Morgunblaðið - 13.10.2007, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 51
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Félag eldri borgara í Kópa-
vogi | Opið hús í félagsheim-
ilinu Gjábakka 13. október kl.
14, upplestur, sitt af hverju
tagi, kaffi og harmoniku-
leikur.
Félag eldri borgara, Reykja-
vík | Menningarhátíð FEB í
Borgarleikhúsinu 16. október
kl. 14, uppl. og miðasala í
Borgarleikhúsinu s. 568-
8000 og á skrifstofu FEB s.
588-2111. Námskeið í fram-
sögn hefst 23. október, leið-
beinandi Bjarni Ingvarsson,
skráning á skrifstofu FEB.
Félagsheimilið Gjábakki |
Krummakaffi kl. 9. Hana-nú-
ganga kl. 10. Fræðsluerindi
um heyrnarskerðingu og
heyrnartæki verður 16. okt.
kl. 20 og er á vegum
íþróttafélagsins Glóðar.
Félagsstarf Gerðubergs |
Alla virka daga er fjölbreytt
dagskrá m.a. opnar vinnu-
stofur, spilasalur, sungið,
dansað o.fl. Veitingar í há-
degi og kaffitíma í Kaffi
Bergi. Á föstud. kl. 10.30 er
leikfimi, Ringó-boltaleikur
o.fl. í Íþróttahúsi ÍR við
Skógarsel. Vetrardagskráin
er komin út. S. 575-7720.
Hæðargarður 31 | Göngu-
ferðir, Müllersæfingar, gler-
list, styrktarþjálfunarhópur í
World Class, almenn leikfimi,
thai chi, útskurður, flos,
postulín, bókmenntahópur,
bútasaumur, línudans,
pakkaskreytingar, myndlist,
söngur, skartgripagerð, fé-
lagsvist, magadans, skraut-
skrift, tölvufræðsla. S. 568-
3132.
Kirkjustarf
Aglow | Aglow Akureyri
verður með fund í þjónustu-
miðstöðinni, Víðilundi 22,
mánudaginn 15. október kl.
20. Ræðumaður verður
Laufey Birgisdóttir, starfs-
maður Actavis.
90ára afmæli. IngibjörgBjörnsdóttir frá Stóru-
Seylu, Æja, verður níræð 16.
október nk. Hún verður í dag
á heimili frænku sinnar, Önnu
Halldórsdóttur, í Furuhlíð 7 á
Sauðárkróki, þar sem ætt-
ingjar hennar og vinir fagna
tímamótunum með henni.
40ára afmæli. Petrea Kr.Friðriksdóttir verður
fertug sunnudaginn 14. októ-
ber. Af því tilefni ætlar hún að
taka á móti gestum á Classic
Rock í Ármúla 5 í kvöld, laug-
ardagskvöldið 13. október, frá
kl. 21 og vonast til að sjá sem
flesta.
dagbók
Í dag er laugardagur 13. október, 286. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Sá sem trúir á mig, – frá hjarta hans munu renna lækir lifandi vatns, eins og ritningin segir. (Jh. 7, 38.)
Matvæla- og næring-arfræðafélag Íslandsheldur árlega ráðstefnufélagsins á Matvæladegi
MNÍ næstkomandi þriðjudag á Grand
Hótel Reykjavik.
Ráðstefnan ber yfirskriftina Hver
ræður hvað þú borðar? – Þekking á
matvælum, upplýsingar og val.
„Við viljum vekja athygli á að þekk-
ing og fræðsla er undirstaðan til að
geta vegið og metið, og valið úr því
flóði upplýsinga sem við höfum aðgang
að á degi hverjum um matvæli, nær-
ingu og heilsu,“ segir dr. Guðrún
Ólafsdóttir, einn af skipuleggjendum
ráðstefnunnar. „Mikill áhugi og um-
ræða um mataræði og lýðheilsu teng-
ist m.a. því að vísindaleg rök liggja
fyrir um þátt fæðis og fæðuefna í m.a.
hjarta- og æðasjúkdómum, krabba-
meini og offitu. En rannsóknir eru í
mörgum tilfellum stutt á veg komnar
og oft er einungis um að ræða vís-
bendingar um jákvæð áhrif einstakra
efna en ekki er vitað um heildaráhrif
mataræðis á einstaklinginn. Þetta
veldur að sjálfsögðu ruglingi fyrir
neytendur og oft á tíðum fölskum
væntingum um töfralausnir.“
Á ráðstefnunni verða flutt marg-
vísleg erindi um matvælaval og þekk-
ingu: „Fjallað verður um hvað hefur
haft áhrif á breytingar í mataræði
undanfarandi ár, ábyrgð framleiðenda,
upplýsingamiðlun um samsetningu
matvæla og hvort merkingar auðveldi
val á hollu fæði,“ segir Guðrún. „Einn-
ig um mikilvægi menntunar á hollustu
og næringu ásamt umfjöllun um nær-
ingu barna í leikskólum og skólum og
að lokum viðhorf neytenda.“
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er
Richard Shepherd, prófessor við Há-
skólann í Surrey á Bretlandi: „Hann
mun fjalla um rannsóknir sem leitast
við að útskýra þá þætti sem hafa áhrif
á fæðuval og hegðun neytenda, t.d. að
hvaða marki aldur, uppeldi og fræðsla,
auglýsingar og kynningar hafa þar
áhrif,“ útskýrir Guðrún. Einnig mun
Richard segja frá rannsóknum á við-
horfum neytenda varðandi m.a. lífrænt
ræktaðar afurðir og hvaða upplýs-
ingum neytendur treysta þegar kemur
að öryggi matvæla.“
Finna má nánari upplýsingar um
dagskrá og skráningu á heimasíðu
Matvæla- og næringarfræðafélagsins
á slóðinni www.mni.is.
