Morgunblaðið - 31.12.2007, Side 28
28 MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Ferðamál er eitt af því sem Ís-
lendingar hafa litið til sem
mikilvægs vaxtarsprota í at-
vinnumálum þjóðarinnar.
Magnús Oddsson er ferð-
málastjóri en hann hættir
störfum sem slíkur nú um ára-
mótin. Hann var spurður hvað
væri honum efst í huga við
þessi tímamót?
„Það að hafa fengið tækifæri
til að taka þátt í þeirri bylt-
ingu sem orðið hefur í ferða-
þjónustu og ferðamálum á Ís-
landi á undanförnum
áratugum,“ segir Magnús.
„Ég kom fyrst að ferða-
málum 1974 og kynntist þeim
þá vinnandi á ferðaskrifstofu.
Síðan kom ég að flugrekstr-
inum og loks að þætti hins op-
inbera, sl. 18 ár.
Það er mjög erfitt að taka
eitthvað eitt út úr en eigi síður
finnst mér sérlega ánægjulegt
að hafa verið í forsvari við
vinnu að gerð opinberra ferða-
málaáætlana fyrir tímabilið
1995 til 2015. Mikil ánægja
hefur fylgt því að kynnast öll-
um þeim stóra hópi sem ég hef
átt samskipti við innanlands og
utan á þessum tíma. Sér-
staklega er ég þakklátur öllu
mínu samstarfsfólki gegnum
tíðina.“
Árið 2007 enn eitt metárið
Hvað hefur verið efst á
baugi í ferðamálaunum sl. ár?
„Ferðaþjónustan hefur verið
að vaxa mjög mikið að umfangi
á Íslandi í langan tíma og árið
2007 verður enn eitt metárið
hvað varðar uppgang ferða-
þjónustu. Á það við um alla
mælanlega þætti hennar. Er-
lendum gestum fjölgar líklega
um 60 þúsund frá því í fyrra
og verða nær hálf milljón á
árinu. Íslendingar hafa ferðast
meira um eigið land en nokkru
sinni fyrr og síðast en ekki síst
aukast gjaldeyristekjur af er-
lendum gestum okkar um 6
milljarða frá síðasta ári, þeir
verða líklega yfir 53 milljarðar
á árinu.
Það stendur og upp úr á
þessu ári hve mikil gróska hef-
ur verið í uppbyggingu alls
konar afþreyingar, ekki síst
þar sem verið er að tengja
saman menningu okkar og
sögu og gera hana sýnilega og
aðgengilega erlendum og inn-
lendum gestum.“
Aukning í umsvifum 25 til
50 prósent
Hvað er framundan?
„Það er alveg ljóst þegar lit-
ið er til áætlana ferðaþjónustu-
fyrirtækja fyrir árið 2008 að
áfram er gert ráð fyrir mikilli
sókn bæði á hefðbundnum
mörkuðum og nýjum. Ef að-
eins er litið til áforma um
væntanlegar fjárfestingar í
gistirými þá sýnist mér að á
næstu 36 mánuðum sé verið að
setja á markað nýtt gistirými
þannig að aukning í umsvifum
þurfi að vera allt að 25 til 50%
hvað varðar fjölda gesta til að
ná ásættanlegri nýtingu. Það
býr stórhugur og bjartsýni að
baki þessum áformum og mikil
markaðsvinna er framundan
hjá umræddum fyrirtækjum til
að ná þessari aukningu. Þá er
ekki síður mikil vinna fram-
undan við menntun og þjálfun
starfsfólks í öllum þáttum
ferðaþjónustunnar sem á að
þjóna 25 til 50% meira um-
fangi en nú er, eftir þrjú ár.
Gæði móttökuþáttar mik-
ilvægust
Það er mitt mat að það sem
muni einmitt ráða úrslitum um
samkeppnishæfni okkar til
framtíðar verði gæði móttöku-
þáttarins. Að stærsta verk-
efnið til aukinnar arðsemi
verði að styrkja alla þætti
móttökuþáttarins, hvort sem
litið er til grunnþátta og ferða-
mannasvæðanna sjálfra eða að
hér verði nægt menntað og
hæft vinnuafl til að þjóna
auknu umfangi. Árangurinn
undanfarin ár og áform til
framtíðar sýna þann kraft og
þann stórhug sem býr í ís-
lenskri ferðaþjónustu, enda
hefur Ísland verið að ná meiri
árangri hlutfallslega í auknu
umfangi en flest önnur lönd
heims.
Sextugur á þessu ári í
faðmi fjölskyldunnar
Persónulega stendur hæst
þetta ár þau tímamót að ég
varð sextugur. Það er ekki
sjálfgefið að fá að fagna þeim
tímamótum með allri fjölskyld-
unni og allir heilir heilsu. Þess
ber og að geta að á árinu fór
ég í margar ánægjulegar ferðir
um landið. Það var ekki síst
einkar ánægjuleg sú ferð sem
við hjónin fórum kringum
landið undir haust og komum
víða við og sáum fjölmargt
sem eftirminnilegt er og verð-
ur.“
gudrung@mbl.is
Áberandi aukning á þessu ári!
Sex milljarða gjaldeyrisauki á árinu
Morgunblaðið/Ómar
!
" $%
&
&
'!
('' %
)$
%
* ' $
+!
,-./0+
1$
)%'%
23 $
.%!
-%$
) $
-%%
+%%4%5
+
6 4%
+%%'7/%'
. 0 8 ,