Morgunblaðið - 13.10.2007, Page 24

Morgunblaðið - 13.10.2007, Page 24
24 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Eftir Soffíu Guðrúnu Jóhannsdóttur soffiajo@gmail.com TEIKNINGAR Ingólfs Arnarssonar mynd- listarmanns eru látlausar, einfaldar og berast lítið á, þeim hefur verið líkt við ljóðræna kons- eptlist. Um nálgun sína sagði Ingólfur einhverju sinni að „tóm herbergi væru í sjálfu sér áhuga- verð, hlutföll, gólf og loft, skuggspil og litbrigði – andblær þeirra, auk tengsla við ytri heim. Áhugi minn beinast að því að vinna með þessa eiginleika, að metta rýmið án þess að vinna gegn því“. Rafræn upplifun „Ég hef áður unnið með hljóð/ tónlist og hef sýnt með Hilmari Bjarnasyni en hann vinnur með rafhljóð og áferð tónlistar og tóna. Ég máta tónlist við verk mín, líkt og ég gerði á þessari sýningu. Ég hef prófað íhugula hæga tónlist og svo hef ég á hinn bógin spilað og mátað hreina japanska noise-tónlist. Sam- starfið við Stilluppsteypu gengur út á að ná fram rafrænni upplifun og kalla fram líkamleg áhrif. Tónleikarnir fyrir opnunina hafa því áhrif á upplifun og skynjun fólks, en ég er að leika mér með þennan samanburð. Tónleikar Stilluppsteypu koma í staðinn fyrir fyrirlestur um mig og verkin. Í sýningarbæklingnum eru þrjár lýsandi greinar um verkin, svo fólk getur tekið hann heim og lesið, fyrirlestur því óþarf- ur.“ Kubburinn Hvers vegna er sýningin í Kubbnum? „Stjórnendur skólans buðu mér að vera með sýningu í Kubbnum, ég hef verið hér prófessor undanfarin ár. Hér eru reglulega sýningar en síðast sýndi Einar Þorláksson verk. Hug- myndin er að halda áfram að bjóða starfandi myndlistarmönnum að sýna í Kubbnum. Hér í Laugarnesinu er einnig hefð fyrir hádegisfyr- irlestrum og þar kennir ýmissa grasa, mynd- listarfólk og annað fræðifólk kynnir hug- myndir sínar, og þessir fyrirlestrar eru opnir almenningi og vel sóttir.“ Hugsýn Ertu konseptlistamaður? „Ég vil ekkert sérstaklega kalla mig kons- eptlistamann, það er hækja sem fólk vill gjarn- an nota í daglegu tali. En samt má segja sem svo að þegar ég byrjaði í myndlist vann ég út frá grunnhugmynd sem ég vildi koma í efn- islegt form. Ég verð upptekinn af einhverjum miðli og það verður til ákveðin löngun að ná ut- an um hugsýn, og með ákveðnum miðli næ ég fram þeim hughrifum sem ég lagði af stað með í upphafi. Efnið tekur við og fer að framfylgja hugsýninni. Hengt upp og pælt í rytmatískum púls teikninga Línulegan lestur grátóna og mismunandi rytmatískan púls í uppsetningu kannaði ég um tíma, en á seinni árum hef ég leyft stökum teikningum að standa einum í stórum rýmum. Glíman við teikninguna og tengslin við rýmið eru mikilvæg og hinn títt umræddi Hvíti kassi er áhugaverður staður fyrir mig að sýna teikn- ingar. Í hvíta ferningnum myndast tækifæri til að nota þagnir líkt og tónskáld gera. Mögu- leikar til upphengingar eru óendanlegir og það er áhugavert að hengja upp teikningar og sjá hvernig þær tala saman. Hvernig Kassinn hjálpar til við að mynda þessar þagnir ásamt hvítum lit veggsins. Ef sýningarplássið er óró- legt snurfusa ég það, það verður að vera lág- marks