Morgunblaðið - 13.10.2007, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 45
TAFLFÉLAG Reykjavíkur og
Hellir náðu ekki að blanda sér í bar-
áttu efstu liða á Evrópumeistaramóti
taflfélaga sem fram fór í Kemer í
Tyrklandi á dögunum. Kannski ekki
nema von þar sem margir af fremstu
skákmönnum heims bera uppi bestu
liðin. Sigurvegarinn Linex Magic frá
Merida á Spáni hafði innanborðs
m.a. Kamsky, Adams, Rublevsky og
Sargissian. Sveitin vann sex af sjö
viðureignum og gerði eitt jafntefli,
hlaut samtals 13 stig.
Við upphaf fimmtu umferðar gekk
nýbakaður heimsmeistari í salinn við
mikið lófaklapp. Wisvanathan An-
and, sem tefldi þrjár skákir fyrir
þýsku sveitina Baden Baden, hefur
enn ekki snúið heim til Indlands, en
á næstu dögum verður mikið um
dýrðir þar í landi þegar hann snýr
heim.
Í 2. sæti í Kemer varð rússneska
sveitin Ural Sverdlovskya með 12
stig, en fyrir sveitina tefldu m.a.
Radjabov, Shorov, Grischuk og
Akopjan. Í þriðja sæti varð önnur
rússnesk sveit, Tomsk, með 11 stig
en fremstu menn þar voru Morose-
vich og Karjakin.
Taflfélag Reykjavíkur varð í 18.
sæti af 56 sveitum með 25½ vinning
en Hellir varð í 35. sæti með 6 stig og
19½ vinning.
Taflfélag Reykjavíkur hefur feng-
ið Hannes Hlífar Stefánsson til liðs
við sig, en hann hefur mörg undan-
farin ár teflt á 1. borði fyrir Hellis.
Jóhann Hjartarson hefur hinsvegar
gengið til liðs við Helli en hann var
ekki með í Tyrklandi. Bræðurnir
Bragi og Björn Þorfinnsson héldu
uppi merki Hellisbúa en aðrir í sveit-
inni voru Sigurður Daði Sigfússon,
Robert Lagerman, Kristján Eð-
varðsson og Rúnar Berg.
Igor Nataf, sem áður tefldi fyrir
Taflfélag Vestmannaeyja, hefur
einnig gengið til liðs við TR, náði
bestum árangri TR-inga en einnig
stóð Stefán Kristjánsson sig vel,
hlaut 5 vinninga úr 7 skákum. Aðrir í
sveit TR voru Þröstur Þórhallsson,
Stefán Kristjánsson, Jón Viktor
Gunnarsson, Arnar Gunnarsson og
Snorri G. Bergsson sem jafnframt
var liðsstjóri.
Sigurskák Stefáns yfir Ivan Soko-
lov vakti mikla athygli en þetta er í
annað sitt á stuttum tíma sem Stefán
leggur öflugan stórmeistara að velli í
ítalska leiknum.
Tíundi leikur Stefáns, Rh4, er at-
hygliverður og honum tekst að fá
Ivan til þess að leggja of mikið á
stöðu sína og má glíma við veikingu á
svörtu reitum. Með 29. Df2 hótar
hvítur máti á h4 og ræður í fram-
haldinu yfir e-línunni. Það eru ekki
góð tíðindi fyrir Soklov, hinn snjalli
leikur 38. He8 gerir í raun út um tafl-
ið því 39. … gxh3 strandar á 40. d5!
og svartur verður að gefa mann fyrir
frípeðið. Peðastaða svarts splundr-
ast og eftirleikurinn er auðveldur
fyrir Stefán.
EM í Tyrklandi; 2. umferð:
Stefán Kristjánsson
– Ivan Sokolov
Ítalskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. c3
Rf6 5. d3 d6 6. Rbd2 0-0 7. Bb3 a6 8.
h3 Ba7 9. Rf1 Re7 10. Rh4 Rd7 11.
Rg3 Rc5 12. Bc2 d5 13. 0-0 c6 14.
Be3 Re6 15. Bxa7 Hxa7 16. Rf3 f6
17. d4 dxe4 18. Rxe4 f5 19. Rc5 e4
20. Rxe6
Bxe6 21. Rg5 Bc8 22. f3 exf3 23.
