Morgunblaðið - 13.10.2007, Side 35
snemma með „ground check“ og svo
flogið upp úr sjö um morguninn og
svo aftur um kvöldið því þá eru
bestu flugskilyrðin. Um miðjan dag
getur verið talsverð ókyrrð vegna
hitauppstreymis,“ segir Eysteinn.
Svæðið er enn í uppbyggingu og
var íslenski hópurinn á meðal fyrstu
gesta til að nýta sér aðstöðuna.
„Kaffiterían var í byggingu þegar
við vorum þarna en þar er m.a. að
finna nettengingu og kvikmyndasal
þar sem stöðugt eru sýndar gamlar
bíómyndir. Þeir sem eru að bíða eft-
ir flugi geta þá horft á bíó á meðan.
Áfengi er bannað á svæðinu, enda
flug og áfengi ekki góð blanda. Góð-
ur matur fæst svo í næsta þorpi,
Rodeo Tavern, sem er eldgamall
bær með 60 íbúum. Þar er að finna
eina krá og tvær verslanir og í bæn-
um er allt mjög upprunalegt ásýnd-
ar. Í annarri búðinni er svo veit-
ingasala þar sem hin mexíkóska
Auxy eldar þann besta mexíkóska
mat sem við höfum prófað.“
Fjölbreytt flóra fólks
Katrín segir að flugið sjálft hafi
verið æðislegt og öryggistilfinningin
verið góð þrátt fyrir að í raun sé
bara hangið neðan í miklu vænghafi.
„Maður er bundinn í sætið fyrir aft-
an flugmanninn og þarna svífur
maður um loftin blá og útsýnið er
meiriháttar. Mögnuð tilfinning, ekki
síst að taka á loft og lenda, því á
tímabili í lendingunni fer maður
nánast beint niður.“
Samstarfsfólk McAfee er fjöl-
breyttur hópur sem virðist eiga það
eitt sameiginlegt að hafa yndi af fis-
flugvélum og kunna að njóta lífsins.
„Einn af starfsmönnum McAfees
var erfðafræðingurinn Bruce sem
vissi allt um deCode og Kára. Hann
er sennilega um sextugt, ákaflega
glaðlegur maður og alltaf með kaffi-
krúsina í hendinni,“ segir Katrín.
„Hann sagðist ekki hafa nennt að
vinna á rannsóknarstofu lengur og
þegar honum bauðst að vera með í
þessu ævintýri í eyðimörkinni í
Nýju Mexíkó ákvað hann að hætta.“
Síðasta kvöldið var hópnum svo
boðið í mat hjá McAfee, sem hefur
byggt sér forláta villu á svæðinu.
„Eftir matinn stóð McAfee á fætur
og sagðist ætla að bjóða okkur í bíó.
Hann var reyndar búinn að velja
myndina sjálfur, grínmynd frá
Bollywood og hló manna mest þó
hann væri að sögn Kristofs örugg-
lega búinn að sjá hana fimm sinn-
um.“
Eysteinn segir McAfee hafa mikil
plön fyrir svæðið. „Í framtíðinni
hefur hann hug á að vera með allt
að 8 velli sem hægt sé að fljúga á
milli og jafnvel yfir til Mexíkó. Og
þarna í nágrenni Rodeo er ekkert.
Maður er algjörlega í auðninni, það
er ekkert GSM-samband, í raun
ekkert nema auðvitað kráin og svo
er um klukkutíma keyrsla í næsta
bæ.“
ingvarorn@mbl.is
Airstream Forláta hjólhýsi af Air-
stream gerð bíða gesta og hafa þau
verið gerð upp. Til að tíðarandinn
komist til skila eru gamlir bílar við
hvert hjólhýsi.
heilsa
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 35
ríkisráðuneytið sendi
frá sér lýsingu á því,
sem ráðuneytið hefur
kallað „diplómatískt
óhapp“, þannig að öll-
um megi ljóst vera, að
starfsmaðurinn hefur
hreinan skjöld.
Geri ráðuneytið það
mun koma skýrt í ljós,
að ekki var við þennan
starfsmann ráðuneyt-
isins að sakast á einn
eða annan veg.
Mál þetta er líka
skýrt dæmi um hversu
varasamt er fyrir fjöl-
miðla að treysta orðum
starfsmanna í stjórn-
kerfinu, sem vilja ekki tjá sig undir
nafni um mál sem þetta. Það er auð-
velt að vega að öðrum undir nafn-
leynd.
Þegar um opinbera aðila er að
ræða er hægt að gera kröfu til þess
að öll mál, sem á annað borð koma til
opinberrar umfjöllunar séu skýrð að
fullu. Ekki að hálfu.
Það á við um utanríkisráðuneytið
jafnt sem aðra opinbera aðila. Þann-
ig er dæmalaust, að í gær skuli hafa
komið fram nýjar upplýsingar um
samninga, sem gerðir hafi verið um
málefni Orkuveitunnar án þess að
margir hafi vitað af. Ætla mætti að
þeir hefðu komið fram í dagsljósið
um leið og umræður hófust um fyr-
irtækið. Svo var ekki.
