Morgunblaðið - 21.01.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.01.2008, Blaðsíða 15
|mánudagur|21. 1. 2008| mbl.is daglegtlíf É g er mætt!“ sagði Elísa- bet Sveinsdóttir á landsmótinu á Hellu árið 2004, fyrsta árið sem hún keppti á hest- um. Elísabet, sem er jafnan kölluð Beta, er kennari í Hörðuvallaskóla í Kópavogi og kunn keppnis- manneskja sem státar af Íslands- og bikarmeistaratitli í fótbolta með Breiðabliki og sömu titlum sem skytta í handbolta með Víkingi. „Þá vann ég allt og þú getur rétt ímynd- að þér hvernig þetta var þegar ég skipti um gír,“ segir Beta með húm- orískum hætti. Hún „datt“ inn á landsmót sem varahestur, með Prins frá Hafnarfirði, „hest sem enginn bjóst neitt við af. Ég var í holli með Sigurði Sigurðarsyni og Sigurði Matthíassyni, Skugga-Baldur var fyrir aftan mig á meðan ég var bara að reyna halda mínum á brokki. En Prins sýndi allar sínar bestu hliðar og fólk hvatti mig áfram því það sá hvað mér þótti þetta gaman; að leggja þarna fyrir framan áhorf- endabrekkuna …En það gekk ekki neitt!“ segir Beta – en það er ekki svo lítið í augum annarra. „Það er ekki hægt að vera bara með,“ út- skýrir hún og bætir við að margir hafi minnt sig á að hún þurfi ekki að fara heim með allar dollurnar eins og í fótbolta … „Þegar ég tek þátt ætla ég í úrslit! En í hestamennsku þarf maður að temja sér annað viðhorf. Auðvitað missir maður sig kannski aðeins í brekkunni sem foreldri.“ Keppnisskap er sennilega ætt- gengt. Þegar eldri dóttir Betu, hin 13 ára Steinunn Elva, er að keppa segir hún mömmu sína geta verið svolítið „erfiða en hún kann samt að hemja sig“. Beta tekur kankvís und- ir: „Um leið og krakkarnir eru komnir inn fyrir hvítu girðinguna getum við ekkert gert meir.“ Einu gildi hvort þetta sé hvít lína eða girð- ing. „Pabbi var óþolandi á línunni hjá mér í fótboltanum. Ég gekk einu sinni til hans í miðjum leik og sagði að ég væri að spila en ekki hann,“ minnist Beta en Sveinn Skúlason, faðir hennar, er gamalkunnur mark- vörður Blika. „Maður upplifir auð- vitað keppnina í gegnum börnin, og ég vil að Steinunn uppskeri eins og hún sáir. Í hestamennsku ganga hlutirnir stundum upp, stundum ekki. Þú ert með lifandi skepnu í höndunum.“ Er þetta meðganga? Beta á þrjú börn, Þórð Pétur 2 ára, Írisi Emblu 7 ára og fyrrnefnda Steinunni Jónsbörn. „Þau fara öll á bak árið sem þau verða tveggja ára. Strákurinn tók þátt í Æskunni og hestinum sl. vetur, ekki orðinn tveggja ára,“ tjáir hún blaðamanni skellihlæjandi. Móðir hennar, Stein- unn Pétursdóttir, segir vissulega miklar líkur á að ungi maðurinn verði hestamaður. Beta heldur áfram: „Ég átti hann í maí, reið út til loka febrúar og var komin í hnakk- inn viku eftir að ég átti – og á mót í byrjun júní! Á síðustu mánuðum meðgöngunnar vann ég með klárana í hendi og þá kom til mín maður og sagði: „Beta mín, er þetta með- ganga?““ Hlátrasköll glymja í hús- inu þrátt fyrir grenjandi rigningu á gluggum. Fjölskyldan keypti hesthús í Fjár- borg í Reykjavík fyrir nokkrum ár- um og í vetur tóku þau hrossin inn snemma, í nóvember, vegna hold- hnjóska sem leggjast á hross í blautu tíðarfari, og gat loks eftir áramót farið á bak. „Hrossin eru eins og púðurtunnur þegar maður fer í fyrsta sinn,“ segir Beta hlæjandi. Öll hafa þau stundað hestamennsku frá barnæsku, nema Sveinn sem fylgdi konunni sinni eftir. „Þetta er áhuga- mál sem tekur allan tíma,“ segir Steinunn eldri, sem finnst hesta- mennskan alltaf jafnskemmtileg. Fjölskyldan er öllum stundum í hesthúsinu og hefur komið sér ein- staklega vel fyrir. Þau segja þetta í raun eins konar sumarbústað, þar eldi þau sér oft mat og jafnvel grilli á vorin. Yngri dóttir Betu er líka farin að keppa á hestum og Beta sjálf segist taka þátt í einstaka móti. Vel hefur gengið, t.d. var hún efst í sínum flokki í kvennatölti Gusts í fyrra, vann fyrst B-úrslit og síðan bráða- bana. „Ég var á Pendúl sem er und- an Sveini-Hervari frá Þúfu. – Svo er Steinunn, dóttir mín, með keppn- ishestinn Lykkju undan Baldri frá Bakka og keppti á honum í barna- flokki á síðasta landsmóti á Vind- heimamelum.