Morgunblaðið - 13.10.2007, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 23
MENNING
SÓPRANSÖNGKONAN
Hjördís Elín Lárusdóttur, bet-
ur þekkt undir nafninu Dísella,
heldur á morgun sína fyrstu
einsöngstónleika á Íslandi.
Þeir verða haldnir á æsku-
stöðvum hennar í Mosfellsbæ,
nánar tiltekið í Hlégarði, en
Dísella hefur verið búsett í
Bandaríkjunum síðustu ár.
Píanóleikarinn Teddy Ker-
nizan verður með henni í för og
munu þau flytja blandaða efnisskrá, meðal annars
verk eftir Jórunni Viðar og Jón Ásgeirsson. Húsið
verður opnað klukkan 15.
Tónlist
Dísella syngur á
æskustöðvunum
Hjördís Elín
Lárusdóttir
ANNAÐ kvöld kl.
19.50 verður flutn-
ingur Íslensku óp-
erunnar á Ariadne
eftir Richard
Strauss sendur út
beint á Rás 1.
Fjölmargir
söngvarar taka þátt í sýningunni, en með helstu
hlutverk fara Hanna Dóra Sturludóttir, Arndís
Halla Ásgeirsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir,
Kolbeinn Ketilsson og Ágúst Ólafsson. Sýningin
hefur fengið mjög góða dóma, sérstaklega hafa
þau Hanna Dóra og Kolbeinn fengið lof fyrir sína
frammistöðu í hlutverkum Ariadne og Bakkusar.
Tónlist
Ariadne í beinni
útsendingu á Rás 1
Hanna Dóra í hlutverki Ariadne
KRISTALLINN kammer-
tónleikaröð, heldur áfram
göngu sinni í Þjóðmenning-
arhúsinu á morgun þegar
hljóðfæraleikarar úr Sinfón-
íuhljómsveit Íslands flytja Ok-
tett í F-dúr op. 166 eftir Schu-
bert. Tónleikarnir hefjast
klukkan 17. Schubert var undir
sterkum áhrifum frá Beetho-
ven þegar hann samdi verkið,
en höfundareinkenni hans
sjálfs eru líka auðheyrð. Oktettinn var saminn
vorið 1824 og er eitt af síðustu kammerverkunum
sem Schubert samdi á ferlinum.
Tónlist
Schubert í Þjóð-
menningarhúsinu
Franz
Schubert
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
UNGIR sem aldnir þekkja eflaust
spýtustrákinn Gosa sem lendir í
ýmsum ævintýrum á meðan nef
hans stækkar við hverja lygi.
Í dag verður frumsýnt á Stóra
sviði Borgarleikhússins barna-
leikritið Gosi. Karl Ágúst Úlfsson
skrifaði handritið að verkinu eftir
upprunalegri sögu Carlo Collodi um
spýtustrákinn frá 1883. Selma
Björnsdóttir leikstýrir verkinu og
er þetta fyrsta leikstjórnarverkefni
hennar í atvinnuleikhúsi.
„Það er mér mikill heiður að vera
treyst fyrir þessu stóra verkefni.
Auðvitað tók ég nokkra daga í að
melta þetta starfstilboð þegar fyrst
var leitað til mín en ég þekki söng-
leikja- og barnaleikhúsformið mjög
vel, hef leikið í 20 sýningum og ver-
ið choreograph og aðstoðarleik-
stjóri slíkra sýninga,“ segir Selma.
Í Gosa segir frá þegar leik-
fangasmiðurinn barnlausi, Jakob,
sker út strengjabrúðu á töfrastund
og brúðan lifnar við. Þarna reynist
vera ótaminn og óstýrilátur strák-
ur, Gosi að nafni. Hann óhlýðnast
föður sínum og í stað þess að mæta
í skólann stefnir Gosi á vit vafa-
samra ævintýra sem reka hann á
ótrúlegustu staði. Með þátttöku í
ævintýrunum skerpist samviska
hans, hann lærir, þroskast og í lok-
in fórnar hann lífi sínu fyrir föður
sinn. En vegna ástarinnar sem
feðgarnir bera hvor til annars öðl-
ast Gosi nýtt líf, raunverulegt
hjarta sem slær og von um inni-
haldsríka ævi.
Fallegur ævintýraheimur
„Gosi er tímalaust ævintýri sem á
alltaf við, þetta er þroskasaga spýt-
ustráks sem lærir að fóta sig í ver-
öldinni og hann þarf að reka sig á
til að læra muninn á réttu og röngu
og sannleika og lygi. Fyrir mér er
þetta fjölskyldusýning, fullorðnir
munu hafa jafn gaman af henni og
börn. Ævintýrið er spennandi og
hjartnæmt með fullt af glensi og
gríni, tónlist og dansi,“ segir Selma
og vonar að börn verði fyrir mikilli
upplifun í leikhúsferðinni.
„Vytautas lagði mikið upp úr því
að börnin yrðu fyrir hughrifum,“
segir Selma og vísar þar til leik-
myndahönnuðarins Vytautas
Narbutas. „Hann hefur skapað
ótrúlega fallegan ævintýraheim sem
er samt með vísunum í raunveru-
leikann. Búningar Maríu Ólafs-
dóttur eru líka mjög ævintýra-
legir.“
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
samdi tónlist við söngtexta Karls
Ágústs. „Þorvaldur samdi fallega
klassíska tónlist fyrir sýninguna.
