Morgunblaðið - 13.10.2007, Side 40

Morgunblaðið - 13.10.2007, Side 40
40 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ GuðmundurGunnlaugsson Halldórsson fæddist á Hallbjarnarstöð- um á Tjörnesi 15. maí 1923. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Húsavík 3. október síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Halldór Gam- alíel Sigurjónsson bóndi, f. á Hall- bjarnarstöðum 30.8. 1880, d. 8.7. 1966, og Steinþóra Guð- mundsdóttir húsfreyja, f. í Flögu í Þistilfirði 22.9. 1887, d. 24.6. 1943. Bræður Guðmundar voru Gunn- laugur Jakob, f. 16.7. 1907, d. 17.12. 1907, Sigurmundur Friðrik, f. 6.2. 1909, d. 29.12. 1975, maki Kristín Jónasdóttir, látin. Aðal- steinn Jóhannes, f. 12.11. 1913, d. 13.12. 1996, maki Margrét Tryggvadóttir, látin. Hinn 12.7. 1949 kvæntist Guð- mundur Önnu Benediktu Sigurð- ardóttur, f. 18.12. 1927, frá Saur- bæ á Langanesströnd, d. 9.7. 2000. Foreldrar hennar voru Sigurður Árnason og Stefanía Þorgríms- dóttir. Börn Guðmundar og Önnu eru: 1) Steinþóra, f. 19.10. 1949, gift Þórarni Gunnlaugssyni, f. 5.7. 1949, frá Egilsstöðum, búsett á Húsavík. Synir þeirra eru Gunn- þór Þórarinn, f. 1971, Þorkell Lindberg, f. 1975, og Jörundur Hartmann, f. 1978. Fjögur barna- hans til Húsavíkur og um það leyti fer hann í Bretavinnu til Reykja- víkur og síðan til sjós í Garðinum. Sjómennsku stundaði hann svo næstu árin, ýmist á verstöðvum fyrir sunnan eða á sumrin á Húsa- vík. Hann var m.a. nokkrar vertíð- ir á Hagbarði TH 1 frá Húsavík. Eigin útgerð byrjaði hann svo um 1949, fyrst með bræðrum sínum og síðar á eigin báti. Árið 1955 kaupa þau hjónin jörðina Kvíslarhól og flytja þangað árið 1958. Hafði fjöl- skyldan þar nokkurn búskap en alltaf stundaði hann einhverja út- gerð með og þá orðið aðallega grá- sleppuútgerð. Það var svo upp úr 1960 sem hófust viðskipti hans með grásleppuhrogn og voru orðin töluverð umsvif í kringum það um 1970. Lét hann þá búskapinn í hendur barna sinna og starfaði eft- ir það eingöngu að viðskiptum, að- allega með grásleppuhrogn, allt til starfsloka árið 1998. Guðmundur var þekktur hag- yrðingur og frá unga aldri hafði hann yndi af því að setja saman vísur, ljóð og kvæði. Í gegnum tíð- ina var hann gjarnan beðinn um að setja saman texta við lög og er sá þekktasti án efa „Rósin“ sem hann samdi við lag Friðriks Jónssonar. Eftir að Guðmundur fluttist á Dvalarheimilið Hvamm á Húsavík fór hann að vinna í að safna saman ljóðum sínum og textum. Afrakst- ur þeirrar vinnu urðu ljóðabæk- urnar „Þar sem sólin skín einnig á nóttunni“ og „Undir kvöldkyrru mánans“. Einnig gaf hann út bók- ina „Úr koppalogni í hvirfilbyl“ sem fjallaði um endurminningar úr ævi hans. Útför Guðmundar fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. börn. 2) Marý Anna, f. 27.2. 1951, gift Halldóri Sigurðssyni, f. 11.9. 1951, frá Ólafsvík, búsett á Syðri-Sandhólum á Tjörnesi. Börn þeirra eru Pálína Sigrún, f. 1972, Guðmundur Halldór, f. 1975, Aðalsteinn Jóhannes, f. 1979, og Heiðar Hrafn, f. 1986. Fjög- ur barnabörn. 3) Að- alsteinn, f. 28.1. 1955, giftur Jófríði Halls- dóttur, f. 20.9. 