Morgunblaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MESSUR Á MORGUN AKUREYRARKIRKJA: | Guðsþjónusta í kapellu kl. 11. Sr. Svavar A. Jónsson, fé- lagar úr messuhópi aðstoða. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja, organisti Eyþór Ingi Jónsson. Sálmastund í lokin þar sem kirkjugestir geta valið sálma til söngs. Súpa og brauð í Safnaðarheimilinu á eftir. ÁRBÆJARKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Brúað bilið milli sunnudaga- skóla og hefðbundinnar guðsþjónustu þar sem fastir messuliðir eru í bland við ein- faldari söngva og biblíusögur. Veitingar. ÁSKIRKJA: | Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Elíasar og Hildar Bjargar. Messa kl. 14, sr. María Ágústsdóttir héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragnarsson. Kaffisopi eftir messu. BESSASTAÐAKIRKJA: | Kirkjudagurinn er haldinn í Bessastaðakirkju á morgun kl. 14. Ólafur G. Einarsson fv. ráðherra pré- dikar, Gospelkór Jóns Vídalíns og Álft- aneskórinn syngja, stjórnendur Þóra Gísladóttir og Bjartur Logi organisti. Sr. Friðrik og sr. Hans Guðberg Alfreðsson þjóna, 50 ára fermingarbarn boðið vel- komið. Kirkjukaffi kvenfél. í hátíðarsal íþr. BESSASTAÐASÓKN: | Sunnudagaskóli kl. 11 í sal Álftanesskóla, Bolli Már, Matt- hildur, Snædís og Sunna Dóra stjórna starfinu. Hátíðarmessa verður kl. 14 í Bessastaðakirkju. Kaffisala kvenfélags- ins á eftir í tilefni Kirkjudagsins. BREIÐHOLTSKIRKJA: | Messa kl. 11. Prestur sr. Gísli Jónasson, organisti Julian Isaacs. Barnaguðsþjónusta á sama tíma. Málsverður eftir messu. BÚSTAÐAKIRKJA: | Barnamessa kl. 11, samvera fyrir alla fjölskylduna með söng og fræðslu. Guðsþjónusta kl. 14, Soffía Guðmundsdóttir, Berglind og Hanna Soffía Bergmann Sverrisdætur syngja. Súgfirðingar aðstoða. Kór Bústaðakirkju, organisti Renata Ivan. Messukaffi Súgfirð- ingafélagsins. DIGRANESKIRKJA: | Messa kl. 11, prest- ur sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti Kjartan Sigurjónsson, kór Digraneskirkju A-hópur. Sunnudagaskóli í kapellu á sama tíma. Veitingar að messu lokinni. Kvöld- messa á vegum æskulýðsfélags Digra- neskirkju kl. 20. DÓMKIRKJAN: | Messa kl. 11, sr. Hjálmar Jónsson prédikar, Dómkórinn syngur, org- anisti er Marteinn Friðriksson. Barnastarf á kirkjuloftinu meðan á messu stendur. EGILSSTAÐAKIRKJA: | Sunnudagaskóli kl. 11 og messa kl. 14. Kyrrðarstund 15. október kl. 18. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: | Guðsþjónusta og altarisganga kl. 11. Prestur sr. Guð- mundur Karl Ágústsson, organisti er Guðný Einarsdóttir. Félagar úr kór Fella- og Hólakirkju leiða almennan safnaðarsöng. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Sig- ríðar R. Tryggvadóttur. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: | Sunnudaga- skóli kl. 11, umsjón hafa Sigríður Kristín og Örn. Kvöldvaka kl. 20, umfjöllunarefni: Haustið, einsöngur: Sólveig Sam- úelsdóttir, Fríkirkjubandið leiðir söng. Kaffi í safnaðarheimilinu á eftir. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: | Guðsþjónusta kl. 14. Í predikun dagsins verður leitað svara við spurningunni: Er Guð í raun jafn afturhaldssamur og kirkjustofnunin? Hjörtur Magni Jóhannsson predikar. Tón- listina leiða Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller. Nanda Maack guðfræðinemi mun leiða barnasamveruna. FRÍKIRKJAN KEFAS | Sunnudagaskóli kl. 11. Kennsla, söngur, leikrit og leikir. Al- menn samkoma kl. 14 þar sem Björg R. Pálsdóttir prédikar. Á samkomunni verður lofgjörð, barnastarf og fyrirbænir. GRAFARHOLTSSÓKN | Græni dagurinn í Grafarholti. Fjölskyldumessa kl. 11 í Ing- unnarskóla. Umhverfismál í brennidepli. Hist kl. 10.50 v/ grenndargámana við skólann og gengið til messu. Umhverf- isráðherra kemur í heimsókn, barnakór kirkjunnar syngur, stjórn Gróa Hreinsd., umsjón séra Sigríður og Þorgeir. Kirkju- kaffi. GRAFARVOGSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11. Séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar. Guðsþjónusta kl. 