Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Sigrúnu Birnu Birnisdóttur í Ósló sibb@mbl.is FRAM kom á borgarafundi utanrík- isráðherra fjögurra Norðurlanda um hnattvæðingu í Ósló í Noregi í gær að þeir telji Norðurlandabúa helst geta miðlað umheiminum af tækni- þekkingu sinni og lýðræðishefð. Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sagði farsímatæknina vera gott dæmi um framlag Norðurlandanna til hnattvæðingarinnar og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráð- herra Íslands, sagðist telja að Ís- lendingar gætu fyrst og fremst miðl- að tækniþekkingu sinni og reynslu af ábyrgri nýtingu auðlinda. Nefndi hún þrjár auðlindir sem Íslendingar hefðu reynslu af að nýta með ábyrg- um hætti, þ.e. fiskafla, jarðvarma og kraft kvenna. Ingibjörg sagði hefð fyrir því á Norðurlöndum að nýta kraft kvenna sem í mörgum löndum lægi ónýttur og því gætu Norðurlöndin ekki síður unnið umheimin- um gagn með því að miðla þeirri reynslu sinni en tækniþekkingu. Þá var hún spurð að því á fundinum hvort hún teldi kvenlega reynslu sína og störf með Kvennalistanum koma að gagni í starfi sínu nú og þá sérstaklega með tilliti til umhverfismála og hnattvæð- ingar. Sagðist hún sjálf hafa velt þessu talsvert fyrir sér að undan- förnu og enn vera að leita leiða til að nýta reynslu sína sem best í nýju starfi. Ingibjörg sagði einnig að þrátt fyrir að samskipti ólíkra menningar- heima ættu sér langa sögu væru þær samfélagsbreytingar sem nú væru að eiga sér stað í heiminum í grund- vallaratriðum frábrugðnar hnatt- væðingu fyrri tíma. Þá hefði hnatt- væðing falist í því að fólk flytti búferlum og yfirgæfi þannig þau samfélög sem það hefði búið í. Nú ættu breytingarnar sér hins vegar stað innan hvers samfélags og því hefðu íbúar þess ekki val um það hvort þeir tækju þátt í þeim eða ekki. Ilkka Kanerva, utanríkisráðherra Finnlands, og Jonas Gahr Støre, ut- anríkisráðherra Noregs, tóku í sama streng og sögðu það vera í okkar höndum að skapa hnattvæðingu nú- tímans. Kanerva sagði tímabært að endurskilgreina velferð og lífsgæði í ljósi umræðu um umhverfis- og lofts- lagsmál og spurði m.a. hvort mögu- legt væri að bæta lífsgæði með mengun umhverfisins. Støre sagði hnattvæðinguna í raun ekki enn vera orðna til. „Við lifum öll í staðbundnu umhverfi,“ sagði hann. „Við þurfum því að búa hnattvæðinguna til sjálf. Við þurfum að þróa tilfinningu okkar fyrir henni og gera hana að þeim raunverulega þætti í lífi okkar sem við viljum að hún sé.“ Miðla af tækniþekk- ingu og lýðræðishefð Utanríkisráðherrar Norðurlanda á fundi um hnattvæðingu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir VERSLUNARMENN eru að kom- ast á lokasprettinn við undirbúning að mótun kröfugerðar skv. upplýs- ingum Gunnars Páls Pálssonar, for- manns VR. Kjaraáherslur verslun- armanna ber hæst á sambandsþingi Landssambands íslenskra verslun- armanna sem fer fram á morgun. Þing LÍV hefur æðsta vald í öllum málum sambands verslunarfólks. Í framhaldi af því ættu beinar við- ræður við viðsemjendur verslunar- fólks að hefjast af fullum krafti. Hefur verið skipuð sameiginleg samninganefnd VR og LÍV eins og í síðustu samningum. Viðræðuáætlun