Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 37 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-16.30, jóga kl. 9, boccia kl. 10, út- skurður og myndlist kl. 13-16.30, víd- eóstund kl. 13.30. Árskógar 4 | Bað kl. 9.30, handav. kl. 8-16, smíði/útskurður kl. 9-16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl. 9.45, myndlist kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð- un, jóga, myndlist, almenn handa- vinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaað- gerðir, hádegisverður, bókband, kaffi. Ævintýri í Iðnó kl. 14. Miðaverð og kaffiveitingar kr. 2.500. Rútuferð frá Bólstaðarhlíð kl. 13.10. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Árshátíð FEB 2. nóv- ember kl. 19.30, í sal Ferðafélagsins, Mörkinni 6. Húsið opnað kl. 19, veislu- matseðill, skemmtiatriði og Klassík leikur fyrir dansi. Uppl. í s. 588-2111. Félag kennara á eftirlaunum | Bók- menntaklúbburinn í Kennarahúsinu kl. 14-16. Nýir félagar velkomnir. Félag kennara á eftirlaunum | EKKÓ- kórinn æfir í KHÍ kl. 17-19. Nýjum röddum tekið fagnandi. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og 9.55, rammavefnaður kl. 9.15, málm- og silfursmíði kl. 9.30, hádegisverður kl. 11.40, róleg leikfimi kl. 13, bókband kl. 13, myndlist- arhópur kl. 16.30, stólajóga kl. 17, jóga á dýnum kl. 17.50. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handavinna kl. 9, ganga kl. 10, hádeg- isverður kl. 11.40, handavinna og bridds kl. 13, jóga kl. 18.15. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 12.40, karlaleikfimi kl. 13, boccia kl. 14, bókband kl. 10, gler- og leirlist kl. 13, handavinnuhorn kl. 13, námskeið í bútasaumi og al- mennri handavinnu kl. 13. Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund kl. 10.30 í umsj. séra Svavars Stef- ánssonar. Frá hádegi eru vinnustofur opnar, m.a. myndlist. Á morgun kl. 10 er prjónakaffi/bragakaffi og kl. 10.30 er fjölbreytt leikfimi (frítt) í ÍR heim- ilinu v. Skógarsel. S. 575-7720. Furugerði 1, félagsstarf | Aðst. við böðun kl. 9, smíðar og alm. handa- vinna. Farið í Iðnó kl. 13.15, kaffiveit- ingar kl. 15. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, boccia kl. 10, leikfimi kl. 11, hádeg- ismatur kl. 12, félagsvist kl. 14, kaffi kl. 15. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9, leikfimi kl. 11.20, tréskurður kl. 13, bingó kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir kl. 9- 16 hjá Þorbjörgu. Boccia kl. 10, fé- lagsvist kl. 13.30, 1. og 2. verðlaun, kaffiveitingar. Böðun fyrir hádegi, há- degisverður kl. 11.30. Hæðargarður 31 | Ókeypis tölvu- leiðb. e.h. á miðvd. og fimmtud. Nám- skeið í jólapakka- og leiðisskreyt- ingum. Ævintýri í Iðnó á 110 ára afmælinu. Guðrún Ásmundsdóttir 6. nóv. Nýtt framsagnarnámskeið að hefjast. S. 568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 og listasmiðjan á Korpúlfs- stöðum er opin kl. 9-12 og 13-16. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu- stund og spjall kl. 9.45, boccia karla- klúbbur kl. 10.30, postulínsmálun kl. 13, boccia kvennaklúbbur kl. 13.30, kaffiveitingar kl. 14.30. Þórðarsveigur 3 | Bænastund og samvera kl. 10, opin salur kl. 13, leik- fimi kl. 13.15, bingó eða félagsvist kl. 14.30. Kirkjustarf Áskirkja | Samvera með nýbúum kl. 17.30. Spjall, súpa og brauð. For- eldramorgunn í neðri safnaðarsal kl. 10, Sigrún K. Barkardóttir hjúkr- unarfræðingur ræðir um umönnun ungbarna. Söngstund með Magnúsi Ragnarssyni organista kl. 14, kaffi- veitingar. Kl. 17 klúbbur 8 og 9 ára barna og kl. 18 TTT-starfið, fundarefni beggja fundanna er fóstursystkinin. Samkirkjuleg bænastund kl. 16.30 á ensku. Fylgt er kverinu True life in God, prayer meeting guidelines. Breiðholtskirkja | Biblíulestur kl. 20, í umsjá dr. Sigurjóns Árna Eyjólfs- sonar. Digraneskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12, leikfimi ÍAK kl. 11, bænastund kl. 12, 6-9 ára starf kl. 16-17, æskulýðs- starf Meme fyrir 8 bekk kl. 19.30- 21.30. (www.digraneskirkja.is). Grafarvogskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12, samverustundir og fyr- irlestrar. Kaffi, djús og brauð fyrir börnin.TTT fyrir 10-12 ára kl. 15-16 í Víkurskóla. Háteigskirkja | Íhugunartónlist, orð Guðs, bænir, kvöldmáltíð Drottins, fyrirbæn með handayfirlagningu og smurningu kl. 20. Háteigskirkja - starf eldri borgara | Vinafundur kl. 14 í Setrinu . KFUM og KFUK | Sameiginlegur fundur AD KFUM og KFUK kl. 20, í Dómkirkjunni í Reykjavík. Sr. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur segir frá kvöldkirkjunni. Kristniboðsfélag kvenna | Háaleit- isbraut 58-60. Fundur í kristniboðs- salnum hefst með kaffi kl. 16.15. Gest- ur fundarins er Helgi Hróbjartsson kristniboði. Allar konur velkomnar. Laugarneskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, orgeltónlist í kirkjuskipi kl. 12- 12.10. Léttur málsverður í safn- aðarheimilinu kl. 12.30. Helgistund í félagsaðstöðunni á Dalbraut 18-20 kl. 15. Umsjón hefur sr. Bjarni. Lágafellskirkja | Allra heilagra messa. Bænastund kl. 20, ritning- arlestur, tónlist, bænir, látinna minnst. Neskirkja | Foreldramorgunn kl. 10. Kaffi og spjall, umsjón hefur Elínborg Lárusdóttir. Njarðvíkurkirkja | Foreldramorgunn kl. 10.30 í safnaðarheimilinu. Umsjón Þorbjörg Kristín Þorgrímsdóttir. 70ára afmæli. Í dag, 1. nóvember,er sjötugur Ólafur Þórðarson, Austurvegi 10, Vík í Mýrdal. Eigin- kona hans er Kolbrún Valdimarsdóttir. Þau eru stödd á Kanaríeyjum. 50ára afmæli. Fimmtug er í dag,1. nóvember, Gréta Björg Er- lendsdóttir. Í tilefni þess eru vinir og vandamenn boðnir velkomnir á heimili hennar eftir kl. 18 í dag að Ísalind 4. dagbók Í dag er fimmtudagur 1. nóvember, 305. dagur ársins 2007 Orð dagsins: „Ef þér hafið þekkt mig, munuð þér og þekkja föður minn. Héðan af þekkið þér hann og hafið séð hann.“ (Jóh. 14, 7.) Verkefnið Mannauður stend-ur fyrir hádegisnámskeiðiá föstudag. Náðu lengra íkrafti orða og látbragðs er yfirskrift námskeiðsins, sem kennt verður í húsi Háskolans í Reykjavík, kl. 12 til 13.30. Margrét Jónsdóttir, for- stöðumaður alþjóðasviðs HR kennir námskeiðið: „Námskeiðum Mann- auðs er ætlað að veita þátttakendum samkeppnisforskot og aukin lífs- gæði,“ segir Margrét. „Rétt notkun tungumálsins getur haft gríðarleg áhrif til að styrkja stöðu okkar, og fæst námskeið föstudagsins við leiðir til að nota tungumálið okkur til fram- dráttar.