Morgunblaðið - 31.12.2007, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
Íbúasamtökin Betri byggð í Kársnesi höfðu
sig töluvert í frammi í sumar þegar þau börð-
ust gegn fyrirhugaðri uppskipunarhöfn í
Kársnesinu með tilheyrandi umferð. Snemma
í haust tóku bæjaryfirvöld í Kópavogi þá
ákvörðun að draga þessar skipulagsbreyt-
ingar til baka, samtökunum til mikillar
ánægju.
Svæðið öllum til vansa
Sem formaður samtakanna var Arna Harð-
ardóttir fremst í orrahríðinni milli íbúa og
bæjaryfirvalda í Kópavogi. Hún segir barátt-
una hafa verið stutta en snarpa en málið snúist
ekki aðeins um höfnina og hafnarsvæðið. Sam-
tökin vilja sjá Kársnesbrautina lagða í stokk.
„Í farvatninu eru mjög stórtækar breyt-
ingar og mikil aukning á íbúafjölda á Kársnes-
inu. Ef ýtrustu hugmyndir ná fram að ganga
þá verður álagið á umferðarmannvirkin, sér-
staklega Kársnesbrautina, miklu meira heldur
en hún þolir þannig að það er alveg ljóst að
þetta getur ekki átt sér stað nema gerðar
verði verulegar ráðstafanir til að taka við allri
þessari umferð.“
Arna segir samtökin enn lifandi en málið sé
í ákveðinni biðstöðu. Ljóst sé að á umræddu
svæði þurfi að taka til hendinni en hún segir
svæðið í dag vera öllum til vansa. „Það sem
okkur langar að sjá er mjög metnaðarfullar og
nútímalegar hugmyndir um nýtinguna þannig
að það verði gætt að öllu því sem skiptir máli.“
Hún segir íbúana í Kársnesi helst vilja sjá
þarna lágreista íbúðabyggð, þó til greina komi
að vera með blandaða byggð að því gefnu að
atvinnustarfsemin sem þar verði falli vel að
byggðinni. Hún segir það ekki eiga við í dag
„Þarna eru steypustöð, gámaflutningar og
fleira sem hreinlega á ekki heima þarna og
passar ekki með íbúðabyggð.“
Mikill samtakamáttur
Arna telur að samtökunum hafi tekist að
efla mjög samtakamátt íbúa í vesturbæ Kópa-
vogs. „Ég held að við stöndum nú mjög þétt
saman um það að vernda okkar lífsgæði og ég
er mjög bjartsýn á þetta mál allt saman. Ég er
viss um að við getum komið okkur saman um
einhverja skemmtilega og metnaðarfulla lend-
ingu fyrir þetta svæði.“
Morgunblaðið/Ómar
Í faðmi fjöskyldunnar Anna ásamt manni sínum, Jóni Guðna Ægissyni, og börnunum,Grétu
Jónsdóttur og Viktori Jónssyni, á heimili þeirra á Marbakkabraut í Kópavoginum.
Bjartsýn um
Kársnes á nýju ári
Arna Harðardóttir
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
AÐEINS 11 dögum eftir að Vicki Smith flutt-
ist frá Aberdeen í Skotlandi til Íslands í því
skyni að hefja betra líf lenti hún í alvarlegu
umferðarslysi skammt frá Hvolsvelli. Bíll
hennar fór yfir á öfugan vegarhelming með
þeim afleiðingum að hann lenti í árekstri við
sjúkrabíl sem á móti kom.
Vicki hlaut slæmt mjaðmagrindarbrot,
margbrotnaði á báðum fótum, brotnaði á
hægri handlegg og braut fimm rifbein. Þá féll
annað lunga hennar saman skömmu eftir
komu hennar á spítalann svo hún þurfti að
vera í öndunarvél í níu daga. Mikil mildi þótti
að dóttir hennar, Courtney Jaffrey, slapp svo
til ómeidd.
Vicki dvaldist á Landspítalanum í rúma þrjá
mánuði og í kjölfarið flutti hún aftur til gamla
heimabæjarins Aberdeen þar sem við tók
mánaðarlöng sjúkrahúsvist og endurhæfing.
Flutningurinn var óumflýjanlegur þar sem
hún hafði ekki búið hér á landi nógu lengi til að
njóta fullra réttinda.
Vicki býr enn í Aberdeen en getur ekki unn-
ið sökum fötlunar sinnar. Hún segist þó vonast
til þess að geta hafið störf að nýju á komandi
ári. Hún fer í endurhæfingu tvisvar í viku og
segir batann hægan en að sér miði vel áfram.
Hún getur gengið aðeins um en þarf að notast
við hjólastól þurfi hún að fara langar vega-
lengdir. Hvað sálrænar afleiðingar slyssins
varðar segir Vicki að þær mæðgur spjari sig
ágætlega og séu á góðri leið með að jafna sig.
