Morgunblaðið - 31.12.2007, Síða 12

Morgunblaðið - 31.12.2007, Síða 12
12 MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Fólk og fréttir á liðnu ári Árið 2007 er að líða í aldanna skaut. Vafalaust hefur það verið landsmönnum misjafnlega minnisstætt og ástæðurnar ólíkar. Morgunblaðið ræddi við nokkra þeirra sem tengdust atburðum eða komu við sögu í fréttum blaðsins á árinu. SUNNUDAGURINN 21. janúar var Tryggva Tryggvasyni svo sann- arlega örlagaríkur. Þann dag var hann ásamt hópi vélsleðamanna á ferð norðan við skíðasvæðið í Hlíð- arfjalli. Hópurinn hafði verið á svæðinu í á annan klukkutíma þeg- ar snjóflóð féll skyndilega úr hlíð- inni og hreif Tryggva með sér rúm- lega 100 metra. Þökk sé snjóflóðaýlu sem Tryggvi hafði keypt aðeins tveimur dögum áður tókst vinunum að miða út staðsetningu hans á tveimur til þremur mínútum. Þeir tóku strax til við að grafa hann upp og fannst Tryggvi meðvitundarlaus á tveggja metra dýpi. Þeir beittu hjartahnoði og tókst að blása lífi í Tryggva áður en björgunarsveitarmenn mættu á staðinn ásamt nærstöddum læknir. Lánsamlega var TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, stödd á Sauðárkróki og sá hún um að flytja Tryggva á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Tryggvi lá þungt haldinn á FSA og komst ekki til meðvitundar fyrr en tveimur vikum síðar. Hann losn- aði hins vegar ekki úr öndunarvél fyrr en næstum mánuði eftir slysið. Tryggvi fer enn í endurhæfingu sem hann segir hafa skilað tölu- verðu en enn vanti nokkuð upp á fínhreyfingarnar, hann segist t.a.m. skrifa illa. Atvikið situr ekki á sál neins Tryggvi útskrifaðist frá end- urhæfingardeildinni í Kristnesi í júní sl. og hóf skömmu síðar að mæta til vinnu stuttan tíma í senn en nú er svo komið að hann vinnur tæplega hálfan daginn. Hann segir að ágætlega hafi gengið að vinna úr slysinu en hann þáði enga áfalla- hjálp. Tryggvi og kona hans eiga tvö börn og segir hann þau ekki tala mikið um slysið núna, „en í byrjun, fyrst eftir að ég vaknaði og fór að geta talað og kom úr önd- unarvél þá var náttúrulega rætt um hlutina en ég held svo sem að þetta sé ekkert á sálinni á neinum.“ Sjálf- ur segist hann ekkert muna eftir deginum sem slysið átti sér stað. Slysið gerði hann jákvæðari Spurður hvort slysið hafi á ein- hvern hátt breytt viðhorfi hans til lífsins og hvernig hann lifir því, segist Tryggvi ekki alveg viss en hann sé nokkuð jákvæðari en áður. „Þegar maður áttar sig á því hvað það eru margir sem láta sér annt um mann og hugsa um mann þegar maður lendir í svona, þá fyllir það mann af jákvæðni.“ Eftir slysið hefur Tryggvi ekki ekið á vélsleða en hann segir vet- urinn ekki almennilega kominn og Hlíðarfjall vera rautt. Hann segist þó alveg treysta sér á bak aftur, „ég þarf bara að prufa það. Þetta hræðir mig ekki frá því að prufa.“ Jákvæðari eftir vélsleðaslys Heimtur úr helju Tryggvi Tryggvason lenti í snjóflóði í Hlíðarfjalli í byrjun árs og er enn í endurhæfingu. Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is Tryggvi Tryggvason Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson MYNDLISTARKONAN Ólöf Nor- dal hefur ekki setið auðum höndum í ár. Í janúar hófst vinna við að móta lóur úr jarðleir, sem áttu að gegna hlutverki altaristöflu í Ísafjarð- arkirkju. Hún naut aðstoðar safn- aðarbarna kirkjunnar og þegar upp var staðið höfðu 749 lóur verið búnar til. „Þetta byrjaði frekar hægt og svo endaði þetta á því að ég varð bara að loka sjoppunni því að ég réð ekki við fleiri fugla,“ segir hún. „Þegar þeir voru komnir upp í 700 þá bara táraðist ég, því þetta var fal- leg stund. Það er náttúrlega svolítil athöfn að setjast niður og móta fugl, það má jafnvel líkja þessu við að setj- ast niður í bæn, þannig að þetta var mjög ánægjulegt á allan hátt.“ Fékk hugmynd úr helgisögu Hugmyndina fékk hún úr þjóðsögu sem heitir Lausnarinn og lóurnar og er ein af helgisögunum í þjóðsögum Jóns Árnasonar. Sagan fjallar um Jesú sem barn og þegar hann lék sér með öðrum börnum og þau fóru að móta fugla úr leir. Strangtrúaður Sadúsei gekk framhjá og reiddist börnunum fyrir að leika sér á hvíld- ardegi og byrjaði að brjóta fuglana. Jesú lagði hönd sína yfir þá leirfugla sem eftir voru og öðluðust þeir þá líf og flugu burt. Þannig urðu lóurnar til. Auk þess að vinna með lóurnar var ætlunin einnig sú að Ísfirðingar byggju til verkið inn í sína eigin kirkju. Hún segir þátttökuna hafa verið mjög góða og að hún viti ekki betur en að mikil ánægja ríki með verkið. „Það kemur líka til af því að það eru svo margir sem eiga hlut í því. Það eru þarna mörg hjörtu uppi á vegg.“ Kvenlegt verk fyrir Bríeti Í ágúst var afhjúpað minnismerki Ólafar um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur vegna 150 ára fæðingarafmælis henn- ar. Verkið er staðsett á horni Þing- holtsstrætis og Amtmannsstígs en skammt þar frá bjó Bríet. Um er að ræða stórar granítplötur sem lagðar eru á steyptan grunn og mynda hringlaga stétt en það kom í verka- hring Ólafar að hanna, auk sjálfs minnisvarðans, allan garðinn í kring og umhverfið. Reitnum hefur verið gefið nafnið Bríetarbrekka. Hún segist upphaflega hafa verið í nokkrum vandræðum með verkið þar til hún fann gamalt veggteppi sem Bríet hafði saumað út og gefið dóttur sinni, Laufeyju. Neðst á því var ill- skiljanlegt útsaumsletur sem við nán- ari athugun reyndist vera vísa sem Bríet orti til Laufeyjar: „Stígðu ófeimin stúlka upp og stýrðu klæði, yfir geiminn, yfir græði, allan heim- inn skoða í næði.“ „Þetta er svona brýningarvísa móður til dóttur og ég notaði bara þessa vísu,“ segir Ólöf. „Þetta er það skáldlegasta sem Bríet hefur mælt því hún var ekki spennandi penni en þetta var algerlega frá hjartanu og á við allar stúlkur á öllum tímum.“ Vísan er letruð á verkið með rit- hönd Bríetar og í miðju plötunnar er samskonar blóm og á veggteppinu. „Það sem ég vildi gera var að búa til kvenlegt verk fyrir Bríeti því hún er oftast sýnd sem valkyrja, en hún var bæði kvenleg og viðkvæm og ég vildi búa til verk sem jafnvel henni hefði fundist fallegt.“ Morgunblaðið/Ómar Ánægð Ólöf var mjög þakklát fyrir aðstoð Ísfirðinga. Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is Ólöf Nordal Lóur Altaristafla Ólafar í Ísafjarðarkirkju. Mörg hjörtu uppi á vegg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.