Morgunblaðið - 31.12.2007, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2007 33
Meiriháttar breytingar á starfi eða starfsvettvangi virðast í
vændum og verða tækifærin til staðar allt árið. Ljónið hefur
hagkvæmnina að leiðarljósi að þessu sinni og lætur dramatík-
ina lönd og leið. Miklar líkur eru á umskiptum í daglegri rútínu.
Ljónið er ekki fram úr hófi flinkt í því að skipuleggja og setja
markmið, en lærir það á nýju ári.
Ekki láta fara of vel um þig, á þarnæsta ári muntu hafa nóg
að glíma við. Heppnin verður með þér á árinu og þú færð tæki-
færi til þess að biðja um launahækkun. Semdu um enn meira en
ella.
Umskiptin í einkalífi byrja í febrúar og stigmagnast fram eft-
ir ári, ekki síst í tengslum við fjármál og fjárfestingar. Þau
gætu orðið róttæk, óvænt heppni, eða algert hrun. Varkárni og
opið viðmót eru lykilatriði í mars, maí og nóvember. Byrjaðu
árið með það í huga að auka líkurnar þér í hag. Settu markmið á
blað, farðu yfir þau annað slagið og endurskoðaðu ef nauðsyn
krefur. Færni af þessu tagi mun koma þér að góðum notum í
framtíðinni.
Ekki er líklegt að miklar breytingar verði í persónulegum
samböndum eða í rómantíkinni fyrr en í árslok. Aðstæður verða
óskýrar og þess vegna þarf ljónið að hafa raunsæið að leið-
arljósi. Sannleikur, traust og blekkingar verða sveipaðar hulu.
Gættu þess að það sem blasir við sé ekta.
Heilsufar og vinnuaðferðir verða í brennidepli á þessu ári.
Framsýn hugsun hefur sitt að segja, kannski gerbreytist við-
horf ljónsins til heilsu og vellíðunar.
Sambönd ljónsins eru ýmist uppspretta ánægju eða gremju,
ekki síst ef fjármálin koma við sögu. Eitthvað er ekki alveg á
hreinu. Þetta verður ekki rétta árið til þess að fara út í ný sam-
bönd af nokkru tagi.
LJÓNIÐ
23. júlí til 23. ágúst
Á nýju ári blasir ný stefna, bjartsýni, tækifæri og ný skynjun
við steingeitinni. Tími vaxtar, þenslu og aukins þroska fer í
hönd. Hann kemur ekki aftur. Dugnaður og metnaður stein-
geitarinnar mun byggjast á framsýni, skynsemi og skipulagn-
ingu. Hugsanlega gerir hún einhver mistök, en þau verður bæði
hægt að leiðrétta og láta sér að kenningu verða. Varanlegar og
djúpstæðar breytingar á lífi steingeitarinnar eru í vændum.
Upphaf þeirra verður í febrúar, en síðan magnast þær stig af
stigi fram í ágúst. Þær gætu reynst afdrifaríkar eða leitt til
mikillar heppni. Raunsæið er lykilatriði hér.
Á komandi mánuðum fær steingeitin tækifæri til þess að
skapa sín eigin örlög, ekki síst í tengslum við sinn eigin styrk,
nýja kunnáttu, hæfileika og stefnu í lífinu. Mars, maí og nóv-
ember verða besti tíminn til þess að grípa tækifærin. Blandaðu
geði og farðu og hittu nýtt fólk.
Heilsufar og sjálfsagi verður í brennidepli, en ekki víst að all-
ar aðstæður blasi jafn skýrt við. Útkoman gæti orðið upp-
byggileg til frambúðar, en líka einhvers konar hnignun sem
leiðir til meiri ábyrgðar.
Í samböndum upplifir hún vonbrigði og álag, sem og öryggi
og stöðugleika. Valdatafl gæti komið upp en á næstu árum má
búast við miklum umskiptum og auknum styrk, sjálfstrausti og
sjálfsvirðingu.
Með vorinu má búast við nýju upphafi og tækifærum í róm-
antíkinni. Árið verður framúrskarandi til þess að byggja upp
eða staðfesta ástarsambönd. Betra ár verður ekki í vændum að
þessu leyti um langt skeið.
Í nánum viðskiptasamböndum og samböndum í einkalífi
verður að gæta þess að efla boðskiptin, tala skýrt, skuldbinda
sig og missa ekki sjónar á raunsæinu. Ekki er víst að lög-
fræðileg málefni sem nú eru í deiglunni endi á þann máta sem
steingeitin kýs.
