Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 26
neytendur 26 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Bónus Gildir 1. nóv. – 4. nóv. verð nú verð áður mælie. verð Ali ferskar svínalundir ........................... 999 1.499 999 kr. kg Holta ferskar kjúklingabringur ................ 1.445 1.926 1.445 kr. kg Holta fersk kjúklingalæri ....................... 363 484 363 kr. kg Holta ferskir kjúklingaleggir ................... 363 484 363 kr. kg KB íslenskt 100% nautahakk ................ 799 1.176 799 kr. kg KS fersk lambalæri .............................. 844 1.168 844 kr. kg KS ferskur lambahryggur ...................... 1.049 1.259 1.049 kr. kg KF folaldakjöt saltað ............................ 383 573 383 kr. kg Íl. ferskt kryddað úrb. lambalæri ............ 1.499 2.248 1.499 kr. kg Íl. ferskur kryddaður úrb. lambabóg ....... 1.049 1.618 1.049 kr. kg Fjarðarkaup Gildir 1. okt. – 3. nóv. verð nú verð áður mælie. verð Folaldabuff barið, kjötborð.................... 1.198 1.478 1.198 kr. kg Folaldagúllas, kjötborð ......................... 1.098 1.378 1.098 kr. kg Fjallalambs súpukjöt, frosið .................. 473 591 473 kr. kg FK hamborgarhryggur ........................... 998 1.398 998 kr. kg FK bayonneskinka................................ 998 1.428 998 kr. kg Nauta rib-eye, kjötborð......................... 2.298 2.998 2.298 kr. kg Matfugl grillaður kjúklingur.................... 598 798 598 kr. kg Chicago Town pitsa, 475 g.................... 389 689 389 kr. stk. Byllis pan pitsa, 170 g ......................... 169 198 169 kr. stk. 2x115 g hamborgarar m/brauð ............ 298 350 298 kr. pk. Krónan Gildir 1. nóv. – 4. nóv. verð nú verð áður mælie. verð Kea lambahryggur, léttreyktur ............... 1.248 1.795 1.248 kr. kg Lambagrillleggir ................................... 689 989 689 kr. kg Goða medisterpylsa ............................. 529 778 529 kr. kg Gríms gratin. ýsa mexíkó/brokk., 400 g . 298 372 745 kr. kg Goða hamborgarar 80 g, 10 stk. ........... 648 937 65 kr. stk. Freschetta Napoli 3 teg., 300 g............. 249 328 249 kr. stk. Mr. Bagels 3 teg., 595 g....................... 199 239 334 kr. kg Gulrætur, Fljótshólar, 620 g .................. 99 149 160 kr. kg Líf smjörlíki, 2 fyrir 1, 500 g .................. 179 179 90 kr. stk. Super þvottaefni, 3 kg.......................... 399 499 133 kr. kg Nóatún Gildir 1. nóv. – 4. nóv. verð nú verð áður mælie. verð Folaldafille .......................................... 1.798 2.798 1.798 kr. kg Folaldagúllas....................................... 998 1.498 998 kr. kg Folaldahakk ........................................ 198 379 198 kr. kg Folalda piparsteik ................................ 1.798 2.898 1.798 kr. kg Folalda innralæri ................................. 1.298 2.498 1.298 kr. kg Folaldasnitsel...................................... 1.298 1.698 1.298 kr. kg Ýsa m/hvítlauks & rjómaosti ................. 998 1.269 998 kr. kg Myllu Brallarabrauð, 770 g ................... 149 229 193 kr. kg Ömmubakstur pönnukökur, 480 g ......... 398 479 829 kr. kg Góu Flórídabitar, 230 g ........................ 189 240 821 kr. kg Samkaup/Úrval Gildir 1. nóv. – 4. nóv. verð nú verð áður mælie. verð KEA hangiframpartur, sagaður............... 719 898 719 kr. kg Goði gourmet ofnsteik, villikrydduð........ 