1955, frá Arndís- arstöðum í Bárðardal, búsett á Kvíslarhóli á Tjörnesi. Börn þeirra eru Hallmar Hugi, f. 1980, Anna Júlía, f. 1983, Guðmundur, f. 1986, og Hafsteinn, f. 1993. Áður átti Að- alsteinn börnin Marinó Jakob, f. 1973, og Sólrúnu Ingu, f. 1974. Tvö barnabörn. 4) Stefán Mar Brimdal, f. 14.2. 1958, giftur Láru Ósk Gunnlaugsdóttur, f. 18.2. 1961, frá Egilsstöðum, búsett í Reykjavík. Börn þeirra eru Sigurlaug Eva, f. 1980, og Steinar Aron, f. 1987. Tvö barnabörn. Guðmundur ólst upp á Hall- bjarnarstöðum við bústörf og sjó- sókn þaðan, bæði með föður sínum og eldri bræðrum. Lærði hann þar ungur handtökin við sjómennsku og m.a. að fara með byssu. Skóla- ganga hans varð ekki lengri en nokkrir mánuðir í farskóla á Tjör- nesi. Árið 1942 flytja foreldrar Það er komið haust, nýr dagur upp runninn, heiður himinninn og sólargeislarnir slá roðagylltum bjarma á tignarleg Kinnarfjöllin. Spegilsléttur Skjálfandinn gælir við fjörusteinana, Húsavíkurfjallið spannar allt litrófið og umvefur litla bæinn. Það er allt hljótt og kyrrt, aðeins örlítið kvak í farfuglunum sem eru að kveðja og hefja sig til flugs til hlýrra heimkynna. Ástkær faðir minn Guðmundur G. Halldórsson kvaddi þetta jarðneska líf morguninn 3. október og ég trúi því að hann sé kominn í faðm ástvina sinna í himnasæng drottins. Faðir minn var litríkur persónuleiki, lá ekki á skoðunum sínum og sagði af- dráttarlaust meiningu sína hvort sem mönnum líkaði betur eða verr. Hann hafði mikinn áhuga á stjórn- málum allt frá því að ég man fyrst eftir mér. Skipti þá engu hvort hann var á spjalli við unga eða aldna. Hann hafði endalausan áhuga á landsmálum, hvernig búa mætti bet- ur að landsbyggðinni svo hún mætti blómstra og dafna og unga fólkið hefði val um atvinnu og búsetu. Pabbi minn var ákaflega hrifnæmur, kunni að meta fagurt landslag, trjá- gróður og tindrandi jökla. Í hans huga var Ísland draumalandið. Hann unni fagurri tónlist og söng, hafði sérstakt dálæti á kórsöng. Sjálfur söng hann með karlakórnum Þrym á Húsavík á sínum yngri árum og var einn af stofnendum kirkju- kórs Húsavíkur sem hann söng einnig með um tíma. Pabbi minn var heiðarlegur og traustur maður og stóð við sitt. Hann var kletturinn í lífi mínu og systkina minn ásamt móður okkar. Voru þau samhent um að skila okkur börnunum sem heið- arlegum og ábyrgðarfullum einstak- lingum út í lífið. Árið 1958 fluttum við fjölskyldan að Kvíslarhóli á Tjörnesi. Þá var ég sjö ára og við þrjú systkinin. Það var mikil breyting að koma í sveitina og margt nýtt sem fyrir augu bar. Fað- ir minn fjölgaði kindunum og stund- aði ýmsa vinnu með búskapnum eins og grásleppuveiðar, löggæslu á dansleikjum og öðrum mannamót- um svo og annað sem til féll. Pabbi kenndi okkur börnunum að njóta frelsisins og vera sjálfum okkur nóg, meta náttúruna og útsýnið og elska dýrin. Pabbi minn var mikill veiði- maður. Hann reri ungur að árum með föður sínum og bræðrum til fiskjar út á Hallbjarnarstaðarkrók- inn. Oftast var byssan höfð með og þar lærði hann að meðhöndla slíkt verkfæri. Hann þótti fimur með hólkinn og eru margar sögur til af veiðiferðunum. Faðir minn unni sinni heimasveit, fannst hún falleg og hér væri gott að búa. Það gladdi hann því mjög að við tvö börnin hans skyldum setjast hér að með fjölskyldum okkar. Hann var