Morgunblaðið - 13.10.2007, Side 31

Morgunblaðið - 13.10.2007, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 31 alla glugga og sitthvað fleira. Fátt er því orðið upprunalegt nema fjalirnar í gólfinu. Við fengum parket sem líkt- ist fjölunum á viðbygginguna og hvíttuðum allt gólfið svo lítið sem ekkert ber á samskeytunum. Sigur- jón byrjaði að grafa fyrir sökklum ný- byggingarinnar árið 2004 og nú er hún tilbúin.“ Efri hæðin er öll hvítmáluð, nema eldhúsið en þar er meiningin að taka næst til hendinni því 12 ár eru síðan það var fært í núverandi búning. Skápar eru blámálaðir og Edda seg- ist gera ráð fyrir að þar eigi hvíti lit- urinn einnig eftir að verða ráðandi. Á hæðinni eru stórir gluggar, eng- in gluggatjöld sem skyggja á útsýnið og gesturinn fær tilfinningu fyrir mikilli vídd og frelsi. „Það er eins og maður vilji fara að hafa meira rými, meira andrými, með aldrinum. Við eigum þrjá stráka, sem eru nánast allir orðnir fullorðnir og kannski er ekki langt í að þeir tveir sem enn búa heima fari að flytjast í burtu. Sumir eru því að hneykslast á að við skulum vera að stækka húsið. Hvers vegna ekki? Það er fullt eftir af lífinu. Við létum okkur reyndar ekki nægja að stækka heldur tókum við okkur líka til og hentum heilmiklu. Við vorum t.d. með mikið af bókum. Við höfðum þá aðferð að taka hverja einustu bók og horfa á hana. Ef hvor- ugt okkar fann fyrir neinni tengingu fór bókin í kassa og í Góða hirðinn. Þangað fóru sjö eða átta bókakass- ar.“ Varðandi gluggatjöldin segir Edda að þau hafi gert tilraun til að vera með gluggatjöld aðallega vegna þess að þeim fannst þau ættu að vera. „Svo gáfumst við upp á því og nú erum við bara með rimla götumegin. Það hvarflar stundum að manni að það sé kannski leiðinlegt fyrir nágrannana að þurfa að horfa svona beint inn til okkar, en þeir geta auðvitað dregið fyrir hjá sér. Hér er lítil umferð nema af gangandi fólki og skokkurum.“ Veikur fyrir því sem er nýtt og fallegt Ekki er hægt að segja að mikið sé af húsgögnum hjá Eddu og Sigurjóni en þar er sitt lítið af hverju, nýju og gömlu. „Við vorum með fleiri hús- gögn þegar við vorum yngri. Fólk gaf okkur gjarnan sitt af hverju en smátt og smátt fórum við að kaupa okkar eigið. Í rauninni erum við fyrir gam- alt, en samt ekki mjög þung hús- gögn.“ Í stofuloftinu hanga tvö þekkt dönsk ljós og eitt í eldhúsinu. Þau keypti Edda á dönskum uppboðsvef, www.lauritz.com þar sem oft er hægt að fá fína hluti fyrir brot af því sem þeir kosta í verslunum. Í stofunni eru hvítar bókahillur sem ná milli veggja í nýju viðbyggingunni og eru þær verk Sigurjóns. „Það er gagnlegt að búa með laghentum manni. Við förum líka stundum í Góða hirðinn og þar keypt- um við t.d. sófa og stól fyrir nokkru. Auðvitað er maður líka veikur fyrir því sem er nýtt og fallegt.“ Alls staðar sjást þess merki að hjónin hafa áhuga á fallegum og sér- stæðum hlutum. Úti í stofuglugga stendur gamalt gluggafag með gleri og öllu tilheyrandi. Það er upprunnið úr kirkju sem Sigurjón vann við að endurnýja. Í öðrum glugga er heil sveitafjölskylda með tveimur kúm. Þetta eru verk Guðjón heitins Sig- urðsson frá Fagurhólsmýri. „Segja má að við séum veik fyrir naivistalist. Lengi var hægt að kaupa verk Guð- jóns en svo var hann uppgötvaður af þeim sem hafa vit á list og þá varð erfiðara að fá þessa fallegu hluti. Það er svo skemmtilegt að horfa á litla fólkið. Allir eru skælbrosandi og lit- irnir eru svo glaðlegir.