1.299 1.862 1.299 kr. kg Borgarnes pylsur, pólskar ..................... 569 876 569 kr. kg Matfugl kjúklingabringur, magnkaup ...... 1.878 2.515 1.878 kr. kg Borgarnes víkinga lambalæri m/kókos... 1.498 1.998 1.498 kr. kg Egils pepsi max, 2 ltr............................ 99 172 45 kr. ltr Toppur sítónu, 1,5 ltr............................ 99 150 66 kr. ltr Hatting ostabrauð, 2 stk. í pakka........... 199 278 199 kr. pk. Blómkál erlent ..................................... 239 449 239 kr. kg Appelsínur .......................................... 99 148 99 kr. kg Þín Verslun Gildir 1. nóv. – 4. nóv. verð nú verð áður mælie. verð Emmess Lúxus skafís, 1 ltr, 3 teg........... 399 569 399 kr. ltr Eðal hangikjötssalat, 200 g .................. 238 297 1.190 kr. kg Borgarnes Grísk lambalærissteik ........... 2.031 2.539 2.031 kr. kg Maryland kex, 150 g, 4 teg. .................. 69 85 460 kr. kg Ömmu pönnukökur, 480 g.................... 479 589 998 kr. kg Rice Krispies, 450 g............................. 309 359 687 kr. kg Pepsi, 2 ltr .......................................... 109 167 55 kr. ltr Ávaxtatoppur, 0,5 ltr, 3 teg. .................. 79 112 158 kr. ltr Freyju Rískubbar, 340 g ....................... 369 469 1.086 kr. kg Dalfour sulta 284 g jarðarb/4 fruits....... 229 342 806 kr. kg helgartilboðin Folaldakjöt og kjúklingur í hversdagsmatinn V eita þarf neytendum sams konar vernd í viðskiptum, hvort sem þeir eru að versla í verslunum, í gegnum síma eða á netinu, jafnt innan- lands sem utan. Opnir markaðir án landamæra kalla á aukna sam- vinnu neytendayfirvalda í mismun- andi löndum í ljósi þess að neyt- endamál eru sífellt að verða alþjóðlegri. Mikilvægt er að veita neytendum aðgang að þessum nýju mörkuðum, ekki síst á fjár- málasviðinu,“ segir sænski lög- fræðingurinn Liselotte Widing, sem hefur búið og starfað á Ís- landi undanfarin tíu ár. „Ég bara kolféll fyrir Íslandi. Málið er ekkert flóknara en það. Ég kom fyrst til Íslands sumarið 1993 til að afla gagna fyrir nor- rænt verkefni um neytendatrygg- ingar. Ég notaði tækifærið til að skoða mig um í nokkra daga og þar sem ég sat eitt sinn uppi á einhverju íslensku fjalli í þessari ferð minni sannfærðist ég um að ég hefði hreinlega fæðst í vitlausu landi. Tengingin við landið var svo sterk þarna strax,“ segir Lise- lotte, sem svo afréð á haustmán- uðum 1997 að pakka niður vinnu- tölvunni sinni, fötunum og búslóðinni og flytja til Íslands eft- ir að hafa sótt landið heim nokkr- um sinnum í millitíðinni enda seg- ist hún frá fyrstu kynnum við landið hafa verið haldin stöðugri heimþrá til Íslands. „Mér bauðst svo árið 1995 að taka við starfi á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar við að sjá um samstarf Norðurlandaþjóða á neytendasviði og þá sá ég tæki- færi í því að geta allt eins búið á Íslandi og hvar annars staðar á Norðurlöndunum. Ég fluttist því hingað hinn 5. október 1997 og átti nýlega tíu ára búsetuafmæli á Íslandi,“ segir hinn sænskættaði lögfræðingur, sem nú talar orðið góða íslensku, sem hún lærði m.a. í Háskóla Íslands. „Ég ákvað það strax þegar ég flutti til Íslands að ég skyldi bara tala íslensku en ekki ensku. Þetta hefur gengið ágætlega þó að íslenska málfræðin sé svo sem ekkert lamb að leika sér við.