Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.2008, Qupperneq 9
en
blés
unnar
fljót-
ð
l Sví-
unn-
hefur
u
n
n. Co-
ar til
omp-
n
em
aðinu
leik-
ðfæri
Tónn
r að
betri
t hinn
ð
kari,
Gunn-
bezt-
. Frá
eik-
ir
a ten-
dir og
hon-
ðið
tur
ís-
þökk
m
ma-
mar
apríl
sonar
da er
um,
víser-
na-
m tríó
ki
eynd-
r
avert
“
r
llingi
ki að-
nnur
“
Sim-
ð var
r
samvinnu við söngkonuna Alice Babs, sem mælti með
Gunnari við Simon, en hann skrifaði um Gunnar eftir að
hafa verið hér með Babs, að hann væri fremsti ten-
órsaxófónleikari í Evrópu. Svavar Gests skrifaði þá: „Að-
eins þeir beztu komast í beztu hljómsveitirnar. Þess
vegna réð sænski hljómsveitarstjórinn Simon Brehm
Gunnar til sín.“
Gunnar leysti hinn frábæra norska saxófónleikara
Bjarne Nerem af hólmi hjá Brehm. Í sænskum dómi um
Gunnar í maí 1955 eftir Per Dido má m.a. lesa: „Hinn
ungi Gunnar lék af mikilli leikni, en með dálítið grófan
tón, og minnti um margt á Flip Phillips í fraseringum.
Hinn tenóristi sveitarinnar, Claes Rosendahl, var nær
hinum svala Getz-skóla.“ Í annarri umsögn segir að „ungi
Íslendingurinn leiki í Stan Getz-stíl og eigi eftir að setja
mark sitt á stjörnusveit Simons“.
Hann var súperkatt
Gunnar kom heim eftir árið þótt Simon byði honum að
leika með sér áfram og hann fengi tilboð um að leika með
stórsveit trompetleikarans Thores Erlhings. Fljótlega
stofnaði hann fræga hljómsveit er fékk gullverðlaun á
Heimsmóti lýðræðissinnaðrar æsku og stúdenta í
Moskvu 1957 sem besta djasshljómsveit festívalsins. Að-
eins örfáar upptökur hafa varðveist með þessari hljóm-
sveit, en auðheyrt er að hún tók öðru fram er heyrst hafði
í djassi hérlendis, enda bárust ýmis atvinnutilboð að utan
„en strákarnir vildu vera heima“, sagði Ormslev seinna.
Eftir þetta lék Gunnar fyrst og fremst á Íslandi þótt
hann hafi hljóðritað með Stórsveit danska útvarpsins og
leikið nokkur sumur á Gotlandi. Af mögnuðustu hljóðrit-
unum hans eftir Moskvuævintýrið má nefna er hann lék
með austurríska píanóvirtúósnum Friedrich Gulda í
Framsóknarhúsinu 1959 og hljóðritanirnar með tríói
Jóns Páls Bjarnasonar gítarista þar sem Sigurbjörn Ing-
þórsson lék á bassann. Um það tríó segir Jón Páll:
„Hugmyndin kom frá Bjössa og ég þekkti Ormslev
ekki mikið þá, en það var dásamlegt að spila með Orms-
lev. Það var ekkert skrifað og við gátum spilað saman
eins og einn maður. Hann var súperkatt; ekkert vesen
með það.“ Einnig má nefna upptökur fyrir Voice of Am-
erica 1964, flutning kammerdjassverksins Samstæðna
eftir Gunnar Reyni Sveinsson á Listahátíð 1970 og hina
klassísku Jazzmiðlaupptöku í útvarpssal 1976.
Áhrif frá Lester Young
Hér hefur fyrst og fremst verið fjallað um árin frá því að
Gunnar Ormslev kom til Íslands og þar til hann hélt til
Svíþjóðar og brugðið upp mynd af því hvernig sam-
tímamenn fjölluðu um saxófónleik hans. Saga Gunnars er
saga einstaklings sem hafði allt til þess að bera að verða
einn af fremstu djassleikurum Evrópu, en margskonar
samspil persónugerðar hans og umhverfis komu í veg
fyrir slíkt. Hann hefði eflaust átt betra gengi að fagna í
tónlistinni hefði hann aldrei flust til Íslands, en þá hefðu
Íslendingar líka farið á mis við hina mögnuðu hæfileika
hans, sem öðru fremur lyftu íslenskum djassi í listrænar
hæðir á árunum frá stríðslokum framundir 1960. Það er
líka ómögulegt að segja hver hefði orðið þróun hans hefði
hann lifað hina miklu endurreisn íslensks djass á árunum
um og eftir 1980. Hann lést úr eitlakrabba aðeins 53 ára,
en var þá farinn að kenna við Tónlistarskóla FÍH og
stjórnaði djasssveit Hornaflokks Kópavogs. Hann hafði
unun af kennslunni og að umgangast hina ungu hljóð-
færaleikara og ekki er ótrúlegt að hann hefði gengið í
endurnýjun lífdaganna sem djassleikari hefði honum
enst aldur; líkt og Jón Páll Bjarnason hefur gert eftir að
hann sneri aftur heim til Íslands.