hreinleiki og ég reyni að neutralísera herbergið. Svo raða ég upp myndunum, hengi kannski upp eina teikningu og skoða hvernig þessi eina teikning er í rýminu. Svo set ég kannski aðra á móti eða við hliðina á og leik mér þannig með þagnir og dýnamík í rými. Dagljósapera, H#4, glerplata og núllástand Til að ná fram ákveðinni mynd þarf papp- írinn að vera í ákveðnum hvítum hlutlausum lit og áferðarleysi pappírs er mikilvægt og að hann glansi ekki. Hvert undirlag þarf að sjást; ég notast við dagljósaperu og ég teikna ofan á glerplötu, svo engin önnur áferð trufli teikn- inguna. Ég þarf blýanta með ákveðna hörku, ég nota H-blýanta sem eru á bilinu 4-6. Núll- ástandið er mikilvægt í byrjun en ég byggi myndirnar upp lag fyrir lag og að lokum verð- ur flöturinn þakinn. Ég get ekki notað Black Beauty-blýanta, því þá yrðu teikningarnar of dökkar. Ég er að ná fram ákveðnum gráskala sem er nær ljósinu en myrkrinu.“ Er líklegt að þú haldir áfram að teikna grá- tónamyndir? „Teikningar á borð við þær sem eru á sýn- ingunni í Kubbnum hef ég unnið frá 1990. Ég vinn ekki alla daga við þær enda er líf manns samsett af mörgum þáttum, ennþá get ég unn- ið að þessum teikningum, og finn að framlag mitt til að ná fram ákveðinni hugsýn er enn við lýði og ég sé möguleika á að vinna áfram að teikningunum. Kyrlátur staður-andrúm Það er afstætt hvort fólk upplifir andrúms- loft umvefjandi eða kuldalegt, en jú ég vil búa til ákveðið andrúm. Einu sinni kom á sýningu til mín myndlistarmaður sem upplifði teikning- arnar í rýminu sem aggressífar, honum fannst hvíti liturinn óhugnanlegur og óhugnanlegri en rauður. Þessi sami myndlistarmaður benti mér á söguna af Moby Dick þar sem komu fram kenningar um rauða litinn, um að hann sé mildari en sá hvíti. Ég var sleginn en ég hafði fram að þessu frekar hugsað rýmið sem kyrr- látan stað.“ Glerplata, dagljós og H#4 Úr verkfærakistu Ingólfs Arnarssonar Morgunblaðið/Sverrir Sýning á teikningum eftir Ingólf Arnarsson stendur nú yfir í sýningarsal Listahá- skóla Íslands, Kubbnum. Ingólfur gegndi prófess- orsstöðu við Listaháskóla Íslands 2000-2007. Sýningin er opin í tengslum við Sequences-hátíðina milli kl. 14 og 16 í dag, og er það síðasti sýningardagur. IngólfurArnarsson Listin Teikningar Ingólfs í Chinati Foundation, 1992, verkin eru partur af fastri sýningu stofnunarinnar og því alltaf aðgengileg gestum. TÓNLISTARFÉLAG Akureyrar hóf sitt 67. starfsár með tónleikum sem flokkaðir eru undir heitið „Föstudagsfreistingar“. Þar er tón- leikaformið brotið upp með máli hugar og maga og tónlistinni rennt niður með góðri súpu og kaffi á eftir. Miðað við undirtektir og þátttöku gesta í slíkum tónleikum hefur stjórn Tónlistarfélagsins tekist að finna tónleikunum umgjörð, sem fellur þeim vel í geð. Auðvitað verð- ur fyrst og fremst að halda góðri tónlist og vönduðum flutningi henn- ar vel til skila. Árið 1942 þegar Peter Pears, ten- ór, og Britten á píanó frumfluttu út- setningar á umræddum breskum þjóðlögum var ýmsum þjóðlagaunn- endum misboðið og þótti útsetningar hans skrumskæla söngvana. Slíkar raddir eru löngu þagnaðar og