ákaflega barngóður og hændust börn að honum þótt óskyld væru, sum þeirra kölluðu hann afa. Faðir minn átti heima á dvalarheimilinu Hvammi síðustu æviárin. Hann var ákaflega þakklátur öllu því góða starfsfólki sem annaðist hann þar. Börnin mín minnast afa síns sem besta afa í heimi. Hann var þeim og hinum barnabörnunum einstakur. Ég kveð elskulegan föður minn með söknuði og trega. Við sjáumst þegar minn tími kemur. Marý Anna Guðmundsdóttir. Nú þegar kvaddur er kær tengda- faðir minn er margs að minnast þeg- ar litið er til baka yfir þau 37 ár sem við höfum átt samleið. Fyrir mér er það þó nánast eins og gerst hafi í gær er ég kom fyrst í Kvíslarhól, sumarið 1970, því svo ljóslega stend- ur Guðmundur mér fyrir hugskots- sjónum, stór og mikill, hressilegur, raddmikill, jarphærður og freknótt- ur á handleggjum. Á borðum tengdaforeldra minna var stórsteik, brúnaðar kartöflur og allt tilheyr- andi á dekkuðu borði í borðstofunni. Þó var ekki á ferð nema tvítugur strákur, eitthvað að snúast í kring- um dóttur hans. Strax á fyrstu árum mínum innan fjölskyldunnar fór Guðmundur að vinna að því að koma mér inn í við- skiptin hjá sér og kom það til af því að upp úr fimmtugu, eða um 1974, fékk hann fyrsta hjartakastið og fannst ekki annað hægt en að hafa einhvern sem vissi eitthvað um gang mála ef snöggt yrði um hann. Þá voru viðskiptin svolítið öðruvísi en nú tíðkast, eiginlega allt munnlegt þá, jafnt smáir sem stórir samning- ar, og má raunar teljast með ólík- indum að slíkt gengi. Stundum var samið um heilan skipsfarm af grá- sleppuhrognum við erlenda kaup- endur snemma vetrar í gegnum síma. Síðan leið vertíðin um vorið og þá leigt skip, oftast fiskibátur, og siglt á ströndina og lestað. Þá var kannski sent skeyti um áætlaðan komutíma og allt stóð eins og stafur á bók er út var komið. Mun ég verða ævinlega þakklátur fyrir það að hafa hlotnast að fara í eina slíka siglingu með honum til Danmerkur sumarið 1976. Þetta var fyrir tíma gámavæð- ingarinnar og plasttunnanna. Er mér minnisstæð undrun nokkurra viðskiptajöfra úr Reykjavík, sem við hittum í Jónshúsi í Kaupmannahöfn, á þessu áræði ómenntaðs bónda norðan af Tjörnesi og lítt talandi á erlendu máli. En svona var Guð- mundur, hafði enga minnimáttar- kennd yfir því að tala ekki dönskuna rétt og lét jafnvel orð falla um það einhverju sinni er danskir hafnar- starfsmenn skildu hann ekki alveg, að þessir væru svo vitlausir að þeir skildu nú ekki sitt eigið móðurmál! Sterkar skoðanir hafði Guðmund- ur á öllum mögulegum málum, svo sem byggðamálum, kvótamálum og landbúnaðarmálum. Sagði þær al- veg umbúðalaust og lét þá oft hátt í honum. Í fjölskylduboðum mátti glöggt heyra þegar hann var mætt- ur og er ég hræddur um að þar verði eitthvað hljóðlegra í framtíðinni. Ekki er alveg grunlaust um að stundum hafi þar verið látinn í ljós smá efi í tilteknum málum svona til að fá fram hressilegar umræður. Þegar Guðmundur lét af sínu aðalstarfi um 1998 og fluttist í Dvalarheimilið Hvamm hafði hann með sér þangað sína pickupbifreið og hafði þar löngum eitthvað fyrir stafni svo sem veiðiskap, kartöflu- rækt og ýmislegt þess háttar. Naut hann þess að keyra á milli afkom- endanna gefandi aflann