Morgunblaðið - 31.12.2007, Page 21

Morgunblaðið - 31.12.2007, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2007 21 „ÞAÐ kemur sennilega fáum á óvart að stofnun Saga Capital, Fjárfestingarbanka stendur upp úr á árinu,“ segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri og stærsti hluthafinn. Bankinn var stofnaður í upphafi árs en tók til starfa um mitt ár. „Tímasetningin hefur verið krefj- andi; við hleyptum bankanum af stokkunum rétt áð- ur en markaðir hér heima og erlendis náðu hápunkti, og höfum stigið ölduna síðan. Þetta hefur reynt á innviðina en upp úr stendur að fleyið er traust og starfsfólkið er starfi sínu vaxið.“ Þegar hlutabréf náðu hámarki um miðjan júl- ímánuð, nam hækkunin frá upphafi árs um 38%. Þá var farið að örla á fréttum vegna svokallaðra undir- málslána í Bandaríkjunum og hlutabréf banka um allan heim tóku að lækka nokkuð skarpt. Þorvaldur Lúðvík segir snemma hafa komið í ljós að erfitt var að meta umfang þessara lána og þar með tap vegna lækkandi húsnæðismarkaðar í Bandaríkjunum, og umfangið verði að líkindum ekki ljóst fyrr en líður á næsta ár. Hann segir óvissuna ala af sér vantraust milli banka og grafa undan lánstrausti og fjármögn- unarmöguleikum, sem seðlabankar víðast hvar hafi reynt að sporna gegn með margvíslegum aðgerðum. „Þau gerningaveður sem hafa geisað undanfarna mánuði hafa breytt hugsanagangi og sett aftur í önd- vegi raunhæft mat á ávöxtun og áhættu. Mögulega voru væntingar manna um áframhaldandi hækkun hlutabréfaverðs orðnar óraunhæfar og lækkunin því skiljanleg, þótt hún hafi verið ýkt að mörgu leyti vegna erfiðari ytri skilyrða, hækkandi olíuverðs og lausafjárþurrðar. Lækkun á hlutabréfamarkaði og hækkandi vextir, eins og verið hefur hér á landi, get- ur ýkt þennan vanda þótt íslenska eyðsluklóin sé hvergi bangin og gerir starf Seðlabankans afar erf- itt. Reyndar er umhugsunarefni hversu vel verð- bólgumarkmið Seðlabankans fá staðist í því mikla umbreytingarferli sem íslenskt þjóðfélag er að ganga í gegnum. Við höfum haft hér stöðugan mik- inn hagvöxt undandarin ár. Þjóðfélagið hefur breyst frá því að vera útflutningsmiðað í það að vera þjón- ustuþjóðfélag, í krafti aukins frjálsræðis og smækk- andi heims.“ Þorvaldur Lúðvík bendir á að íslensku bankarnir, sem í dag séu fjölþjóðleg fyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi, hafi staðist mörg áhlaupin og stormana undanfarin tvö ár, og telur að þeir standi sterkari eft- ir. Velgengni þeirra, starfsumhverfi og framvinda muni skipta sköpum á árinu. „Fjármálastarfsemi er orðin stærsta atvinnugrein þjóðarinnar og sýnir best hversu undraverðum árangri Íslendingar hafa náð undanfarin ár við það að fjölga stoðunum undir stöð- ugum hagvexti og tryggja þannig að sem þjóð séum við ekki lengur háð vertíðum og aflahrotum, eins og ávallt var.“ Nýjar atvinnugreinar, sem ekki lögðu mikið til þjóðarbúsins þar til fyrir skemmstu, séu í fararbroddi þeirra miklu umbreytinga sem hér hafa verið að keyra hagvöxt undanfarið. „Hliðarverkanir eins og verðbólga eða húsnæðisbóla eru óhjákvæmi- legar og spurning hversu mikil áhrif hægt er að hafa á þessa þætti til skemmri tíma. Þetta nær jafnvægi þegar mestu umbreytingarnar hafa gengið í gegn. Ég tel margt jákvætt í spilunum fyrir næsta ár. Óró- inn undanfarið, smækkandi heimur og aukin al- þjóðavæðing gera framvinduna afskaplega spenn- andi. Við getum búist við því að vextir hér heima lækki töluvert er líður á og meira jafnvægi í þjóð- arbúinu náist, en slík vaxtalækkun er forsenda þess að hér þrífist heilbrigt atvinnulíf, sem vaxi og dafni með eðlilegri endurnýjun og fjárfestingu, auk að- gengis sprotafyrirtækja að fjármagni á eðlilegum kjörum. Mjög margt bendir til þess að hagkerfið sé að ganga í gegnum mjög hraða aðlögun, ekki ósvip- aða og átti sér stað árið 2001. Við þessar aðstæður og einnig í því ljósi að meira en helmingur fyrirtækja í Úrvalsvísitölu Kauphallarinnar hefur lýst því yfir að þau muni gera aðra mynt en íslensku krónuna að starfsrækslumynt sinni, er tími til kominn að stjórn- málamenn taki skipan gengismála á dagskrá og leiði þá umræðu til lykta, áður en aðrir þátttakendur í hagkerfinu taka upp aðra mynt bakdyramegin.