Hann fer nýjar leiðir í þessu enda
er hann þekktari í poppheiminum
en þarna er hann með heila sinfóníu
á bak við sig,“ segir Selma en tón-
listin er flutt af Búlgörsku sinfón-
íuhljómsveitinni. „Við fórum til
Búlgaríu og tókum upp 80 manna
sinfóníuhljómsveit sem er undir-
leikurinn í sýningunni, hann er
mjög veglegur og passar vel inn í
þennan tímalausa ævintýraheim.“
Með systur sínar með sér
Tvær systur Selmu, Birna og
Guðfinna Björnsdætur, sjá um
dansinn í leiksýningunni og segir
Selma mjög gott að hafa þær innan
handar.
„Við bætum hver aðra upp, þær
eru sterkar á einum vettvangi með-
an ég er sterkari á öðrum. Ef ég
útskýri fyrir þeim hvað ég vil fæ ég
nákvæmlega það.“
Selma segist hafa verið Gosa-
aðdáendi á yngri árum og nú hafi
hún smitað fimm ára son sinn af
sama áhuga. „Ég sá teiknimyndina
og las söguna sem barn og hún sat
mér fast í minni því nefið á honum
stækkað sem mér þótti mjög merki-
legt. Svo gleypir hvalur hann svo
maður gleymir sögunni ekki auð-
veldlega,“ segir Selma sem er full
eftirvæntingar og gleði fyrir frum-
sýninguna í dag.
Barnaleikritið um spýtustrákinn Gosa verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins í dag
Ótaminn og óstýrilátur strákur
Morgunblaðið/Kristinn
Gosi Selma Björnsdóttir leikstjóri og Víðir Guðmundsson sem fer með að-
alhlutverkið. Þau segja ævintýrið um Gosa vera þroskasögu.
MEÐ hlutverk Gosa fer Víðir Guð-
mundsson en hann útskrifaðist frá
leiklistardeild Listaháskóla Íslands
vorið 2006.
„Ég las ekki söguna um Gosa sem
krakki en þegar ég var í Leiklist-
arskólanum unnum við með upp-
runalegu söguna sem er mjög ólík
Disney-útgáfunni sem allir þekkja.
Gosi er miklu óþekkari í henni, eig-
inlega óþolandi, en hann er meira
alvöru þar og miklu skemmtilegri
að mínu mati,“ segir Víðir spurður
hvort hann hafi þekkt Gosa vel áður
en hann þurfti að fara í gervi hans.
– Hvort er Gosi illa innrættur eða
sakleysingi sem villist af leið?
„Hann er í raun og veru sakleys-
ingi sem er plataður hingað og
þangað og í sakleysi sínu veit hann
ekki betur og leiðist með. Það ættu
allir að geta tengt við hann, hvenær
sem er á ævinni. Það hafa allir látið
plata sig með gylliboðum, enda er
nóg af þeim í samfélaginu í dag.
Uppáhaldsatriði mitt er þegar hann
breytist í alvörustrák undir lokin.
Þar kemur boðskapurinn hvað tær-
ast í gegn, við fæðumst öll sem spýt-
ustrákar. Þetta er þroskasaga
drengs sem verður að manni, því
miður verðum við ekkert öll að
manni, sumir læra aldrei af mistök-
unum.“
Víðir segir hlutverk Gosa krefj-
ast mikils aga. „Ég þarf að hreyfa
mig eins og brúða alla sýninguna,
eins og spýtukarl og er þetta hlut-
verk meðal annars krefjandi að því
leytinu til,“ segir Víðir sem fer
einnig með hlutverk í Söngleiknum
Gretti þar sem hann vann undir
leikstjórn Rúnars Freys Gíslasonar,
eiginmanns Selmu.
„Fæðumst
öll sem spýtu-
strákar“
Handrit: Karl Ágúst Úlfsson.
Leikstjóri: Selma Björnsdóttir.
Hljóð: Magnús H. Viðarsson.
Leikgervi:
Sigríður Rósa Bjarnardóttir.
Dans:
Birna og Guðfinna Björnsdætur.
Lýsing: Halldór Örn Óskarsson.
Búningar: María Ólafsdóttir.
Leikmynd: Vytautas Narbutas.
Tónlist og tónlistarstjórn:
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.
Leikarar: Víðir Guðmundsson, Að-
albjörg Þóra Árnadóttir, Davíð
Guðbrandsson, Halldór Gylfason,
Jóhann G. Jóhannsson, Jóhann Sig-
urðsson, Kristjana Skúladóttir,
Magnús Jónsson, Pétur Einarsson
og Sverrir Þór Sverrisson auk
dansara og fimleikafólks.
Gosi
Selvaag Gruppen is announcing the fourth round of our
international sculpture competition based on scenes
from Henrik Ibsen’s masterpiece, “Peer Gynt”. Sculptors
are invited to submit their figurative contributions.
Deadline for submission is 1st March 2008.
For further information please visit our website:
The sculptures will be an integral part of “Peer Gynt-
Suiten” at Løren in Oslo. In commemoration of Ibsen,
the first six sculptures were installed in 2006. A further
two sculptures were added to the suite in 2007.
MAGNÚS Bald-
ursson, sálfræð-
ingur frá Kaup-
mannahafnar-
háskóla, hefur sent
frá sér smásagna-
safnið Dögum fóru
og nóttum. Þetta er
fyrsta bók Magn-
úsar en einhverjir lesendur kunna
að kannast við útvarpspistla hans
um Asíu, en þar dvaldi hann um
tveggja ára skeið í Indlandi, Tíbet
og Kína. Það er Fámenna bóka-
félagið sem gefur út.
Smásögur
Magnúsar
Bókmenntir