Morgunblaðið - 31.12.2007, Page 16
16 MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
VIÐ vorum á leiðinni áleiðis út á
flugvöll í kolniðamyrkri þegar rút-
an skall á þessum ósköpum, sem
betur fer ekki á mikilli ferð. Höggið
var engu að síður mikið og við
köstuðumst öll eitthvað til.“ Svona
lýsir Sigurbjörg Ragnarsdóttir,
starfsmaður dvalarheimilisins
Höfða á Akranesi, atburðum aðfar-
anætur 13. september þegar rúta,
sem ferja átti 54 konur sem starfa á
dvalarheimilinu á Keflavík-
urflugvöll, lenti á nýfallinni aur-
skriðu og stöðvaðist uppi á eðju-
bingnum. „Fljótlega bar lögreglu
og sjúkralið að og við klöngruðumst
í mikilli drullu yfir þessa skriðu í
nýja rútu,“ segir Sigurbjörg og
heldur áfram: „Fljótlega kom svo í
ljós að farangurinn var fastur í
farangurshólfum rútunnar, sem
voru nánast í miðri skriðu.“
Konurnar þurftu því að leggja
af stað farangurslausar en fyrir
snarræði rútubílstjórans og
þeirra sem komu að óhappinu
tókst að ná farangrinum úr rút-
unni og ferja hann til Keflavíkur
rétt áður en flugvélin sem flutti
konurnar tók á loft. Leið
kvennanna lá til Þýskalands þar
sem þær fóru í skemmti- og
fræðsluferð um Rínardalinn.
En hvernig skyldi ferðin hafa
heppnast þrátt fyrir skakkaföllin
sem á undan höfðu gengið? „Ferðin
var alveg frábær. Allir voru fljótir
að jafna sig, við vorum stilltar inn á
það að láta þetta ekkert skemma
fyrir okkur. Við töluðum mikið um
þetta fyrsta daginn sem betur fer,
hver sagði frá sinni hlið á þessu
óhappi og þannig afgreiddum við
málið,“ segir Sigurbjörg.
Vistmenn dvalarheimilisins tóku
konunum fagnandi þegar þær
sneru heim heilu og höldnu. „Þeir
höfðu náttúrlega haft spurnir af
svaðilförunum sem við lentum í og
voru því mjög ánægðir með að sjá
okkur heilar á húfi,“ segir Sig-
urbjörg.
Létu skakkaföllin
ekki á sig fá
Sigurbjörg
Ragnarsdóttir
Morgunblaðið/Júlíus
Fall er fararheill Konurnar stóðu skyndilega frammi fyrir því að þurfa að vaða aur í opnum skóm.
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
ÞAÐ vakti athygli víða um heim þegar ís-
lensk stjórnvöld ákváðu að kalla eins manns
friðargæslulið sitt heim frá Írak í byrjun
september. Þessi ákvörðun varð meðal ann-
ars umfjöllunarefni hjá bandaríska sjónvarps-
grínistanum Jon Stewart og komu útsend-
arar hans til landsins til þess að leita að
íslenska hernum.
Íslenski majórinn Herdís Sigurgrímsdóttir
ætlar að skipta einkennisbúningnum út fyrir
dragt í næsta starfi, en slakar á um jólin í
faðmi fjölskyldunnar. „Ég er bara búin að
vera í rólegheitum. Akkúrat núna er ég að
baka piparkökur og spila jatsí, ætli ég fari
ekki að þurrka af og skreyta á eftir,“ sagði
Herdís þegar Morgunblaðið náði tali af henni
rétt fyrir jól. „Ég er í fríi núna að búa mig
undir næsta stríð.“
Herdís hefur ráðið sig til starfa á skrifstofu
sendiherra NATO í Afganistan í hálft ár frá
janúarlokum. „Það verður margt þarna sem
ég kannast við og svipaður aðbúnaður, en
þetta er borgaraleg staða, svo ég verð í dragt
en ekki í einkennisbúningi. Þetta verður
skemmtileg áskorun.“
Herdís segist lítið hafa fylgst með um-
ræðunni sem spratt upp í kringum það að
hún var kölluð heim frá Írak. „Hún fór að
mestu leyti fram hjá mér. Ég var úti þegar
þetta var tilkynnt og kom ekki heim fyrr en
einum og hálfum mánuði síðar. Það var svo-
lítið fyndið hvað þetta fór að snúast mikið um
mína persónu. En það truflaði mig svosem
ekkert.“
Dregur úr ofbeldi
Þegar Herdís hugsar til baka til Írak er
léttir yfir því að dregið hafi úr ofbeldi þar
henni efst í huga. „Ég verð mjög glöð ef sú
þróun heldur áfram,“ segir hún, en er hóflega
bjartsýn á stöðu mála í Írak. „Það er ekki
kominn neinn stöðugleiki á þarna enn þá, það
er stærsti prófsteinninn, að þetta fari ekki
strax aftur á verri veg.“
Úr einkennisbún-
ingnum og í dragt
Morgunblaðið/Ómar
Majór Herdís safnar nú kröftum fyrir næsta verkefni í Afganistan.