“ Þegar spurt er um hvað stendur upp úr hjá honum persónulega á árinu segir Þorvaldur Lúðvík það gjörbreytingu á högum „þar sem ég hætti hjá Kaup- þingi eftir 11 ára starf, stofnaði bankann og fluttist til Akureyrar. Reynslan af búferlaflutningunum hefur verið afar jákvæð og hlökkum við til næsta árs í nýj- um heimkynnum. Starfsfólki bankans hefur verið af- ar vel tekið og er það mikilvægt að finna velvilja sam- félagsins svo sterkt á hverjum degi. Í mínum augum er höfuðborgarsvæðið og Akureyri sama atvinnu- svæðið, enda hending ef ekki er hægt að skjótast á milli ef þörf krefur. Flugfélag Íslands þjónar svæð- inu vel með sjö ferðum á dag yfir vetrartímann. Auð- vitað er sumpart óhagræði af því fyrir starfsfólk okk- ar að höfuðstöðvar bankans séu á Akureyri, en kostirnir eru þó fleiri. Við teljum til dæmis að það sé gott að búa með fjölskyldur okkar í þessu umhverfi og sinna jafnframt krefjandi vinnu. Akureyri er mjög gott samfélag með fjölbreyttum afþreyingar- og menningarkostum sem er einmitt það sem þarf til að hægt sé að byggja upp sterkt samfélag með rætur til vaxtar.“ Þorvaldur L. Sigurjónsson forstjóri Saga Capital Á vetur setjandi Helgi K. Hjálmsson er formaður Landssambands eldri borgara og for- maður einnig í Félagi eldri borgara í Garðabæ. Hvað finnst honum hafa borið hæst á árinu sem er að líða? „Mér er minnisstæðastur lands- fundur Landssambands eldri borgara, sem haldinn var á miðju ári. Þar var ég einróma kjörinn formaður samtak- anna, sem telja í dag um 18 þúsund fé- laga í 53 félögum. Á þessum fundi voru samþykktar mjög góðar tillögur um kjara- og umönnunarmál eldri borgara. Það er búin að vera stöðug barátta til margra ára um bætt kjör eldri borgara, og nú fyrst á þessu ári sýnist mér að það sé aðeins farið að rofa til. Það er raunar stórsigur í kjarabaráttunni að það er núna fyrst sem stjórnvöld viðurkenna að ekki sé allt í sómanum í þessum málaflokki og nú þurfi að fara að taka til hendinni. Eftir slíka hugarfars- breytingu gerum við okkur vonir um að málum fari að þokast í rétta átt. Fyrsta útspilið af hendi ríkisstjórn- arinn fannst okkur heldur rýrt, en engu að síður spor í rétta átt. Áhersla lögð á hækkun skattleysismarka Við leggjum meginþunga á leiðrétt- ingu grunnlífeyris, sem með réttu ætti að vera um 80 þúsund krónur á mán- uði, og hækkun skattleysismarka og af- nám tekjutenginga. Það er krafa okkar að allir megi búa við þau kjör sem dugi til eðlilegrar framfærslu. Í dag fer því víðsfjarri að svo sé.“ – Hvað sérðu framundan? „Áframhaldandi kjarabaráttu og heimsóknir til hinna fjölmörgu félaga innan landssambandsins til þess að styrkja innviði sambandsins og gera þau virkari bæði í þjóðfélagsbaráttunni svo og að styðja við bakið á þeim í samskiptunum við bæjar- og sveit- arstjórnir.“ – Hvað var markverðast? „Ég skilaði af mér formennsku í leikmannaráði og leikmannastefnu um mitt ár eftir 20 ára uppbyggilegt og skemmtilegt starf. Þegar ég lít um öxl í þeim ranni hlýt ég að vera ánægður með það starf sem þar hefur verið unnið í þágu leikmanna innan íslensku þjóðkirkjunnar og síðast en ekki síst þann trúnað sem mér var sýndur með því að fela mér for- mennsku í landssamtökum eldri borg- ara.