Morgunblaðið - 21.01.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.01.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2008 13 MENNING BLÚSHÁTÍÐ í Reykjavík verður haldin í fimmta sinn dagana 18. til 21. mars nk. Umsóknarfrestur ungliða til að koma fram á há- tíðinni stendur nú yfir og rennur út 1. febrúar. Fyrir þann tíma þarf að skila umsóknum með ferilsskrá flytjenda, myndum og öðru ítarefni til Blúshátíðar á net- fangið bluesfest@blues.is. Nánari upplýsingar er að finna á vefnum blues.is. Umsóknir á blúshátíð VERÐLAUN í árlegri ljóða- samkeppni á vegum lista- og menningarráðs Kópavogs sem ber heitið Ljóðstafur Jóns úr Vör verða veitt í kvöld. Verð- launaafhendingin fer fram í Salnum og hefst kl. 20 og verð- ur ýmislegt gert til hátíða- brigða og ljóð bæði lesin og sungin. Þátttakendur skiluðu verkum sínum undir dulnefni og fær sigurvegarinn vegleg peningaverðlaun og verðlaunagripinn, Ljóðstaf Jóns úr Vör, áletraðan með nafni sínu til varð- veislu í eitt ár auk eignargrips. Að þessu sinni bárust rúmlega tvö hundruð og fimmtíu ljóð í keppnina. Aðgangur í kvöld er ókeypis. Ljóðlist Ljóðstafur Jóns úr Vör afhentur Jón úr Vör NÝÁRSTÓNLEIKAR Tríós Reykjavíkur verða endur- teknir í Hafnarborg í Hafn- arfirði í kvöld, en með tríóinu koma fram þau Sigrún Hjálm- týsdóttir, Diddú, og Bergþór Pálsson. Fimmeykið mun fara með tónleikagesti víða um Evr- ópu og einnig til Bandaríkj- anna. Meðal viðkomustaða verða Ítalía, Írland og Ung- verjaland. Vínartónlistin verð- ur á sínum stað, að sjálfu höfuðtónskáldi borg- arinnar ógleymdu, Mozart. Umfram allt eru þetta tónleikar til þess að koma öllum í létt og gott skap í upphafi nýs árs. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og nánari upplýsingar eru á hafnarborg.is. Tónlist Aukatónleikar Tríós Reykjavíkur Diddú MYNDLISTARMAÐURINN Huginn Þór Arason heldur fyr- irlestur um eigin verk á opnum fyrirlestri myndlistardeildar Listaháskóla Íslands í dag. Fyrirlesturinn hefst kl. 12.30 og verður hann í húsnæði myndlistardeildar LHÍ, stofu 024, Laugarnesvegi 91 í Reykjavík. Huginn mun kynna og fjalla um einstök verk og samvinnuverkefni, verk sem eru í vinnslu og jafnvel verk og hugmyndir sem ekki urðu að veruleika. Í myndlist sinni fæst Hug- inn við fjölbreytta efnisnotkun og ýmsa miðla. Sem dæmi hefur hann gert gjörninga, málverk og skúlptúra úr pitsum, barnaleir og bómull. Myndlist Huginn Þór fjallar um eigin verk Huginn Þór Arason starfaði sem stjórnmálamaður sagði ég alltaf að stjórnmálin væru áhuga- málið en nú hef ég einbeitt mér að myndlistinni á fullu. Stjórn- málavafstrið sogar í sig mjög mik- inn tíma.“ – Þú hefur ekki litið á þing- mennskuna sem listræna uppá- komu? „Jú, þetta var auðvitað hluti af myndlistinni eins og allt sem ég geri,“ segir hann og hlær. Segir síð- an meira af þeim sýningum sem eru á döfinni. „Ég tek þátt í sýningu sem Hannes Sigurðsson er að skipuleggja fyrir Listasafnið á Ak- ureyri og opnuð verður í mars. Bæ, bæ Ísland heitir hún og er gagn- rýnin sýn á íslenskt þjóðfélag; fjár- málaheiminn, umhverfismálin og allan pakkann. Þá hef ég verið að undirbúa stórt verkefni, sýningu sem verður í Listasafni Reykjavíkur í nóvember. Ég sýni í Nýlistasafninu í ágúst og í Króatíu í sumar, síðan er samsýning í Berlín í haust. Þetta eru átta hlut- ir, það er ágætt.