Morgunblaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 33 unnið skyldi að friðlýsingu 14 svæða á tímabilinu 2004-2008. Þetta kom m.a. fram í máli Ellýjar Katrínar Guðmundsdóttur, forstjóra Um- hverfisstofnunar, þegar hún kynnti stöðu og framkvæmd Náttúru- verndaráætlunar 2004-2008. Að sögn Ellýjar er aðeins búið að friðlýsa eitt þessara 14 svæða og eru það Guðlaugstungur, Svörtutungur og Álfgeirstungur, en það var gert í desember 2005. Sagði hún óljóst hvaða friðlýsingar næðist að klára fyrir árið 2008, en tók fram að frið- lýsing í Vestmannaeyjum væri langt komin og kláraðist vonandi fljót- lega. Að sögn Ellýjar er í friðlýsingar- ferlinu lögð áhersla á góða sam- vinnu við hagsmunaaðila svo ná megi sátt um friðlýsinguna og hún nái þeim markmiðum sem lagt er upp með. „Þessi vinnubrögð, sem ég tel að hljóti að vera þau einu réttu, taka hins vegar tíma og upp geta komið viðkvæm tímabil sem krefj- ast þess að staldrað sé við. Þetta er ekki forrit sem sett er í gang og klárar á fyrirfram ákveðnum tíma. Reynslan sýnir að tímasett fram- kvæmdaáætlun fer oft úr skorðum vegna ófyrirséðra atvika.“ Að sögn Ellýjar eru níu af þeim 14 svæðum sem Alþingi ályktaði um til með- ferðar hjá Umhverfisstofnun en fimm svæðanna eru í umsjón um- hverfisráðuneytis. Segir Ellý vinn- una við svæðin níu vera í farvegi en mislangt á veg komna. sþings. ál að stilla llt í ferða- náttúru og jölbreytni r ágangur fregnir úr endis gefa hafnafólks kulindum á að nýta ðýtum og menn hafi hafi kort- u hennar, viti hvers klárir með ætlun að órslys og vart kom- tín Helga. ag að gera dum um i nema til eitt af nar andi nátt- u unnar gar. Um- þeirra til unarinnar 004-2008, mhverfis- . Af þess- ti Alþingi tillögu að amótum ruvernd Morgunblaðið/G.Rúnar kvæmd Náttúruverndaráætlunar 2004-2008. u Árósasamningsins m vernd votlendissvæða rfa á ka ætti hagslega mda- a að hlyti að ætti jórn- hin um- - rir,“ að í síð- allan yllingar svæði á gt í þessi ngu eta þeir erið að iri r Í HNOTSKURN »Samkvæmt lögum umnáttúruvernd skal um- hverfisráðherra láta vinna náttúruverndaráætlun fyrir landið allt á fimm ára fresti og leggja fyrir Alþingi. »Náttúruverndaráætlun erfyrsta skref í átt að því að koma á skipulögðu neti vernd- arsvæða hérlendis til að tryggja lágmarksvernd líf- fræðilegrar og jarðfræðilegr- ar fjölbreytni. »Við undirbúning núgild-andi náttúruverndaráætl- unar voru unnar 119 tillögur um friðlýsingar og valdi Um- hverfisstofnun 77 þeirra til birtingar í skýrslu sinni. »Af þeim samþykkti Al-þingi með þingsályktun- artillögu að unnið skyldi að friðlýsingu 14 svæða. »Enn er aðeins búið að frið-lýsa eitt þessara 14 svæða. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is „MÉR hefur fundist á undanförnum árum, og kannski einhverjum fleirum, að Framsóknaflokk- urinn hefði oftar mátt standa í lappirnar í erfiðum málum og segja hingað og ekki lengra.“ Þetta sagði Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Fram- sóknarflokksins, á opnum fundi á vegum borg- arstjórnarflokks Framsóknar í gær, en þar var farið yfir atburði í borgarmálum síðustu daga. Alfreð Þorsteinsson var fundarstjóri og sagði við upphaf fundar að hann teldi „að Björn Ingi Hrafnsson borgarfulltrúi okkar hafi sýnt pólitískt hugrekki að stíga þetta skref sem ég tel að hafi verið nauðsynlegt. Það verður að segja hverja sögu eins og hún er og það var komið þannig fyrir borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins að það var ekki hægt að vinna með honum lengur.“ Óskar Bergsson varaborgarfulltrúi tók til máls og sagði borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks greini- lega hafa haft í hyggju að leika sama leik við Björn Inga og þeir gerðu við borgarstjóra og snúa hann niður. Sjálfur rakti Björn Ingi atburðarásina síðustu daga. „Hvað er það sem gerir að verkum að skyndi- lega verður þessi grundvallarstefnubreyting [hjá borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna]?