14, sr. Anna Sigríður Pálsdóttir kveður söfnuðinn. Allir prestar safnaðarins þjóna, sr. Anna Sigríður pré- dikar og kórar kirkjunnar syngja. Organisti Hörður Bragason, fiðla Hjörleifur Valsson, kontrabassi Birgir Bragason, kórstjórar: Gróa Hreinsdóttir og Svava Kr. Ingólfs- dóttir. GRAFARVOGSKIRKJA – Borgarholts- skóli: | Sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr. Lena Rós Matthíasdóttir, umsjón hafa Hjörtur og Rúna, undirleikari Stefán Birki- sson. Sunnudagaskóli kl. 11 í Borg- arholtsskóla. Prestur sr. Vigfús Þór Árna- son, umsjón hafa Gunnar og Díana, undirleikari Guðlaugur Viktorsson. GRENSÁSKIRKJA: | Morgunverður kl. 10, bænastund kl. 10.15, barnastarf kl. 11, messa kl. 11, altarisganga, samskot. Messuhópur þjónar, kirkjukór Grens- áskirkju syngur, organisti Árni Arinbjarn- arson, prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu. Myndlistarsýning Bjargar Þorsteinsdóttur opnuð formlega í fordyri. GRENSÁSKIRKJA: | Tómasarmessa kl. 20, tónlist, orð Guðs, fyrirbæn, heilög kvöldmáltíð. Molasopi eftir messu. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: | Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan Ólafsson, prestur sr. Hreinn S. Há- konarson. HALLGRÍMSKIRKJA: | Fræðslumorgunn kl. 10. Lúther og Katrín, sr. Bjarni Þór Bjarnason. Messa og barnastarf kl. 11, sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar ásamt sr. Maríu Ágústsdóttur, ferming- arbörn aðstoða. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinss. Organisti Hörður Áskelsson. HÁTEIGSKIRKJA: | Messa og barnaguðs- þjónusta kl. 11. Erla Guðrún og Páll Ágúst leiða barnastarfið. Prestur Guðbjörg Jó- hannesdóttir, organisti Douglas A. Brotc- hie. Veitingar í safnaðarheimili að messu lokinni. HJALLAKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11, sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Fé- lagar úr Kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng, organisti Jón Ólafur Sig- urðsson. Sunnudagaskóli kl. 13. Bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18 (www.hjallakirkja.is). HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: | Sunnudaginn 14. okt. kl. 11 sunnudaga- skóli. Dagur Heimilasambandsins í um- sjón kvennanna kl. 17. HJÁLPRÆÐISHERINN í Reykjavík: | Sam- koma á morgun kl. 20. Umsjón: Elsabet Orð dagsins: Jesús læknar hinn lama. (Matt. 9) Morgunblaðið/Ómar Egilsstaðakirkja. Kaffisala kristni- boðsfélags karla KAFFISALA kristniboðsfélags karla verður í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, á morgun kl. 14 -17. Þetta er árleg fjáröflun fé- lagsins fyrir kristniboðs- og þró- unarverkefni Kristniboðs- sambandsins. Karlarnir hella upp á kaffi og bjóða með því kökur og hollustubrauð og spjallað verður um bræður og systur í Afríku. Lækningadagar í Veginum Lækningadagar verða í Veginum á Smiðjuvegi 5 helgina 26.-28. október nk. Á lækningadögum verður fjölbreytt dagskrá m.a.: kyrrðarstund, fyrirbænir, einka- viðtöl o.fl. Myndlistarsýning í Grensáskirkju Myndlistarsýning Bjargar Þor- steinsdóttur verður opnuð í forsal Grensáskirkju á morgun, sunnu- dag, að lokinni messu, um hádeg- isbil. Björg hefur um árabil unnið að myndlist en myndirnar á sýn- ingunni eru aðallega nýjar vatns- litamyndir. Sýningin stendur til 15. nóv. og er opin á sama tíma og kirkjan sem er fimm daga vik- unnar kl. 9-15 en einnig kringum messur, athafnir og aðrar sam- verustundir í Grensáskirkju. Að- gangur er ókeypis. Tómasarmessa í Grensáskirkju Fyrsta Tómasarmessan verður haldin annað kvöld kl. 20 í Grens- áskirkju. Tómasarmessa er finnsk að uppruna og er kennd við Tóm- as postula, þann sem leitaði stað- festingar á trú sinni. Í messunni er tónlist, lofgjörð og fyr- irbænaþjónusta. Orð Guðs er boð- að og heilög kvöldmáltíð borin fram. Tómasarmessur verða hér eftir haldnar mánaðarlega í Grensáskirkju, annan sunnudag í mánuði. Guðsþjónusta í Skeiðflatarkirkju Guðsþjónusta verður í Skeiðflat- arkirkju í Mýrdal á morgun, sunnu- dag, kl. 14. Kórar Skeiðflatar- og