Morgunblaðið - 21.01.2008, Side 6
6 MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
F
jöldi útkalla í desem-
bermánuði dró athyglina
svo um munar að hinu
gríðarlega álagi sem hef-
ur verið á starfsfólk
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins,
SHS, síðustu ár. Fjöldi slökkviútkalla
í desember sló met, var 278 en mest
áður 185 í maí 2006.
Stækkun höfuðborgarsvæðisins til
austurs og fjölgun íbúa eiga þátt í
metfjölda útkalla, jafnt sjúkra- sem
slökkvibifreiða, og þykir þörf fyrir að
bæta við slökkvistöð á svæðinu.
Fyrir eru stöðvar í Skógarhlíð, við
Tunguháls og í Skútahrauni, Hafn-
arfirði, að viðbættri stöðinni á
Reykjavíkurflugvelli. Stjórn SHS
samþykkti nýlega að fjórða stöðin
skyldi staðsett við Skarhólabraut í
Mosfellsbæ, að því gefnu að hægt
yrði að flytja stöðina við Tunguháls
niður á Stekkjarbakka, flutningurinn
er forsenda framkvæmdanna.
Kostnaður við nýju stöðvarnar er
gróflega áætlaður um 700 milljónir,
eða um 350 milljónir á stöð, auk
kostnaðar vegna tækjakaupa.
Stækkun höfuðborgarsvæðisins á
síðustu árum og ný hverfi á jöðrum
núverandi þjónustusvæða hafa reynt
mjög á getu SHS til að sinna útköll-
um innan viðmiðunarmarka.
Aksturstími er lykilþáttur í stað-
setningu slökkvistöðva og er viðmið
SHS að sjúkrabifreiðar í forgangi eitt
og tvö séu að hámarki sex mínútur á
áfangastað, að viðbættum tveimur
mín. til að taka á móti innhringingu,
greina þörfina, koma boðum áfram
og komast í bílinn.
Með forgangi eitt og tvö í sjúkra-
flutningum er átt við sjúkraflutninga
þegar um er að ræða alvarlegt slys
eða sjúkdóma sem „ógna lífsnauð-
synlegri líkamsstarfsemi“. Flokkun-
in í eldsútköllum er í stuttu máli
þannig að ef lífi, eignum eða umhverfi
er ógnað er þau sett í 1. og 2. flokk.
Reynt á ýtrustu þolmörk SHS
Staðsetning slökkvistöðva er því
hugsuð út frá því hversu langan tíma
tekur að sinna útköllum og eins og sjá
má af töflunni hér til hliðar getur fyr-
irhuguð stöð í Stekkjarbakka haft
stærsta þjónustusvæðið, sinnt um
100.000 manns.
Markmið SHS er að ná viðbragðs-
tíma slökkvibifreiða niður í átta mín-
útur í að minnsta kosti 90% tilvika.
Sama markmið kemur fram í
kröfulýsingu heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins frá árinu
2006, en þar segir að beiðni skuli
sinna í 90% tilvika innan 8 mínútna í
þéttbýli en 20 mín. í dreifbýli, þegar
um er að ræða forgang eitt og tvö.
Eins og fyrr segir hefur útþensla
byggðarinnar á höfuðborgarsvæðinu
valdið því að ofangreind tímamark-
mið nást í mörgum tilfellum ekki og
er þá fyrst og fremst um að ræða
austasta hluta byggðarinnar og
hverfi í Mosfellsbæ þar sem reyndin
er þveröfug við markmiðin, sjúkra-
útköll voru árið 2006 í yfir 90% tilvika
yfir tímamarkmiðunum.
Tekið skal fram að Mosfellsbær
kemur langverst út af sveitarfélög-
unum á höfuðborgarsvæðinu og til
samanburðar var hlutfall útkalla inn-
an viðmiðunarmarka í Garðabæ
nærri 80%, litlu hærra en í Hafnar-
firði og í Reykjavík, en rúmlega 40%
á Seltjarnarnesi.
Hver aukamínúta dýrkeypt
Til að setja þessa seinkun í sam-
hengi bendir Daði Þorsteinsson,
sviðsstjóri greiningarsviðs SHS, á að
skv. sænskum útreikningum kosti
hver aukamínúta samfélagið að með-
altali um 100.000 íslenskar krónur, á
hvert útkall slökkviliðs. Gengur Daði
út frá því að svipað eigi við um
sjúkrabíla, þótt tölur liggi ekki fyrir.