Rxf3 Rg6 24. Bb3+ Kh8 25. Dd2 b5
26. Hae1 Dd6 27. Re5 c5 28. Rxg6+
hxg6 29. Df2 c4 30. Bd1 g5 31. He5
He7 32. Hfe1 Hxe5 33. Hxe5 Dh6 34.
De3 Dg6 35. Df3 Kh7 36. Dh5+
Dxh5 37. Bxh5 g4
38. He8 Hxe8 39. Bxe8 Kg8 40.
hxg4 Kf8 41. Bc6 fxg4 42. Kf2 Be6
43. Bb7 a5 44. Bc6 b4 45. d5 Bf5 46.
g3
– og svartur gafst upp.
Snorri G. Bergsson tefldi aðeins
tvær skákir í Grikklandi og vann
þær báðar. Hann hélt úti bloggsíðu
sinni á meðan á mótinu stóð og kom
þar fram að góður liðsandi hafi verið
með TR-ingum og almennt í íslenska
hópnum. En auðvitað gat Snorri ekki
stillt sig um að stríða Hellismönnum
örlítið:
„Annars var lánið misskipt. Ég
kom í gær í fyrsta skipti í herbergi
þeirra Löngumýrarbræðra, en það
var ca. helmingi minna en mitt, og
loftræstingin í ólagi. Þar var sem-
sagt nær ólíft. Furðulegt, en hótel-
starfsmennirnir hafa greinilega tek-
ið eftir greinilegum yfirburðum
okkar TR-inga – skákaðals Íslend-
inga – yfir Hellisbúana og látið okk-
ur hafa bestu herbergin. Mjög eðli-
legt, en vísast sárt fyrir Hellismenn.
Sig. Daði og Kristján fengu svipað
herbergi og bræðurnir, en gömlu
kallarnir, Trölli og Stóritími, fengu
herbergi, sem var næstum því eins
flott og okkar TR-inga.
Snorri mætti sænska stórmeistar-
anum Tómasi Ernst í sjöttu umferð
og fór Svíinn niður í logum, svo notað
sé orðfæri bræðranna. Ernst er
þekktur fyrir mikla teóríuþekkingu
en menn spyrja hvort þarna hafi
skrattinn hitt ömmu sína. Staðan eft-
ir 12 leiki er þekkt en í stað þess að
hirða peðið á e5 varð svartur að leika
12. … b4 með óljósri stöðu. Ernst
virðist ekki hafa tekið fórn Snorra í
15. leik með í reikninginn. Þó er hún
þekkt í svipuðum stöðum, 16. … Dc5
strandar á 17. Hxe6+! fxe6 18. Bg6+
og vinnur. Svartur má vitanlega ekki
taka á b5 í 18. leik. 19. leikur Snorra,
Rc7+ er virkilega snotur en þó 20.
Be2 vinni auðveldlega gat hann fært
taflmennskuna upp á hærra plan
með því að leika 20. Hxe6+!! Kxe6
21. De3+ Kf6 22. De5+ Kg6 23.
Bd3+ f5 24. Bxf5+ Kf7 25. Hd7+
Kg8 26. Be6+ og mátar.
EM í Tyrklandi; 6. umferð:
Snorri G. Bergsson
– Thomas Ernst
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7.
Dd2 a6 8. 0-0-0 h6 9. Be3 Bd7 10. f4
b5 11. Bd3 Dc7 12. Hhe1 Ra5 13. e5
dxe5 14. fxe5 Dxe5
15. Rxe6 Bxe6 16. Bf4 Dh5 17. He5
g5 18. Rxb5 Rd5 19. Rc7+ Rxc7 20.
Be2 Be7 21. Bxh5
Svartur gafst upp.
Íslandsmót taflfélaga hafið
Íslandsmót taflfélaga hófst í gær í
íþróttasal Rimaskóla í Reykjavík.
Teflt er í fjórum deildum og er al-
mennt búist við að TR og Hellir muni
berjast um Íslandsmeistaratitilinn
en Hellir sem er núverandi Íslands-
meistari hefur misst Hannes Hlífar
Stefánsson til TR-inga sem hafa
einnig bætt sig með Igori Nataf sem
áður tefldi fyrir TV. Búist er við að á
fjórða hundrað manns tefli í Rima-
skóla um helgina.