Heilsa | Ráðstefna um þekkingu á matvælum á Matvæladegi MNÍ
Hver ræður hvað þú borðar?
Guðrún Ólafs-
dóttir lauk BS-
námi í matvæla-
fræði frá HÍ 1980,
MS-námi frá Há-
skólanum í Wis-
consin í Bandaríkj-
unum 1985 og
dokotorsprófi frá
Háskóla Íslands
2005. Hún starfaði sem sérfræðingur
hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
undanfarin 18 ár, og er nú sjálfstætt
starfandi fræðimaður með aðstöðu við
HÍ. Guðrún er gift Magnúsi Sigurðs-
syni efnaverkfræðingi og eiga þau
þrjú börn.
Skemmtanir
Húnabúð | Dansleikur í kvöld kl. 22-2.
NASA | DJ Páll Óskar spilar í kvöld kl. 23-
5.30. Hann mun spila klassísk partílög alla
nóttina og syngja lögin sín m.a. „Int-
ernational“ og „Allt fyrir ástina“.
SÁÁ félagsstarf | Félagsvist og dans verður
í Von, Efstaleiti 7 í dag, laugardag, 13. októ-
ber. Vistin hefst kl. 20 og dans að henni lok-
inni fram eftir nóttu.
Tónlist
Bar 11 | Fist Fuckers og The Frontiers koma
fram kl. 23.
Höfn | Landsmót skólalúðrasveita fer fram á
Höfn í Hornafirði dagana 12.-14. október. Tón-
leikar verða sunnudaginn 14. okt. kl. 10 í
íþróttahúsinu. Þar munu 550 krakkar koma
fram í fimm mismunandi hljómsveitum.
Norræna húsið | Tónlistarskólinn í Reykjavík
stendur fyrir kammertónleikaröð í vetur.
Fyrstu tónleikar ársins í þessum flokki verða
í dag kl. 14. Nemendur spila verk eftir skand-
inavísku tónskáldin Grieg, Sibelius og Niel-
sen.
Safnaðarheimilið Kirkjuhvoll | Vídalínskirkju
í Garðabæ. Bjarni Thor Kristinsson bassi og
Gerrit Schuil píanóleikari halda ljóðatónleika
kl. 17. Þetta eru þriðju tónleikarnir í röðinni
Ljóðasöngur á hausti.
Frístundir og námskeið
www.ljosmyndari.is | Tveggja daga ljósmynd-
anámskeið á Hótel Hvolsvelli 7. og 8. nóv. kl.
18-22. Fyrir byrjendur og lengra komna. Far-
ið er í stillingar á myndavélinni. Myndatökur
og tölvumálin útskýrð. Verð kr. 12.900. Leið-
beinandi Pálmi Guðmundsson, gsm 898-3911.
Nánar uppl. og skráning á www.ljosmynd-
ari.is.
Myndlist
Vor | Ása Óla opnar málverkasýningu á
morgun, sunnudag, kl. 16. Þetta er fyrsta
sýning hennar eftir nám en hún útskrifaðist
úr Myndlistaskólanum á Akureyri vorið
2007. Sýningin stendur til 11. nóvember.
Fyrirlestrar og fundir
Skriðuklaustur | Aino Grib frá Norður-
Noregi heldur fyrirlestur sunnudaginn 14.
október kl. 15 um lífið á Svalbarða. Einnig
mun hún sýna dvd-mynd er lýsir lífinu, nátt-
úrunni og stemningunni á Svalbarða.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í Breiðfirð-
ingabúð, Faxafeni 14, sunnudaginn 14. októ-
ber kl. 14. Fyrsti dagur í þriggja daga keppni.
Börn
Áttun | Námskeið um gildin í fjölskyldunni
verður haldið laugardaginn 20. október kl.
10-17 í Bolholti 4, 4. hæð t.v. Skráning
info@life-navigation.com /663-8927.
MIKIÐ hefur verið rætt um fjölda hermanna (og ekki-hermanna) í Írak en minna hefur
verið fjallað um þá herhunda sem þangað hafa verið sendir. Þessi meðlimur Bandaríkja-
hers hefur sérhæft sig í að þefa uppi sprengjur og leitar nú að þeim í borginni Nawhwan.
En hvernig lykta sprengjur? Hvernig er lyktin af Írak? Um það er þessi seppi sérfróður.
Allt í hers hundum
LANDSSÖFNUN Kiwanismanna fór fram um land allt dagana 4.–7.
október. Kjörorð söfnunarinnar var Lykill að lífi.