Slökkvistöðin við Tunguháls sinnir
Mosfellsbæ og er hinn langi við-
bragðstími m.a. rakinn til þess að hún
þykir óheppilega staðsett vegna
slæmrar tengingar við stofnæðar –
fyrirhuguð tenging hefur aldrei kom-
ist af teikniborðinu – að viðbættri
fjarlægðinni austur eftir. Þáttur veg-
tenginga í löngum aksturstíma stöðv-
arinnar á Tunguhálsi er ekkert eins-
dæmi. Hlutfall útkalla á
Seltjarnarnesi sem voru innan við-
miðunarmarka lækkaði á árunum
2004 til 2006, m.a. vegna mislægra
gatnamóta við Hringbraut og
Snorrabraut nærri Skógarhlíð.
Því eru uppi hugmyndir um að
flytja stöðina við Skógarhlíð niður að
Hringbraut, gegnt BSÍ, í því skyni að
stytta viðbragðstímann.
Fæli sú framkvæmd í sér samein-
ingu við stöðina á flugvellinum, skref
sem nokkur hagræðing er talin
mundu hljótast af.
Metfjöldi útkalla veldur miklu
álagi á starfsfólk sjúkra- og slökkvi-
bifreiða og sökum tímaskorts geta
margir ekki gefið sér tíma fyrir nauð-
synlegar æfingar, svo sem fyrir út-
köll í háhýsum, eða við aðrar erfiðar
aðstæður sem þarfnast undirbún-
ings.
Útköllum fyrir sjúkra- og slökkvi-
bifreiðar fjölgar stöðugt og er breytt
aldurssamsetning íbúa á höfuðborg-
arsvæðinu talin einn orsakaþátta,
þ.e. eldra fólki fjölgar ört.
Svo kann það að vera þáttur að um-
ferðin þyngist ár frá ári.
Gríðarlegt álag hefur verið á starfsfólki Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, SHS, undanfarin ár. Baldur Arnar-
son kynnti sér skýrslur SHS um aukinn fjölda útkalla og þörfina fyrir nýja stöð á ört vaxandi íbúasvæði.
Þörf fyrir nýja slökkvistöð
Í HNOTSKURN
»Svar- og boðunartíminn er sásami fyrir sjúkra- og slökkvi-
bifreiðar (2 mín.), heildarvið-
bragðstíminn fyrir slökkvibíla er
hins vegar tíu mínútur.
»Að sögn Daða Þorsteins-sonar, sviðsstjóra greining-
arsviðs hjá SHS, gerir fjöldi
hringtorga í austurhverfunum
slökkvibifreiðum erfitt um vik.
Dreifing Eins og sjá má af kortinu miðar staðsetning stöðva að sem bestri álagsdreifingu með tilliti til aksturstíma.
Aksturstími Stöðin í Stekkjarbakka mun þjóna flestum. Staðsetning í
Hvarfahverfi og við Vesturlandsveg hefur verið tekin til athugunar.
!"#$###
!##$###
%#$###
#$###
&#$###
"#$###
#
!
"#!
"$!
"%!
Aukning Sjúkraútköllum fjölgar.
"'$###
"#$###
!'$###
!#$###
'$###
#
&
!
'(()'((*
'(() '((+ '(($ '((*
!(
$"
##
!(
$)
(
!(
$
#(
"#
$)
*'
"!
$&
**
""
$%
%&
")
$*
""
baldura@mbl.is
FORSETI Ís-
lands, Ólafur
Ragnar Gríms-
son, mun í þess-
ari viku taka þátt
í heimsráðstefnu
um framtíð orku-
mála sem haldin
er í Abu Dhabi í
Sameinuðu arab-
ísku furstadæm-
unum. Hann
mun því næst
fara í opinbera heimsókn til Katar.
Verður þetta í fyrsta sinn sem for-
seti Íslands fer í opinbera heimsókn
til ríkis í arabaheiminum. Össur
Skarphéðinsson iðnaðarráðherra
verður með í för auk embættis-
manna frá iðnaðarráðuneyti, utan-
ríkisráðuneyti og forsetaembætt-
inu og fjölmargir fulltrúar ís-
lenskra fyrirtækja.
Ráðstefnan er hin fyrsta sinnar
tegundar en í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum er nú lögð rík
áhersla á að efla alþjóðlega sam-
vinnu um framtíð orkumála.