“ – Þú starfrækir fyrirbærið Kunstraum Wohnraum, eins konar heimagallerí. „Við Kristín höfum starfrækt þetta á heimilinu allar götur frá árinu 1994. Fyrirmyndin var Gallerí Gangur, sem Helgi Þorgils hefur starfrækt lengi, og löngun til að gefa öðrum myndlistarmönnum Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is HLYNUR Hallsson, myndlistar- maður á Akureyri, hefur í mörgu að snúast. Eftir að hafa dottið reglu- lega inn á Alþingi í fyrra sem vara- þingmaður Vinstri grænna, ákvað hann að segja skilið við stjórnmálin og einbeita sér að listinni. Hann kennir þessa dagana við Myndlist- arskólann á Akureyri og undirbýr sýningar ársins; hann tekur þátt í átta sýningum og svo er bók á leið- inni. Hann hefur sýnt víða á síðustu árum. „Jú, ég hef víða komið við og næsta sýning verður senn opnuð í nútímalistasafninu í Sjanghæ. Það er síðari hluti sýningar sem var í Póllandi í fyrra. Þeir bjóða mér út en ég kemst sennilega ekki, því kon- an mín, Kristín Þóra Kjartansdóttir, er að vinna að fræðunum í Berlín og miðbarnið okkar er með henni, og ég hér heima með litluna og ung- linginn. Við erum ennþá með litlu tána í Þýskalandi eftir að hafa búið þar í mörg ár.“ Átta sýningar á döfinni Hlynur segir að í sumar ljúki tveggja ára tímabili sem hann hefur verið á starfslaunum. „Það hefur verið frábært, launin hafa nýst mjög vel og svo ákvað ég að draga mig al- veg út úr pólitík. Þann tíma sem ég tækifæri til að sýna ekki bara í hvít- um kassa sýningarsalarins. Hér eru verkin sett í heimilisaðstæður sem er mikil áskorun fyrir marga. Hann Joris Rademaker sýnir hér hjá okk- ur núna og verkin hans teygja sig yfir stofuna og eldhúsið og aðeins fram á gang. Ragnar Kjartansson sýnir í mars og þýskur myndlist- armaður, Alexander Steig, í júní.“ – Þú notar líka sjálfan þig og fjöl- skylduna mikið í listinni. „Já, fjölskyldan er oft mjög inn- vikluð í myndlistina. Ég skoða oft áhugaverða hluti í hversdagslífinu. Ég hef verið gagnrýndur fyrir að nota börnin mín í ljósmyndaverkum en meðan þeim finnst þetta í lagi held ég áfram. En ég spyr hvað þeim finnist um að ég noti tilteknar myndir og hvað þeim finnist um ákveðna texta; yfirleitt er það í lagi. Í apríl kemur síðan út bók með seríu sem heitir Myndir-Bilder- Pictures með myndum úr hvers- dagslífi okkar og textum.“ Einangraðir frá Reykjavík – Hvernig er að vera listamaður á Akureyri? „Það er ágætt. Þetta er auðvitað nokkuð lítill heimur en nálægðin er líka skemmtileg. Miðað við stærð bæjarins er ótrúlega mikið að ger- ast hérna. Á laugardaginn voru til að mynda opnaðar sjö sýningar hér. Það eru svo mörg listamannarekin gallerí.“ – Þú færð ekki innilokunarkennd við að koma frá Berlín til Akureyr- ar? „Alls ekki! Hins vegar finnst myndlistarmönnum á Akureyri þeir stundum vera nokkuð einangraðir frá Reykjavíkursvæðinu. Það er nú bara svoleiðis en um næstu helgi stendur samt til að stofna hér sam- tök myndlistarmanna á Norður- landi. Hátt í 30 mættu á undirbún- ingsfundinn. Þetta á að virka eins og önnur félög sem eiga aðild að SÍM, hagsmunasamtök opin öllum myndlistarmönnum, þótt augljóst megi vera að flestir félagar verði á Norðurlandi.