Morgunblaðið - 13.10.2007, Side 28
ren – sem alla jafna kalla sig
Viktor&Rolf. Viðbrögð
viðskiptavina hafa verið á
sama veg er kom að því að
selja afrakstur þessara sam-
starfsverkefna; færri fengu
keyptar flíkur en vildu og
flestir fengu færri flíkur
en þeir vildu.
Trygging fyrir
spennutitringi
Í ár hefur Marg-
aretha Van Den Bosch
ákveðið að tefla djarf-
ar en áður með vali
sínu á hátískuhönnuði
til samstarfs. Næstur
í röðinni er nefnilega hinn
ítalski Roberto Cavalli. Cavalli er
að sönnu ástmögur fræga fólksins nú
um stundir fyrir hönnun sína, svo
valið virðist við fyrstu sýn snjallt
hjá Van Den Bosch: nafn hans eitt
er trygging fyrir talsverðum
spennutitringi hjá vongóðum
viðskiptavinum H&M.
Hitt er svo aftur annað mál
að föt Cavalli eru alla jafna
lúxusinn uppmálaður og efnin
sem hann kýs helst að nota
eru silki, slöngu- og krókó-
dílahúð, dýrindis loðfeldir og
dýrustu ullartegundir á borð
við vicuña og alpaca. Munaður,
glys og glamúr eru leiðarljós
Cavalli við listsköpun hans, og
því kemur ekki á óvart að hann
falli í kramið hjá hinum ríku og
frægu. Það leynir sér sjaldnast
að flíkur hans kosta skildinginn.
En þá kemur að því sem gæti orðið
honum talsverð áskorun, og það er
að hanna flíkur sem hafa sjarmann en
kosta ekki nema í mesta lagi tíunda
Vinsæl Hönnun Stellu McCartney fyrir
H&M féll kaupendum hvarvetna í geð.
Reuters
|laugardagur|13. 10. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Eysteinn Fjölnir Arason var
orðinn þreyttur á hefðbundnum
sumarfríum en fisflug hljómaði
spennandi. » 34
daglegt
Þrúðvangur er glæsilegt nafn á
hlýlegum heimkynnum þeirra
Eddu Kjartansdóttur og Sig-
urjóns Gunnarssonar. » 30
innlit
Velgengni tískuverslanaH&M hefur verið með ólík-indum undanfarin ár ogvex vegur keðjunnar með
ári hverju. Eins og gefur að skilja
skiptir höfuðmáli fyrir fyrirtæki sem
starfar í tískugeiranum að hafa innan
sinna raða flinkan hönnunarstjóra
sem áttar sig tímanlega á dyntum og
duttlungum tískunnar og gerir búð-
unum kleift að bjóða upp á varning í
takt við nýjustu línurnar hverju sinni.
Þarna er yfirhönnuði H&M rétt lýst,
en hún heitir Margaretha Van Den
Bosch og er að flestra mati höf-
uðástæða þess að H&M hafa á til-
tölulega skömmum tíma færst úr því
að vera ódýrar en um leið tilþrifalitlar
fatabúðir og yfir í sanna tískuverslun
sem er ekki aðeins með skjótan við-
bragðstíma gagnvart óskum mark-
aðarins heldur líka,
þegar best lætur, mót-
andi afl á stefnur og
strauma.
Van Den Bosch
sannfærði ennfremur
stjórnendur um að fjár-
festa í fokdýru auglýs-
ingaplássi í tímaritum á
borð við Vogue og opna
verslanir við götur þar
sem algengara var að
sjá rándýrar hátísku-
verslanir. Ekki hefur
heldur sakað í þessu
samhengi að keðjan hefur fengið of-
urfyrirsætur til að kynna herferðir
sínar – Gisele Bündchen var andlit
fyrirtækisins 2006 og í ár er það
Daria Werbowy. Með þessum snjalla
hætti laumaði H&M sér hálfpartinn í
„úrvalsdeild“ tískuverslana.