Þegar dregið var um töfluröð varð
niðurstaðan þessi:
1. deild:
1. Hellir, b-sveit.
2. Haukar
3. SA, b-sveit.
4. TR
5. Fjölnir
6. SA, a-sveit.
7. TV
8. Hellir, a-sveit.
TR skákar Helli í Tyrklandi
Góð frammistaða Stefán Kristjánsson að tafli í hátíðarsal MH.
SKÁK
EM taflfélaga
2.-10. október
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Bridsfélag Kópavogs
Tveggja kvölda tvímenningi lauk
með stórsigri Sigurðar og Ragnars.
Ekki í fyrsta skipti sem það gerist.
Lokastaðan:
Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 260
Ármann J. Láruss. – Bernódus Krist.s. 237
Hrund Einarsdóttir – Vilhjálmur Sig jr. 230
Erla Sigurjónsd. – Guðni Ingvarsson 216
Gísli Tryggvason – Leifur Kristjánsson 215
Næsta fimmtudag kl. 19.30 hefst
þriggja kvölda Board a Match, sem
er svona „Long time no see“-keppni í
Kópavogi. Gaman að því.
Spilað er í Hamraborg 11, 3. hæð.
Spilað á átta borðum
í Borgarfirði
Mánudaginn 8. október var spil-
aður tvímenningur hjá Bridsfélagi
Borgarfjarðar og það verður áfram í
október. Spilað var á 8 borðum. For-
maðurinn Jónsi á Kópa hafði verið
frekar slappur fyrsta kvöldið en
sannaði nú ásamt makker sínum
Baldri í Múlakoti að fall er fararheill.
Engin hafði roð við þeim nema þá
helst Guðmundur á Grímsstöðum og
Ásgeir á Þorgautssöðum. Við feng-
um heimsókn frá Akranesi og Borg-
nesingar mættu vel eins og alltaf.
Veri þeir sem flestir velkomnir, enda
öndvegisfólk á ferð.
Úrslit urðu annars sem hér segir:
N-S
Sveinbjörn Eyjólfss. – Lárus Péturss. 150
Jón Á. Guðm. – Jón H. Einarsson 145
Einar Guðmss. – Sigurgeir Sveinsson 144
A-V
Jón Eyjólfsson – Baldur Björnsson 162
Guðm. Kristinss. – Ásgeir Ásgeirsson 156
Karvel Karvelss. – Ingimundur Jónss. 136
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Við Helga vorum að
skoða myndir úr
gömlum albúmum frá þér, frændi,
og áttuðum okkur ekki á því hvern
þremilinn mynd af mér var að þvæl-
ast þar með. Og þarna var ekki bein-
línis um ókunnugt fólk að ræða
heldur dóttur þína og mig sjálfan.
Svo snarlíkir erum við á ákveðnum
tímapunkti í lífinu að það verður
ekki undan vikist að viðurkenna
frændskapinn. Enda hefur það aldr-
ei verið vandamál að vera stoltur af
Simma frænda. Hluti af því var að
drekka í sig þessa lífsýn ykkar
bræðra, sem hefur að gera með
samstöðu og baráttuþrek til síðasta
manns. Að ganga á bak orða sinn
eða gefast upp, var meðal þess sem
var ekki í orðabókinni. Auk þess
ótakmörkuð trú á sínu fólki, sem til
dæmis endurspeglaðist í því að
Sæmundur Óskarsson
✝ Sæmundur Ósk-arsson stór-
kaupmaður fæddist
á Akureyri 10.
ágúst 1924. Hann
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Eir 10.
september síðastlið-
inn.
Sæmundur var
jarðsunginn frá Bú-
staðakirkju 20. sept.
sl.
Haukur frændi var
ekki bara bestur held-
ur langbestur í hverj-
um einasta leik hjá
Þrótti, jafnvel þótt
það kæmi fyrir að
hann gæti ekki neitt.
Í þessum samstöðu-
anda fékk ég snemma
taugar til KA, enda fé-
lagið ykkur bræðrum
hugleikið. Náðum við
nokkrum sinnum að
æsa okkur saman á
stórum stundum hjá
félaginu og var mér
alveg sama þótt menn væru hissa á
því hvern andsk. fyrirliði Þróttar
væri að vilja uppá dekk hjá KA.
Heiti ég þér því, og tel það beinlínis
hluta af arfleifðinni, að halda með
stolti í þessa taug. Svo framarlega
sem einstök augnablik krefjast þess
ekki, að aðrar taugar séu þeim mun
þandari.