Víkurkirkju syngja, organisti og stjórnandi er Kitti Kóvács. Eftir predikun leika hjónin Balázs Stan- kowsky og Kitti Kovács saman á fiðlu og orgel. Þau eru bæði frá Ungverjalandi og eru nýráðnir kennarar við Tónskóla og Grunn- skóla Mýrdalshrepps, auk þess sem Kitti hefur verið ráðin organisti við Víkur- og Skeiðflatarkirkju. Drengjakór Reykjavík- ur í Hallgrímskirkju Fræðslustund verður kl. 10 á morg- un, sunnudag, og hefst dagskráin á því að sr. Bjarni Þór Bjarnason, sem er prestur í Grafarvogskirkju og annast einnig enskar messur mánaðarlega í Hallgrímskirkju, segir frá siðbótarmanninum Lúth- er, konu hans Katarínu frá Bora og því umhverfi sem mótaði þau. Fræðslunni verður lokið fyrir messu. Messan og barnastarfið er kl. 11, sr. Birgir Ásgeirsson, predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Maríu Ágústdóttur. Fermingarbörn verða messuþjónar, en Drengjakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar kór- stjóra. Organisti er kantor kirkj- unnar og söngmálastjóri þjóðkirkj- unnar, Hörður Áskelsson. Í Suðursal kirkjunnar verður kaffi í messulok. Kirkjudagurinn í Óháða söfnuðinum Kirkjudagurinn í Óháða söfn- uðinum verður haldinn hátíðlegur á morgun, sunnudag, kl. 14. Kven- félagið verður með sína árlegu kaffisölu að lokinni messu og kost- ar 1.000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn. Þetta er fjöl- skyldumessa, prestur er sr. Pétur Þorsteinsson og mun hann m.a. vera með töfrabrögð. Organisti er Kári Allansson og sér hann um tónlistina ásamt kórnum. Kvennakirkjan í Árbæjarkirkju Kvennakirkjan heldur guðþjón- ustu í Árbæjarkirkju á morgun, sunnud., kl. 20.30. Yfirskrift mess- unnar er: Hann er hún sem kom og frelsar okkur – líka frá streitunni. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar. Frumflutt verður mess- ustef eftir Ragnheiði Ragn- arsdóttur. Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng við undirleik Að- alheiðar Þorsteinsdóttur. Á eftir verður kaffi í safnaðarheimilinu. Fimmtudaginn 18. október kl. 20 verður örþing í Kvennagarði, Laugavegi 59, gengið inn frá Hverfisgötu. Þar verða framhalds- umræður um efni messunnar. Hvað er streitan? Kemur hún að innan eða utan? o.fl. Almennar um- ræður verða um þetta og kaffi. Kvöldmessa í Hásölum Kvöldmessa verður í Hásölum, Strandbergs safnaðarheimilis Hafnarfjarðarkirkju á morgun, sunnudag, kl. 20. Hljómsveitin ,,Léttir strengir“ leikur og syngur undir stjórn Arnar Falkner hljóm- borðsleikara. Messan verður með kaffishúsasniði þar sem setið er við borð og boðið upp á veitingar. Um morguninn kl. 11 fer fram fjöl- skylduhátíð í Hásölum. Fríkirkjan í Reykjavík Í sunnudagsguðsþjónustu Fríkirkj- unnar kl. 14 verður leitað svara við spurningum sem æ fleiri spyrja sig þessa dagana. Hvað veldur því að hefðbundin trúarstofnun skuli ein og sér standa í vegi fyrir jafnræði Guðs barna þegar samfélagið sjálft, Alþingi og guðfræðin mæla með jafnræði? Er Guð í raun jafn afturhaldssamur og kirkjustofn- unin sem telur sig tala í hans nafni? o.fl. Hjörtur Magni Jóhanns- son predikar og þjónar fyrir altari. Tónlist leiða þau Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller. Börnin taka þátt í upphafi guðsþjónust- unnar en síðan mun Nanda Maack, guðfræðinemi og kirkjuvarða, fara með börnin í safnaðarheimilið og leiða þar barnasamveruna í söng og leik. Kvöldmessa í Laugarneskirkju Við kvöldmessu í Laugarneskirkju á morgun, sunnudag, kl. 20 mun Halldór Gylfason leikari segja ög- ursögu úr eigin lífi og frumflytja eigið lag og ljóð. Djasskvartett Gunnars Gunnarssonar leikur en með honum skipa kvartettinn þeir: Matthías M.D. Hemstock á tromm- ur, Sigurður Flosason á saxófón og Tómas R. Einarsson á kontra- bassa. Bjarni Karlsson sókn- arprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Sigurbirni Þorkels- syni meðhjálpara. Messukaffi Gunnhildar Einarsdóttur kirkju- varðar að messu lokinni. Morgunblaðið/Arnaldur Grensáskirkja. KIRKJUSTARF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.