Morgunblaðið - 31.12.2007, Side 30

Morgunblaðið - 31.12.2007, Side 30
30 MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Hvað mig varðar er eftirminnilegast af liðnu ári sýning Listasafnsins á verkum Kristjáns Davíðssonar. Það var geysigaman að vinna að þeirri sýningu og frábær aðkoma margra manna, líka falleg bók sem henni fylgdi – og fylgir auðvitað enn. Það eru nú langir þræðir í okkur sem þjóð en ég held að nú hafi menn loksins áttað sig á því að þarna hefði maður farið fram hjá þeim – maður sem er ennþá að, er orðinn níræður en er enn að skapa í fullu fjöri. Það er alveg ein- stakt. Þessu fylgdu líka yndisleg samskipti við hann sjálfan. Svo vorum við með Kobra-sýningu. Það er í fyrsta sinn sem stór sýning frá Kobrahópn- um er sýnd hér og þar var bætt við dágóðum hlut Svavars Guðnasonar sem fékk þá loks að vera hér í því samhengi. Þetta gerir að verkum að nú er í bígerð stór yfirlitssýning á verkum hans sem á eftir að fara víða um lönd en byrjar hér 2009. Svo þetta er allt í samhengi. Það æxlaðist því þannig að báðir þessir eldri meistarar léku stórt hlutverk hér í Listasafninu á síðasta ári. En svo má ekki gleyma því að á sumarsýningunni okkar var viðrað nýkeypt verk eftir Katrínu Sigurð- ardóttur, tiltölulega unga listakonu sem er búsett drjúgan hluta ársins í New York. Þetta verk nefnist High Plane og var smíðað inn í efri sali okkar og ég held að þetta ein- staka verk hafi vakið alveg ótrúlega athygli. Þetta er eiginlega landslagsverk sem er lagt lárétt og hægt að fara upp í tvo stiga til að virða það fyrir sér. Þetta verk er síðan enn uppi og hægt að sjá það fram í febrúar og allir velkomnir að gera það! Ég held að það sé að aukast hér mjög skilningur á samtímamyndlist. Og ég finn að þessi nýja stétt stöndugra manna hérlendis er mjög að snúa sér að samtímamyndlistinni. Menn eru mjög spenntir fyrir henni og ég veit um nokkra menn sem eru bæði miklir safnarar og eru á faraldsfæti með reglulegu millibili til að fylgjast líka með því sem er að gerast erlendis. Varðandi það sem er framundan þá verður töluverð áhersla á samtímalist í Listasafninu þar sem heimsþekktir erlendir listamenn taka höndum saman við innlenda listamenn. Það hefur allt of lengi viðgengist hér heima að íslenskir listamenn sýna sér og svo er er- lendum listamönnum boðið að sýna sér. En það hefur verið allt of lítið um það að leiða hesta þessara tveggja heima saman. Það er eitthvað sem verður að gerast meira. Við sem erum alltaf með þessa útrás á vörunum – við getum rétt séð hvernig við myndum líta út ef við værum ekki í tengslum við hluti annars staðar í heiminum. Og það er það sem Íslendingar átta sig kannski ekki á, að þeir verða að taka á sig rögg, vera þjóð á meðal þjóða. Þar er mikið atriði að hægt sé að sýna fram á að list okkar er í tengslum við og partur af hinu alþjóðlega samhengi. Varðandi einkalífið var ég náttúrlega gerð- ur að safnstjóra við Listasafn Íslands á árinu. Ég held að það sé nú það merkileg- asta sem á daga mína hefur drifið á þessu ári. Morgunblaðið/Árni Sæberg Halldór Björn Runólfsson safnstjóri Listasafns Íslands Innreið hins alþjóð- lega samhengis „Árið sem er að líða var mér bæði gjöfult og viðburðaríkt,“ segir Þórhildur Líndal, mann- réttindaráðgjafi Reykjavíkurborgar. „Það hef- ur ekki síst einkennst af ferðalögum. Ég var á faraldsfæti og kom á ýmsa staði sem ég hafði ekki áður komið til.