gerir ráð fyrir að nóvembermánuður verði notaður í viðræður um kaupliði og er mark- miðið að ljúka samningsgerð fyrir miðjan desember. Hafi samningar ekki komist á fyrir 31. desember er hvorum aðila heimilt að fela rík- issáttasemjara stjórn viðræðna. Í launakönnun sem VR gerði meðal félagsmanna vegna undirbún- ings samninga kemur m.a. fram að munurinn á raunlaunum verslunar- manna og þeim launum sem þeir telja vera sann- gjörn er 20%. Töluverður mun- ur er á kynjum hvað þetta varð- ar. Óskalaun karla eru að með- altali 467 þúsund en kvenna 374 þúsund. Karlar segja að sann- gjörn laun fyrir þeirra vinnu séu 23% hærri en raunveruleg laun þeirra en hjá kon- unum er þetta hlutfall 19%. Mun- urinn á óskalaunum karla og kvenna er því 20% en til saman- burðar er 18% munur á heildarlaun- um kynjanna. Kröfur Samiðnar í næstu viku Viðræður verkalýðsfélaga í ASÍ og atvinnurekenda um kjarabreyt- ingar og launaliði samninga hefjast á allra næstu dögum og vikum. Skv. viðræðuáætlun Samiðnar og SA munu formlegar viðræður hefjast í byrjun næstu viku og verður kröfu- gerð Samiðnar lögð þar fram. LÍV undirbýr kröfugerð á þingi Gunnar Páll Pálsson 20% munur óskalauna og raunlauna í VR SAKBENDING fór fram í gær í nauðgunarmálinu sem lögreglan á Selfossi hefur nú til rannsóknar og var það tæknideild lögreglu höfuð- borgarsvæðisins sem annaðist fram- kvæmdina. Sakbending er ein þeirra rannsóknaraðferða sem unnt er að beita í sakamálum þó sjaldgæf sé. Gekk hún greiðlega að sögn lög- reglunnar á Selfossi en niðurstöður hennar verða ekki gerðar opinberar að svo stöddu. Maðurinn sem handtekinn var í fyrradag vegna rannsóknar málsins var látinn laus í gær ásamt einum hinna þriggja manna, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi frá því á sunnudag. Lögregluskýrslur voru teknar í gær, en í fyrradag voru teknar 15 skýrslur af vitnum og grunuðum. Tveir menn eru því eftir í gæslu- varðhaldi og verður tekin afstaða til þess hvort krafist verður áfram- haldandi gæslu í dag, fimmtudag, þegar gæsluvarðhald þeirra rennur út. Tveimur var sleppt lausum FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is MEÐ AUKNUM fjölda útlend- inga sem starfa tímabundið hér á landi hefur venju fremur borið á vandkvæðum við innheimtu eftir á lagðra opinberra gjalda og eins við fullnustu refsinga vegna opinberra dómsmála. Slík tilvik geta komið upp þegar erlendir starfsmenn eru skráðir til lögheimilis hér á landi en farnir til síns heima – án þess að vera afskráðir úr kerfinu. Í Lögbirtingablaðinu nýverið var birt fyrirkall vegna máls sem höfðað var á hendur karlmanni af erlendu bergi brotnum vegna ölvunarakst- urs. Í ákæru kemur fram íslenskt heimilisfang en í fyrirkallinu segir að heimilisfang sé óþekkt. Ólíklegt er því að maðurinn, sem að öllum lík- indum hefur yfirgefið landið, þurfi að greiða skuld sína við samfélagið – verði hann sakfelldur. Málið sem um ræðir er rekið fyrir Héraðsdómi Vesturlands og að- spurður segir Ólafur Þ. Hauksson sýslumaður á Akranesi að um ein- hverja fjölgun sé að ræða á slíkum málum þó að hann geti ekki sagt með nákvæmni til um hversu mikil hún sé. „Það má segja að þessum málum hafi verið að fjölga því þetta vinnuafl er nokkuð mikið á ferðinni. En það hefur alltaf verið sama vandamál uppi hvað varðar ferða- menn, þannig að þetta er ekki nýtt af nálinni.