Bjarni Vestmannstarfsmaður í ut-
anríkisráðuneyti varð
með ýmsum hætti fyrir
aðkasti, sem átti rætur
í ráðuneytinu vegna
fundar, sem hann átti
með fulltrúa Tamíl-
tígra á Sri Lanka fyrir
nokkru.
Í gær sagði Morg-
unblaðið frá dreifi-
bréfi, sem ráðuneyt-
isstjórinn hafði sent til
starfsmanna í ráðu-
neytinu, þar sem fram
er tekið, að Bjarni
Vestmann njóti fulls
trausts utanrík-
isráðherra og annarra samstarfs-
manna í ráðuneytinu en að málið
kalli á, að farið verði yfir ákveðna
vinnu- og verkferla í ráðuneytinu.
Samkvæmt þessu dreifibréfi en
jafnframt á grundvelli annarra upp-
lýsinga er ljóst, að Bjarni Vestmann
braut ekkert af sér og fundur hans
með fulltrúa Tamíl-tígra átti sér
eðlilegar ástæður og var í samræmi
við „verkferla“.
Það er ekki lítið mál að gefa í
skyn, að nafngreindur starfsmaður,
hvort sem er í utanríkisráðuneyti
eða annars staðar hafi á einn eða
annan veg brotið af sér.
Þegar það hefur verið gert er mik-
ilvægt að borðið sé hreinsað alveg.
Þess vegna er nauðsynlegt að utan-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
EF ÞIG langar hreint ekkert að
taka til hendinni heima hjá þér um
helgina þá er hér komin læknis-
fræðileg undankomuleið. Niður-
stöður nýrrar rannsóknar á
tengslum astma við kemískan þátt
húsverkanna eru hins vegar ekkert
til að hlakka yfir en nú hefur kom-
ið í ljós að ef maður þrífur heimili
sitt í hverri viku er mögulegt að
astmi verði fylgifiskur þrifanna.
Vefmiðill BBC segir frá þessum
niðurstöðum en rannsóknin var
gerð í Barcelona á Spáni með þátt-
töku 3.500 einstaklinga.
Sýnt er fram á að notkun
hreinsiúðabrúsa og lyktareyðandi
úðabrúsa einu sinni í viku eykur
líkurnar á því að fólk fái astma.
Mikil notkun á slíkum efnum hefur
þegar verið tengd við astma sem
atvinnusjúkdóm en nú eru líka
komin fram tengsl á milli notkunar
á hreinsiefnunum á heimilum fólks
og sjúkdómsins. Eftir því sem efnin
eru oftar notuð og tegundirnar
fleiri, því meiri eru líkurnar á
astmatilfelli.
Ertandi fyrirbæri
Loftfrískandi efni og húsgagna-
og speglahreinsiefni koma verst út
í téðu samhengi. 15% astmatilvika
má rekja til hreinsiefnanna, eða
hjá einum af hverjum sjö astma-
sjúklingum. Áhættan er 30-50%
meiri hjá þeim sem ráðast reglu-
lega í húsverkin, sem eru sem sagt
duglegri en margurinn.
Þeir sem stóðu að rannsókninni
segja það þó enn ekki hafa komið
fram hver sé eiginleg orsök þess-
ara tengsla. Hugsanlegt sé að efnin
hafi sérstök ertandi áhrif á astm-
ann en þegar er vitað að astma-
sjúklingar eru viðkvæmir fyrir
loftfrískandi efnum og bleikiefn-
um.
Ertu haldinn astma-
valdandi þrifnaðaræði?
Morgunblaðið/Golli
Heimilisþrif Notkun hreinsiúða-
brúsa einu sinni í viku eykur lík-
urnar á að fólk fái astma.
Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Að lokinni messu í Bústaðakirkju sunnudaginn 14. október nk.
(prestur sr. Pálmi Matthíasson) verður hið árlega kirkjukaffi
Súgfirðingafélagsins í safnaðarheimili kirkjunnar. Að venju óskar
viðlagasjóðsnefndin eftir því að félagsmenn verði nú duglegir eins og
alltaf áður við kökugerðina! Öll framlög eru vel þegin og má koma
með kökurnar frá kl 11.00 að morgni sunnudagsins í
safnaðarheimili Bústaðakirkju.
Súgfirðingar, vinir og velunnarar eru hvattir til að mæta vel í kirkjuna
og kaffið á eftir og sýna með því samhug í verki, styrkja sjóðinn og
njóta í leiðinni kræsinganna og hins góða félagsskapar,
sem þar er að finna.
Viðlagasjóðsnefndin
Kirkjukaffi Súgfirðingafélagsins
-hágæðaheimilistæki
Kraftmiklar ryksugur
fyrir öll heimili
Verð frá kr.:
15.990
Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar. Þær eru með
stillanlegu röri og mikið úrval fylgihluta er fáanlegt með vélini.
Verið velkomin í glæsilegar verslanir Eirvíkur á Akureyri
og í Reykjavík og kynnið ykkur Miele ryksugurnar.
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200
Miele
ryksugur
– litlar og liprar.
www.eirvik.is