STEINGEITIN
22. desember til 20. janúar
rir árið 2008
Einhverra breytinga er að vænta á starfi og starfsvettvangi á
árinu, en þær verða að líkindum ekki stórbrotnar. Áskor-
anirnar tengjast einkum þeim sem krabbinn starfar með og
tengslum hans við þá, ekki vinnunni sem slíkri. Ekki sofna á
verðinum samt sem áður, á þarnæsta ári verður nóg að glíma
við.
Breytingar á einkahögum byrja í febrúar og fara vaxandi
með tímanum, allt þar til í ágúst, ekki síst á sviði fjármála og
fjárfestinga. Þær gætu orðið róttækar. Reyndu að vera raun-
sær.
Krabbinn glímir ef til vill við of mikla bjartsýni og óraunhæf-
ar væntingar í einkalífi og rómantík. Árið sem fer í hönd mun
aðallega snúast um sambönd. Krabbinn þarf að vera afdrátt-
arlaus við aðra og mun ekki eiga auðvelt með að rækta heil-
brigð tengsl. Áhrifa þessa tímabils mun gæta um ókomna tíð.
Heilsufar eða sjálfsagi eru ekki ofarlega á blaði, en undir árs-
lok öðlast krabbinn hugsanlega nýjan skilning og fer að velta
lífi sínu og brautinni sem hann er á fyrir sér, það veltur þó á
ýmsu.
Vinir og félagar í stærri hópi gætu valdið vonbrigðum, eða
orðið til mikillar gleði, en bara ef þú gefur færi á þér, ekki síst í
febrúar og ágúst.
Valdatafl í samböndum eða vinnu er líklegt og er einungis
fyrirboði miklu stærri breytinga í lífi krabbans sem munu eiga
sér stað á næstu 12 árum.
Krabbinn þarf að gæta þess að boðskipti í nánum sam-
böndum í vinnu og einkalífi truflist ekki. Þú verður að tala
skýrt, skuldbinda þig til langframa og vera mjög raunsær. Ekki
geta allir staðið undir óraunhæfum væntingum.
Hvað fjármálin varðar gætu hindranir komið um mitt ár
fram í nóvember. Farðu varlega í því að taka á þig nýjar fjár-
hagslegar skuldbindingar.
KRABBINN
21. júní til 22. júlí
Framundan er skeið nýsköpunar, upplýsingar og jafnvægis.
Jákvæðar breytingar eru í vændum. Nú er rétti tíminn til
þess að horfa inn á við og afgreiða gömul mál, styrkja og
undirbúa fyrir þarnæsta ár, sem verður tímabil þroska og
drauma sem rætast. Vatnsberinn á að undirbúa sig, læra,
varðveita, vera opinn fyrir nýjum tækifærum og endurnýja
sig. Veltu fyrir þér því sem þú hefur lært og leggðu drög að
því nýja sem senn blasir við. Nú býrðu þig undir varanlega
og breytta framtíð.
Umskiptin hefjast í febrúar og ná hámarki síðsumars.
Fram eftir ári fær vatnsberinn tækifæri til þess að treysta
böndin við sína nánustu og eru mars, maí og nóvember besti
tíminn til þess að byrja á einhverju nýju á því sviði.
Heilsa og agi í vinnu verða í brennidepli, en engin leið að
sjá fyrir um það hvort leiðin liggur upp eða niður á við.
Náin sambönd munu bæði valda vonbrigðum og styrkja.
Þar kemur sjálfsmynd vatnsberans til skjalanna og hvernig
hann sér sjálfan sig í sambandinu. Mannlegt eðli blasir við í
sinni bestu og verstu mynd.
Togstreita gerir vart við sig innra með vatnsberanum.
Mörg viðfangsefna hans verða hulin sjónum annarra og
tengjast samtökum eða stofnunum. Gefðu þörfina til þess að
stjórna upp á bátinn. Á næstu árum muntu upplifa alger um-
skipti á öllum sviðum lífsins. Slepptu takinu og leyfðu því að
verða sem vill.
Með vorinu gætu tækifærin blasað við í ástarlífinu. Notaðu
tímann til þess að hefja samband eða styrkja samband sem
fyrir er. En gættu þess að þú vitir hvað þú ert að gera.
Hindranir í fjármálum verða ekki sérstakt vandamál á
þessu ári, en samt sem áður er ráðlegt að fara að öllu með
gát. Eitthvað óvænt gæti svo sannarlega komið upp. Notaðu
tímann til þess að treysta undirstöðurnar fyrir nýja byrjun.