“ Refsað ef þeir koma aftur Spurður hvort verktakar með út- lendinga í vinnu eigi ekki að greina viðeigandi aðilum frá því þegar þeir yfirgefa landið segir Ólafur allan gang á því. „Sumir verktakar ganga mjög vel um þetta, græja manninn algjörlega áður en hann fer af landi brott, og sem betur fer eru þeir fleiri en hinir. En eins og ávallt eru tilvik þar sem um er að ræða fullkomið hirðuleysi.“ Þegar útlendingar eru sakfelldir, eru ekki á landinu og engar upplýs- ingar liggja fyrir um dvalarstað þeirra getur verið afar erfitt að birta þeim dóminn, og þó svo að þeir hljóti refsingu er í einhverjum tilvikum ekki hægt að krefjast fullnustu refs- ingarinnar. Ef hins vegar um alvar- leg brot er að ræða eru upplýsingar skráðar í gagnagrunn Schengen, og eftir atvikum í aðra gagnagrunna, s.s. hjá Interpol og Europol. Sé brot- ið minni háttar er skráning í kerfi lögreglunnar látin duga. Þar kemur þá fram að dómur hafi fallið í máli viðkomandi, auk þess sem hann fer á sakaskrá. Ef viðkomandi kemur aft- ur til landsins á hann því ávallt refs- inguna yfir höfði sér. Æ fleiri sakfelldir útlendingar komast hjá fullnustu refsingar TÓNLISTARSKÓLINN í Reykja- vík æfir nú gamanóperuna Die Verschworenen (Hinar eiðsvörnu) eftir Franz Schubert, hér sjást vígalegir söngvarar munda vopn sín. Frumsýningin er í Iðnó á morgun en verkið verður sýnt fjórum sinnum, síðast 6. nóv- ember. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem flutt er ópera eftir Schu- bert á Íslandi. Verkið er lauslega byggt á Lýsiströtu Aristófanesar, konur ákveða að mótmæla hernaði með því að sverja að neita körlum sínum um öll blíðuhót þegar þeir snúi heim úr stríðinu nema þeir lofi að hætta að berjast. Flækj- urnar eru miklar en allt endar vel og ástin sigrar. Sungið er á þýsku en talkaflar á milli söngatriða eru þýddir. Alls taka liðlega 50 manns þátt í sýningunni. En er auðvelt að kenna tónlistarnemum að leika? „Merkilegt nokk sé ég ekki betur en að þau séu öll farin að leika, því miður eru ekki nógu mörg far- in að ofleika en þau sýna öll tölu- verð tilþrif!“ segir leikstjórinn, Þórunn Guðmundsdóttir. Gamanópera eftir Schubert í Iðnó Morgunblaðið/Ómar FARÞEGAFLUGVÉL Loftleiða Icelandic, sem notuð var til að flytja rúmlega eitt hundrað börn frá Afr- íkuríkinu Tsjad til Frakklands um liðna helgi, er staðsett í Tsjad um þessar mundir. Að sögn Guðna Hreinssonar, forstjóra Loftleiða Ice- landic, hefur hann ekki fengið upplýs- ingar þess efnis að vélin hafi verið formlega kyrrsett, en félagið fylgist grannt með þróun mála. Guðni segir Loftleiðir Icelandic hins vegar ekki hafa neina beina að- komu að málinu, heldur aðeins fá upp- lýsingar frá leigutakanum, spænska flugfélaginu Girjet. Hann segir að öll leyfi hafi legið fyrir þannig að hann sjái ekki hvers vegna halda ætti flug- vélinni eða flugliðum, sem hafi aðeins verið að sinna sínu starfi. Þeir voru þó ákærðir á þriðjudag. Vélin ekki kyrrsett ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.