og upp- skeruna. Árið 2003 fékk Guðmundur slæmt hjartaáfall og fór líkamlegri heilsu hans að hraka upp frá því, þó mest nú síðasta árið. Með virðingu og þökk kveð ég tengdaföður minn með þökkum fyr- ir allt sem hann hefur gert fyrir mig og mína, blessuð sé minning hans. Þórarinn Gunnlaugsson. Meira: mbl.is/minningar Í minningu afa Dapur er hugur, sólin er sest, í sveitinni ríkir kyrrðin. Á síðkvöldum sumars unir best, svífur, því horfin er byrðin. Kvíslarhóls-gilið kallar þig á, klettafoss syngur þér fallega. Fjöllin, heiðin og fjólan smá, faðma og kyssa þig blíðlega. Á kyrru kvöldi, undir mánans sæng, kemur nóttin með sefandi hönd. Almættið breiðir sinn verndandi væng, og varðveitir ættarbönd. Elsku afi, við minnumst þín nú, ætíð svo blíður og góður. Afrakstur lífs þíns mun hugga og hlú, í hugskoti minningasjóður. Með kveðju – barnabarn þitt Pálína S. Halldórsdóttir. Okkur bræður langar að minnast afa okkar, Guðmundar G. Halldórs- sonar frá Kvíslarhóli, í örfáum orð- um. Um það leyti sem við vorum að komast til vits og ára var afi fluttur til Húsavíkur og var samgangur ávallt mikill. Við urðum því þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að kynnast honum og umgangast hann uppvaxt- arár okkar á Húsavík. Margt bröll- uðum við með afa og óhætt að segja að við höfum lært ýmislegt á því að umgangast hann í gegnum tíðina. Má segja að það hafi verið skóli utan hins hefðbundna skólakerfis. Verk- leg kennsla fólst m.a. í að stússast með honum í kartöflurækt og veiði- skap á Sandinum en auk þess hafði afi mjög gaman af því að segja sögur og fræða okkur um það sem hann hafði lært og upplifað á sinni ævi. Hann var nefnilega sögumaður góð- ur og stálminnugur. Ófáar sögurnar sagði hann okkur af veiðiskap og öllu mögulegu er tengdist sjósókn en hvort tveggja var honum afar hugleikið. Sérlega þótti okkur alltaf merkilegt hvað hann mundi vel bátanöfn og atburði á Íslandsmiðum áratugi aftur í tímann. Mátti helst líkja honum við alfræðiorðabók í þeim efnum. Ógleymanlegar verða þær stundir þegar afi kom í heim- sókn í Háagerðið og sagði sögur frá löngu liðnum tímum, oft á tíðum mjög dramatískum s.s. sjóslysum og öðrum sjávarháska. Afi mun í huga okkar ávallt verða ættarhöfðinginn, enda sinnti hann því hlutverki sínu af mikilli alúð. Hans helsta áhugamál var fjölskyld- an og afkomendurnir því hann lét málefni okkar ávallt sig miklu varða hvort sem var í leik eða starfi. Afi fylgdist grannt með allt til loka og bar hag okkar ávallt fyrir brjósti. Væntumþykja í garð fjölskyldunn- ar, örlæti og greiðasemi var nokkuð sem einkenndi afa og fórum við bræður ekki varhluta af því, frekar en svo margir aðrir. Ófáum sinnum kom afi akandi á „Pikkanum“ í Háa- gerðið með nýveiddan fisk, harðfisk, nýuppteknar kartöflur og margt fleira til þess að gefa fjölskyldunni. Ekki var þetta gert vegna þess að fjölskyldan væri á flæðiskeri stödd, heldur lifði afi eftir gömlum gildum og leit alltaf svo á að hans hlutverk væri að draga björg í bú fyrir sitt fólk. Greinilegt var að það gladdi hann ætíð að geta gefið af sér til okkar og naut hann þess að gefa gott í matinn. Afi var enda matmað- ur mikill og sælkeri og var alltaf hægt að stóla