“ Barnasáttmáli Þórhildur dvaldi m.a. um hríð í Strassborg og kynnti sér dóma Mannréttindadómstóls Evrópu þar sem Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kemur við sögu. „Þetta gerði ég til að rannsaka hvernig sáttmálanum er beitt, en honum er ætlað að tryggja mannréttindi og öryggi barna alls staðar. Ég komst að því að það virðist nokkurri tilviljun háð hvort og hve- nær dómstóllinn vísar í sáttmálann. Síðustu ár hefur þó meira púðri verið eytt í túlkun á hon- um en áður. Að því leyti virðist hann vera að festa sig í sessi og áhrif hans þar með að aukast.“ Þórhildur bendir á að Barnasáttmál- inn sé sá alþjóðlegi sáttmáli sem víðast hefur verið fullgiltur, þ.e. í öllum ríkjum Sameinuðu þjóðanna utan Bandaríkjanna og Sómalíu. Þrátt fyrir það hefur honum ekki verið beitt sem skyldi. Þórhildur hefur líka skoðað íslenska hæsta- réttardóma þar sem vikið er að Barnasáttmál- anum. „Mér fannst spennandi að bera íslenska dóma saman við dóma Mannréttinda- dómstólsins og ég kynnti mér alla hæstarétt- ardóma síðustu tíu ár. Ég komst að því að sáttmálanum er einnig beitt með tilvilj- unarkenndum hætti hér á landi. Sá munur er þó á að hér er vísað til mun færri ákvæða sátt- málans en gert er fyrir Mannréttinda- dómstólnum.“ Þórhildi fannst sláandi að Hæstiréttur sjálfur hefur aldrei vísað til Barnasáttmálans. ,,Héraðsdómarar hafa vísað til hans, sem og lögmenn sem flutt hafa mál fyrir Hæstarétti, en í hann er ekki vísað í dómum Hæstaréttar. Með þeirri undantekn- ingu þó að í sératkvæði tveggja dómara í einu máli er fjallað nokkuð ítarlega um rétt barna til að segja skoðun sína á máli.“ Vantar fræðslu Lokaniðurstaða Þórhildar er sú að ekki sé horft til Barnasáttmálans sem skyldi hér á landi og að grípa þurfi til aðgerða til að styrkja stöðu hans. „Ég tel mjög brýnt að fræða fólk, einkum þá sem vinna að málefnum barna, um markmið og efni sáttmálans. Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur bent íslenskum stjórnvöldum á að hér þurfi öflugri kynningu. Kynning af þessu tagi út- heimtir mikla vinnu því það er mjög breiður hópur sem ætti að hafa grunnþekkingu á rétt- indum barna eins og þau eru skilgreind í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.“ Þórhildur leitaði fyrir nokkru eftir sam- starfi við UNICEF um útgáfu á kennslu- og upplýsingariti um Barnasáttmálann. „Það samstarf hefur nú borið árangur,“ segir hún. „Á átján ára afmæli sáttmálans, 20. nóvember síðastliðinn, kom loks út fræðslurit sem ég hafði lengi átt mér draum um. Þar er m.a. að finna túlkanir og útskýringar á ýmsum atrið- um sáttmálans.“ Áhersla var lögð á að ritið væri þægilegt aflestrar og aðgengilegt. Hollt að breyta til Þórhildur er sérstaklega ánægð með að hafa lokið þessari skýrslu. „Þar með batt ég endahnútinn á stórt verkefni. Fyrir rúmu ári tók ég svo við starfi mannréttindaráðgjafa Reykjavíkurborgar, sem verður mannrétt- indastjóri frá og með 1. janúar, og mín bíða mörg spennandi verkefni,“ segir hún. Þórhildi finnst mikilvægt að söðla um af og til. „Við vit- um ekki hvað bíður okkar eftir þetta líf og ég reyni að nýta sem best þau tækifæri sem mér bjóðast hverju sinni.