“ spurði Björn Ingi um vilja borgarstjórnarflokks sjálf- stæðismanna til að selja hlutinn í REI: „Er þetta kannski engin grundvallarstefnubreyting. Er kannski eitthvað miklu meira annað í gangi sem við vitum ekki um?“ bætti hann við. Sér hefði sýnst síðustu daga að miklar innbyrðis deilur ættu sér stað innan Sjálfstæðiflokksins. Það sæist m.a. á fundi borgarfulltrúanna með formanni og varaformanni Sjálfstæðisflokksins án þess að Vil- hjálmur væri með. „Og hvernig datt forsætisráðherranum og for- manninum í hug að taka á móti þeim án þess að hafa oddvitann með. Hvaða ástand ríkir þegar menn taka slíkar ákvarðanir?“ Skynja mátti á fundinum að mikill stuðningur var hjá fundarmönnum með ákvörðun Björns Inga um að slíta samstarfi við sjálfstæðismenn. Svaraði salurinn hátt og snjallt „nei“ þegar Björn því eins og margt annað held ég að það hafi al- gjörlega verið gert á bak við hann. Og það kannski sýnir hvernig málið hefur verið vaxið, því miður,“ sagði Björn Ingi. Einn fundarmanna benti á að fram hefði komið í fjölmiðlum að Björn Ingi tengdist tilteknum fyr- irtækjum eða auðmönnum í sambandi við málefni REI. Sagði Björn Ingi svo ekki vera, engin bein tengsl væru við auðmenn í málinu. „Ef Sjálfstæð- isflokkurinn ætlar að fara að spila gömlu, rispuðu Baugsplötuna sína aftur veit ég ekki hvort það verður þeim til mikillar farsældar. En það kann að vera í þessu efni að kaupendurnir hinum megin hafi ekki verið réttir, að Jón Ásgeir og Hannes Smárason séu ekki nógu huggulegir partnerar.“ Björn Ingi sagði að mikilvægt væri að íslensku veiturnar yrðu áfram í samfélagslegri meirihluta- eigu. „Ég skal viðurkenna að ég hef ekki alltaf verið sáttur við flokkinn minn í þessu máli,“ sagði Björn Ingi. Hann hefði verið ósammála þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar í vor að opinberir að- ilar mættu ekki kaupa í Hitaveitu Suðurnesja, þegar ákveðið var að selja 15% hlut í henni. Ingi spurði hvort fólk hefði orðið ánægt með það ef hann hefði farið að vilja sjálfstæðismanna um söluna á REI. Hins vegar varð fundarmönnum einnig ljóst að síðustu dagar hafa ekki verið átakalausir hjá Birni Inga sem klökknaði þegar hann ræddi um ákvörðun sína. „Þið kannski sjáið það að þetta er ekki alltaf auðvelt. Stundum er hreinlega geðshræring í gangi af því að þetta er búið að vera mjög erfitt. Og þegar maður gerir sitt besta og stendur með sinni sannfæringu og hefur fólkið með sér, gerir maður það sem maður þarf að gera og gerir rétta hluti.“ sagði Björn Ingi. Ræddu við Vinstri græn Í fyrirspurnum að lokinni ræðu Björns Inga kom meðal annars fram hjá honum að hann hefði vitað til þess að þreifingar hefðu verið á milli Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna áður en slitnaði upp úr samstarfi meirihlutans, þótt borg- arstjóri hefði sagt í fjölmiðlum að svo hefði ekki verið. „Mér er kunnugt um að svo var og það er kannski ekkert skrýtið að borgarstjóri hafi neitað Hefur fundist að framsóknarmenn mættu oftar „standa í lappirnar“ MorgunblaðiðRAX Mikill áhugi Fjölmenni var á fundi framsóknarmanna í Reykjavík í gær. Alfreð Þorsteinsson sagði, að Björn Ingi hefi sýnt pólitískt hugrekki. Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is STAÐA okkar hefur styrkst umfram kjörfylgi í aðdraganda þessara breytinga. Hún hefur styrkst það mikið að við stöndum í fremstu víg- línu. Okkar mál munu vega þungt í þessu sam- starfi,“ sagði Svandís Svavarsdóttir á félagsfundi Reykjavíkurfélags Vinstri grænna í gærkvöldi. Fundarmenn lýstu tortryggni sinni í garð Fram- sóknarflokksins sem þó var yfirgnæfð af gleði með að búið væri að koma Sjálfstæðisflokknum frá völdum í Reykjavík. Til fundarins var boðað til að Svandís Svav- arsdóttir gæti rætt atburðarás síðustu daga og framhald meirihlutastarfsins í borginni. Hún hóf ræðu sína á því að rekja upphaf atburðarásar- innar og þá gagnrýni sem hún hefði haft uppi í stjórn Orkuveitunnar vegna málefna Reykjavík Energy Invest. Fagnaði hún þeirri umræðu sem fór af stað í kjölfarið. „Sú umræða snerist ekki bara um Orkuveitu Reykjavíkur heldur líka um opin og lýðræðisleg vinnubrögð og um að stöðva þyrfti einkavæðingarbrjálæðið sem hefur verið við lýði.