia Sarkozy HERFORINGJASTJÓRNIN í Búrma kvaðst í gær harma ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem ráðið for- dæmdi ofbeldisaðgerðir herforingja- stjórnarinnar gegn friðsömum mótmæl- endum. Í ályktuninni, sem samþykkt var í fyrra- kvöld, er herforingjastjórnin hvött til að leysa pólitíska fanga úr haldi. Er þetta fyrsta ályktun öryggisráðsins um Búrma eftir að herforingjastjórnin braut mót- mæli búddamunka á bak aftur. Nær þús- und mótmælendur eru enn í haldi. Harma ályktun öryggisráðsins AL Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hét því í gær að nota friðarverðlaun Nóbels til þess að auka enn viðleitni sína til að vekja fólk til umhugsunar um þann vanda sem loftlagsbreytingar fela í sér fyr- ir mannkyn. Brýnt sé að sem flestir vakni til vitundar um þá ógn sem í loftlagsbreytingum felast. Gore hyggst láta sinn hluta verð- launafjárins, 750 þúsund dollara, renna til samtakanna Alliance for Climate Protection. „Þetta er aðeins upphafið,“ sagði Gore þegar hann ræddi stuttlega við blaðamenn. Gore vildi ekki svara spurningum fjölmiðlafólks um hvort mögulegt væri að Nóbelsverðlaunin yrðu til þess að hann ákvæði að bjóða sig fram í forsetakosningum í Banda- ríkjunum á næsta ári. „Ég ætla að halda áfram að vinna núna,“ sagði Gore, en sem kunnugt er tapaði hann fyrir George W. Bush í forseta- kosningunum árið 2000. „Þetta er aðeins upphafið“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.