Stór kafli í þínu lífi snerist um
þinn eigin bissness. Einhvern þráð
virðist maður sjálfur hafa tekið upp
frá þér og líklega lengra aftur til að
fara út á þessa einkaframtaksbraut.
Ég vona því að þú hafir auga með
þessu hjá mér, því þeir segja, að það
sé æskilegt að einhver horfi á rekst-
urinn úr fjarlægð.
Með kveðju,
Haukur Magnússon, frændi.
Kæri vinur. Mér er
það ljúft, að setja
nokkur orð á blað til
minningar um þig.
Mér eru minnisstæð
okkar fyrstu kynni hjá B.M. Vallá
árið 1993. Þar sá ég fara mann með
einstakan húmor, dugnað og sam-
viskusemi. Vinnan var þér allt og
ekki síst velferð fyrirtækisins, sem
þú varst búinn að starfa svo lengi
fyrir. Oft áttum við tal saman um
fjölskylduna þína, sem var þér mik-
ils virði og ekki síst Helgu Lind, sem
þú kallaðir alltaf dúlluna þína og
eins og það er oft orðað, brjóstið í lífi
þínu. Oft fórstu þreyttur eftir lang-
an vinnudag að sinna vinum, hest-
unum þínum, meira af mætti en
getu.
Síðustu árin voru þér erfið, Guðni
Guðni W. Kristjánsson
✝ Guðni WilhelmKristjánsson
fæddist í Reykjavík
6. febrúar 1940.
Hann lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 3. september
síðastliðinn og var
útför hans gerð í
kyrrþey.
minn, vegna veikinda
þinna, en alltaf
komstu aftur. Ég er
þér þakklátur fyrir
þann stuðning, sem þú
sýndir mér í erfiðleik-
um mínum í sumar. Þá
fann ég að ég átti vin í
þér, þótt þér væri
ekki tamt að kalla
menn vini þína.
Kæri vinur, nú ertu
farinn frá okkur,
saddur lífdaga. Ég
veit að ég mæli fyrir
munn allra þeirra
vinnufélaga sem þú kynntist hjá
B.M. Vallá. Kæri vinur, hafðu kæra
þökk fyrir samfylgdina.
Elsku Vala Dóra og fjölskylda,
Guð og gæfan fylgi ykkur, minning-
in um vin minn Guðna mun lifa með
okkur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Hafsteinn Sigurðsson.
Það eru forréttindi
að hafa kynnst ömmu
Rikku. Alltaf var gott að koma á
heimili ömmu og afa í Dalalandi 10.
Við systurnar eigum margar góðar
minningar þaðan, þar dvöldum við
reglulega um helgar. Þá var fjör á
bæ. Amma hugsaði alltaf vel um
nöfnuna sína, passaði uppá að ég
fengi bolla og skeið sem hún hafði
fengið sem smá stelpa, eftir hennar
dag. Einnig var hún dugleg að safna
snyrtiumbúðum fyrir mig í gulu
töskuna svo ég gæti farið í snyrti-
Friðrikka Bjarnadóttir
✝ FriðrikkaBjarnadóttir
fæddist á Höfn í
Hornafirði 29. mars
1925. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Sóltúni, Reykjavík,
fimmtudaginn 27.
september síðastlið-
inn.
Friðrikka verður
jarðsungin 4. októ-
ber sl..
leiki. Liður í því að
vera með ömmu var
líka að hjálpa henni að
skúra niðri í ráðu-
neyti, sem var
skemmtilegt verkefni
fyrir unga stúlku.
Amma Rikka var mik-
ill höfðingi, allir alltaf
velkomnir til hennar
og alltaf nóg að bíta og
brenna. Um það
heyrði ég margar sög-
ur utan úr bæ þegar
fólk var á ferðinni fyr-
ir vestan stóðu allar
dyr opnar fyrir gestkomandi. Hún
var alltaf sanngjörn við alla, hvort
sem um var að ræða gjafir eða ann-
að.
Ég leit mikið upp til hennar, dugn-
aður, kærleiki, þrautseigja og þakk-
læti eru orð sem lýstu henni. Ég er
mjög stolt að hafa átt svona góða
ömmu.
Takk fyrir alla góðu stundirnar,
elsku amma Rikka.
Anna Friðrikka Jónsdóttir.