Alcan styrkti Kiwanis um 308 þúsund krónur og afhenti Rann-
veig Rist forstjóri Alcan á Íslandi Gylfa Ingvarssyni umdæmisstjóra
Kiwanisumdæmisins Ísland-Færeyjar styrkinn í Straumsvík
Kiwanismenn styrktir
LANDSSÖFNUN Kiwanis-
hreyfingarinnar til styrktar geð-
sjúkum og aðstandendum
þeirra, Lykill að lífi, lauk sunnu-
daginn 7. október. Bernhard Jó-
hannesson, formaður K-dags-
nefndar, segir ljóst að þjóðin hafi
brugðist mjög vel við kalli Kiw-
anis-manna og þakkar stuðning-
inn.
Allir Kiwanis-menn sem vett-
lingi gátu valdið gengu í hús og
verslunarmiðstöðvar um land
allt dagana 4.-7. október með
góðri aðstoð annars sölufólks,
auk þess sem K-lykillinn var
seldur í Bónusverslunum og á
þjónustustöðvum Olís. Söfnun-
arféð rennur til Geðhjálpar,
BUGL og Forma. Enn liggur
ekki fyrir hversu mikið fé safn-
aðist en söfnunarféð verður af-
hent um miðjan nóvember.
Sparisjóðirnir á Íslandi,
Toyota, Olís og Bónus voru bak-
hjarlar verkefnisins og Spari-
sjóðirnir á Íslandi eru jafnframt
fjárvörsluaðili söfnunarinnar.
Landssöfnun Kiwanis lokið
FYRIRHUGAÐ er að bjóða uppá námskeið dagana 25. okt.–27. okt.
fyrir hjón og sambúðarfólk í fallegu umhverfi á Hótel Glymi í Hval-
firði. Fjallað verður um hjónabandið, að vera með langvinnan sjúk-
dóm, vonir væntingar, vonbrigði, gleði. Einnig verður rætt um leið-
ir til þess að efla samskipti innan fjölskyldunnar og njóta
sambandsins enn frekar.
Leiðbeinendur eru Margrét Sigurðardóttir og Sigríður Anna
Einarsdóttir félagsráðgjafar, báðar með sérmenntun í hjóna- og
fjölskyldumeðferð. Upplýsingar fást hjá MS-félaginu í síma 568-
8620 Ingdísi og Önnu í síma 861-5407.
Námskeið fyrir pör
á vegum MS-félagsins
BERGMÁL líknar- og vina-
félag verður með opið hús
sunnudaginn 14. október kl.
16 í Blindraheimilinu í
Hamrahlíð 17, 2. hæð.
Elín og Elísabet Eyþórs-
dætur syngja og leika á gít-
ar. Hildur Friðriksdóttir
leikur á harmonikku og
stjórnar fjöldasöng. Matur
verður að hætti Bergmáls.
Upplýsingar og skráning
hjá Ernu Marteinsdóttur í
síma: 557-6546 og hjá Þór-
önnu Þórarinsdóttur í síma:
568-1418/820-4749.
Opið hús
hjá Berg-
máli
TRYGGVI Helgason barna-
læknir heldur erindi um offitu
barna hjá Manni lifandi, Borg-
artúni 24, þriðjudaginn 16.
október kl. 17.30-19.
Tryggvi mun ræða um offitu
barna og fjalla bæði um orsakir
og ekki síður afleiðingar offtu á
börnum og síðar meir á fullorð-
insárum.
Ennfremur mun hann ræða
hvað er til ráða og hvernig
hægt er að sveigja aftur inn á
rétta braut ef þyngd barnsins
stefnir í óefni. Nægur tími verð-
ur fyrir umræður.
Fyrirlestur um offitu barna
VEGNA fréttar af forritanlegum
dælulykli frá Atlantsolíu til að
koma í veg fyrir mistök við dæl-
ingu, þ.e. dæla rangri eldsneyt-
istegund, sem kynnt var nýlega,
vill Stefán Karl Segatta, fram-
kvæmdastjóri neytendasviðs
Skeljungs, taka fram að við-
skiptakort Skeljungs, sem
standa öllum viðskiptavinum til
boða, eru og hafa verið forrit-
anleg um langt árabil, eða síðan
2003. Það sé því ekki rétt að
þessi tæknimöguleiki sé nýlunda
hér á landi.
Athuga-
semd frá
Skeljungi
FÉLAGSFUNDUR Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í
Borgarbyggð skorar á Alþingi að fella nú þegar úr gildi heimild í
fjárlögum til að selja hlut ríkisins í Hitaveitu Akraness og Borg-
arfjarðar.
Það er Borgfirðingum afar mikilvægt að ráða þeim náttúruauð-
lindum sem gera Borgarfjörð jafn fýsilegan búsetukost og raun ber
vitni en Deildartunguhver og önnur hitaréttindi HAB í Borgarfirði
verði ekki leiksoppar markaðsaflanna líkt og gerst hefur á Suð-
urnesjum, segir í fréttatilkynningu.
Hlutur í HAB ekki seldur