“ Kynntist ástinni veðurteppt Liselotte á sér nú orðið íslensk- an sambýlismann, Stein Frið- geirsson, sem hún hitti á Kaffi Reykjavík fyrir sjö og hálfu ári eftir að hafa leitað þar skjóls í brjáluðu veðri sem gerði í borg- inni eitt laugardagskvöld í febr- úarmánuði. „Þetta var mjög óvenjulegt ástand, en það gerði hreint út sagt svo gjörsamlega arfavitlaust veður að það þurfti að kalla út björgunarsveitir til að koma fólki úr miðborginni. Ég hafði verið að vinna á skrifstof- unni minni við Lækjargötu og var á leið heim á Öldugötu fótgang- andi þegar ég gafst upp og leitaði skjóls á barnum á Kaffi Reykjavík og pantaði mér kakóbolla til að ylja mér. Stuttu síðar kom maður inn um dyrnar og ég man að ég hugsaði með mér að þessi maður hlyti að vera góður maður. Nokkr- um andartökum síðar var hnippt í mig og maðurinn spurði hvort hann mætti setjast hjá mér. Síðan höfum við verið saman,“ segir Liselotte og brosir breitt yfir end- urminningunum. „Við byrjuðum að búa á Öldugötu, fluttum okkur svo upp á Vatnsenda til að komast í sveitaumhverfi, en svo var byrjað að byggja allt í kringum okkur þar svo við fluttum upp á Skeggjastaði í Mosfellsdal með hestana, sem segja má að séu okk- ar gæludýr. Ég hef alltaf haft áhuga á hestamennsku, en eign- aðist ekki mína eigin hesta fyrr en á Íslandi. Og það eru mikil for- réttindi að fá að búa í stórbrotinni og ósnortinni náttúru, geta riðið út og gengið á fjöll eftir vinnu, en vera ekki nema 20 mínútur í vinn- una og borgarmenninguna. Þetta er algjör gullmoli,“ segir Lise- lotte, sem starfaði í ellefu ár eða til síðustu áramóta fyrir Norrænu ráðherranefndina, en hún vinnur nú sem verkefnisstjóri við innleið- ingu svokallaðs Leiðarkerfis neyt- enda á vegum talsmanns neyt- enda. Gert er ráð fyrir að þetta kerfi komist í gagnið um næstu áramót. Gagnvirk þjónustuvefgátt „Kerfinu er ætlað að vera upp- lýsingavefgátt þar sem neytendur munu geta leitað réttar síns og væntanlega leyst úr málum í sem flestum tilvikum án þess að þurfa að snúa sér annað. Neytendum verður gert kleift á einu og sömu vefgáttinni að kanna rétt sinn, fá ráðgjöf, aðstoð við að skrifa kvört- unarbréf og aðstoð við að skjóta máli til úrlausnar hjá réttum að- ilum. Leiðir neytendakerfisins voru til að byrja með kortlagðar og eru svo að þróast í þjónustu- gátt, sem byggist á stöðluðum raf- rænum eyðublöðum, skönnuðum viðhengjum og rafrænni greiðslu málskotsgjalds auk þess sem því er ætlað að veita úrlausn frá fyr- irliggjandi stofnunum og úrlausn- araðilum,“ segir Liselotte. „Það þykir ófínt að kvarta á Íslandi“ Morgunblaðið/Eggert Neytendaréttarfræðingurinn. Fólk leitar þangað sem það fær góða þjónustu, segir Liselotte Widing. Hestakonan „Það eru forréttindi að geta riðið út og gengið á fjöll eftir vinnu, en vera ekki nema tuttugu mínútur í borgarmenninguna,“ segir Liselotte, sem hér nýtur kyrrðar með Bakkakotsblésa, en á auk þess Geisla gamla og Þyt. Sænski lögfræðing- urinn og neytendarétt- arsérfræðingurinn Liselotte Widing kolféll fyrir Íslandi við fyrstu sýn. Hún er handviss um að hún hafi fæðst í „vitlausu“ landi enda er hún löngu flutt til Ís- lands og nýtur nú sveitaloftsins uppi í Mosfellsdal. Hún sagði Jóhönnu Ingvarsdótt- ur að neytendavitund Íslendinga mætti hins- vegar batna til muna. „Væluskjóður“ eiga oft ekki upp á pallborðið í verslunum og því hefur lenskan verið sú að menn bara bíta á jaxlinn og borga, henda „ónýta“ draslinu, sem ekki virkar, og kaupa nýtt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.