full- yrða má að útsetningar Brittens eru í dag í gimsteinasjóði tónlistar heimsins. Sambland úr frumleika og óhefðbundnu tóntaki er alltaf í fyr- irrúmi og það að styrkja túlkun texta og sérkenni laggerðar. Þeim Michael og Daníel tókst með prýði að hrífa mann með vandaðri og inn- blásinni túlkun laganna. Strax í upp- hafi lagsins „O Waly, Waly“ söng Michael ómþýðri og blæbrigðaríkri röddu þar sem blóði borin og vönduð framsögn texta var í fyrirrúmi og þessu taki hélt Michael alla tón- leikana vel studdur góðum píanóleik. Snilld Brittens felst ekki síst í því að finna til þess að gera einfalda hug- mynd í útfærslu og að geta beitt henni markvisst í öllu laginu með fjölda erinda. Svo tekið sé dæmi. þá er áhrifamikil tón- og hljómaflétta flutt tón af tóni upp í laginu „O Waly, Waly“ og í laginu „The Trees They Grow … “, þá hefst lagið á uni sono (söngur án píanós) söng og píanóið kemur síðan inn með stigmögnun frá einföldum stefjum og upp í bullandi tónaflóðið, og þegar í lokin ástin „is dead and in his grave doth lie“, þá er styrk söngs og leiks stillt mjög í hóf. Af öðrum mjög áhrifamiklum flutn- ingi verkaði þetta lag sterkast á mig. Þessir tónleikar voru svo sann- arlega verðugt upphaf á þessu sex- tugasta og sjöunda starfsári Tónlist- arfélagsins sem tekist hefur með sínum Föstudagsfreistingum að koma með nýjan lit í litróf lífsins í bænum. Föstudagsfreistingar Tónlist Þjóðlög frá Bretlandseyjum í út- setningu Benjamin Britten Tónlistarfélag Akureyrar föstudaginn 5. okt. 2007 kl. 12.00 í Ketilhúsinu. Michael J. Clarke – baritón Daníel Þorsteinsson– píanó  Jón Hlöðver Áskelsson DREKABÁTABRAGUR og Setið yfir asnahjörð var meðal lagatitla á kínverskri þjóðlagasöngskemmtun í Salnum á miðvikudagskvöldið. Tón- leikarnir voru hluti af kínverskri menningarhátíð og að þessu sinni kom fram ákaflega fagurklæddur hópur sem kallar sig Þjóðlaga- hljómsveit Söngleikja- og dansstofn- unar Wuhan. Það er gaman að svona tónleikum, þó að ekki sé nema fyrir það eitt að þannig fær maður að kynnast ann- arskonar tónlist en þeirri sem er að öllu jöfnu flutt á tónleikum og á út- varpsstöðvum hérlendis. Þarna gat að sjá allskonar framandi hljóðfæri, lútu sem ber nafnið pípa, yangqin- hörpu (sem er slegið á og er þannig skyld píanóinu), risastórt bjölluspil, kínverska fiðlu og margt fleira. það eina sem maður kannaðist við var of- urvenjulegt selló og svo sungu sumir söngvararnir í hljóðnema. Tónlistin var allt frá því að vera alþýðutónlist í fábrotnum, en afar smekklegum útsetningum, yfir í popptónlist sem heyrist helst á kín- verskum matsölustöðum. En hún var ávallt skemmtilega fram borin og sífellt var boðið upp á nýjar og nýjar hljóðfærasamsetningar. Dag- skráin var því fjölbreytt og kom stöðugt á óvart. Ég vildi óska þess að hægt hefði verið að kaupa geisladisk með hópn- um í anddyri Salarins í lok tón- leikanna! Drekabátabragur Tónlist Salurinn í Kópavogi Þjóðlagahljómsveit Söngleikja- og dans- stofnunar Wuhan flutti kínverska alþýðu- tónlist. Miðvikudagur 3. október. Kammertónleikar  Jónas Sen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.