“ Benti Svandís á að enn væru að koma fram athugaverðir hlutir varðandi sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy. Valhöll getulaus þegar kemur að erfiðum málum „Eftirleikurinn var með slíkum ólíkindum í ráðhúsi Reykjavíkur að hann náði hámarki þegar að sex borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, án borgarstjóra, fóru til að sækja sér ráðgjöf í Val- höll. Þau fóru til að hitta sinn leiðtoga, sitt skarp- asta fólk, til að vita hvernig þau ættu að snúa sig útúr þessari stöðu.“ Sagði Svandís að þau ráð hefðu ekki dugað. „Kom þá í ljós endanlega, að Valhöll er vanhæf í þessu máli. Getulaus þegar kemur að erfiðum málum.“ Varðandi framhaldið í málefnum Orkuveitu Reykjavíkur sagði Svandís það ekki rétt að um- ræðan snerist um hvort selja ætti hlut Orkuveit- unnar í Reykjavík Energy Invest hratt eða hægt. „Nú verður að rannsaka og kanna allt ferlið í þaula. Það verður að skoða málin algjörlega ofan í kjölinn. Við verðum að vera óhrædd við að velta við hverjum einasta steini í þessu máli. Það verk verður væntanlega eitt af þeim mikilvægustu hjá nýjum meirihluta og það er merkilegt að sú könnun hefur verið falin oddvita VG.“ Að þeirri skoðun lokinni yrði hægt að taka ákvarðanir um hvort ætti að selja, hve mikið og hvenær. „Vinnu- hópurinn mun jafnframt móta framtíðarsýn fyrir Orkuveitu Reykjavíkur. Heildarstefnumótun þar sem hagsmunir almennings og náttúru verða hafðir að leiðarljósi.“ Mikil ánægja með Svandísi Almennir félagsmenn sem tóku til máls á fund- inum lýstu töluverðum efasemdum um samstarf við Björn Inga Hrafnsson. Einn fundarmanna lýsti stöðunni sem „siðferðisklípu“ og bætti við að VG yrði að „fletta ofan af þeirri spillingu sem hefur viðgengst“. Margir kölluðu eftir málefna- samningi hins nýja meirihluta og gerðu fyrirvara við stuðning sinn við samstarfið. Birna Þórðar- dóttir, einn fundarmanna, tók afar djúpt í árinni og spurði hvort verið væri að „bjóða yfirsukkara Reykjavíkur í nýtt rúm,“ og gekk því næst af fundi. Nær allir fundarmanna tóku hins vegar þá af- stöðu að eini möguleikinn í stöðunni hefði verið að taka þátt í samstarfinu til að koma stefnu- málum flokksins til framkvæmda og lýstu mikilli ánægju með framgöngu Svandísar Svavarsdótt- ur síðustu daga. Var í lok fundarins samþykkt einróma ályktun þar sem nýjum meirihluta var fagnað og sérstakri ánægju lýst með „vasklega framgöngu Svandísar Svavarsdóttur, oddvita VG, sem hefur staðið vörð um hagsmuni borg- arbúa trú stefnu Vinstri grænna um umhverf- isvernd, auðlindastefnu og jafnrétti.“ Sjálf sagði Svandís að í þeim leiðangri sem nú væri lagt upp í væru flokkar sem kjósendur VG myndu aldrei kjósa. Hún, og fleiri sem til máls tóku, töldu hins vegar að hlutverk VG í hinum nýja meirihluta yrði stórt. Sagði Þorleifur Gunn- laugsson, borgarfulltrúi VG í Reykjavík, að Svandís hefði tryggt það að hið nýja meirihluta- samstarf yrði meira í anda vinstristefnu og fé- lagshyggju en R-lista samstarfið hefði verið. Vinstri græn ætla að kafa ofan í málefni Orkuveitu Reykjavíkur Morgunblaðið/Golli Oddvitinn Svandís Svavarsdóttir sagði á fundinum að borgarbúar gerðu þá kröfu til VG að flokk- urinn tryggði lýðræðisleg og heiðarleg vinnubrögð í nýjum borgarstjórnarmeirihluta í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.