Hún segist tvímælalaust ætla að koma aftur
til Íslands en þó ekki fyrr en eftir ár eða svo
þegar Courtney, dóttir hennar, hefur lokið
námi. Hún segist gjarnan vilja gera aðra til-
raun til að búa hérna en henni þykir landið af-
ar fallegt og fólkið vinalegt. „Lífið snýst um
endurhæfinguna og að láta mér batna en and-
lega líður okkur báðum vel. Við tölum stundum
um slysið og endrum og eins komumst við í
uppnám en við höfum það annars ágætt.“
Vicki vill að lokum skila kærum þökkum til
ráðgjafanna og heilbrigðisstarfsfólksins á
Landspítalanum, hún segir alla sem að umönn-
un hennar komu hafa verið frábæra.
„Lífið snýst um
endurhæfinguna“
Vicki Smith
Morgunblaðið/RAX
Á batavegi „Ég er ótrúlega heppin að hafa komist lifandi frá slysinu en mér skilst að þetta
hafi staðið tæpt um tíma,“ segir Vicki Smith sem lenti í slysi 11 dögum eftir að hún fluttist frá
Skotlandi. Hún var í bíl ásamt 15 ára dóttur sinni. skammt frá Hvolsvelli þegar bíll hennar er
talinn hafa farið yfir á öfugan vegarhelming en þar lenti hann í árekstri við sjúkrabíl. Beita
þurfti klippum til að koma Vicki Smith úr flakinu og var hún flutt með þyrlu á Landspítalann.
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
„ÞAÐ hefur allt gengið mjög vel
og í rauninni bara vonum framar.
Myndin gekk betur en bjartsýn-
ustu menn höfðu þorað að vona,
um 48 þúsund manns sáu hana í
kvikmyndahúsunum og allir dóm-
ar voru alveg frábærir. Við unnum
lengi að myndinni og lögðum mik-
ið í hana og þess vegna er mjög
ánægjulegt að uppskera svona,“
segir Gunnar B. Guðmundsson,
leikstjóri kvikmyndarinnar Astró-
píu. Myndin er hans fyrsta kvik-
mynd í fullri lengd og var hún
frumsýnd 21 mínútu yfir átta
þann 22. ágúst.
Frumburðurinn
leit dagsins ljós
Gunnar var þó ekki viðstaddur
þessa stóru stund enda leit frum-
burður hans og konu hans, Láru
Hafberg, dagsins ljós í sömu
andrá. Að lokinni fæðingunni og
þegar gengið hafði verið úr
skugga um að barninu heilsaðist
vel gafst Gunnari færi á að skjót-
ast upp í Háskólabíó til að ná
uppklappinu og var hinum nýbak-
aða föður og leikstjóra fagnað
ærlega. „Þetta var mjög
skemmtilegt allt saman og fók-
usinn á myndina var lítill hjá
manni akkúrat þegar þetta var að
gerast. Þessir fyrstu dagar eftir
þetta allt saman voru alveg lygi-
legir og allar fréttir sem ég fékk
af myndinni voru alveg frábærar.
Það er ekkert sjálfgefið að mynd-
um gangi svona vel, skjóti jafnvel
þessum stóru amerísku myndum
ref fyrir rass.“
„Gríðarlega spennandi
tímar framundan“
Gunnar hefur getað gefið sér
góðan tíma fyrir nýfædda dóttur
sína, en hann hefur verið mikið við
skriftir og það starf hefur hann að
öllu jöfnu unnið heimavið. Þar fyr-
ir utan hefur Gunnar ekki þurft að
taka mikinn þátt í að ýta Astrópíu
úr hlaði og kynna hana. Það þýðir
þó ekki að Gunnar hafi setið auð-
um höndum heima hjá sér. Auk
þess að gegna föðurhlutverkinu af
miklum móð er hann með mörg
járn í eldinum. „Ég er að skrifa
handritið að Gauragangi upp úr
bókinni með honum Ottó Geir
Borg, er ég með tvö leikrit í bí-
gerð og einhverjar auglýsingar,“
segir hann. Handritsvinnunni við
Gauragang fer senn að ljúka en
þeir Ottó hafa unnið að gerð hand-
ritsins frá því að klippingar hófust
á Astrópíu.
Gunnar viðurkennir fúslega að
erfitt verði að toppa árið sem senn
rennur sitt skeið en hann segist
þess fullviss að árið 2008 verði
mjög spennandi. „Það eru gríð-
arlega spennandi tímar framundan
í þessum bransa, eftirspurn eftir
íslenskum DVD-diskum á borð við
Astrópíu, Næturvaktina og Mýr-
ina er ótrúlega mikil og greinilegt
að menn þyrstir í gott, íslenskt
efni,“ segir Gunnar og bætir við
að innlend dagskrárgerð fyrir
sjónvarp virðist einnig ætla að
taka við sér. „Þetta verður von-
andi hörkuár,“ segir hinn nýbak-
aði faðir og iðni kvikmyndagerðar-
maður að lokum.
„Mjög ánægjulegt
að uppskera svona“
Gunnar B.
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Dóttirin Gunnar ásamt dóttur sinni, sem var auðvitað mun mikilvægari
frumburður en kvikmyndin Astrópía.
Guðmundsson