Forseti í
fyrsta sinn til
arabaheimsins
Ólafur Ragnar
Grímsson
„VIÐ ERUM komnir upp í 65 sjúkraútköll á dag
að jafnaði og sumir á vaktinni eru þannig að þeir
hafa engan tíma til að æfa núna. Ef þeir eru sett-
ir á vissa sjúkrabíla eru þeir í útköllum allan dag-
inn og hafa í raun engan tíma til að sinna slökkvi-
liðshliðinni, að viðhalda kunnáttunni þar,“ segir
Daði Þorsteinsson, sviðsstjóri greiningarsviðs
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, SHS, um álag-
ið í stéttinni. Meirihluti starfsmanna SHS hefur
menntun til að sinna bæði slökkvistörfum og
sjúkraflutningum og er menntunin bundin í
reglugerð, að því er kemur fram á vefsíðu SHS.
„Þeir geta þá komið verr undirbúnir en æski-
legt er í vissar tegundir af útköllum. Þá á ég
meðal annars við útköll sem þarf sjaldan að fara
í, á borð við í háhýsum og önnur slík flókin útköll.
Ef þeir geta ekki æft þessa
hluti geta liðið nokkur ár milli
þess að þeir fái að æfa hand-
tökin, og þá við raunveruleg
útköll.“
Að sögn Daða var slegið met
í desember í fjölda útkalla
slökkvibifreiða, þau voru þá
278, alls 93 fleiri en í maí 2005,
sem var áður metmánuðurinn.
Útköllum sjúkrabifreiða hefur
stöðugt fjölgað og var árið 2006 metár í því sam-
hengi, þá var fjöldinn 22.884, en 19.200 árið 2001.
Árið 2007 fer yfir 23.700 en yfirferð gagna er enn
ólokið.
Veðurfarið í desember er talið ein helsta orsök
útkallafjöldans hjá slökkviliðinu og segir Björn
Gíslason, framkvæmdastjóri SHS fasteigna, að ef
veðurmynstrið breytist í þá veru að lægðir verði
jafn tíðar og djúpar megi vænta frekari aukn-
ingar í fjölda útkalla.
Háannatíminn byrjar upp úr hádegi
Árið 2006 voru alls 1.422 eldsútköll hjá SHS í
þéttbýli en til samanburðar var hann 1.246 árið
2005, 1.142 2004 og 1.084 árið 2003.
Háannatími eldsútkalla byrjar upp úr hádegi
en nær svo hámarki við lok vinnudags og minnk-
ar svo eftir því sem líður á kvöldið. Það er þó ekki
fyrr en eftir miðnætti sem tíðnin lækkar að ráði,
eins og kemur fram í skýrslu Margrétar Maríu
Leifsdóttur um tölfræði útkalla hjá SHS 2006.
Hafa engan tíma fyrir æfingarnar
Daði Þorsteinsson
ELDUR kom upp í fjallaskála við
Tjaldafell, norðan við Skjaldbreið, í
fyrrinótt. Ingi Rafnar Júlíusson,
einn eigenda skálans, sagði í samtali
við Morgunblaðið að kviknað hefði í
út frá kamínu í skálanum, en ekki
hefði eldurinn verið mikill. „Reyk-
skynjari í skálanum lét í sér heyra
áður en reykurinn varð sýnilegur
og hófum við strax að slökkva eld-
inn.“ Nauðsynlegt reyndist að rífa
hluta þils úr vegg og lofti til að kom-
ast að eldinum, en það hefði gengið
vel, enda skálinn vel búinn slökkvi-
tækjum og öðrum öryggisbúnaði.
Engin slys urðu á fólki vegna
eldsins, en Ingi segist ekki vita
hvert umfang tjóns sé að svo
stöddu.
Kviknaði í
fjallaskála
BJÖRN Bjarnason, dómsmálaráð-
herra og formaður Þingvallanefnd-
ar, segir á heimasíðu sinni að frá
því hann tók við formennsku í
nefndinni árið 1992 hafi ekki verið
rætt hvort taka ætti nýja gröf í
þjóðargrafreitnum. Þegjandi sam-
komulag ríki um að hann fái að
hvíla í friði. Stuðningshópur Bobb-
ys Fischers hefur komið fram með
þá hugmynd að Fischer verði bor-
inn til grafar í þjóðargrafreitnum.
Samkomulag
um reitinn
Árvakur/RAX
Grafreitur Sumir vilja grafa Fisch-
er í grafreitnum á Þingvöllum.