Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.2008, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Einar Falur
Einkennishús „Við vorum beðin að skapa byggingu sem yrði einkennandi fyrir Reykjavík, „landmark“, og þá verðum við að endurspegla á
ákveðinn hátt einkenni lands og náttúru,“ segir Peer Teglgaard Jeppesen, einn arkitektanna hjá HLT, sem hanna hið nýja tónlistarhús í
Reykjavík. Hér er hann við tölvuteikningar af byggingunni á skrifstofunni í Kaupmannahöfn. » 4
Laugardagur 10. 5. 2008
81. árg.
Eftir Þröst Helgason
throstur@mbl.is
Hvað gerist þegar fjórir trúðar komasaman til þess að leika Guðdómlegagleðileikinn eftir Dante? Trúðarnirsegja okkur auðvitað sannleikann
um sjálf okkur eins og trúða er háttur.
Einmitt þetta er
verkefnið í Dauðasynd-
unum, trúðaleiknum
sem frumsýndur var í
Borgarleikhúsinu á
fimmtudaginn en leik-
urinn byggir á verki
Dantes. Og verkefnið
var leyst af beittum
húmor sem á köflum
skar í gegnum merg og
bein.
Með gleðileik átti
Dante reyndar ekki við að hann hefði skrifað
sérstaklega fyndið verk heldur að það endaði
vel, Dante fer sína ferð í gegnum helvíti og
hreinsunareldinn en endar í paradís þar sem
hann finnur sína heittelskuðu Beatrísu.
Sýningin er frábær skemmtun. Leikararnir
fjórir, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Harpa
Arnardóttir, Halldóra Geirharðsdóttir og Berg-
ur Ingólfsson fara á kostum, einkum tveir þeir
síðastnefndu. Leikurinn gengur að miklu leyti
út á spuna og samspil við áhorfendur. Slíkt leik-
hús blæs lífi í augnablikið en er jafnframt mikill
línudans, spuninn má ekki verða of fyrirferð-
armikill og salurinn ekki í of stóru hlutverki. Á
frumsýningunni var jafnvægið gott. En næsta
sýning er annar tími.
Sannleikur
trúðanna
Dauðasyndirnar Beittur
húmor sem á köflum skar
í gegnum merg og bein.
lesbók
SAGA GUNNARS ORMSLEVS
TÓNN GUNNARS ORMSLEV VAR EINS OG MAÐURINN, BLÍÐUR OG HÆ-
VERSKUR. EN HVER ER SAGAN Á BAK VIÐ MANNINN OG TÓNINN? » 8
Rollingarnir gáfu út tvær plötur; Exile on Main Street og svo allar hinar » 7
Græna orkan
*Iðnaðarráðherra á aðalfundi Samorku 2008
– aðal trompið í ferðamannaiðnaðinum
*