“ Áhrif náttúru og víðáttu gætir hér Edda er töluverð ferðakona og fer á hverju sumri í eina eða tvær göngu- ferðir með stórfjölskyldunni, aðallega á Vestfjörðum. Föðurætt hennar er frá Súgandafirði og faðir hennar, sem þekkir vel til fyrir vestan, stjórnar ferðunum. Hann var reyndar vanur að fara með dætur sínar í gönguferðir í nágrenni Reykjavíkur en Edda fékk nóg af labbinu og hvíldi sig í mörg ár. Áhuginn er vaknaður á ný. Það má ímynda sér að náttúran og víðáttan hafi haft töluverð áhrif á Eddu og þess megi jafnvelsjá merki á heim- ilinu þar sem allt er svo bjart og vítt og tengslin út í garðinn um óbyrgða glugga eru mikil. Enn er eftir að taka til hendinni, m.a. í kjallaranum, og Edda segir að fjölskyldan kalli þetta „Work in pro- gress“ og svo bíður eldhúsið. „Sumir fara í golf eða veiði en við dundum í þessu og finnst það ekki leiðinlegt, nei, þetta er svo sannarlega skemmti- legt.“ Textílhönnuður Edda er upphaflega textílhönnuður en hefur lagt sitthvað fleira fyrir sig, m.a. kennir hún á tölvur. Frá Fagurhólsmýri Þessar litlu fígúrur eru svo brosmildar og litríkar að fólk gleðst við að horfa á þær. Sköpunargleði Þessi litríku og skemmtilegu listaverk er eftir son þeirra hjóna og frá þeim tíma þegar hann var í leikskóla. Geitungabú Þetta geitungabú fannst í garðinum. Skemmtilegt er það svona í ramma. Við höfðum þá aðferð að taka hverja einustu bók og horfa á hana. Ef hvorugt okkar fann fyrir neinni tengingu fór bókin í kassa og í Góða hirðinn. Þegar borið er á Eddu að hún sé sögð góður kokkur skellir hún upp úr og segir það teygjanlegt hugtak. Hún þekki miklu betri kokka en sjálfa sig. Hún býður okkur að smakka mjög merkilega böku sem komin er frá móð- ur hennar og hét þá frönsk laukterta. Þá var laukur, ost- ur og egg í sósunni en Edda hefur bætt í hana grænmeti. Bakan er sannkallað lostæti með góðu salati. Nú er bara að prófa því hér koma uppskriftirnar: Laukterta sem varð að grænmetisböku Botn: 200 g hveiti 100 g smjör 1 tsk. salt 4 msk. kalt vatn Hnoðað saman og sett í botninn á eldföstu móti og lát- ið ná upp á brúnir þess. Fylling: ½-¾ kg laukur (5-6 laukar), minnka má laukinn og setja annað grænmeti í staðinn 75 g smjör 200 g ostur 2 egg Allt nema eggin soðið saman. Potturinn tekinn af pönnunni og eggin hrærð út í blönduna sem hellt er yfir botninn. Sé þetta grænmetisbaka er gott að raða tómat- sneiðum ofan í blönduna en því er sleppt ef einungis er notaður laukur. Bakað við 200°C í 30-40 mín. Salat 1 poki „Frísche blanda“ 1 bréf hráskinka 1 ferskja parmesanostur í sneiðum ristaðar furuhnetur Öllu blandað saman. Ólívuolía, salt og pipar hrært saman og hellt yfir salatið. Laukbaka mömmunnar Baka og salat Salatskálin eru með skemmtilega kúpt- an botn svo hún veltur um borðið. NG UM HELGINA OPIÐ: LAUGARDAG KL. 12-16 SUNNUDAG KL. 13-16 BLÖÐRUR OG FÁNAR FYRIR BÖRNIN!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.