Herdís Sigurgrímsdóttir
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
Aðeins viku eftir að Jóhann Ingi
hóf störf sem sundlaugarvörður í
Íþróttamiðstöðinni Lágafelli í
Mosfellsbæ reyndi verulega á
hæfni hans og þekkingu í skyndi-
hjálp. Hann hafði nýlokið skyndi-
hjálparnámskeiði þar sem hann
lærði hjartahnoð og endurlífg-
unartækni og eitt þriðjudagskvöld
í lok maí gerðist það sem hann
bjóst aldrei við – hann bjargaði
mannslífi.
Gafst næstum upp
Að sögn Jóhanns Inga gerðist
allt mjög hratt. „Ég var inn í
karlaklefa að moppa gólfin. Svo
fór ég aðeins fram á gang og þá
sá ég mikið af fólki í kringum lítið
barn.“ Um var að ræða tveggja
ára stúlku sem hafði verið á kafi í
tæpar tvær mínútur í lítilli,
grunnri laug, svokallaðri lending-
arlaug fyrir rennibrautir.
„Ég henti öllu frá mér og hljóp
strax út og sá að hún var nær
drukknuð. Ég byrjaði að endur-
lífga hana og það gerðist ekkert
fyrr en eftir nokkrar mínútur, þá
sýndi hún viðbrögð svo ég sneri
henni á hlið og þá kastaði hún upp
vatninu. Ég ætlaði að hætta því ég
hélt að þetta væri bara búið en ég
hélt áfram og tókst að lífga hana
aftur við.“
Kraftaverki líkast
Jóhann Ingi segir að hann hafi í
raun ekki áttað sig almennilega á
því sem gerðist fyrr en tveimur
dögum seinna. Hann hefur ekki
hitt litlu stúlkuna eða heyrt í nein-
um úr fjölskyldu hennar eftir að
slysið átti sér stað en Jóhann Ingi
segir að um eiginlegt kraftaverk
hafi verið að ræða.
„Það var talað við lækninn og
hún var svo lengi í kafi sem getur
valdið heilaskaða en hún fór bara
heim beint af spítalanum alveg
heil, næstum eins og kraftaverk.
Labbaði út eins og ekkert hefði
gerst.“
„Gerði bara það sem ég átti
að gera“
Jóhann Ingi vinnur enn í sund-
lauginni með skóla en hann stund-
ar nám við Borgarholtsskóla og er
á leið að læra bílasprautun. Hann
segir slysið hafa valdið því að
hann fylgist betur með og hefur
augun betur opin fyrir því sem er
að gerast í lauginni.
Hann segir slysið líka haft þær
heldur undarlegu afleiðingar að
skömmu síðar fór fólk að þykjast
drukkna og kallaði á hann en Jó-
hann Ingi segist ekki hafa látið
það hafa áhrif á sig. Aðspurður
segir hann það afar skemmtilega
tilfinningu að hafa bjargað barni
frá drukknun en annars sé frekar
erfitt að lýsa því. „Ég gerði bara
það sem ég átti að gera.“
Bjargaði mannslífi eftir
aðeins viku í starfi
Morgunblaðið/Frikki
Sundlaugavörðurinn Jóhann Ingi Guðbergsson starfar enn í sundlauginni
með námi sínu. Hann segist ekki geta annað en líkt björgun litlu stúlk-
unnar við hreint kraftaverk því henni hafi ekkert orðið meint af.
Jóhann I. Guðbergsson