Sagan um vonda tóninn hans Ormslevs á tvímælalaust
rætur til þess að rekja að hann varð fyrir miklum áhrif-
um frá Lester Young, en titurlítill tónn Lesters, sem var
veikburða miðað við hinn volduga saxófóntón Colemans
Hawkins, átti ekki upp á pallborðið hjá hinum almenna
hlustanda á þessum árum. Lesteráhrifanna gætir ekki
jafnmikið á hljóðritunum hans með KK-sextettinum og
Birni R. Einarssyni og áhrifa frá Charlie Ventura og sér-
staklega Flip Phillips, sem tilheyrði Ben Webster-armi
Hawkinsskólans og var geysivinsæll á þessum árum sem
höfuðsaxisti stórsveitar Woodys Hermans, en ýmis lög af
efnisskrá Hermans voru leikin af KK og Birni. Þegar
Gunnar hljóðritaði eina lagið sem kom á hljómplötu undir
hans nafni meðan hann lifði: Frá Vermalandi (Ach Vär-
maland du sköna), snemma árs 1952, var greinilegt að
hann hafði sogið í sig útgáfu Stans Getz frá því 1951. Ég
dreg þó í efa að Metronome-upptökur Getz frá ’51 séu
þær fyrstu er Gunnar heyrði með honum, því hann átti
Prestige-upptökur hans frá 1949 á tíu tommu lp-plötu er
kom út 1951. En eitt er víst að Gunnar var aldrei samur
eftir að hann heyrði Getz. „Getz var minn maður,“ sagði
hann og bætti gjarnan við: „Og Basie-bandið og Frank
Foster.“ Gunnar var aldrei hreinræktaður bíboppari eins
og Jón Páll, enda tíu árum eldri og mótaðist er svingið
var ráðandi afl í djassinum, en hann var módernisti alla
ævi og tókst að móta eigin stíl, hvort sem var á tenórinn
eða altóinn sem hann blés oft í síðari hluta ævinnar.
Hafði öðruvísi tón
Í viðræðum við tvo frændur Gunnars og vini, píanistana
Hrafn Pálsson og Ólaf Stephensen, kom ýmislegt fram
um þá misvísun er m.a. má finna í sænsku dómunum um
Ormslev og hvers vegna alltaf var talað um slæma tóninn
er hann var að hefja ferilinn. Hrafn Pálsson segir:
„Ormslev var einstaklega mikill húmoristi og hermi-
kráka. Hann gat bókstaflega hermt eftir öllum. „Spilaðu
eins og Maggi Randrup“ bað maður, og hann gerði það.
Þess vegna er ekkert skrítið að hann skyldi bregða fyrir
sig hinum ýmsu stílbrigðum, en það gerðist nú sjaldan
eftir að hann heyrði Stan Getz. Það var hans maður.“ Og
um tóninn segir Ólafur: „Hann hafði ekki ljótan tón, það
er bölvuð vitleysa, en hann hafði öðruvísi tón; tón af Les-
terskólanum; tónn Gunnars var eins og maðurinn, blíður
og hæverskur.“
Vonandi verður hægt að fá tvöfalda Ormslev-diskinn
að nýju svo og fleira af því er hann hljóðritaði. Það er til
vansa hve við Íslendingar höfum sýnt fumherjum djass-
ins hér litla ræktarsemi.
maðurinn, blíður og hæverskur
» Saga Gunnars er saga einstaklings
sem hafði allt til þess að bera að
verða einn af fremstu djassleikurum
Evrópu, en margskonar samspil per-
sónugerðar hans og umhverfis komu í
veg fyrir slíkt. Hann hefði eflaust átt
betra gengi að fagna í tónlistinni hefði
hann aldrei flust til Íslands, en þá
hefðu Íslendingar líka farið á mis við
hina mögnuðu hæfileika hans, sem
öðru fremur lyftu íslenskum djassi í
listrænar hæðir á árunum frá stríðs-
lokum framundir 1960.
Höfundur er djassgagnrýnandi við Morgunblaðið.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 9
1928 Fæðist í Hellerup í Danmörku. Faðirinn danskur en móðirin
íslensk. Kynnist þar Arnvid Mayer og leika þeir saman í stráka-
bandi sem hljóðritaði tvö djasslög er þeir voru sextán.
1946 Heimsstyrjöldinni lýkur og Gunnar heldur til Íslands. Leik-
ur djass í Hafnarfirði og lærir til tannsmiðs.
1946 Leikur með GO-kvartettinum í Mjólkurstöðinni.
1947 Gengur til liðs við hljómsveit Björns R. Einarssonar, en
verður að hætta þar sem hann hefur ekki atvinnuleyfi.
1948 Gengur í Félag íslenskra hljóðfæraleikara og fer að spila
með KK-sextettinum. Upptökur með Gunnari og KK hafa varð-
veist.
1949 Gengur að nýju til liðs við Björn R. Þó nokkrar upptökur frá
þeim tíma hafa varðveist.
1952 Leikur sænska þjóðlagið Frá Vermalandi inn á 78 núninga
plötu snemma árs. Það eina sem kom út undir hans nafni meðan
hann lifði. Leikur á frægum tónleikum með Bretanum Ronnie
Scott – helsta tenórsaxófónleikara Evrópu – síðsumars.
1955 Er ráðinn til vinsælustu djass- og danshljómsveitar Svíþjóð-
ar er bassaleikarinn Simon Brehm stjórnar.
1957 Hljómsveit hans ásamt söngvaranum Hauki Morthens fer á
Heimsmót lýðræðissinnaðrar æsku í Moskvu. Vinnur gull-
verðlaunin fyrir djassleik.
1970 Leikur á Listahátíð í hljómsveit undir stjórn Gunnars Reynis
Sveinssonar verk hljómsveitarstjórans, Samstæður. Jazzvakning
gaf verkið út á hljómplötu.
1976 Gunnar hljóðritar með Jazzmiðlum eitt besta útvarpspró-
gramm íslenskrar djasssögu.
1981 Gunnar Ormslev deyr í Reykjavík aðeins 53 ára gamall.
1983 Jazzvakning gefur út tvöfalda breiðskífu með úrvali verka
Gunnars. Endurhljóðblönduð og gefin út með auknu efni á geisla-
diski 1996. Uppseld.
Nokkur ártöl á ferli
Gunnar Ormslevs