“ Margrét segir flestum koma til hugar málfræðivillur eins og þágu- fallssýki og óvandað mál, en slíkt sé aldeilis ekki viðfangsefni föstudags- ins: „Hádegisfyrirlesturinn gengur út á að kenna einstaklingnum að beita tungumálinu þannig að hann styrki stöðu sína og komi skoðunum sínum og hagsmunum á framfæri með markvissari hætti. Það skiptir nefnilega ekki aðeins máli hvað við segjum, heldur hvernig við segjum það.“ Á námskeiðinu verður farið yfir sjö lykil-heilræði: „Meðal þeirra má nefna ráðið um ég-veikina. Margir hafa tilhneigingu til að hefja setn- ingar á „ég held“, eða „mér finnst“. Þetta hefur þau áhrif að veikja stöðu þess sem talar og má bera saman setningarnar „mér finnast skattar allt of háir“, og „skattar eru alltof há- ir“. Sá sem setur sjálfan sig í for- grunn fullyrðingar með þessum hætti er því að nota minni-máttar orðræðu því aðalatriðið er að skattar eru of háir en ekki hvað viðkomandi finnst.“ Að sögn Margrétar geta þeir sem kunna með að fara, notað veikjandi og styrkjandi mál eftir þörfum hverju sinni: „Margir enda t.d. setn- ingar á „er það nokkuð?“ eða „er það ekki?“Þetta stílbragð getur verkað veikjandi, eins og þörf sé á við- urkenningu. Hins vegar geta lævísir stjórnendur notað þennan stíl mark- visst, til að láta undirmenn halda að þeir hafi eitthvað um málin að segja.“ Þáttökugjald á námskeiðinu er kr. 2.500 og er hægt að skrá þátttöku á heimasíðu Mannauðs, á heimasíðu Háskólans í Reykjavík: www.hr.is. Menntun | Námskeið Mannauðs á föstudag kl. 12 um úthugsaða orðræðu Með vald á málinu  Margrét Jóns- dóttir fæddist í Reykjavík 1966. Hún lauk B.A. gráðu í spænsku frá HÍ 1991, meistaragráðu frá Princeton háskóla 1995, doktorsgráðu frá sama skóla 2001 og MBA-gráðu frá HR 2006. Margrét var lektor við HÍ 1995-2003, síðan lektor við HR og síðar dósent. Hún er nú for- stöðum. alþjóðasviðs HR og í for- svari fyrir Mannauð. Eiginmaður Margrétar er Már Jónsson prófess- or og eiga þau þrjá syni. Tónlist Hafnarborg | Hádegistónleikar kl.12. Elín Ósk Óskarsdóttir sópran syngur og Ant- onia Hevesi spilar á píanó, verk eftir Wag- ner og Weber. Engin aðgangseyrir. Óliver | Tepokinn leikur djass og salsam- úsík meistara á borð við Tómas R. og Tito Puente. Myndlist Kirkjuhvoll, Akranesi | Í tilefni Vökudaga, menningarviku á Akranesi, hefst sýning sem nefnist „Svart á hvítu“. Á sýningunni eru þrívíð verk, málverk, teikningar og grafík eftir íslenska og erlenda listamenn. Sýningin stendru til 18. nóv. Opið kl. 15-18 alla daga nema mánudaga. Söfn Þjóðmenningarhúsið | Handan um höf – þýðingar og frumsamin ritverk Helga Hálf- danarsonar er ný sýning í bókasal. Helgi Hálfdanarson er afkastamesti bókmennta- þýðandi Íslendinga fyrr og síðar. Hann er einn helsti málræktarmaður þjóðarinnar og vel að sér um íslenskar fornbókmenntir. Mannfagnaður Húnvetningafélagið í Reykjavík | Árlegur kirkju- og kaffisöludagur Húnvetninga- félagsins verður 4. nóv. Messa í Kópavogs- kirkju kl. 14, séra Gísli Kolbeins þjónar fyrir altari, Karl Helgason frá Blönduósi flytur stólræðu og kirkjukór frá Skagaströnd flyt- ur gospeltónlist. Frá kl. 15 er kaffihlaðborð o.fl. í Húnabúð, Skeifunni 11. Fyrirlestrar og fundir Sri Chinmoy-miðstöðin | Skúlagötu 30. Hægt er að læra grundvallaratriðin í hug- leiðslu á fjórum námskeiðum sem fara fram fimmtud. 