á að það sem hann kom með var fyrsta flokks, „algjört sælgæti“ eins og hann orðaði það. Svo ótal margt fleira gerði afi fyrir okkur sem ber vitni um væntum- þykju hans að allt of langt mál væri að rifja það upp hér. Gott dæmi að nefna er þó þegar hann lánaði einum okkar bílinn sinn suður til Reykja- víkur í heilan vetur, hvar sá hinn sami var við háskólanám. Gat gamli maðurinn ekki hugsað sér að vita af barnabarni sínu bíllausu „í þessari glæpaborg“ eins og hann átti til að kalla höfuðborgina. Við bræðurnir munum ætíð hugsa til afa okkar með þakklæti og hlý- hug fyrir allt og allt. Megi hann hvíla í friði. Gunnþór Þórarinsson. Þorkell Lindberg Þórarinsson. Jörundur Hartmann Þórarinsson. Af hlaðinu á Kvíslarhóli er útsýn- ið yfir Skjálfandann svo sannarlega stórfenglegt og margbreytilegt, þannig var Guðmundur afabróðir okkar líka. Fallegur maður, kær- leiksríkur, mikill húmoristi og lista- maður. Áberandi var í hans fari hve hann umgekkst börn af mikilli virð- ingu og það segir allt um hvern mann hann hafði að geyma. Það var eftir honum tekið hvert sem hann fór því hann var stórmyndarlegur og það átti til að gusta af honum, þó sérstaklega þegar stjórnmál voru rædd og í ófá skipti heyrði maður í honum í útvarpinu þar sem hann lýsti skoðunum sínum óspart, oft með glettni og í bundnu máli. Hann var maður alþýðunnar og deildi með öðrum, kom oft færandi hendi ef honum hafði áskotnast ný- veidd soðning eða nýupptekið græn- meti en mátti sjaldan vera að því að stoppa, hann átti nefnilega eftir að fara á nokkra staði í viðbót. Nú er kæri frændi okkar laus við dýptarmælana, trollin og allt það sem honum datt í hug að nefna lækningatæki nútímans enda passar ekki við svona mikilmenni að ganga ekki á öllum. Hetja er fallin sagði góð vinkona okkar þegar henni var tilkynnt andlátið, það er satt, við munum sakna „vara-afa“ okkar eins og hann minnti okkur reglulega á að hann væri. Hann var mikill andans maður, samdi mörg falleg ljóð og minntist vina sinna og ættingja oft með fal- legum kveðskap og það er náttúr- lega skömm að geta ekki hnoðað einhverju saman í minningu okkar frábæra vara-afa en útkoman yrði sjálfsagt eitthvað sem hvorki við né hann gætum verið stolt af. Því fáum við að láni In memoriam eftir Tómas Guðmundsson þar sem hann minnist annars skálds: Í dimmum skugga af löngu liðnum vetri mitt ljóð til þín var árum saman grafið. Svo ungur varstu, er hvarfstu út á hafið, hugljúfur, glæstur, öllum drengjum betri. Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. Kæru Kvíslarhólssystkini, þið eigið okkur alltaf að eins og við ykk- ur. Samúðarkveðjur, Margrét, Elín og Ríkarður Þórhallsbörn. Guðmundur G. Halldórsson ✝ Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, ÖNNU SOFFÍU HÁKONARDÓTTUR, Austurbrún 2, Reykjavík, verður gerð frá Áskirkju í Reykjavík, þriðjudaginn 16. október kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. Hákon H. Pálsson, Ingibjörg Hafsteinsdóttir, Ingólfur Pálsson, Sigurður Pálsson, Margrét Kristjánsdóttir, Sigurjón Pálsson, Halla Pálsdóttir, Sigsteinn Sigurðsson, barnabörn og langömmubörn, Haraldur Hákonarson, Þóra N.H. Hákonardóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.