Morgunblaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 49 Toyota Touring 1991 til niðurrifs. Með ónýta tímareim, mjög heillegur bíll að öðru leyti, ekinn u.þ.b. 215 þús. km. Óryðgaður. Er í Reykjavík. Uppl. í síma 471 2027. Toyota LC VX diesel, árg. '99. Ek. 156 þ. km, svartur, leður og rafm. í öllu. Fjarstart. Verðtilboð. Ásett 1990 þ. Uppl.: jgj@snilli.is, 896 8989. MMC Pajero, árg. 1998, upphækkaður 35". Sjálfskiptur, topplúga, góður bíll. Kaldasel, s. 544 4333 og 820 1071. Iveco Eurocard ókeyrður til sölu Með fullt af aukahlutum, glæsilegur bíll. Sími 693 3730. Camac jeppadekk - útsala 235/75 R 15 kr. 7900. 30x9.5 R 15 kr. 8900. Kaldasel ehf, dekkjaverkstæði Dalvegur 16 b, Kópavogur, s. 544 4333. Volvo árg. '05 ek. 41 þús. km Volvo S60 Turbo 20v með ríkulegum aukapakka, t.d. Xenon aðalljós, 13 hátalara hljóðkerfi, fjarlægðar- skynjarar, kastarar, leðuráklæði, litað gler, sætaminni og m.fl. Uppl. í síma 820 6141. Toyota Previa, árg. '04, ek. 70 þús. km. Vel með farinn 7 manna fjöl- skyldubíll. Dökkblár. Kr. 2.350.000. Hagstætt lán getur fylgt með. Uppl. í síma 659 8709. Toyota, árg. '92, ek. 205 þús. km. '92 árg. af ssk. bensínjeppa á 32" dekkjum. Skoðaður '08. Fengið topp- viðhald. Selst ódýrt vegna útlitsgalla. Uppl. í s. 561 5545 e. kl. 17 eða um helgar, Þórður. Nissan Almera, árg. ´00. Ek. 113 þ. km. Yfirtaka á láni. Uppl. í síma 691 5427. 2004 Jeep Grand Cherokee Limited, 4.7L 8 cil., ekinn 39.800 km. með leðri og öllum aukahlutum, Verð staðgr. 2.5 millj. Glæsilegur bíll, uppl. s. 421 3656 og 690 3656. Einar. Bílar FRÉTTIR STJÓRN nýstofnaðs Orkurannsóknasjóðs Lands- virkjunar kom saman í fyrsta sinn 11. október sl. Í fréttatilkynningu segir að markmið sjóðsins séu að auka áhuga vísindamanna og háskólasamfé- lagsins á umhverfis- og orkumálum og hvetja há- skólanemendur til starfsframa á því sviði auk þess að gera framlög Landsvirkjunar til grunnrannsókna sýnilegri. Stofnfé sjóðsins er 100 milljónir króna. Starfsemi sjóðsins má skipta upp í tvo flokka: Annar flokkurinn varðar almennar rannsóknir á sviði umhverfis- og orkumála en úr honum verður úthlutað fé til einstakra rannsóknaverkefna og í námsstyrki til nemenda í framhaldsnámi á há- skólastigi. Hinn flokkurinn tengist grunnrann- sóknum Landsvirkjunar á sviði virkjana- og veitu- framkvæmda. Rannsóknir í þessum flokki eru t.d. lífríkis-, gróður- og efnarannsóknir, jarðfræði-, jarðskjálfta- og háhitarannsóknir, vatna-, veður- og jöklarannsóknir, mannvirkjagerð og orkukerf- isrannsóknir. Auglýst verður eftir umsóknum vegna verkefna og námsstyrkja í nóvember og fyrsta úthlutun úr sjóðnum fer fram í byrjun árs 2008. Stjórn sjóðsins er skipuð sex aðilum. Formaður sjóðsstjórnar er Sveinbjörn Björnsson, eðlisfræð- ingur. Aðrir stjórnarmenn eru Axel Björnsson, pró- fessor í Háskólanum á Akureyri, Sigurður Brynj- ólfsson, prófessor í Háskóla Íslands, Guðrún Gauksdóttir, dósent í Háskólanum í Reykjavík, Óli Grétar Blöndal Sveinsson, deildarstjóri rann- sóknadeildar Landsvirkjunar og Ragnheiður Ólafs- dóttir, umhverfisstjóri Landsvirkjunar. Frá fyrsta fundi Stjórn Orkurannsóknasjóðs LV. Talið frá vinstri: Guðrún Gauksdóttir, Ragnheiður Ólafsdóttir, Sveinbjörn Björnsson, Óli Grétar Blöndal Sveinsson, Axel Björnsson og Sigurður Brynjólfsson. Landsvirkjun stofnar Orkurannsóknasjóð GERVIGREINDARHÁTÍÐ Háskól- ans í Reykjavík verður haldin í Borg- arleikhúsinu í dag, laugardag. Hátíðin verður sett kl. 13. Í fréttatilkynningu segir að margt forvitnilegt verði að sjá, bæði til fróðleiks og skemmtunar. Má þar m.a. nefna að nýkrýndur heimsmeistari í gervigreind, dr. Yngvi Björnsson, heldur erindi um hvernig maður verði heimsmeistari í gervigreind. Fyrirlestur verður um gervigreind í gervilimum. Fyrirlestur um gervigreind í geimnum, Ari K. Jónsson, deildarforseti tölv- unarfræðideildar HR, sem starfaði í 10 ár hjá bandarísku geimferðastofn- uninni, NASA, flytur fyrirlestur um gervigreind í geimnum. Fyrirlestur verður um hvernig gervigreind nýtist í iðnaði og framleiðslu og loks verða tónleikar þar sem landskunnir tónlist- armenn leika tónlist ásamt „vélmenn- um“. Verðlaun verða afhent í gervi- greindarkeppni Háskólans í Reykja- vík (fyrir hagnýtustu, bestu og viða- mestu gervigreindina). Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á slóðinni http://ru.is/?Pa- geID=65&NewsID=1827 Gervigreind- arhátíðin 2007 HÁDEGISFYRIRLESTUR verður í Norræna húsinu, mánudaginn 15. október, kl. 12-13. Alþjóðamálastofnun Háskóla Ís- lands og ASÍS – Asíuver Íslands standa saman fyrir hádegisfyr- irlestri um samskipti Bandaríkj- anna og Kína. Dr. Henry Rose- mont, Jr. flytur erindi sem ber heitið „Bandaríkin og Kína – hver ógnar hverjum?“ (The US and China – Who Threatens Who?). Erindið verður haldið á ensku. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Bandaríkin og Kína – hver ógnar hverjum? Hörður er Arnarson Hörður Arnarson, forstjóri Marel Food Systems, var ranglega sagður Árnason í frétt á viðskiptasíðu blaðs- ins í gær og er beðist velvirðingar á þeim mistökum. LEIÐRÉTT ♦♦♦ EITT ár er síðan IKEA opnaði stór- verslun sína í Kauptúni í Garðabæ og varð þar með fyrst fyrirtækja til að hefja starfsemi á svæði sem hefur verið sérstaklega skipulagt fyrir verslunarrekstur á þessum stað sunnan Reykjanesbrautar. Í fréttatilkynningu segir að það hafi þótt stórhuga skref og ekki laust við áhættu að flytja starfsemina úr Holtagörðum yfir í Garðabæ. Við- tökur neytenda hafa hins vegar farið fram úr björtustu vonum. Í tilefni þess að IKEA hefur nú verið í eitt ár í Kauptúni og til að þakka fyrir frábærar móttökur ætl- ar starfsfólk IKEA að gera sér og viðskiptavinum dagamun í dag, laug- ardaginn 13. október, kl. 10-18, og á sunnudag, 14. október, kl. 12-18. Ýmislegt verður gert til skemmtun- ar fyrir börnin, Lína langsokkur og Emil í Kattholti koma í heimsókn, andlitsmálun verður í boði, trúðar skemmta og fjörið liggur í loftinu. Auk þess verður öllum boðið í ókeyp- is morgunmat; á laugardeginum kl. 9-11 og á sunnudeginum kl. 11-12. IKEA fagnar árs- afmæli í Garðabæ IÐNAÐARÁÐUNEYTIÐ auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átak til atvinnusköp- unar. Veittir eru styrkir til smærri viðfangsefna og vegna snjallra ný- sköpunarhugmynda. Fimmtíu milljónir króna voru til ráðstöf- unar á þessu ári en samkvæmt fjárlögum verður 75 milljónum króna úthlutað á næsta ári. Í fréttatilkynningu segir að iðn- aðarráðherra hafi ákveðið að „Átak til atvinnusköpunar“ verði rekið með svipuðu sniði og und- anfarin ár. Starfsreglur verða óbreyttar og verður stuðningur fyrst og fremst veittur verkefnum sem leitt geta til nýsköpunar í at- vinnulífinu og falla ekki undir verksvið annarra sem veita sam- bærilega fyrirgreiðslu. Lögð er áhersla á að „Átak til atvinnusköp- unar“ verði kynnt á vettvangi at- vinnuþróunarfélaganna í þeim til- gangi að það nýtist sem best þeim byggðarlögum sem orðið hafa fyrir áföllum vegna skertrar aflaheim- ilda og byggðaröskunar. Ráðuneytið hefur gert samning um rekstur „Átaks til atvinnusköp- unar“ við IMPRU – þjónustumið- stöð fyrir frumkvöðla og lítil og meðalstór fyrirtæki – hjá Nýsköp- unarmiðstöð Íslands. Átak til atvinnusköpunar Á FUNDI bæjarstjórnar Horna- fjarðar 4. október er ítrekuð fyrri ályktun um björgunarþyrlu og þeim eindregnu tilmælum beint til yfir- valda að björgunarþyrla verði stað- sett á Hornafirði. „Ferjuflugvélar hafa oft viðkomu á Hornafirði, enda gegnir flugvöll- urinn mikilvægu hlutverki fyrir þær. Frá Hornafirði er stutt á fjölfarna ferðamannastaði og ætla má að á næstu árum muni verða mikil aukn- ing ferðamanna á svæðinu í tengslum við stofnun Vatnajökuls- þjóðgarðs. Í ljósi umræðu undanfarið um aukið eftirlit með ferðum skipa og flugvéla til landsins teljum við að gera þurfi endurbætur á öryggis- og eftirlitsþáttum á Hornafjarðarflug- velli svo hægt sé að taka á móti minni farþegavélum og ferjuflugvél- um auk þess að björgunarþyrla sé staðsett á svæðinu svo björgunar- og eftirlitsmál séu viðunandi,“ segir í bókun bæjarstjórnar Hornafjarð- ar. Björgunarþyrla verði staðsett á Hornafirði                   !" # $% % &      '                                                      
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.