“ Þau rækta hross sér til skemmt- unar og fá folald annað hvert ár. Sveinn segir þau hafa notað hryssu undan Ófeigi frá Flugumýri og þau hafi líka ræktað undan þægri hryssu en hún drapst með fyli undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum „áður en hann varð frægur. Það var frekar fúlt!“ segir Beta. Steinunn yngri er ein fárra sem hefur lokið fimmta stigi í knapa- merkjum og fær þá einkunn hjá fjöl- skyldunni að vera mjög klár. Í tamn- ingum leiti þau hin til hennar og ef þau vilji sjá hest undir manni sé hún beðin að fara á bak. „Hún hefur farið á námskeiðin, við erum bara að ríða út,“ upplýsir Sveinn. Hvert skyldi hún svo stefna? „Á landsmót í sum- ar!“ svarar Steinunn. „Við sjáum til hvort við verðum með hest fyrir okk- ur báðar,“ segir Beta. Íris Embla vill nú komast að en henni finnst skemmtilegast að fara í reiðtúr og kemba. „Ég hef alltaf verið í öðru sæti, bara einu sinni í fyrsta sæti,“ segir Íris og bendir á glæsta mynd af sér á veggnum í kaffistofunni, sem er eiginlega eins og lítil íbúð. Mamma hennar upplýsir að hún hafi fengið glimmergel í skóinn og fax hestanna hafi glitrað eins og jólatré yfir hátíðirnar. Búkolla og mófugl í borg Þrátt fyrir glaðværð er fjöl- skyldan ekki hress með tíðina í vet- ur, ekki það að Fjárborg standi hærra en hesthúsin í Andvara í Garðabæ, þar sem þau voru áður. Verið er að byggja upp nýtt hverfi út frá gömlu húsunum og miklar fram- kvæmdir í gangi. „Það er æðislegt hérna og við notum heiðina mjög mikið,“ segir Steinunn eldri. Útreið- arleiðirnar eru að sögn mun „nátt- úrulegri“ en víða annars staðar. „Við erum náttúrlega fyrst og fremst út- reiðarfólk, keppnin er bara svona aukabúgrein,“ segir Steinunn. Vissulega sé líka stutt á völlinn í Víðidal. Sveinn hefur líka sitthvað að segja um umhverfisþáttinn í hesta- mennsku og kveður hestana í And- vara ekkert hrædda við búkollur og gröfur. „En ef það flýgur upp mófugl stökkva þeir til. Hestarnir hérna þekkja mófuglana.“ Beta segir vandamál reyndar koma upp á svæð- inu á vorin þegar vélhjólamenn vakni. Fjölskyldan í Fjárborg þekkir ekkert annað en þessa miklu sam- vinnu í notalegu hesthúsinu. „Þetta væri nánast ekki hægt nema allir væru í þessu,“ segir Steinunn eldri en hún ásamt Sveini sér að mestu um gegningarnar. Það reynir stund- um á að allt gangi upp, t.d. í fyrra- vetur þegar Beta keyrði stelpurnar sínar tvisvar í viku á námskeið upp í Andvara, þá var hestakerran aftan í bílnum meira eða minna. Þótt Beta sé ýmsum hnútum kunnug í hestamennsku hefur hún ekki reynt hestaferðir. Ófáir eru þó sleppitúrarnir orðnir en líka af- skaplega fyrirsjáanlegir – bæði hjá hestunum og Betu. Foreldrar henn- ar hafa hins vegar ferðast á hestum víða um landið. „Ég set stefnuna ótrauð á hestaferð í sumar. Það er svo gaman að eiga eitthvað eftir og mamma á eftir að fara inn í hvítu girðinguna fínu …“ segir Beta ljóm- andi af stríðni en Steinunn tekur dræmt í hugmyndina. Beta, sem á samleið með atviksorðinu súper, er hins vegar ansi líkleg til að landa „dollum“ innan hvaða hvítu keppn- islína sem er. thuridur@mbl.is Í Fjárborg Lykkja og Röðull í félagsskap Betu og barnanna sem hafa fengið hestamennskuna í arf, snemma á lífsleiðinni lærðu þau að fara á bak – og það með glöðu geði! Lengi býr … Þórður Pétur, hér í fangi ömmu sinnar, var mættur í barnavagni á Reykjavíkur- meistaramót tíu daga gamall og tók þátt í hestasýningu áður en hann varð tveggja ára. Árvakur/Frikki Keppnisskap „Það er ekki hægt að vera bara með,“ segir Beta sem stefnir alltaf á úrslit; í fótbolta, handbolta, hestamennsku … Pendúll undan Orra- syninum Sveini-Hervari er keppnishestur hennar. Að ganga með hrossi Súperhestamaðurinn Beta kallar ekki allt ömmu sína enda vill keppnismanneskjan Elísabet Sveinsdóttir ekkert miðjumoð. Þuríður Magnúsína Björnsdóttir heimsótti í Fjárborg fjölskyldu sem er samhent í hestunum. Annað heimili Fjölskyldan í kaffistofunni í hesthúsinu þar sem allt er til alls. F.v. Sveinn Skúlason, Elísabet Sveinsdóttir, Þórður Pétur Jónsson, Steinunn Pétursdóttir, Íris Embla Jónsdóttir og Steinunn Elva Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.