Morgunblaðið - 31.12.2007, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2007 27
„Árið byrjaði af krafti þann 5. jan-
úar þegar ég hóf störf sem verk-
efnastjóri á vegum nýstofnaðs
hlutafélags, Háskólavalla ehf., með
það að markmiði að koma á fót al-
þjóðlegu mennta- og þekking-
arsamfélagi á gamla varnarsvæð-
inu. Herinn var nýfarinn og ég
fékk skrifstofuaðstöðu hjá Þróun-
arfélagi Keflavíkurflugvallar. Það
var skrýtin tilfinning að horfa út
um gluggann á þetta 4.000 manna
draugaþorp sem stóð autt og tómt,
engum til gagns, en mörgum til
ama.
Framundan voru annasamir
tímar en skemmtilegir. Leiða
þurfti saman hagsmunaaðila, fjár-
festa og skóla. Þetta tókst framar
öllum vonum og í mars var með
viljayfirlýsingu lagður grunnur að
stofnun Keilis sem síðan tók form-
lega til starfa í maí með aðild HÍ,
nokkurra lykilrannsókna- og -vís-
indastofnana landsins og helstu út-
rásarfyrirtækja okkar. Í kjölfarið
var ég ráðinn framkvæmdastjóri
fyrirtækisins.
Síðan hafa Keilir og Há-
skólavellir í góðu samstarfi við
Reykjanesbæ og Þróunarfélagið
leitt umbreytingu svæðisins. Nú
um áramótin búa á Vallarheiði
tæplega 1.200 manns, háskólanem-
ar og fjölskyldur þeirra. Svæðið er
tengt háskólum á höfuðborg-
arsvæðinu með „express“-strætó
og nám á vegum Keilis hefur feng-
ið fljúgandi start. Á nokkrum
mánuðum náðum við þeim íbúa-
fjölda sem áætlanir okkar gerðu
ráð fyrir að við næðum í árslok
2009.
Á undraskömmum tíma hefur
starfsemin á Vallarheiði skapað
verðmæti úr eignum sem áður
voru taldar verðlausar, auk þess
að skapa fjölda starfa á svæðinu.
Þar sem áður var draugabær í nið-
urníðslu er nú iðandi líf og glað-
vært samfélag, jólaskreytt hús og
börn að leik.“
Frekari uppbygging á
Vallarheiði
„Áframhaldandi uppbygging há-
skólasamfélagsins á Vallarheiði er
framundan. Keflavíkurflugvöllur er
eini alþjóðaflugvöllur landsins og
er sem slíkur samgöngumiðstöð
okkar Íslendinga út í heim. Al-
þjóðaflugvellir eru hvarvetna að
verða öflugar alþjóðlegar efna-
hagsvélar, vettvangur viðskipta og
þekkingar. Ég er sannfærður um
að flugvallarsvæðið og Reykjanes-
bær verði helsta vaxtarsvæði
landsins á næstu árum. Sú þróun
er þegar hafin af fullum krafti.
Með löngu tímabæru brotthvarfi
hersins héðan opnuðust ótrúleg
tækifæri. Hlutverk okkar er að
nýta þau. Starfsemin á Vallarheiði
mun á næstu misserum og árum
skapa arð fyrir íslenskt samfélag,
Suðurnes og þá sem lagt hafa
fram fjármagn í verkefnið. Þetta á
og verður að fara saman.“
Veiðiferðir og útskrift
„Ég held að það sé óhætt að
segja að liðið ár hafi, hvað varðar
mína persónulegu hagi, bless-
unarlega einkennst af meiri ró en
árið þar á undan. Ég hefði hins
vegar gjarnan viljað eyða meiri
tíma með mínum nánustu. Veiði-
ferðir sumarsins með Eyvindi
Ágústi, yngsta syni mínum, í Hít-
ará og miðsyninum, Stefáni Bjarti,
til Grænlands standa upp úr og
síðan að sjálfsögðu útskrift frum-
burðarins, Skarphéðins Áns úr
mínum gamla skóla, Mennta-
skólanum við Hamrahlíð, nú fyrir
jólin.
Eldri synirnir hafa á síðustu ár-
um breyst úr drengjum í menn.
Það hefur verið mannbætandi fyrir
mig að horfa á þá fullorðnast og
breytast úr börnunum mínum í
vini mína. Slíkt er þeim sem þeirr-
ar gæfu njóta ómetanlegt.“
Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis,
miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs
Draugaþorp lifnar við
Morgunblaðið/Ásdís
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Staðsetjið ekki kerti
þar sem börn
eða dýr geta
auðveldlega rekið
sig í þau og velt
þeim um koll
Munið að
slökkva á
kertunum
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum farsældar
á nýju ári. Þökkum viðskiptin
á liðnum árum.
Starfsfólk Eignamiðlunar
S í ð u m ú l a 2 1 · S . 5 8 8 9 0 9 0 · w w w . e i g n a m i d l u n . i s
Óskum viðskiptavinum
og landsmönnum öllum
Gleðilegs nýs árs
og þökkum viðskiptin
á árinu sem er að líða