“ Byggingarfélag Félags eldri borgara í Garðabæ – En hvað er þér eftirminnilegast persónulega? „Það sem mér er eftirminnilegast er að hafa fengið að leggja mig allan fram við fyrrnefnd verkefni. Ég ætla að helga mig kjarabarátt- unni fyrir eldri borgara á næsta ári og vona að sú barátta fari að bera ein- hvern árangur. Í mínum huga er það eitt allra stærsta málið á næstunni og þess má ég til með að geta að ég hef stofnað byggingarsamvinnufélag Félags eldri borgara í Garðabæ. Það er stórt spor og allrar athygli vert. Búið er að sækja um 35 þúsund fermetra lóð, þar sem verða byggð einbýlihús, raðhús og fjöl- býlishús sem félagar í þessu verkefni fá á kostnaðarverði. Yfirvöld í Garðabæ hafa sýnt málinu skilning og velvilja og málin standa þannig í dag að það er búið að koma fram með hugmyndir að skipulagi á þessu svæði, sem er fyrir neðan Hafn- arfjarðarveg, á móts við Silfurtún.“ gudrung@mbl.is Áframhaldandi kjarabarátta framundan Byggingar eldri borgara í Garðabæ Morgunblaðið/Golli „Það ríktu bæði kvíði og eft- irvænting þegar handrit að nýj- ustu skáldsögu Jóns Kalmans barst á forlagsskrifstofuna í vor. „Einhver ætti að skjóta mig,“ dæsti skáldið um leið og hann af- henti pappírsbunkann, en það er viðkvæði hans þegar mikið liggur við. Síðasta bók Kalmans, Sum- arljós, og svo kemur nóttin, vann Íslensku bókmenntaverðlaunin og ávann honum sömuleiðis stóran hóp heitra aðdáenda sem beið með öndina í hálsinum eftir nýrri bók. Ég las handritið sama dag og fram á nótt. Og nú kemur að því. Þarna reis líf mitt í útgáf- unni hæst á árinu, ég sveif í hæstum hæðum. Ég las síðustu línuna með tár á hvörmum og bros á vör og hrópaði hátt og skýrt: „yesss.“ Ég hrópaði á enskri tungu (bara til að undir- strika hvað Jón skrifaði fallega á íslensku) og vissi að þetta yrði skemmtilegt ár í útgáfunni, enda varð raunin sú og Kalman met- söluhöfundur. Bókmenntahátíð var haldin í Reykjavík í september, þar var geðveikt stuð, í stuttu máli, glæsilegir höfundar og fleiri góð- ir gestir. Það er unaðslegt að fá heiminn í heimsókn í nokkra daga, lengi lifi þessi hátíð. Ég hef haldið því fram í allt haust að Nóbelsverðlaunahafinn Coetzee, einn minna eftirlætishöfunda, og Kristján Bé, formaður félags bókaútgefanda, hafi eyðilagt bíl- inn minn í Krýsuvíkurhringnum, en það er ósatt. Það var kominn tími á bremsuborðann.“ Fullvalda lítill risi „Bjartur gekk í bandalag með bókaforlaginu Veröld síðasta sumar, minni forlög sem vildu standa saman sem systur á móti risunum Eddu og JPV. Á fimm ára áætluninni var að verða í sameiningu annar stærsti bóka- útgefandi landsins. Hvort sem það er ötulli framgöngu starfs- manna Bjarts og Veraldar eða einhverju öðru að þakka – eða kenna – rættist þessi draumur fyrr en til stóð, eða þegar Edda og JPV gengu í eina sæng. Þetta gerðist seint á árinu svo áhrifin eru kannski ekki fyllilega ljós enn. Nú er staðan sú að stærsti útgefandinn er fjórum sinnum stærri en sá næststærsti, sem aftur er helmingi stærri en sá næsti … það er gaman að skoða tölur, en Bjartur er ánægður með að vera sjálfstæður og full- valda lítill risi.“ Marokkó og Vestfirðir „Prívat eru það nýir staðir sem standa upp úr á árinu. Síðasta vetur heimsótti ég Marokkó með börnum mínum og í sumar keyrðum við um Vest- firði. Fjöllin voru fögur á báðum stöðum, hvort sem maður fór þau fótgangandi, akandi eða á asna- baki. Það kom mér jafnmikið á óvart hvernig fólk lifði í Marra- kech og hvað það var langt vest- ur. Þó átti ég að vita hvort tveggja.“ Guðrún Vilmundardóttir, ritstjóri hjá Bjarti bókaútgáfu Þarna reis líf mitt hæst á árinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.