“ – Í myndlistinni ertu eins konar aktivisti. Þú vaktir reiði margra með textaverki í Texas og gerðir veggverk hér þar sem þú talaðir um álið. „Jú, og ég lít líka á myndlistina sem tæki til að velta við hlutum. Ef manni liggur eitthvað á hjarta vil ég að það komi fram, þótt ég vilji ekki prédika í myndlistinni. Það er ágætt að gera það í stjórnmálunum.“ Myndlistin er tæki til að velta við hlutum Hlynur Hallsson sagði skilið við stjórn- málin og einbeitir sér að myndlistinni Árvakur/Skapti Hallgrímsson Í heimagalleríinu „Ef manni liggur eitthvað á hjarta vil ég að það komi fram, þótt ég vilji ekki prédika í myndlist- inni,“ segir Hlynur Hallsson myndlistarmaður. Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „HÚN er búin að vinna að þessari bók í fimm ár og ég nota hana núna eins og handbók á vinnustofunni minni, ef ég man til dæmis ekki hvaða ár eitthvað gerðist,“ segir listamað- urinn Erró um bókina Erró í tímaröð – líf hans og list sem kom út fyrir skömmu, en höfundur hennar er Danielle Kvaran listfræðingur. Þau Erró og Danielle stóðu í ströngu við að árita bókina um helgina, en hverri keyptri bók fylgdi nýtt grafíkverk eftir Erró. Erró kom hingað til lands á föstu- daginn, en hann er búsettur í Frakk- landi. „Ég bý í París, en svo fer ég í húsið mitt á Spáni yfir sumartímann, og svo fer ég alltaf til Taílands öðru hverju til þess að vinna vatns- litamyndir,“ segir listamaðurinn sem er hins vegar nýkominn frá Kína þar sem hann var með þrjár sýningar, eina í Sjanghæ og tvær í Peking. „Ég ætlaði nú að sýna hringferð Maó Tse- tung í kringum hnöttinn sem ég gerði á árunum 1972 til 1974 en þær mynd- ir máttu ekki fara inn til Kína þannig að ég varð að skipta um myndir á síð- ustu stundu. Það var ekki auðvelt, en reddaðist samt allt saman.“ Erró er þekktur fyrir að vera mjög afkastamikill listamaður, og að- spurður segist hann vera það enn. „Ég þarf að fara af stað aftur fljót- lega, ég er búinn að vera stopp í tvo eða þrjá mánuði út af þessum ferða- lögum. Ég er með nokkrar syrpur í bígerð, þannig að ég er ekkert að fara að hætta. Ég á vini sem fóru á eft- irlaun 60 eða 65 ára gamlir, en ég er ekki þannig,“ segir Erró sem er sjálf- ur 75 ára. Annars er það að frétta af Erró að nýverið seldist verk eftir hann á Christie’s-uppboðinu í París á 1,3 milljónir dollara, sem nemur um 85 milljónum króna. Verkið heitir Com- icscape og er frá árinu 1970. „Síminn hefur ekki stoppað, nú eru allir að reyna að ná í myndir, þetta er eintóm vitleysa,“ segir Erró og hlær. „Ég seldi þessa mynd fyrir 8.000 dollara á sínum tíma þannig að það hefur ein- hver náð sér í góðan pening þarna á milli.“ Hvað næstu verkefni varðar segir Erró að hæst beri sýningu í Kanada. „Það verður stór sýning á pólitískum myndum í apríl í næsta ári í Montreal. Ef allt gengur vel verður Yoko Ono með og sýningin verður kölluð Stríð og friður, og ég sé um stríðið og hún um friðinn.“ Loks má geta þess að Erró veitti styrk úr sjóði Guðmundu S. Krist- insdóttur, móðursystur sinnar, á laugardaginn, en sjóðnum er ætlað að efla og styrkja listsköpun kvenna. Það var Hulda Stefánsdóttir sem hlaut styrkinn að þessu sinni. Árvakur/Frikki Erró Ef allt gengur að óskum sýnir hann verk ásamt Yoko Ono í Kanada á næsta ári, þar sem hann sér um stríðið en Yoko um friðinn. Verk Errós seldist á 85 milljónir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.