VATNSBERINN
21. janúar til 19. febrúar
Miklar breytingar virðast í vændum. Karmaskuldir verða gerðar
upp. Meyjan verður í hæstu hæðum og dýpstu öldudölum á
næstu tveimur árum og allt sem gerist þá leggur grunninn að lífi
hennar eftirleiðis. Á næstunni þarftu að einbeita þér af alvöru að
því sem virkilega skiptir þig máli. Sjálfsagi meyjunnar, ábyrgð-
arkennd og iðni munu koma henni að góðum notum. Hún lærir að
forgangsraða og á að einbeita sér að áformum sínum og glíma við
alvarleg málefni. Nú er ekki rétti tíminn til að bíða.
Persónulegar breytingar byrja að eiga sér stað í febrúar og ná
hámarki síðsumars er meyjan setur líf sitt undir smásjá og gerir
áætlanir fyrir framtíðina.
Alvarleikinn verður þó ekki allsráðandi. Ný tækifæri, sköpun,
rómantík og fjör í einkalífi verður líka til staðar. Janúar, sept-
ember og nóvember eru besti tíminn til þess að byrja á einhverju
nýju. Sköpunargleðin er í hámarki og viðfangsefnin þýðing-
armikil.
Heilsufar og agi í daglegum vinnubrögðum verður í brennidepli
og til þess að ná árangri þarf að gera breytingar til langframa.
Sum sambönd meyjunnar valda vonbrigðum og álagi, önnur
ýta undir öryggi og stöðugleika.
Valdabarátta verður á heimili og í fjölskyldu. Á næstu árum
mun meyjan verða vitni að algerum umskiptum í tengslum við
undirstöðurnar, rætur sínar, fjölskyldu og stórfjölskyldu.
Í vor koma ný tækifæri upp á yfirborðið í einkalífi og rómantík.
Árið verður einstaklega hagstætt til þess að byggja upp eða
styrkja ástarsambönd og það langbesta sem er í vændum um
langt skeið.
Þess þarf að gæta að boðskipti truflist ekki í nánu samstarfi
eða sambandi og að hreinskilnin verði höfð að leiðarljósi.
Fjármálin ættu ekki að verða sérlega erfið viðfangs, þótt full
ástæða sé til þess að hvetja til varkárni í fjárhagslegum skuld-
bindingum.
MEYJAN
23. ágúst til 23. september
Fiskurinn leggur grunninn að framtíð sinni á nýju ári. Hann
eignast nýja vini, einbeitir sér að vonum sínum og þrám og
leggur sig fram í félagsstarfi. Tímabilið framundan snýst um
fólk – annað fólk. Breytingar eru í vændum og eru sambönd
fisksins við aðra, öll sambönd hans, undirstaða velgengni og
þess sem koma skal. Eiginleikar þessara sambanda munu geta
ráðið úrslitum um það, hvort hindranir verða á veginum eða
hvort tímabilið sem fer í hönd verður ánægjulegt og gefandi.
Vinna og starfsframi eru ekki í brennidepli á næstunni, held-
ur fólk og sambönd.
Breytingarnar byrja í febrúar og stigmagnast þar til síðsum-
ars. Áhrifanna gætir fyrst og fremst í skoðunum og heimspeki
fisksins og gætu þau vel orðið umtalsverð. Miklu máli skiptir að
sleppa takinu af fortíðinni og búa sig undir nýtt vitundarstig,
sem gæti svo sannarlega átt það til að koma á óvart.
Ný tækifæri blasa við, ekki síst á sviði sköpunar, rómantíkur
og í nánum samböndum. Mars, maí og nóvember verða besti
tíminn til þess að byrja á einhverju nýju. Spenna gæti komið
upp í samskiptum við þína nánustu síðari hluta ársins. Sjálf-
stæði og frelsi verður að vera í jafnvægi við varkárni og ábyrgð.
Flýttu þér hægt ef nýtt ástarsamband verður til.
Eitt svið tilverunnar þar sem fiskurinn þarf að einbeita sér
að því að hnýta lausa enda tengist vinnu og starfsframa. Notaðu
þetta síðasta tækifæri sem gefst til þess að fá launahækkun,
stöðuhækkun eða það besta út úr hæfileikum þínum án fyr-
irhafnar. Framtíðin mun einkennast af stöðugleika að þessu
leyti, svo það er núna eða aldrei.
Sambönd í vinnu verða sérstaklega í brennidepli. Ekki
mynda nýjan félagsskap algerlega umhugsunarlaust.
Fjármálin munu ekki verða sérstaklega til trafala á árinu, en
ráðlegt að fara varlega ef nýjar skuldbindingar eru á döfinni,
nú sem fyrr.
FISKURINN
19. febrúar til 20. mars