1. nóv. kl. 20, föstud. 2. nóv. kl. 20, laugard. 3. nóv. kl. 15 og sunnud. 4. nóv. kl. 15. Námskeiðin fara fram í miðstöð- inni, á 3. hæð. Skráning í síma 561 5250. Geðhjálp | Túngötu 7. Sjálfshjálparhópur þeirra sem þjást af kvíða er starfræktur kl. 18 í húsi Geðhjálpar. Höndin | Dr. Agnes Agnarsdóttir sálfræð- ingur flytur fyrirlesturinn „Sjálfsmynd, sjálfsvirðing og sjálfstraust“ í safn- aðarheimili Háteigskirkju kl. 20. Fund- arstjóri er Edda Jóhannsdóttir blaðamað- ur. Kaffi og spjall. Fréttir og tilkynningar Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við Fjarðarkaup kl. 13-17. Frístundir og námskeið www.ljosmyndari.is | Grunnnámskeið í Photoshop 24.-25. nóv. kl. 13- 17. Verð kr. 15.900. 3ja daga ljósmyndanámskeið verð- ur 19.-22. nóv. og 3.-6. des. Kennslutími kl. 18-22. Verð kr. 17.900. Leiðb. Pálmi Guð- mundsson. Uppl. á www.ljosmyndari.is. FRÉTTIR LEIKMANNASKÓLI þjóðkirkj- unnar stendur fyrir námskeiði sem unnið er í samráði við fulltrúa nokkurra trúfélaga hér á landi. Námskeiðið fer fram í safnaðar- heimili Grensáskirkju á miðviku- dagskvöldum í nóvember og hefst kl. 20. 7. nóvember: Hvað er trú? Bjarni Randver Sigurvinsson, doktors- nemi í trúarbragðafræði, skoðar helstu skilgreiningar trúar og átrúnaðar út frá trúarlífsfélags- fræðilegum skilgreiningum. 14. nóvember: Félag múslima og Bahá’í samfélagið. 21. nóvember: Gyðingar og Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu (mormón- ar). 28. nóvember: Búddistafélag Ís- lands og Ásatrúarfélagið. Um er að ræða tveggja tíma kennslu í hvert sinn og skiptist hún í tvær 50 mínútna kennslustundir. Boðið verður upp á kaffi og te í hléi. Umsjón með námskeiðinu hefur Steinunn A. Björnsdóttir guðfræð- ingur. Skráning fer fram á Bisk- upsstofu í síma 535-1500 eða á www.kirkjan.is/leikmannaskoli. Hvað veistu um þessi trúfélög? STJÓRN Landssambands fram- sóknarkvenna fagnar nýjum meiri- hluta í borgarstjórn Reykjavíkur þar sem félagshyggjan er ráðandi, eins og segir í ályktun sem blaðinu hefur borist. „Sérstaklega fögnum við því að Sæunn Stefánsdóttir tekur að sér formennsku í nýrri stjórnkerfis- nefnd Reykjavíkurborgar og vænt- um við mikils af hennar störfum.“ Jafnframt lýsir stjórn LFK yfir ánægju sinni með störf framsóknar- kvenna í sveitarstjórnum landsins. Í annarri ályktun sem samþykkt var í haust vil Landssamband fram- sóknarkvenna vekja athygli á notk- un skólafatnaðar í skólum landsins, en framsóknarkonur hvetja sveitar- félög og foreldra landsins til að huga að kostum þess að innleiða skóla- fatnað. Formaður Landssambands fram- sóknarkvenna er Ólöf Pálína Úlfars- dóttir, varaformaður Gerður Jóns- dóttir, gjaldkeri Inga Ólafsdóttir, meðstjórnandi Svafa Hinriksdóttir. Í varastjórn sitja: Salvör Gissurar- dóttir og Bryndís Gunnlaugsdóttir. Fagna nýjum meirihluta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.