“ Áður var Þórhildur um- boðsmaður barna, deildarstjóri í félagsmála- ráðuneytinu, fulltrúi yfirborgardómarans í Reykjavík og starfaði í forsætisráðuneytinu. Barnalán „Hvað einkalífið snertir, þá eignaðist ég mitt fimmta barnabarn, yndislegan lítinn dreng, í ár. Þótt það sé margtuggið er það engu að síður svo þegar öllu er á botninn hvolft að fjölskyldan er verðmætust af öllu. Annað verður hjóm í samburði. Ég nýt þess að vera amma og sjá lífið halda áfram í barna- börnunum,“ segir hún að lokum. Þórhildur Líndal, mannréttindaráðgjafi Reykjavíkurborgar Barnasáttmáli og barnalán Nú er ég bæði kvikmyndagerðarmaður og gay aktívisti en auðvitað horfi ég á sam- félagið með augum aktívistans. Á þessu ári hefur mér fundist merkileg öll umræðan sem hefur farið fram um þjóðkirkjuna og innan hennar. Þá á ég ekki bara við yfirlýs- ingar á kirkjuþingi um að vilja stíga það skref að framkvæma löggjörninginn stað- fest samvist – hjónaband homma og lesbía – heldur er ég einnig mjög hugsi yfir nýlið- inni umræðu um fermingarfræðslu og kennslu kristinna fræða almennt í grunn- skólum. Sérstaklega því hversu hatrömm hún hefur verið af hálfu biskups gegn þeim sem ekki aðhyllast þjóðkirkjuna og kristna trú. Mér hefur fundist sú orðræða sem hann hefur gripið til ekki sæma nokkrum biskupi og sérstaklega ekki biskupi Íslands sem á í raun vegna sérstöðu sinnar sem höfuð ríkiskirkjunnar að vera sameining- artákn þjóðarinnar og til friðs. Ég vona að á næsta ári geti skapast vitrænni umræða um þessi mál. Það mætti til dæmis halda málþing og fyrirlestra þar sem mættu koma að heimspekingar, listamenn, mann- réttindasérfræðingar og rithöfundar því það er nauðsynlegt í lýðræðissamfélagi að þessi umræða fari fram á vitrænum nótum en ekki í skítkasti og leiðindum. Þetta snertir allt það breytta fjölmenn- ingarsamfélag sem við stöndum frammi fyrir og þá undarlegu stöðu að vera með ríkiskirkju og ríkistrú sem eru svolítið barn síns tíma. Það er ekki hægt að bjóða upp á að hugmyndum sé þröngvað upp á á nem- endur sem eru ekki kristnir. Kristin trú á að fá að vera val innan skólanna. Sem kvikmyndagerðarmaður varð ég annars hugsi yfir þeirri átt sem Ríkissjón- varpið hefur fengið að þróast í á árinu. RÚV sem stundum hefur verið kölluð risa- eðlan á meðal kvikmyndagerðarmanna hef- ur vissulega losnað aðeins úr viðjum þess þrönga stakks sem þessi stofnun var föst í. En mér finnst það vera komið fram úr sjálfu sér með gríðarlegu magni auglýsinga og þar að auki auglýsinga inni í flestum ís- lenskum þáttum. Þótt ég sé fylgjandi sterku ríkissjónvarpi er þetta of langt gengið. Hinn almenni borgari er skikkaður til þess að greiða áskrift að þessum miðli og því eigum við ekki að þurfa að þjást undir oki auglýsinganna. Hvernig umhverfi er verið að búa öðrum miðlum sem hafa ekki fé frá ríkinu til rekstrar auk auglýs- ingatekna? Svona líðst hvergi annars staðar í heiminum af ríkismiðli. Varðandi framtíðina finnst mér sem stjórnmálamenn séu að fá meiri skilning á að íslenska ríkið geti gert mikið til að styðja við bakið á kvikmyndaiðnaðinum. Ef við horfum til Dana þá tóku þeir einfald- lega ákvörðun fyrir 10-15 árum um að setja mikið fjármagn í að byggja þennan iðnað upp, m.a. með því að setja á stofn Dansk Filminstitut, þjálfa fólk til meiri fagþekk- ingar á öllum sviðum. Þetta er að skila sér margfalt, til dæmis í gríðarlega góðum dönskum sjónvarpsþáttum. Þar sem ég er kvikmyndagerðarmaður er enginn munur á atvinnu minni og einkalífi. Síðasta vor lauk ég við heimildarmyndina Óbeislaða fegurð um samnefnda fegurð- arsamkeppni á Vestfjörðum. Það var ynd- isleg reynsla að kynnast Vestfjörðum og samfélaginu þar. Það býr mjög skemmti- lega þenkjandi fólk fyrir vestan og mér líð- ur eins og ég hafi eignast stóra fjölskyldu þar. Hrafnhildur Gunnarsdóttir, kvikmyndagerðarkona Vitræna en ekki hatrama umræðu Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.