Það er sjálfsagt þessari ímyndar-
tilfærslu að þakka að H&M hefur
tekist að fá til liðs við sig virta og vin-
sæla hátískuhönnuði til að hanna línu
af tískufötum sem aðeins er seld í
takmörkuðu magni. Karl Lagerfeld
reið á vaðið síðla árs 2004 með prýði-
legum árangri; viðbrögðin báru vott
af múgæsingu og æstur mannfjöldinn
sem beið þess að verða hleypt inn áð-
ur en búðirnar voru opnaðar keypti
allt sem hönd á festi um leið og dyr-
unum var upp lokið. Ári síðar gekk
Stella McCartney til liðs við H&M í
sama tilgangi og haustið 2006 var
röðin komin að hollensku sérvitring-
unum Viktor Horsting og Rolf Snoe-
hluta af því sem hann rukkar venju-
lega; hann þarf að heimfæra töfrana
en skilja verðmiðann að langmestu
leyti eftir.
Þetta hefur ekki verið tiltakanlegt
áhyggjuefni hingað til, þó að hátísku-
hönnuðirnir sem hingað til hafa hann-
að línu fyrir H&M séu fjarri því að
vera ódýrir alla jafna. Hönnun Karls,
Stellu, Viktors og Rolfs er hinsvegar
ekki jafn lúxusdrifin og hjá hinum
ítalska kollega þeirra, Cavalli. Lag-
erfeld sigldi enda tiltölulega lygnan
sjó við gerð sinnar línu. Enda dag-
farsprúður hönnuður alla jafna sem
helgast mikið til af langtíma hönn-
unarstjórnun hans fyrir tískuhúsin
Chanel og Fendi, sem bæði eru frek-
ar í íhaldssamari kantinum. Bítils-
dóttirin komst líka skammlaust frá
sinni línu og meira að segja hinir
tilraunaglöðu Viktor&Rolf snöruðu
fram klæðilegum flíkum fyrir bæði
kyn sem ruku út eins og heitar lumm-
ur. En stíll Roberto Cavalli –
syndsamlegur munaðurinn sem hann
gerir alla jafna út á – gæti reynst erf-
iðari í afgreiðslu á ódýra mátann.
Hver tekur við að ári?
Flestir veðja þó að eftirspurn eftir
flíkum úr línunni „Roberto Cavalli for
H&M“ verði langt umfram framboðið
og sama geggjunin og undanfarin ár
muni grípa um sig hinn 8. nóvember
næstkomandi í þeim verslunum
H&M sem munu bjóða upp á herleg-
heitin. Svo spurningin virðist ekki
hvort samstarfið gangi upp í ár, held-
ur frekar hvaða hönnuður verður það
sem tekur slaginn í nóvember 2008?
Sannað telst að samstarfið við H&M
gefur hátískuhönnuðum færi á að
breiða fagnaðarerindi sitt talsvert
víðar út en venja er til og ætti því að
vera auðsótt mál að fá enn einn spá-
manninn í slíkt samkrull. Undirrit-
aður ætlar að leyfa sér að spá því að
næsti hátískuhönnuður sem hannar
línu fyrir H&M verði Ann Demeule-
meester, Alber Elbaz eða Behnaz Sa-
rafpour. Í millitíðinni er svo að bíða
þess sem Roberto Cavalli ætlar að
bjóða okkur upp á.
jonagnar@mbl.is
Reuters
Reuters
Næstur á dagskrá H&M Roberto Cavalli, sem hér er
ásamt konu sinni Evu, býr sig undir hasarinn
Hátíska á
lágvöruverði
Sænska tískuverslanakeðjan Hennes & Mauritz,
H&M, hefur enn aukið á vinsældir sínar undanfarin
misseri með árvissu samstarfi við hátískuhönnuði,
segir Jón Agnar Ólason. Ítalski glyskóngurinn
Roberto Cavalli er næstur og verður fatalína hans
sett í sölu hinn 8. nóvember nk.
Munaður, glys
og glamúr eru
leiðarljós Ca-
valli við list-
sköpun hans
og því kemur
ekki á óvart að
hann falli í
kramið hjá hin-
um ríku og
frægu.
Lágtíska? Það
var slegist um
flíkur eftir Lag-
erfeld hjá H&M.
AP
Roberto Cavalli hannar fyrir H&M
Grallararnir Viktor&Rolf hönnuðu klæðlegar fĺíkur fyrir
H&M sem ruku út eins og heitar lummur.
Að hætti Cavalli Fyrir-
sætan Alek Wek sýnir
pels frá Roberto Cavalli.
Kóngur klár Karl Lager-
feld var fyrsti hátísku-
hönnuðurinn til að ganga
til samstarfs við H&M.
Reuters